Morgunblaðið - 18.05.2006, Page 28

Morgunblaðið - 18.05.2006, Page 28
28 FIMMTUDAGUR 18. MAÍ 2006 MORGUNBLAÐIÐ UMRÆÐAN ANNAR hluti af athugasemdum við fræðslurit sem gefið hefur ver- ið út af undirstofnun samgöngu- ráðuneytis. Regla 28 gefur til- efni til fyrirspurnar en þar er skráð: „Þrjú rauð hringljós, lóðrétt hvert upp af öðru eða sívalning“. Ekki er þess getið að „sívaln- ingurinn“ eigi að vera upplýstur eða hvernig hann eigi að sjást í myrkri ef valið er að hafa sívalninginn en ekki rauðu ljósin þrjú. Er þarna um að ræða óskiljanlegan agnúa á framsetningu reglunnar. Liður 22 í viðauka /Vaktreglur / Undirkafli A-VIII/ I er svo mein- gallaður að ekki er hægt að skilja hvað átt er við. Orðrétt er greinin svohljóðandi: „Ef beitt er stjórn- tökum, stefnu- og hraðabreyt- ingum eða gripið hefur verið til stjórntaka til þess að forðast yf- irvofandi hættu í hvert skipti sem leysa á yfirmann á vakt af skal fresta vaktaskiptum þar til stjórn- tökum er lokið.“ – Orðalag þetta er svo klúðurslegt að málhelti verður eina skýringin. Hvað þýðir innskotið „…í hvert skipti sem leysa á yfirmann á vakt af …“ eða hvaða merkingu hefur það. Hefði ekki verið skiljanlegra að sleppa „í hvert skipti sem“ og setja í staðinn orðið „þegar“? Liður 26 í sama viðauka er enn eitt undrabarnið í óskiljanlegri orðgnótt nýyrðahöfunda. Skyldu- störf vakthafandi skipstjórn- armanns á stjórnpalli hafa verið skilgreind sem skyldustörf sem vinna þarf á vaktinni. Hljóta það að vera þau störf sem talið er að vinna þurfi og ekki trufla örugga siglingu skipsins. Því er spurt: Hvaða skyldustörf eru það sem átt er við í þessari grein sem hugs- anlega kæmi til að skipstjórn- armanni yrði falið að framkvæma og ekki samrýmast varðstöðu hans á stjórnpalli? Hefði ekki verið réttara að orða grein- ina þannig að í stað „skyldustörf“ hefði staðið „önnur störf“? Skyldustörf á hann að framkvæma en ekki önnur störf. Í viðauka þessum er getið um útvörð og vaktmann/vaktmenn án þess að skilgreint sé hver mismunurinn er. Einnig er látið að því liggja að vaktmenn séu fleiri en einn með skipstjórnarmanni en hvergi getið um nema einn útvörð. Er munur á öruggri vakt og dyggilegum út- verði? Orðalag þetta sem notað er í 42. lið I. Viðauka er undarlegt í meira lagi því hvoru tveggja virð- ist samkvæmt greininni gilda um siglingavakt. Eitt furðufyrirbærið í I viðauka /Vaktreglur / Undirkafli A-VIII/ I er liður sem nefnist VAKTA- SKIPTI – liður 58, undirliður 3. Í þessum lið er allt í einu komið nýtt rými eða nafn á rými í skipi sem kallað er „varageymir“ eða réttara sagt í fleirtölu „varageymum“. Engin skýring er gefin á tilgangi með notkun á þessum geymum þar sem verið er að fjalla um eftirlit með vökvageymum í skipi og kjal- sogi. Getið er um stöðugleika- tanka, geyma fyrir úrgangsolíu, varageyma, ferskvatnsgeyma og skolptanka. Í gegnum áratuga starf til sjós hefur aldrei verið minnst á varageymi eða vara- geyma (ath. fleiri en einn) sem vökvageymi. Einu varageymarnir sem þekkst hafa um borð í skipum eru raf- geymar fyrir fjarskiptastöð og neyðarlýsingu. Þar sem í upptaln- ingu sérfræðinganna er hvergi get- ið um olíubirgðageyma eða olíu- tanka eins og þeir eru stundum nefndir er spurt hvort spekinga ráðherrans sem önnuðust samn- ingu þessa rits hafi skort þekkingu á heitum hluta um borð í skipum og gripið til örþrifaráðs með of- anrituðu nýyrði? Í sama lið „VAKTASKIPTI“ er annað furðufyrirbæri í íslenskri málnotkun. Liður 58, undirliður 8, býður upp á nýtt ökutæki sem aldrei hefur þekkst á Íslandi áður. Ökutæki þetta er gufuketill. Orð- rétt stendur í greininni „…og ann- ars búnaðar er tengist keyrslu gufukatla“. Fram að útgáfu þessa fræðslurits hefur verið talað um að kynda undir katli, að kynda ketil eða kynda upp ketil, en aldrei heyrst að katlar væru keyrðir. Þetta er vafalaust ný notkunar- aðferð á kötlum sem æskilegt væri að fá nánari skýringar á. Í Undirkafla B-VIII/2, lið 5, undirlið 10, og varðar stjórnun á vakt í brú, er allundarlegt ákvæði. Orðrétt stendur: 10. liður; „forðast ber, að stöðva eða leggja niður hvers konar óþarfa starfsemi og truflanir“. Er þessi liður óskiljan- legur í ljósi þess að þeir er ganga vaktir á stjórnpalli skulu ekki sinna neinum óþarfa störfum eða neinar utanaðkomandi truflanir raska þeirra skyldustörfum. Var ekki einhver fljótaskrift á þessum lið viðaukans? Opið bréf til samgönguráðherra Kristján Guðmundsson gerir athugasemd við fræðslurit sem gefið hefur verið út af undir- stofnun samgönguráðuneytis ’Skyldustörf vakthafandiskipstjórnarmanns á stjórnpalli hafa verið skilgreind sem skyldu- störf sem vinna þarf á vaktinni.‘ Kristján Guðmundsson Höfundur er skipstjóri. Í DAG, 18. maí, halda söfn um víða veröld upp á alþjóðlega safn- adaginn að frumkvæði ICOM (Int- ernational Council of Museums). ICOM er alþjóðaráð safna sem starfar í 113 þjóðdeildum og 30 alþjóðanefndum í samvinnu við UNESCO. Í ár fagn- ar ICOM því að 60 ár eru liðin frá stofnun þess. Íslandsdeild ICOM er ein þjóð- deilda samtakanna. Hún var stofnuð árið 1985 og starfar sam- kvæmt siðareglum og samþykktum ICOM. Félagsmenn eru um 50 talsins en einnig eiga 6 söfn aðild að deildinni. Formaður Íslandsdeildarinnar er Lilja Árnadóttir, fagstjóri munasafns Þjóðminjasafns Ís- lands. Alþjóðanefndir samtakanna einbeita sér hver um sig að sérstökum þáttum safnastarfseminnar, svo sem rekstri safna, skráningu safnmuna, safnfræðslu og for- vörslu, eða eru samtök sérhæfðra safna á ýmsum sviðum, svo sem byggðasafna, listasafna eða nátt- úrufræðisafna svo eitthvað sé nefnt. Íslandsdeild ICOM er mik- ilvægur tengiliður milli íslenskra safnmanna og hins alþjóðlega safnaheims en ICOM hefur það að leiðarljósi að stuðla að aukinni fagmennsku safnmanna með sér- staka áherslu á að efla faglega ábyrgð. Siðareglur ICOM end- urspegla þau grundvallaratriði sem safnafólk um allan heim fylgir í starfi sínu. Þær eru almennt við- urkenndar sem viðmiðun í starfi safnmanna en þar er auk faglegra vinnubragða lögð megináhersla á þjónustu við samfélagið, almenn- ing og hina ýmsu hópa. Siðaregl- urnar eru nýlega komnar út í ís- lenski þýðingu og annast Íslandsdeildin dreifingu þeirra. Textann er jafnframt að finna á heimasíðu deildarinnar, www.- icom.is. Stjórn og félagsmenn Íslands- deildar ICOM hafa um árabil sótt fundi og ráðstefnur hinna ýmsu deilda ICOM víða um heim. Þar gefst þeim kostur á að kynnast því sem efst er á baugi í safnaheim- inum hverju sinni og auka þekk- ingu sína og faglegan skilning til gagns fyrir íslenskt safnastarf. Það má nefna að í haust verður aðalfundur ICR, sem er al- þjóðanefnd byggðasafna, haldinn á Íslandi. Þetta er í fyrsta skipti sem aðalfundur alþjóðanefndar innan ICOM er haldinn hér á landi og er það til marks um auk- inn áhuga alþjóðasamfélags safn- manna á íslensku safnastarfi. Það er ekki síst að þakka Guðnýju Gerði Gunnarsdóttur, forstöðu- manni Minjasafns Reykjavíkur og fyrrum formanni Íslandsdeildar ICOM, en hún hefur um árabil verið virkur félagsmaður í ICR. Yfirskrift alþjóðlega safnadags- ins í ár, „Söfn og ungt fólk“, var valin til að vekja almenning til vit- undar um samskipti safna og ungs fólks; hvernig ungt fólk getur tek- ið þátt í að endurskilgreina hlut- verk og starfshætti safna 21. ald- arinnar og hvernig söfn geta tekið þátt í að móta samfélag morg- undagsins með því að hagnýta sér gagnkvæm samskipti við þennan hóp. Forseti ICOM, Alissandra Cummins frá Barbados, heldur því fram að söfn um allan heim geti lagt mikið af mörkum með því að veita lífsskilyrðum ungs fólks í því samfélagi þau þjóna sérstaka at- hygli. Það sé mikilvægt að safna- heimsókn sé gerð áhugaverð og söfn séu aðgengileg fyrir allt ungt fólk til að gera því kleift að öðlast þá reynslu sem slík heimsókn býð- ur upp á. Þannig geti söfn stuðlað að því að auka skilning og þekk- ingu ungs fólks á um- heiminum og verið vettvangur fyrir skoð- anaskipti og umræður. Söfn eru gluggar sem veita innsýn í undur veraldar og þessa glugga er mikilvægt að opna ungu fólki sem nálgast upplýs- ingar með opnum huga. Í íslensku safna- starfi hefur um árabil verið lögð áhersla á að ná til barna og ung- linga með ýmsu móti. Safnfræðsla er vax- andi þáttur í starfsemi safna og nemendur á öllum þrepum menntakerfisins eiga þess kost að njóta slíkrar fræðslu. Þekk- ing og skilningur sem verður til við safna- heimsókn getur tengst ólíkum þáttum í náms- efni og í daglegu lífi nemenda, bætt hæfni þeirra til að takast á við ólík verkefni og dýpkað skiln- ing þeirra á viðfangsefnum sínum. Einnig hefur verið lögð áhersla á að auka gagnvirka miðlun í söfn- um en tölvan er miðill sem höfðar sterkt til ungs fólks. Í nýjum grunnsýningum safna er í auknu mæli gert ráð fyrir að miðla þekk- ingu til barna á þeirra forsendum þannig að safnaheimsókn sé lif- andi og áhugaverð fyrir þau. Það má benda skemmtimenntar- herbergi í grunnsýningu Þjóð- minjasafns Íslands, þar sem börn á öllum aldri geta t.d. kynnst sög- unni á lifandi hátt, íklæðst her- klæðum og hlýtt á upplestur og skoðað listsýningu fyrir börn í Listasafni Reykjavíkur – Kjarvals- stöðum sem er gerð með það fyrir augum að auka listskilning barna og kynna þeim ýmsa þætti mynd- lesturs. Á Íslandi er ekki haldið sér- staklega upp á alþjóðlega safna- daginn en fyrir allnokkrum árum var sú ákvörðun tekin í stjórn Ís- landsdeildar ICOM að koma þess í stað á fót íslenskum safnadegi sem haldinn er annan sunnudag júlímánaðar ár hvert. Hefur þessi hefð fest í sessi og árlega hafa um 40 söfn um land allt tekið virkan þátt í safnadeginum. Um árabil sá stjórn Íslandsdeildarinnar um framkvæmd safnadagsins en frá árinu 2005 tók Safnráð við þessu hlutverki. Íslenski safnadagurinn verður haldinn þann 9. júlí nk. og þá bjóða söfn um allt land til mik- illar menningarveislu með fjöl- breyttri dagskrá. Markmið alþjóða safnadagsins er að vekja athygli á því hlutverki sem söfn gegna í samfélaginu, en á tímum alþjóðavæðingar og örra samfélagsbreytinga verður þetta hlutverk stöðugt mikilvægara, ekki síst til að varðveita og halda í heiðri sérkennum og fjölbreyti- leika í menningu hverrar þjóðar. Safnastarf hefur tekið miklum breytingum á undanförnum árum og nú skilgreinir ICOM safn sem stofnun í þjónustu samfélagsins og þeirrar þróunar sem þar á sér stað. Hornsteinar safnastarfs hafa þó ekki breyst, þeir eru og hafa alltaf verið að safna, varðveita, rannsaka og miðla sameiginlegum menningararfi fyrir samtímann og komandi kynslóðir. Söfn og ungt fólk Kristín G. Guðnadóttir skrifar í tilefni af alþjóðlega safnadeginum, sem er í dag Kristín G. Guðnadóttir ’Markmið al-þjóða safna- dagsins er að vekja athygli á því hlutverki sem söfn gegna í samfélaginu …‘ Höfundur er forstöðumaður Listasafns ASÍ og meðstjórnandi Íslandsdeildar ICOM. UMRÆÐAN um afleitt ástand í hjúkrunarmálum aldraðra undan- farið hefur upplýst vel hvernig rík- isstjórnarflokkarnir hafa látið vel- ferðarmál hjúkrunarsjúklinga sitja á hakanaum. Á sama tíma og Sjálfstæð- isflokkur ætlar að gera allt fyrir aldraða í sveitarstjórnarkosning- unum bíða hátt í 500 aldraðir í brýnni þörf eftir hjúkrunarrýmum og 100 aldraðir eru fastir inni á hátækni- spítala eftir að lækn- ingu er lokið. Á síð- asta ári létust 42 þeirra inni á spít- alanum og áttu þess því ekki kost að búa við viðunandi að- stæður undir það síðasta. Svona tala verk sjálfstæð- ismanna þar sem þeir ráða. Fjölskyldur að bugast Nýverið sat ég fund aðstandenda yngri hjúkrunarsjúklinga og fag- fólks á Skógarbæ um afleita stöðu þeirra og hvað væri til ráða. Ungir hjúkrunarsjúklingar eiga fárra kosta völ. Þetta unga fólk á ekki samleið með öldruðum, enda dvel- ur það á hjúkrunarheimilum mun lengri tíma og verða þau heimili þessara sjúklinga ævilangt, – oft í áratugi. Í þessum hópi eru ungir Alz- heimersjúklingar, fólk með MS- sjúkdóminn og ungt fólk sem hefur lent í slysum. Allir þessir sjúkling- ar þurfa sérhæfða þjónustu. Fyrir þá vantar fjölbreytt úrræði, svo sem hvíldarpláss til skemmri eða lengri dvalar, sólarhringsvistun, skammtímavist og heimilislegar hjúkrunareiningar. Heimaþjónusta kemur þeim og aðstandendum þeirra yfirleitt ekki að notum. Fjöl- skyldur þeirra eru að bugast og veit ég að þær hafa verið að kaupa þjónustu og liðveislu í vandræðum sínum, en það gengur ekki til langframa. Hafa beðið í 6 ár eftir plássi Nú bíða 34 ungir hjúkrunarsjúklingar eftir plássi á hjúkr- unarheimili. Þeir eru á aldrinum 18 til 66 ára og hafa þeir sem lengst hafa beðið verið á bið- lista frá árinu 2000 eða í 6 ár. En hvar bíða þessir sjúklingar? Þeir eru á Grensásdeildinni, á Landakoti, á Landspítalanum, í Hátúninu, á sambýli og svo í heimahúsum. Við vitum að aðstæð- urnar á sjúkrahúsunum eru óheim- ilislegar og ekki ætlaðar hjúkr- unarsjúklingum, en þar eru þeir með mikið veiku fólki. Á Skógarbæ eru 11 pláss fyrir unga hjúkrunarsjúklinga og í Hlein við Reykjalund eru 7 pláss. Nokkr- ir yngri sjúklingar eru líka á Eir. Deildin í Skógarbæ var sett á lagg- irnar 1997, fyrir 9 árum, fyrir at- beina þáverandi borgarstjóra, Ingi- bjargar Sólrúnar Gísladóttur, og Ingibjargar Pálmadóttur, þáver- andi heilbrigðisráðherra, og hafa aðeins 11 nýir sjúklingar komið inn á þá deild síðan. Það sýnir að þess- ir sjúklingar dvelja mun lengur á hjúkrunarheimilunum en þeir öldr- uðu. Skógarbær getur stækkað en fjármagn vantar Forsvarsmenn Skógarbæjar hafa óskað eftir því að fá að stækka heimilið til að fjölga rýmum fyrir yngri sjúklingana. Starfsfólk þar býr yfir mikilli reynslu og þekk- ingu í að annast yngri hjúkr- unarsjúklinga og væri stækkun Skógarbæjar hagkvæmur og góður kostur. Til að svo geti orðið þarf að koma til fé, sem stjórnvöld eru ekki tilbúin að setja í þá fram- kvæmd. Steinunn Valdís Ósk- arsdóttir borgarstjóri hefur sagt mér að hún sé tilbúin að koma með mótframlag frá Reykjavíkurborg standi ríkið við sinn hlut. Hér stranda enn einu sinni úrbætur í velferðarmálunum á þeim sem fara með ríkisfjármálin, Sjálfstæðis- flokki og Framsókn. Yngri hjúkrunarsjúklingar alveg gleymdir Ásta R. Jóhannesdóttir fjallar um hjúkrunarmál ’Hér stranda úrbætur ívelferðarmálunum enn á þeim sem fara með ríkisfjármálin.‘ Ásta R. Jóhannesdóttir Höfundur er þingmaður Samfylkingarinnar í Reykjavík.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.