Morgunblaðið - 18.05.2006, Blaðsíða 35

Morgunblaðið - 18.05.2006, Blaðsíða 35
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 18. MAÍ 2006 35 UMRÆÐAN Saab 3.290.000 kr. Klassi, öryggi, stíll! Sævarhöfða 2 Sími 525 8000 www.ih.is Opið: Mánudaga – föstudaga kl. 9.00 - 18.00 og laugardaga kl. 12.00 - 16.00 E N N E M M / S ÍA / N M 2 17 4 7 Saab 9-3 Sport Combi Linear, 2.0 lítra, 150 hestafla. Klassík á viðráðanlegu verði* Það er klassi yfir Saab 9-3 Sport Combi bílunum, enda á Saab sér áratugalanga sögu sem einn stílhreinasti og öruggasti bíll sem völ er á. Saab 9-3 er margverðlaunuð nýjung í klassíska Saab stílnum þar sem öryggi og mýkt í akstri er í fyrirrúmi. Stórkostleg hönnun, öflug vél og ríkulegur staðalbúnaður gera Saab 9-3 að byltingu í klassíska geiranum. *Og verðið er algert einsdæmi fyrir lúxusbíl í þessum gæðaflokki! UNDANFARIÐ hefur ríkisstjórnin lagt fram hvert frumvarpið á fætur öðru um einkavæðingu ríkisfyr- irtækja. Hefur Framsókn verið ötul við að leggja slík frumvörp fram og virðist svo sem sá flokkur sé orðinn kaþólskari en páfinn að því er varðar einkavæðingu. Samvinnuhugsjónin er gleymd og grafin. Nú síðast var lagt fram frumvarp um stofnun hlutafélags um rekstur ríkisútvarpsins. Framsókn hefur samþykkt það. Meira að segja Þorsteini Pálssyni, fyrrverandi for- manni Sjálfstæðisflokksins, ofbauð, þegar það mál var lagt fram. Hann sagði, að góð sátt hefði verið í þjóðfélaginu um út- varpið sem ríkisfyrirtæki og ekki ætti að rjúfa þá sátt með frumvarpi um að breyta útvarpinu í hlutafélag. En það er einmitt það sem ríkisstjórnin er að gera. Hún er að rjúfa sáttina um ríkisútvarpið. Rafmagn og vatn einkavætt! Fyrir skömmu lagði ríkisstjórnin (ráðherra Fram- sóknar) fram frumvarp um að stofna hlutafélag um rafmagnsveitur ríkisins. Ekki verður séð hver til- gangurinn er með framlagningu þess frumvarps er nema ætlunin sé að selja fyrirtækið síðar. Og rík- isstjórninni væri trúandi til þess. Sporin hræða (sbr. Síminn). Náskylt þessum málum er frumvarp til nýrra vatna- laga sem nú er orðið að lögum. Með því frumvarpi var í raun verið að einkavæða vatnið, sem hefur verið sameign allar þjóðarinnar. Frumvarpið kvað á um, að vatn væri séreign þeirra landeigenda, sem ættu land það, sem vatn væri að finna á og að þeir mættu selja vatnið. Samkvæmt eldri lögum höfðu landeigendur aðeins afnotarétt af vatninu. Hér er því um gerbreyt- ingu að ræða. Og auðvitað var Framsókn att á foraðið eins og svo oft áður. Stjórnarandstaðan barðist hat- rammlega gegn „einkavæðingu vatnsins“ og ætlaði ekki að afgreiða málið á yfirstandandi þingi. En mála- miðlun náðist að lokum milli stjórnar og stjórnarand- stöðu um að málið yrði afgreitt nú en tæki ekki gildi fyrr en haustið 2007. Nefna má enn eitt átakamálið á yfirstandandi þingi en það er frumvarp um Byggðastofnun og sameiningu hennar við Rannsóknarstofnun byggingariðnaðarins og Iðntæknistofnun. (Lagt fram af ráðherra Fram- sóknar). Margir þingmenn Sjálfstæðisflokksins eru andvígir þessu frumvarpi en af mismunandi ástæðum. Sumir vilja halda í Byggðastofnun, þar eð þeir eru hlynntir stuðningi við landsbyggðina en aðrir vilja leggja niður allan slíkan stuðning og helst leggja nið- ur Byggðastofnun. Í hópi þeirra fyrrnefndu er Einar Oddur, varaformaður fjárlaganefndar, en í síðar nefndahópnum er Sigurður Kristjánsson, formaður menntamálanefndar. Í munnlegri skýrslu utanríkisráðherra, Geirs H. Haarde, á Alþingi gerðust þau tíðindi, að ráðherrann lýsti því yfir, að hann vildi stofna hlutafélag um rekst- ur Keflavíkurflugvallar og einkavæða reksturinn. Menn héldu, að þeim hefði misheyrst. Og meira að segja framsóknarmönnum ofbauð. En þeir verða nú sennilega ekki lengi að renna þessu niður miðað við fyrri reynslu. Þetta eru forkastanlegar ráðagerðir. Það kemur að sjálfsögðu ekki til greina, að láta einka- aðila braska með okkar aðal millilandaflugvöll. Áður hefur Sjálfstæðisflokkurinn gælt við það, að landhelg- isgæslan yrði einkavædd. Það er stórhættulegt, að þau fyrirtæki sem eiga að annast öryggi landsmanna séu í höndum einkaaðila. Slík fyrirtæki eiga að sjálf- sögðu að vera í höndum ríkisins. Það virðast engin takmörk fyrir því hvað Sjálfstæð- isflokkurinn vill einkavæða. Og Framsókn er alltaf tilbúin. Hún vill öllu fórna fyrir ráðherrastólana. Nú er heilbrigðiskerfið og menntakerfið í hættu. Ef nú- verandi ríkisstjórn verður ekki komið frá völdum í næstu kosningum verður heilbrigðiskerfið og mennta- kerfið brotið niður. Það verður að afstýra því. Samvinnuhugsjónin gleymd og grafin Eftir Björgvin Guðmundsson Höfundur er viðskiptafræðingur og situr í heiðurssæti Samfylkingarinnar í Reykjavík. STEFNUSKRÁR stjórnmálaflokka eru nú kynnt- ar í sveitarstjórnum vítt og breitt um landið, þar með talið í Kópavogi. Allir leggja áherslu á að skapa íbúum sínum gott umhverfi til að búa í. En stundum gleymist að mannskepnan er ekki eina líf- veran sem þrífst í bænum. Mun fleiri lífverur byggja afkomu sína á tryggu og heilnæmu búsvæði innan bæj- armarkanna, búsvæðum sem mað- urinn með athöfnum sínum þrengir að á ýmsan hátt. Fjölbreytileg lífríki innan bæjarmarkanna eru dýrmætar auðlindir og hluti af stærri vistkerf- um sem svo tryggja mannskepnunni lífsviðurværi sitt á einn eða annan hátt. Því þarf að standa vörð um þessar auðlindir. Strandlengja Kópavogsbæjar, með leirunum sitthvorum megin við Kársnesið, sérstaklega Kópavogsleiran, sem er með stærri leirum á höfuðborgarsvæðinu, er mik- ilvægt búsvæði fjölda fuglategunda. Þessar leirur njóta bæjarverndar og eru jafnframt á nátt- úruminjaskrá. Aftur á móti eru slík verndunar- ákvæði ekki mjög sterk og rúmast t.d. ekki innan friðlýsingarflokka náttúruverndarlaga. Það er því fagnaðarefni að strandlengja Kópavogs, er hluti af einu þeirra 14 svæða, sem umhverfisráðherra hefur lagt til að verði friðlýst búsvæði fugla skv. nátt- úruverndarlögum, fyrir árið 2008. Þá myndi Kópa- vogsbær ásamt sveitarfélögunum í kring taka þátt í að til verði net friðaðra svæða, sem tekur til bú- svæða fimm fuglategunda sem Ísland ber ábyrgð á samkvæmt ýmsum alþjóðlegum samþykktum. En það er ekki nóg að kætast og skreyta sig slíkum friðlýsingum á tyllidögum, þeim fylgja skuldbind- ingar og ábyrgð. Tryggja þarf að tilgangur og markmið friðlýsingar nái fram að ganga og ekki má sópa þeim undir teppið ef það hentar skamm- tímahagsmunum. Við landnýtingu í kringum friðuð svæði þarf að stíga varlega til jarðar, vanda vinnu- brögð og af vinna af skynsemi. Samfylkingin í Kópavogi vill takast á við þá ábyrgð sem fylgir því að hýsa friðlýst svæði og leggur áherslu á um- hverfismál í stefnu sinni, því það er ótvíræður hag- ur allra þeirra sem búa í bænum. Mikilvæg búsvæði í Kópavogi Eftir Rut Kristinsdóttur Höfundur er umhverfisfræðingur og skipar 17. sæti á lista Samfylkingarinnar í Kópavogi. Fréttir í tölvupósti
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.