Morgunblaðið - 18.05.2006, Blaðsíða 41

Morgunblaðið - 18.05.2006, Blaðsíða 41
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 18. MAÍ 2006 41 MINNINGAR víst bara einhver grænkássa og við misstum matarlystina. Afi hafði mikla ánægju af að læra þýsku og einn af hans uppáhalds- þáttum á þessum tíma var Derrick. Átti hann það til að svara honum og æfa sig í þýskunni sem vakti ómælda kátínu hjá okkur frænkunum. Við skemmtum okkur yfir því þegar afi talaði upp úr svefni, sérstaklega þegar þýskan flaug upp úr honum. Hann vafði alla ást og hlýhug enda tilfinningaríkur og góður mað- ur. Við eigum margar yndislegar minningar um afa og áttum við margar góðar stundir þegar við frænkurnar fengum að fara í orlof til ömmu og afa í Kópó sem var ósjald- an. Þá notaði afi tímann til að fræða okkur um ýmis mál. Við vorum svo heppin að eiga þig sem afa, hvað þú dekraðir við okkur barnabörnin og barnabarnabörnin. Stefáni Sölva fannst svo gaman að koma til ykkar ömmu í pössun, þið voruð svo flottir saman. Afi hafði líka mikinn metnað fyrir okkar hönd enda varð hann stoltur þegar Ásdís var fyrst stúdent og þá sagði hann eftir veisluna: ,,Þetta var fínt, þá verður næsti stúdent um jól.“ Sem stóðst, hann kom á út- skriftardag Hrafnhildar stoltur eins og alltaf. Jesús mælti: ,,Ég er upprisan og lífið. Sá sem trúir á mig, mun lifa, þótt hann deyi. Og hver sem lifir og trúir á mig, mun aldr- ei að eilífu deyja.“ (Jóh. 11:25–26.) Þú munt aldrei deyja í hjörtum okkar. Við söknum þín svo mikið, en við vitum að þér líður betur í hendi guðs. Elsku afi, við þökkum þér fyrir allt sem við höfum átt saman og megir þú hvíla í friði. Hrafnhildur Hlín og Ásdís. Elsku afi minn, ég mun alltaf sakna þín en ég veit að þú verður alltaf hjá mér og gefur mér blessun þína. Gummi afi var ekki bara besti afi í heimi, hann var einnig mjög góður vinur og ekki var það sjaldan sem hann gaf mér eitthvað gott, og oft þegar ég átti það ekkert skilið. Afi var gjafmildasti maður í heimi og gerði allt til að mér og fjölskyldu minni liði vel. Ég mun aldrei gleyma öllum stundunum okkar saman, þær voru yndislegar, sérstaklega man maður eftir skíðaferðunum frábæru. Ég vil þakka þér fyrir allt sem þú hefur gefið mér, alla elskuna til mín og ég þakka fyrir þessi frábæru fimmtán ár sem við áttum saman. Þrátt fyrir að ég vildi óska þess að þau mundu verða fleiri, þá veit ég að þú munt bíða eftir okkur og taka vel á móti okkur þegar við komum til þín. Ég mun alltaf sakna þín elsku afi minn og ég lofa að gera þig stolt- an af mér. Ég elska þig, afi minn, þinn Ísak. Á fyrstu dögum maímánaðar, þeg- ar sumarið er að halda innreið sína, allir litir verða bjartari og trén springa út á einni nóttu, háði ljúf- lingurinn Guðmundur mágur minn sína lokaorrustu við krabbameinið. Hann lést að morgni 6. maí á líkn- ardeild Landspítalans í Kópavogi. Á kveðjustund er mér efst í huga þakkir; þakkir fyrir að vera mágur minn í tæp fimmtíu ár, þakkir fyrir sambýli á Snorrabrautinni og Fífu- hvamminum og áframhaldandi vin- áttu í Hjallabrekkunni og síðast í Blásölunum, þakkir fyrir að vera dætrum mínum sem annar faðir í löngum fjarverum föður þeirra á sjónum, þakkir fyrir að láta eitt barnið sitt heita í höfuðið á mér, þakkir fyrir að gera við bílana mína, þakkir fyrir að opna sinn hlýja faðm á erfiðis- og sorgarstundum í minni fjölskyldu og þakkir fyrir svo margt, margt fleira. Hann fékk rúmt ár eftir að hann greindist og á þessu ári áttu þau Ás- dís kona hans og systir mín margar góðar stundir. Þau fengu meðal ann- ars þrjú barnabarnabörn sem voru þeim til ómældrar gleði og gátu ver- ið við skírn þeirra. Tvær dótturdæt- ur þeirra urðu stúdentar og þau fóru á ættarmót hjá hans fólki vestur á hans æskuslóðir. Að ógleymdum stundunum þeirra í sumarbústaðn- um þeirra fallega í Svínadal. Elsku Didda mín, þér og börn- unum ykkar; Svenna, Hrönn, Þór- höllu og Bödda sem og tengda- börnum, barnabörnum, og barna- barnabörnum að ógleymdum stóru fósturbörnunum frá Júgóslavíu, Sigga, Jamma og Kötu, sendum við Jón og dætur okkar ásamt þeirra fjölskyldum innilegar samúðar- kveðjur. Bið svo Guð um að blessa Guðmund mág minn. Hann var drengur góður. Þórhalla Sveinsdóttir (Halla). Ég kveð hér yndislegan afa sem mér þótti mjög vænt um. Ég sem barnabarn hans fékk 12 heil ár með þessum frábæra manni. Ég á marg- ar góðar minningar um hann afa sem ég geymi fyrir mig. Hann var alltaf tilbúinn til að hjálpa okkur krökkunum með námið og vildi að við stæðum okkur vel í próum eða gerðum að minnsta kosti okkar besta. Afi laumaði oft að okkur barnabörnum sínum verðlaunum fyrir vel unnið verk og ef við fórum til útlanda þá lagði hann oft til far- areyri svo við ættum sjálf vasapen- ing. Afi var alltaf stoltur af öllu því sem við tókum okkur fyrir hendur og var áhugasamur um að okkar gengi vel. Nú kveð ég þig elsku afi minn og bið góðan guð að geyma þig og vitna í litla bók „Alveg einstakur vinur“ sem mér finnst eiga við vegna þess að þú varst líka svo góður vinur allra. Vinur minn. Þú væntir aldrei of mikils af mér. Þú fagnar þegar mér gengur vel, en álasar mér ekki fyrir að mistakast. Þú veitir mér alla þá hjálp sem þú megnar – en meira skiptir að þú ert til staðar. (Wendy Jean Smith.) Kveðja, Sigurhanna Björg Hjartardóttir. Ég sendi þér kæra kveðju, nú komin er lífsins nótt. Þig umvefji blessun og bænir, ég bið að þú sofir rótt. Þó svíði sorg mitt hjarta þá sælt er að vita af því þú laus ert úr veikinda viðjum, þín veröld er björt á ný. (Þórunn Sigurðardóttir.) Elsku Gummi frændi, það er erfitt að hugsa sér lífið án þín, sem hefur verið fastur punktur í tilverunni svo lengi. Við erum þakklátar fyrir gleðistundirnar og allar góðu minn- ingarnar. Það var alltaf svo gott og skemmtilegt að vera með ykkar Diddu, þær stundir geymum við í hjartanu og trúum því að þú verðir með okkur áfram. Við kveðjum þig með söknuði. Guð geymi þig. Sigríður og Guðrún Halla. Með þessum orðum kveð ég með söknuði kæran frænda, Gumma, eins og við systkinin kölluðum hann. Um leið vil ég þakka fyrir hans hlý- hug og samverustundir á liðnum áratugum. Gummi var móðurbróðir minn og á vissan hátt brúaði hann bilið milli horfinnar kynslóðar og systkinabarna sinna en hann var yngstur í stórum systkinahópi. Það var alltaf gaman að ræða við Gumma, hvort sem var um líðandi stund eða liðna tíma, sérstaklega um foreldra hans og þá tíma er hann var í foreldrahúsum. Gummi lærði snemma að vinna en hann hóf á unga aldri að róa með föður sínum sem gerði m.a. út opinn bát frá Ísafirði. Gummi frændi lærði bæði búfræði og bifreiðasmíði. Hann var sjálf- stæður maður og rak lengstum bif- reiðaverkstæði sitt og gott var að leita til hans og Böðvars sonar hans ef eitthvað hafði farið úrskeiðis í um- ferðinni. Gummi hafði þægilega nærveru og kunni þá list að gefa af sér, ekki síst með sínum góða hug og smitandi hlátri. Góðvild og hjálpsemi koma upp í hugann þegar Gumma er minnst og þegar eitthvað bjátaði á var hann alltaf traustur vinur. Auk fjölskyldu- tengslanna skynjaði ég ávallt sterk vináttubönd milli foreldra minna og Gumma og Diddu konu hans. Náði þessi vinátta einnig til okkar systk- inanna.Það var gott að koma til þeirra hjóna, fyrst í Sólheimana og síðar á Fífuhvammsveginn þar sem amma mín, móðir Gumma, bjó hjá þeim um tíma. Aðdáunarvert var hve vel hann og Didda kona hans hlúðu að heimili sínu og umhverfi og bar það vott um samheldni þeirra. Ég minnist Gumma frænda með virðingu og þakklæti. Diddu og fjöl- skyldunni allri sendi ég mínar inni- legustu samúðarkveðjur. Guð blessi minningu Gumma frænda. Magnús Pálsson. Vinir mínir – allir, allir, eins og skuggar liðu þeir inn í rökkurhljóðar hallir, hallir dauðans, einn og tveir, einn – og – tveir. (G.G.) Ég átti því láni að fagna að kynn- ast Guðmundi Ágústi fyrir um fimm- tíu árum er við báðir hófum nám í bifreiðasmíði hjá Agli Vilhjálmssyni hf., hann var búfræðingur frá Hvanneyri og þar með slapp hann við að setjast á skólabekk í Iðnskól- anum í bóknámsgreinum en fag- teikningar slapp hann ekki við en þannig stóð á að ég og annar lær- lingur, Kristján Tryggvason, vorum í námi utanskóla og vorum búnir að semja við Þóri Kristinsson um að teikna utanskóla en koma uppí skóla og sýna honum teikningar okkar þar og datt Guðmundur inní þennan samning með okkur. Við teiknuðum síðan saman heima hjá hver öðrum um veturinn og tókum próf saman og gekk það allt vel. Guðmundur var stutt hjá A.V. hf. eftir prófið. Hann vann um tíma hjá Saab-verkstæðinu inní Skeifu, síðan hjá Toyota í Kópa- vogi og var hann verkstóri þar þang- að til að hann stofnaði sitt fyrsta verkstæði í Auðbrekku í Kópavogi. Síðan byggði hann verkstæðishús með íbúð uppí Dalbrekku í Kópavogi og þar var hann þar til fyrir 3 árum að hann seldi þar og keypti ALP- verkstæðið einnig í Kópavogi og þar vann hann síðast og ætlaði hann að fara að hafa þetta heldur rólegra því hann var farinn að nálgast sjötugs- aldurinn og sonur hans Böðvar gat tekið við rekstrinum þar sem hann var lærður bifreiðasmiður. En þá greip krabbinn hann heljartökum en Guðmundur barðist hetjulega og um tíma héldum við að hann ætlaði að hafa betur en það gekk ekki upp, sá sterkari hafði betur og Guðmundur lést að morgni laugardagsins 6. maí sl. Eitt af því góða í okkar kynnum var er ég fékk hann til að ganga í Lionsklúbb Kópavogs fyrir um 20 árum. Hann var þar góður félagi og starfsamur, hann var þar í stjórn, gjaldkeri árið 1995–96 og formaður 2002–2003, einnig í hinum ýmsu starfsnefndum. Hann var ávallt tilbúinn til starfa og er það gott fyrir félög að hafa þannig menn í sínum hópi. Ég og Erna viljum þakka honum og konu hans Ásdísi góða vináttu í öll þessi ár og sendum henni og fjöl- skyldunni allri okkar innilegustu samúðarkveðjur á þessum dapra degi. Ásvaldur Andrésson. Kveðja frá Lionsklúbbi Kópavogs Félagi okkar Guðmundur Ágúst Kristjánsson er látinn eftir erfiða baráttu við illvígan sjúkdóm. Guðmundur gekk í Lionsklúbb Kópavogs árið 1988 og gegndi þar mörgum trúnaðarstörfum og var meðal annars formaður klúbbsins starfsárið 2002–2003. Guðmundur var góður félagi, glaðlyndur og ósér- hlífinn. Guðmundur var mikill gæfumaður í einkalífi, mikill fjölskyldumaður og voru þau Ásdís, eftirlifandi eigin- kona hans, einstaklega samrýnd hjón. Að leiðarlokum þökkum við Guð- mundi samfylgdina og vottum Ásdísi og fjölskyldunni allri innilega samúð okkar. Ástkær móðir, tengdamóðir, amma og langamma, KRISTÍN ARNFINNSDÓTTIR, lést miðvikudaginn 26. apríl. Útförin fór fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu. Sérstakar þakkir til starfsfólks á hjúkrunardeild Hrafnistu, Hafnarfirði. Þórður Höjgaard Jónsson, Ingibjörg Ó. Hjaltalín, Kristín V. Þórðardóttir, Ingi Björn Ágústsson, Ágúst Örn Ingason. Þökkum innilega auðsýnda samúð, hlýju og stuðning við andlát BJÖRNS BERNDSEN málarameistara, Leirubakka 18, Reykjavík. Sérstakar þakkir til starfsfólks Vífilsstaðaspítala á 2. hæð. Soffía Sigurjónsdóttir, Þórarinn Björnsson, Reynir Björn Björnsson, stjúpbörn og fjölskyldur. Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengda- faðir, afi og langafi, KRISTJÁN S. JÚLÍUSSON, Barðastöðum 7, Reykjavík, lést á Landspítalanum föstudaginn 12. maí. Jarðsungið verður frá Grafarvogskirkju föstu- daginn 19. maí og hefst athöfnin kl. 13:00. Edda Ágústsdóttir, Elín Edda Árnadóttir, Sverrir Guðjónsson, Katrín Kristjánsdóttir, Ágúst Rafn Kristjánsson, Ágústa Kroknes, Kristján Kristjánsson, Mihaela Kristjánsson, Marta S.H. Kristjánsdóttir, Guðjón Gestsson, afabörn og langafabörn. Sonur minn, stjúpsonur og bróðir, PÁLL GUNNARSSON, Katrínarlind 6, Reykjavík, lést þriðjudaginn 16. maí. Útförin auglýst síðar. Edda Björgmundsdóttir, Bragi Björgvinsson, Einar Már, Kristín, Guðbjartur og Jóakim. Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, ÁRNI HÁLFDÁN BRANDSSON, Neshaga 9, lést á Landspítalanum við Hringbraut 11. maí síðastliðinn. Útförin fer fram frá Kópavogskirkju laugardaginn 20. maí kl. 11.00. Jarðsett verður í Stóra-Dalskirkjugarði undir Eyjafjöllum kl. 16.00. Blóm vinsamlegast afþökkuð en þeir sem vildu minnast hans láti Félag langveikra barna njóta þess. Guðbjörg Árnadóttir, Kristbjörg Lóa Árnadóttir, Indriði Aðalsteinsson, Einar Árnason, Þorgrímur Gestsson, barnabörn og barnabarnabörn. Bróðir okkar og frændi, JÓN FRIÐJÓNSSON, (Donni), á Hofstöðum, er látinn. Jarðarför fer fram frá Borgarneskirkju þriðjudaginn 23. maí kl. 14.00. Jarðsett verður í Álftaneskirjugarði Aðstandendur.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.