Morgunblaðið - 18.05.2006, Side 50
Grettir
Smáfólk
Kalvin & Hobbes
Hrólfur hræðilegi
Gæsamamma og Grímur
Úthverfið
Kóngulóarmaðurinn
ÞAÐ ER
SVO GAMAN
AÐ FÍFLAST Í
HONUM
HANDA
MÉR?
PAKKAÐU
BÍLNUM, ÞÁ!
ÞESSAR SMÁKÖKUR ERU
FRÁBÆRAR. HEFUR ÞÉR DOTTIÐ Í
HUG AÐ SELJA ÞÆR Á MARKAÐNUM?
ÞAÐ VÆRI TILGANGSLAUST. ÉG
KÆMIST EKKI MEÐ ÞÉR ÚT ÚR HÚSI!
ÞAÐ ER EKKI
HEIMILD!
SVONA STOPPAR
MAÐUR ÓÐAN FÍL
GLEÐI-
LEGT
NÝTT ÁR!!
EKKI HAFA HÁTT KRAKKAR.
PABBI YKKAR ER EITTHVAÐ
SLAPPUR
VAR
HANN
FULLUR Í
GÆR?
NEI, HANN FÉKK
SÉR BARA NOKKRA
BJÓRA
EN HANN
BORÐAÐI YFIR
SIG!
HVENÆR
MÁ ÉG
TAKA
MEIRI
VERKJA-
LYF?
STAÐURINN
ÞINN ER ALVEG
FRÁBÆR!
ÉG HEF ALDREI SÉÐ
ANNAÐ EINS...
VINSÆLDIR ERU
LÍTILS VIRÐI EF MAÐUR
GETUR EKKI DEILT ÞEIM
MEÐ EINHVERJUM
HANN VERÐUR
ÖRUGGLEGA MJ0G VINSÆLL
ÁN ÞESS MUNDI ÉG
FARA Á TAUGUM. SVO
BÝÐUR ÞAÐ UPP Á
MÖRG TÆKIFÆRI TIL AÐ...
...FERÐAST!
ÉG
GET
EKKI
LIFAÐ
ÁN
ÞESSA
TEPPIS
HVAÐ
ER ÉG
AÐ
GERA?
KÖTTURINN
HANS PAVLOS Dagbók
Í dag er fimmtudagur 18. maí, 138. dagur ársins 2006
Sagt var frá því áfréttavef bb.is á
þriðjudag að hjónin
Guðbjörg Jónsdóttir og
Jón Hákon Ágústsson
á Bíldudal væru farin
að framleiða kaffi undir
heitinu Sólarkaffi.
Fjórar tegundir ku
vera framleiddar, Eð-
alkaffi Arnfirðingsins,
Selárdals Columbia,
Skrímslasopi og Vest-
fjarða-Ljómi. Kaffið
var kynnt á sýningunni
Perlan Vestfirðir fyrir
stuttu og féll víst í góðan jarðveg.
Sko, þetta kallar Víkverji framtak.
Virkilega gaman að þessu hjá þeim
hjónum og gott til þess að vita að þau
beri aðaláhugamál Víkverja fyrir
brjósti, nefnilega kaffidrykkju. Og
hvað er betra en að kalla kaffið Sólar-
kaffi með sinni merkilegu tilvísun í
árlegt kaffisamsæti Vestfirðinga til
að fagna hækkandi sólu, hvar sem
þeir eru niðurkomnir á landinu?
Nú er það svo að Víkverji fékk
kaffi og rjómapönnukökur hjá ömmu
sinnar heittelskuðu hér fyrir nokkru.
Og afinn var þarna líka, árvíti hress
að vanda. En þarna var borið fram
kaffið Skrímslasopi, ættað að vestan,
og Víkverji getur vott-
að það hér með að þetta
kaffi var frábært á
bragðið. Nú verður
hann að prófa Arnfirð-
ingskaffið og hinar teg-
undirnar. Undanfarið
hefur hann drukkið
kaffi frá Jövu eða
Guatemala og
skrímslasopinn kemur
sterkur inn, það er á
hreinu.
x x x
Víkverji tekur framað hann þekkir
hvorki haus né sporð á hinum ágætu
vestfirsku hjónum er að framan gat
og því verður ekki hægt að brigsla
honum um eitthvað einkavinahrós í
þessum dálki. Víkverji er yfirhöfuð
spar á allt hrós, því hann er í grund-
vallaratriðum gefinn fyrir að hafa allt
á hornum sér. En Sólarkaffið sló í
gegn hjá honum og það stríðir gegn
samvisku hans að segja ósatt um
kaffi, þann svarta Bedúínadrykk,
eins og Jan Guillou hinn sænski rit-
höfundur kallaði kaffi 12. aldar á tím-
um krossferðanna í sögu sinni Must-
erisriddarinn. Góð bók það og gott að
lesa hana með kaffinu.
Víkverji skrifar... | vikverji@mbl.is
Myndlist | Fjórir myndlistarmenn eru tilnefndir til hinna virtu Turner-
myndlistarverðlauna í Bretlandi í ár, en listinn var gjörður heyrinkunnur á
þriðjudag. Þeir sem um ræðir eru Rebecca Warren, Phil Collins, Tomma
Abts og Mark Titchner.
Á myndinni gefur að líta málverk úr smiðju Tommu Abts, sem er þýskætt-
aður abstraktmálari sem býr í Bretlandi. Verk hennar eru geómetrísk og öll
af sömu stærð; 48 x 38 sentimetrar. Abts var þátttakandi í síðasta Feneyja-
tvíæringi, með verkið Of Mice and Men.
AP
Tilnefnt til Turner-
verðlaunanna
MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍMAR: Skiptiborð: 569 1100.
Auglýsingar: 569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329,
fréttir 569 1181, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115.
NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.800 kr. á mánuði innanlands.
Í lausasölu 220 kr. eintakið mánudaga til laugardaga. Sunnudaga 350 kr.
Orð dagsins: Ávítur fá meira á hygginn mann en hundrað högg á
heimskingja. (Orðskv. 16, 18.)