Morgunblaðið - 18.05.2006, Qupperneq 51
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 18. MAÍ 2006 51
DAGBÓK
Námskeið í Feldenkreistækni verðurhaldið í Skálholti dagana 25. til 27. maí.Leiðbeinandi á námskeiðinu er SibylUrbancic tónlistarmaður sem er sér-
hæfð í kennslu Feldenkreisaðferðarinnar og starf-
ar í Vínarborg.
„Þetta er í þriðja sinn sem boðið er upp á nám-
skeið í Feldenkreistækni í Skálholti en námskeiðið
er ekki aðeins ætlað hreyfiskertum, heldur getur
verið gagnlegt öðrum enda getur notkun Felden-
kreistækni haft mikið forvarnargildi,“ segir Bern-
harður Guðmundsson, rektor Skálholtsskóla.
„Feldenkreisaðferðin er byggð á rannsóknum
Moshé Feldenkreis og hjálpar fólki með hreyfiörð-
ugleika að liðka liði og auka hreyfigetu sína,“ segir
Bernharður. „Aðferðin felur í sér að sjónum er
beint að því hvernig líkaminn og einstakir vöðvar
hans starfa, og sameina þannig huga og hreyfingu
til að efla hreyfigetu. Gerðar eru æfingar, en þær
mótast fyrst og fremst af hugsuninni og að ná aftur
stjórn yfir vöðvum sem hættir eru að hlýða. Við
gerum svo margt óhugsað með líkamanum, en með
Feldenkreistækni er hreyfingin meðvituð og lært
hvernig er einfaldast að beita vöðvunum án þess að
níðst sé á líkamanum.“
Námskeiðið er haldið í umhverfi Kyrrðardaga í
Skálholti og þess gætt að þáttakendur fái næga
hvíld. „Námskeiðið er haldið með þeim hætti að
hægt er að gjörnýta þann tíma sem þátttakendur
dvelja í Skálholti. Dvalið er í Skálholti fulla tvo sól-
arhringa og dekrað við þátttakendur í mat og ytri
gæðum og hægt að halda fjórar til fimm samverur
á dag þar sem Feldenkreisaðferðinni er beitt,“ seg-
ir Bernharður.
Bernharður nefnir sem dæmi um árangur tækn-
innar þátttakanda á námskeiði í Skálholti sem hafði
fjóra fingur annarrar handar kreppta inn í lófa en
gat að loknu námskeiði teygt úr einum þeirra.
„Á námskeiðunum hefur myndast ákaflega
skemmtilegt samfélag hér í Skálholti og við sjáum
að þeir sem verið hafa á fyrri námskeiðum eru
margir búnir að skrá sig aftur til þátttöku. Margir
þátttakenda eiga við hreyfiskerðingu að stríða, s.s.
vegna Parkinsonssjúkdómsins, en svo eru aðrir
sem einfaldlega eru farnir að stirðna og finna að
þeir hafa þörf fyrir að liðka vöðva sína,“ segir Bern-
harður. „Mér hefur þótt gaman að sjá hve mikil
gleði og skemmtun ríkir á þessum námskeiðum,
enda þátttakendur í nánu umhverfi og vinna marga
smásigra meðan á dvölinni stendur. Það vill oft
henda að maðurinn er öllum stundum ýmist að kafa
í fortíðinni eða leggja á ráðin um framtíðina, en hér
leitumst við við að einbeita okkur að því sem er hér
og nú og njóta stundarinnar.“
Enn eru laus nokkur pláss á Feldenkreis-
námskeiðið í Skálholti. Þátttökugjaldi er stillt í hóf
og er skráning í Skálholtsskóla, síma 486 8870, þar
sem einnig má leita frekari upplýsinga.
Heilsa | Sibyl Urbancic leiðbeinir á Feldenkreisnámskeiði, fyrir hreyfiskerta og aðra
Liðugri líkami með Feldenkreis
Bernharður Guð-
mundsson fæddist í
Önundarfirði 1937.
Hann lauk stúdents-
prófi frá MR 1956, prófi
í guðfræði frá HÍ 1962
og lauk meistaranámi í
fjölmiðlun frá háskól-
anum í Illinois 1978.
Bernharður var sókn-
arprestur í sveit, þorpi
og borg, fréttafulltrúi
og síðar fræðslustjóri Þjóðkirkjunnar, starfaði
við fjölmiðlastörf í Afríku og stjórnunarstörf í
Genf á vegum Lútherska heimssambandsins.
Bernharður hefur síðustu fimm ár verið rektor
Skálholtsskóla. Bernharður er kvæntur Rann-
veigu Sigurbjörnsdóttur hjúkrunarfræðingi og
eiga þau þrjú börn og þrjú barnabörn.
Árnaðheilla
dagbók@mbl.is
60 ÁRA afmæli. Föstudaginn 19.maí n.k. verður sextugur Gunn-
ar Sigurðsson bæjarfulltrúi, fram-
kvæmdastjóri Olís á Vesturlandi og
f.v. formaður K.F.I.A., Espigrund 3,
Akranesi. Hann og eiginkona hans,
Sigríður Guðmundsdóttir, taka á móti
gestum í sal Íþróttamiðstöðvarinnar að
Jaðarsbökkum á afmælisdaginn kl. 18–
20.
40 ÁRA afmæli. Í dag, 18. maí, erfertugur Ólafur Thordersen,
framkvæmdastjóri Njarðtaks og bæj-
arfulltrúi í Reykjanesbæ. Ólafur tekur
á móti gestum í félagsheimilinu Stapa í
Njarðvík, á morgun, föstudaginn 19.
maí, klukkan 20.
Sverrir Kristinsson, löggiltur fasteignasali
Ránargata - glæsileg
Vorum að fá í einkasölu glæsilega 6 herbergja 128 fm íbúð ásamt tveimur
herbergjum í kjallara. Íbúðin er á tveimur hæðum. Sérinngangur. Á neðri
hæðinni er forstofa, gangur, eldhús, baðherbergi og stór stofa. Á efri hæð-
inni eru fjögur stór herbergi. Íbúðin er mjög glæsileg og hefur verið
standsett á vandaðan hátt. Gegnheilt eikarparket og flísar á gólfum. Lóðin
er nýstandsett með nýrri grasflöt og hellulögn.
Fallegar sagnir.
Norður
♠76
♥Á76 A/Allir
♦KD10
♣D8652
Vestur Austur
♠95 ♠83
♥DG4 ♥K10532
♦762 ♦983
♣ÁK1097 ♣G43
Suður
♠ÁKDG1042
♥98
♦ÁG54
♣–
Í sveitakeppni Cavendish-mótsins í
síðustu viku kom upp slemmuspil, sem
reyndist mörgum erfitt í sögnum. Sví-
inn Björn Fallenius og hinn bandaríski
makker hans Roy Welland, leystu þó
vandann á fallegan máta:
Vestur Norður Austur Suður
Fallenius Welland
– – Pass 1 spaði
Pass 1 grand Pass 4 lauf *
Pass 4 tíglar Pass 4 spaðar
Pass 5 hjörtu Pass 6 tíglar
Pass 6 spaðar Allir pass
Stökk Wellands í fjögur lauf við
kröfugrandinu sýnir einspil eða eyða í
laufi (splinter) og sjálfspilandi opn-
unarlit. Á ensku er talað um „auto-
splinter“ þegar opnari „samþykkir“
eigin lit á svo afgerandi hátt.
Kröfugrandið er aldrei sterkt, svo
Fallenius var sáttur við sín spil og
sýndi fyrst fyrirstöðu í tígli og síðan í
hjarta þegar Welland sló af í fjórum
spöðum. Við það hresstist Welland aft-
ur og bauð upp á sex tígla í framhjá-
hlaupi, enda hugsanlegt að norður ætti
langan tígul og hjartakóng, sem þyrfti
að valda fyrir útspili. Svo var ekki og
Fallenius breytti í sex spaða.
Vel gert.
BRIDS
Guðmundur Páll Arnarson | dagbok@mbl.is
Hver þekkir konuna
ámyndinni?
HVER þekkir konuna sem er á þess-
ari mynd? Myndin er líklegast tekin í
Vestmannaeyjum. Þeir sem gætu
gefið upplýsingar vinsamlega hringið
í Leif Sveinsson í síma 551 3224.
(Íslenskt?) réttlæti
Á DÖGUNUM las ég ofurlitla frétt í
blaði þess efnis að gæfulaus maður
sæti í herfangelsi í Þýskalandi og biði
dóms.
Væri varla frétt ef ekki væri fyrir
þá sök að brot mannsins var morð og
það var framið á Íslandi. Þess var
getið í framhjáhlaupi að hann gæti
jafnvel hlotið líflátsdóm.
Á þessu sé ég eftirtalda vankanta:
Brotið var framið á Íslandi, hefði því
átt að rannsakast af íslenskri lög-
reglu og maðurinn þá að dæmast af
íslenskum dómi? Nú kann þetta að
virðast hinn mesti sparðatíningur, en
eftir stendur að kannski verður hann
dæmdur til lífláts, sem mun vera
bannað samkvæmt íslenskum lögum,
og hefur verið í nokkra mannsaldra.
Ég vil því fara þess á leit við þá
ráðherra sem um þetta hafa eitthvað
að segja að þeir leiti eftir því að þessi
lánlausi maður verði framseldur til
Íslands svo dæma megi hann sam-
kvæmt þeim lögum sem þar heyra til.
Og sýna þar með umheiminum að við
stöndum Bandaríkjamönnum framar
í mannréttindamálum.
Úlfur Ragnarsson.
Týnd gleraugu
áLaugavegi
HERRA sjóngleraugu týndust á
Laugaveginum (einhvers staðar á
milli húsa nr. 27 og 76) síðdegis
sunnudaginn 14. maí. Gleraugun sem
eru svört Gucci-gleraugu með sterk-
um glerjum eru í svörtu Ray-Ban-
hulstri og er þetta mikill missir fyrir
eiganda. Finnandi vinsamlegast komi
gleraugunum til lögreglu eða hafi
samband í síma 866 7226.
Velvakandi
Svarað í síma 5691100 kl. 10–12
og 13–15 | velvakandi@mbl.is
1. e4 c5 2. Rf3 e6 3. d3 d6 4. g3 Rc6 5.
Bg2 Rf6 6. O-O Be7 7. He1 Dc7 8. c3 b6
9. d4 e5 10. Ra3 Bg4 11. dxc5 dxc5 12.
Bg5 O-O 13. Bxf6 Bxf6 14. Rc4 Hfd8
15. De2 Dd7 16. Re3 Re7
Staðan kom upp á skákmóti öðlinga
sem lauk fyrir skömmu í húsakynnum
Taflfélags Reykjavíkur í Faxafeni 12.
Kristján Guðmundsson (2235) hafði
hvítt gegn Kára Sólmundarssyni
(1890). 17. Rxe5! Bxe2? fýsilegra var
að leika 17... Bxe5 þó að svarta staðan
væri slæm eftir 18. Rxg4. 18. Rxd7
Hxd7 19. e5! Bxe5 20. Bxa8 Bd3 21.
Had1 og svartur gafst upp. Þorsteinn
Þorsteinsson og Kristján urðu jafnir í
efsta sæti á mótinu en Þorsteinn bar
sigur úr býtum eftir stigaútreikning.
Benedikt Jónasson varð hinsvegar
hlutskarpastur á hraðskákmóti öðlinga
en þátttaka á því móti var allgóð.
SKÁK
Helgi Áss Grétarsson | dagbok@mbl.is
Hvítur á leik.
Í KVÖLD kl. 22.30 er komið að enn
einum atburðinum á Hláturhátíð
Borgarleikhússins. Þá munu valdir
leikarar Borgarleikhússins leika
fyrir áhorfendur þeirra uppáhalds-
atriði úr Áramótaskaupum Sjón-
varpsins og fer skemmtunin fram í
forsal leikhússins.
Leikararnir kvöldsins eru: Arn-
björg Hlíf Valsdóttir, Halldór
Gylfason, Sóley Elíasdóttir, Friðrik
Friðriksson, Hildigunnur Þráins-
dóttir og Orri Huginn Ágústsson.
Leiktu fyrir mig!
Hjá Máli og menningu er komin út
Ronja ræningjadóttir eftir Astrid Lind-
gren í þýðingu Þorleifs Haukssonar.
Í Matthíasarskógi búa grádvergar,
rassálfar og nornir, og í kastalanum
sem elding klauf í tvennt fyrir löngu
hafast við tveir ræningjaflokkar. Þetta
eru heimkynni vinanna Ronju og Birkis
sem rata í fjölmörg ævintýri saman en
lenda þó fyrst í vanda þegar þau þurfa
að koma vitinu fyrir tvo þrjóska ræn-
ingjahöfðingja.
Ronja ræningjadóttir er sígild saga
eftir einn ástsælasta barnabókahöf-
und allra tíma.
Bókin er 237 bls.
Verð: 2.490 kr.
Nýjar bækur