Morgunblaðið - 18.05.2006, Side 45

Morgunblaðið - 18.05.2006, Side 45
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 18. MAÍ 2006 45 Sjálfstæðisfélag Kópavogs Viðtalstími frambjóðenda Sjálfstæðisflokksins í Kópavogi Í dag, fimmtudaginn 18. maí kl. 17-18, verður viðtalstími á kosningaskrifstofu Sjálfstæðis- félaganna í Kópavogi að Hlíðarsmára 19 með Ármanni Kr. Ólafssyni bæjarfulltrúa sem skipar 3. sæti á lista Sjálfstæðismanna fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar. Sjálfstæðisfélag Kópavogs. Kosningaskrifstofa Sjálfstæðisflokksins í Kópavogi Kosningaskrifstofa Sjálfstæðisflokksins í Kópavogi að Hlíðarsmára 19 er opin alla virka daga frá klukkan 12-22 og frá klukkan 10-18 um helgar. Stuðningsmenn og velunnarar velkomnir. Kaffiveitingar á staðnum. Sjálfstæðismenn, vinnum af krafti í kosningabaráttunni og tryggjum góð kosningaúrslit ! Héraðsfundur Reykjavíkurprófastsdæmis eystra verður haldinn í Fella- og Hóla- kirkju miðvikudaginn 31. maí og hefst kl. 18.00. Venjuleg aðalfundarstörf. Prófastur. Fundir/Mannfagnaðir Sjálfstæðisfélag Kópavogs Opið hús með frambjóðendum Sjálfstæðisflokksins í Kópavogi Kaffiveitingar og kosningagrill Ágætu Kópavogsbúar. Opið hús verður laugar- daginn 20. maí 2006 að Hlíðarsmára 19. Dagskrá: 1. Klukkan 10 til 11:30. Kaffiveitingar og spjall við frambjóðendur. 2. Klukkan 11:30 til 13:00. Frambjóðendur og stuðningsmenn framboðsins halda gestum grillveislu. Allir velkomnir. Sjálfstæðisfélag Kópavogs. Tilkynningar Tillaga að Aðalskipulagi Akureyrar 2005-2018 (auglýst að nýju eftir breytingar) Bæjarstjórn Akureyrar auglýsir hér með að nýju skv. 4. mgr. 18. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997 m.s.b. tillögu að aðalskipulagi Akureyrar 2005-2018. Um er að ræða endurskoðun á gildandi aðalskipulagi Akureyrar 1998-2018. Endurskoðunin tekur ekki til aðalskipulags Hríseyjar 1988-2008. Tillagan samanstendur af greinargerð, þéttbýlisupp- drætti í mkv. 1:10.000 og sveitarfélagsuppdrætti í mkv. 1:30.000. Umtalsverðar breytingar voru samþykktar í bæjarstjórn við aðra umræðu varðandi legu tengibrauta, nýtingu Akureyrarvallar og á þéttingarreitum og því ákveðið að auglýsa tillöguna á ný. Tillagan mun liggja frammi til kynningar í þjónustu- anddyri Akureyrarbæjar, Geislagötu 9, 1. hæð, og hjá Skipulagsstofnun, Laugavegi 166, Reykjavík, frá og með miðvikudeginum 17. maí 2006 til og með miðvikudagsins 28. júní 2006, svo að þeir sem þess óska geti kynnt sér tillöguna og gert við hana athugasemdir. Tillagan er einnig birt á heimasíðu Akureyrarbæjar, www.akureyri.is undir: Auglýsingar og umsóknir/Skipulagstillögur. Frestur til að gera athugasemdir við tillöguna rennur út kl. 16.00 miðvikudaginn 28. júní 2006. Athugasemdir skulu vera skriflegar og skal þeim skilað í anddyri Ráðhúss Akureyrarbæjar. Hver sá sem ekki gerir athugasemd við tillöguna innan þessa frests telst vera henni samþykkur. Akureyri 17. maí 2006, Pétur Bolli Jóhannesson skipulags- og byggingarfulltrúi. Akureyrarbær • Geislagötu 9 • 600 Akureyri Sími 460 1000 • Fax 460 1001 • www.akureyri.is Mat á umhverfisáhrifum - Ákvörðun Skipulagsstofnunar um matsskyldu framkvæmda Skipulagsstofnun hefur tekið ákvörðun um að eftirtalin framkvæmd skuli ekki háð mati á umhverfisáhrifum samkvæmt lögum um mat á umhverfisáhrifum nr. 106/2000 m.s.b. Breytingar á fiskeldi Salar Islandica ehf. í sjókvíum í Berufirði. Ákvörðunin liggur frammi hjá Skipulagsstofnun, Laugavegi 166, 150 Reykjavík. Hana er einnig að finna á heimasíðu Skipulagsstofnunar: www.skipulag.is Ákvörðun Skipulagsstofnunar má kæra til um- hverfisráðherra og er kærufrestur til 19. maí 2006. Skipulagsstofnun. Ferðaklúbbur eldri borgara 30. júní - 6. júlí, brottför kl. 8.00. Vestfirðir. Reykjavík - Patreksfjörður - Rauðisandur - Látraberg - Patreksfjörður - Tálknafjörður - Bíldudalur - Þingeyri - Ísafjörður - Bolung- arvík - Súðavík - Súgandafjörður - Flateyri - Reykjanes - Kaldalón - Hólmavík - Trölla- tunguheiði - Reykjavík. Gististaðir: Tvær nætur á Patreksfirði. Þrjár nætur á Hótel Ísafirði og ein nótt á Laugum í Sælingsdal. Allir eldri borgarar velkomnir. Skráning fyrir 25. júní. Upplýsingar í síma 892 3011. Bækur Bækur til sölu. Strandamenn. Sléttuhreppur. Bergsætt. Fremrahálsætt. Byggða- saga A-Skaftafellssýslu. Nokkrar Árnesingaættir. Deildartunguætt. Skútustaðaætt. Laxamýraætt. Reykjahlíðaætt. Arnadalsætt. Ættir Austfirðinga 1-9. Austurland 1-6. Svarfdælingar 1-2. V-Vestur- skaftafellssýsla og íbúar hennar árið 1930. Kirkjusaga Finns 1-4 LP. Annnálar 19. aldar 1-4. Hrakningar á Heiðarvegum 1-4. Saga Reykjavíkurskóla 1-4. Súfirðingarbók. Letters from Iceland, Auden. Eldfjallarit Þ.T.H. Alþýðubókin. Barn náttúrunnar. Vefarinn mikli frá Kasmír. Nokkrar bækur eftir Vilhjálm Stefánson á ensku og áritaðar. Uppl. í síma 898 9475. . Auglýsing um deiliskipulag í Skorradalshreppi Borgarfjarðarsýslu Samkvæmt ákvæðum 25. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997 er hér með lýst eftir athugasemdum við tillögu að breytingu á deili- skipulagi fyrir frístundahúsalóðir Hvamms- skógi 48 og 50 Skorradal, Borgarfjarðarsýslu. Á tillögunni er gert ráð fyrir að frístundalóðir nr. 48 og 50 verði sameinaðar í eina lóð, heim- ilt verði að byggja eitt frístundahús, gestahús, vinnustofu og bátaskýli. Tillagan ásamt byggingar- og skipulagsskilmál- um liggur frammi hjá oddvita á Grund, Skorra- dal, frá 18. maí 2006 til 15. júní 2006 á venjuleg- um skrifstofutíma. Athugasemdum skal skila til oddvita Skorra- dals, Grund Skorradal, fyrir 29. júní 2006 og skulu þær vera skriflegar. Þeir sem ekki gera athugasemd innan tilgreinds frests teljast samþykkir tillögunni. Skipulags- og byggingarfulltrúi, Ólafur K. Guðmundsson. Uppboð Uppboð Framhald uppboðs á eftirfarandi eignum verður háð á þeim sjálfum sem hér segir: Rauðarárstígur 1, 200-9596, Reykjavík, þingl. eig. Gissur Örn Gunnars- son, gerðarbeiðendur Íbúðalánasjóður, Íslandsbanki hf., útibú 528, Landsbanki Íslands hf., aðalstöðv, Lýsing hf., Tollstjóraembættið og Vátryggingafélag Íslands hf., mánudaginn 22. maí 2006 kl. 14:00. Skipholt 15, 227-8829 og 226-7511, Reykjavík, þingl. eig. Húsafell ehf., gerðarbeiðendur Landsbanki Íslands hf., Línuborun ehf. og Tollstjóraembættið, mánudaginn 22. maí 2006 kl. 14:30. Stigahlíð 26, 203-1016, Reykjavík, þingl. eig. Vala Ólöf Kristinsdóttir, gerðarbeiðandi Landsbanki Íslands hf., mánudaginn 22. maí 2006 kl. 13:30. Sýslumaðurinn í Reykjavík, 17. maí 2006. Raðauglýsingar 569 1100 Atvinnuhúsnæði Til leigu verslunar- og/eða skrifstofuhúsnæði 80 fm á 1. hæð (jarðhæð) með sérinngangi á frábærum stað við Holtasmára í Kópavogi. Stórir gluggar, tvö skrifstofuherbergi ásamt rúmgóðu opnu rými, eldhúsi og snyrtingu. Einnig tvö skrifstofuherbergi í mjög glæsilegu skrifstofuhúsnæði á svæði 101 Reykjavík. Upplýsingar í síma 693 4490. Nauðungarsala Uppboð Uppboð munu byrja á skrifstofu embættisins að Gránugötu 4 - 6, Siglufirði mánudaginn 22. maí 2006 kl. 13:50 á eftirfar- andi eignum: Fossvegur 21, 0201, fastanr. 213-0213, þingl. eig. Eva Birgitta Karls- dóttir og Baldur Jörgen Daníelsson, gerðarbeiðandi Íbúðalánasjóður. Hlíðarvegur 35, fastanr. 213-0402, þingl. eig. Örn Friðriksson, gerðar- beiðendur Byko hf., Íbúðalánasjóður og Lífeyrissjóður sjómanna. Lækjargata 8, 01-0101, fastanr. 213-0751, þingl. eig. Gjafakot-Eikin ehf., gerðarbeiðandi Kaupþing banki hf. Sýslumaðurinn á Siglufirði, 17. maí 2006. Guðgeir Eyjólfsson. Raðauglýsingar sími 569 1100

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.