Morgunblaðið - 18.05.2006, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 18. MAÍ 2006 25
DAGLEGT LÍF
Með hækkandi sól lyftistbrúnin á lands-mönnum. Þeir vaknaúr vetrardvalanum,
taka til við vorverkin og grillin fá
pláss í garðinum. Flestir eru sam-
mála um að „grillmatur er góður …
gómsætt kjarnafóður“.
Umhverfisstofnun gefur sem fyrr
góð ráð við grillið en hlutverk stofn-
unarinnar er m.a. að stuðla að vel-
ferð almennings og heilnæmu um-
hverfi. Í bæklingi frá stofnuninni
kemur fram að mikilvægt er að
standa rétt að grillmatargerð.
Skurðarbretti fyrir grænmeti
Og til að koma í veg fyrir matar-
sýkingar eða aðra kvilla þurfi að
vanda til undirbúnings, meðhöndl-
unar hráefnis og framreiðslu.
Hreinlæti er mikilvægt, þ.e. að bæði
hendur og áhöld séu hrein. Þurrka á
blóðvökva frá kjöti með eldhúspapp-
ír og ekki láta blóðsafa úr hráu kjöti
berast í matvæli sem tilbúin eru til
neyslu. Nota á sérstakt skurðar-
bretti fyrir grænmeti og tvöfalt sett
áhalda, þ.e. annað fyrir hrátt kjöt,
hitt fyrir grillað. Krossmengun úr
hráu kjöti yfir í hrásalat getur haft
alvarlegar afleiðingar, eins og segir
í bæklingnum Góð ráð við grillið.
Sjúkdómsvaldandi örverur
Hamborgarar eru vinsælir á grill-
ið en gæta þarf varúðar þegar þeir
eru meðhöndlaðir, eins og bent er á
í bæklingnum. „Rétt er að gera ráð
fyrir að sjúkdómsvaldandi bakteríur
geti verið í kjöti. Á heilum kjöt-
stykkjum eru bakteríur fyrst og
fremst á yfirborði, þær drepast því
fljótt við grillun þótt kjöt sé ekki
gegnsteikt. En bakteríur dreifast
um allt kjötið þegar það er hakkað
og þess vegna er nauðsynlegt að
gegnsteikja hamborgara og aðra
rétti úr hakki. Til að drepa hugs-
anlegar sjúkdómsvaldandi örverur
er nauðsynlegt að grilla hamborg-
arana í gegn þannig að kjarna-
hitastig sé a.m.k. 75°C. Munið að ef
kjarnhiti í hamborgurum fer ekki
yfir 75°C eru alltaf líkur á að þeir
innihaldi sjúkdómsvaldandi örver-
ur!“
Vanda skal til verksins
Rétt er að gefa sér tíma við grillið
og vanda til verksins. Þegar kolag-
rill er notað má ekki grilla matinn
yfir logandi kolum heldur á að bíða
þar til loginn slokknar og kolin eru
orðin glóandi. Logar eiga ekki að
leika um matinn hvort sem um kola-
eða gasgrill er að ræða. Ef yfirborð
matarins brennur geta skaðleg og
jafnvel krabbameinsvaldandi efni
myndast og því á ekki að borða
brenndan mat. „Hægt er að forðast
að fita drjúpi niður á kolin með því
að setja álpappír undir matinn og
velja marineringu án olíu. Ef það
logar undir matnum er mikilvægt
að færa hann frá loganum,“ segir í
bæklingnum.
Vanda þarf handtökin við grillið
ÖRYGGI
Morgunblaðið/Golli
www.ust.is
Bónus
Gildir 18. maí–21. maí verð nú verð áður mælie. verð
Euroshopper snakk, 200 g.................... 98 109 490 kr. kg
Freschetta xxl pítsa + 1 ltr. kók .............. 499 699 499 kr. stk.
Ítalskur ís 400 ml fitusnauður ............... 359 0 897 kr. ltr
Bónus fetaostur, 250 g......................... 199 0 796 kr. kg
Bónus eldhúsrúllur xl 3 stk.................... 298 0 99 kr. stk.
Hvítlauksrif í kryddolíu, 250g ................ 179 0 716 kr. kg
IG grill lambarif .................................... 279 359 279 kr. kg
Ali grill svínakótilettur ........................... 1.189 1.528 1.189 kr. kg
Ali grill svínahnakki, úrbeinaður ............. 1.189 1.528 1.189 kr. kg
ES lakkrís 500 g, 2 teg. ........................ 98 198 196 kr. kg
Fjarðarkaup
Gildir 18. maí–20. maí verð nú verð áður mælie. verð
Svínalundir úr kjötborði ........................ 1.698 1.998 1.698 kr. kg
FK grill svínakótilettur ........................... 1.198 1.655 1.198 kr. kg
Ali mexico svínahnakki ......................... 1.274 1.698 1.274 kr. kg
Fjallalamb grillsagaður frampartur ......... 468 648 468 kr. kg
FK jurtakryddað lambalæri.................... 1.098 1.830 1.098 kr. kg
Piri piri læri/leggur frá Matfugli.............. 395 599 395 kr. kg
Maísstönglar, 8 stk............................... 248 398 31 kr. stk.
Frosnir kanilsnúðar, 2 fyrir 1.................. 298 596 620 kr. kg
Coke/light 500 ml ............................... 69 95 138 kr. ltr
Hagkaup
Gildir 19. maí–21. maí verð nú verð áður mælie. verð
New Orleans BBQ svínarif ..................... 1.239 1.549 1.239 kr. kg
Lambakótilettur úr kjötborði .................. 1.498 1.789 1.498 kr. kg
Lambafille m/fitu úr kjötborði ............... 2.898 3.398 2.898 kr. kg
Svínakótilettur m/beini úr kjötborði ....... 995 1.398 995 kr. kg
Fyrirtakspizza margarita ........................ 379 549 947 kr. kg
Fyrirtakspizza m/skinku og sveppum ..... 379 549 947 kr. kg
Fyrirtakspizza m/pepperoni .................. 379 549 947 kr. kg
Borgarnes lambagrillkótilettur kryddl...... 1.521 2173 1521 kr. kg
Borgarnes lambaframhryggsn. kryddl..... 1.398 1.998 1.398 kr. kg
Nautalundir innfluttar, frosnar ............... 2.387 3.979 2.387 kr. kg
Krónan
Gildir 18. maí–21. maí verð nú verð áður mælie. verð
Krónu grísaofnsteik .............................. 1.049 1.499 1.049 kr. kg
Krónu þurrkr. lambagrillsneiðar ............. 1.329 1.899 1.329 kr. kg
Nautalund frá Nýja-Sjálandi.................. 2.499 2.899 2499 kr. kg
Goða grísalundir .................................. 1.986 2.837 1.986 kr. kg
Gríms plokkfiskur 400 g ....................... 316 395 790 kr. kg
Gríms gratineruð ýsa m/brokkólí, 400 g. 316 395 790 kr. kg
Gríms gratineruð ýsa Mexíkó, 400 g....... 316 395 790 kr. kg
Gríms gratineruð ýsa m/papriku, 400 g . 319 395 790 kr. kg
Krónubrauð stórt og gróft, 770 g ........... 99 135 129 kr. kg
Krónuís jarðarb/súkkul/vanillu.............. 129 169 129 kr. ltr
Nóatún
Gildir 18. maí–21. maí verð nú verð áður mælie. verð
Lambafille m/fitu, fyllt.......................... 3.498 3.798 3.498 kr. kg
Lambakótilettur ................................... 1.398 1.798 1.398 kr. kg
Ungnautahamborgarar, 90 g................. 89 149 89 kr. stk.
Grísarifjur / Spare ribs.......................... 498 698 498 kr. kg
Gourmet grísakótilettur, léttreyktar......... 1.207 1.724 1.207 kr. kg
Papaya / sólaldin................................. 199 299 199 kr. kg
Vínber, rauð......................................... 249 379 249 kr. kg
Kirsuberjatómatar í boxi, 250 g............. 129 179 516 kr. kg
Paprika Ramiro.................................... 499 769 499 kr. kg
Göteborg Tapini saltkex, 150 g .............. 99 149 660 kr. kg
Samkaup/Úrval
Gildir 18. maí–21. maí verð nú verð áður mælie. verð
Gourmet lærisneiðar ............................ 1.722 2.460 1.722 kr. kg
Gourmet lambaframp.sn. ..................... 1.364 1.948 1.364 kr. kg
Goða kindabjúgu ................................. 485 693 485 kr. kg
BK grísakótilettur Mediterranean ........... 996 1.486 996 kr. kg
Borgarnesbjúgu ................................... 397 584 397 kr. kg
Parísar lifrarkæfa, 165 g....................... 149 244 903 kr. kg
Móa rauðvínsl. læri m/legg................... 419 599 419 kr. kg
Pepsi Max 2 ltr. .................................... 99 212 49 kr. ltr
Þín Verslun
Gildir 18. maí–24. maí verð nú verð áður mælie. verð
Grísahnakki úrb. m. indverskri marin...... 1.123 1.497 1.123 kr. kg
Lambabjúgu........................................ 339 452 339 kr. kg
Parísar lifrarkæfa, 165 g ....................... 189 253 1.145 kr. kg
Lambaframpartssneiðar, þurrkrydd. ....... 1.498 1.998 1.498 kr. stk.
Grísakótilettur Mediterranean................ 1.119 1.486 1.119 kr. kg
Franskar pylsur .................................... 709 943 709 kr. kg
Grillpylsur............................................ 779 1038 779 kr. kg
Hunts BBQ sósa, 3 teg., 612 g.............. 219 259 358 kr. kg
Svínakjöt á grillið og pítsu í ofninn
HELGARTILBOÐIN | neytendur@mbl.is
Morgunblaðið/Jim Smart
GÓÐ lungnastarfsemi minnkar
hættu á elliglöpum, að því er ný
sænsk rannsókn bendir til. Í Göte-
borgs-Posten kemur fram að 1.291
kona frá Gautaborg tók þátt í rann-
sókninni sem hófst árið 1974.
Þá voru konurnar miðaldra og
var lungnastarfsemin þá metin. Það
var aftur gert árið 1980 og svo
nokkrum sinnum til ársins 2000.
Rannsókninni lauk árið 2003. Í byrj-
un var lungnastarfsemi allra metin
eðlileg. Á 29 árum þróuðu 147 konur
með sér heilabilun eða elliglöp og
þar af 96 Alzheimer.
Góð lungnastarfsemi hjá miðaldra
konum var tengd við minni hættu á
að fá Alzheimer, skv. rannsókninni.
Því betri lungnastarfsemi, því minni
áhætta. Þær sem bættu lungna-
starfsemina eða þolið um 20% áttu á
sama tíma 25% síður á hættu að fá
Alzheimer. Kenningin er sú að síðri
súrefnisupptaka í lungum leiði til
síðri súrefnisflutnings til heilans
sem verður þá viðkvæmari fyrir
heilabilun. Dýratilraunir hafa stutt
þá kenningu og niðurstöður þess-
arar rannsóknar eru einnig í sam-
ræmi við þær rannsóknir sem sýna
fram á að hreyfing minnkar hættu á
heilabilun.
Eðlilega lungnastarfsemi er alltaf
hægt að bæta. Með líkamsrækt bæt-
ir maður þolið og þarna er komin
enn ein ástæðan til að hreyfa sig.
Dregur úr
hættu á
elliglöpum
HEILSA