Morgunblaðið - 18.05.2006, Síða 56
56 FIMMTUDAGUR 18. MAÍ 2006 MORGUNBLAÐIÐ
MENNING
Í INGÓLFSSTRÆTI 8 er starf-
rækt myndlistargalleríið og söng-
skólinn Anima. Í dag verða fyrstu
tónleikarnir af sex í sumartónleika-
röð Animu.
Hólmfríður Jóhannesdóttir söng-
kona er framkvæmdastjóri Animu:
„Söngvararnir í tónleikaröðinni
eiga það sameiginlegt að fást við
klassískan söng. Að öðru leyti er
ekkert þema á tónleikunum og allt
mögulegt í boði,“ segir Hólmfríður.
Á tónleikunum í dag munu Davíð
Ólafsson bassi og Stefán Helgi
Stefánsson syngja við undirleik
Gróu Hreinsdóttur og eru óper-
ettur viðfangsefni tónleikanna.
Sumartónleikar Animu verða
haldnir alla fimmtudaga út júní, að
undanskildum uppstigningardegi
25. maí og hefjast allir tónleikarnir
kl. 12.15.
Bókað út apríl
Anima söngskóli og myndlist-
argallerí var opnað í byrjun mars
en Hólmfríður hafði verið að leita
að húsnæði þar sem hægt væri að
starfrækja söngskóla: „Þegar ég
fann húsnæðið sá ég strax að hér
gæti líka orðið prýðisgallerí,“ segir
Hólmfríður sem á listamann að
unnusta og starfaði áður á Lista-
safni Íslands. Húsnæðið var gert
upp og notkun þess skipt þannig
að helming vikunnar er þar kennd-
ur söngur og hinn helminginn er
galleríið opið.
„Búið er að bóka sýningarrýmið
til apríl á næsta ári en nú stendur
yfir sýning á verkum Bjargar Örv-
ar sem lýkur 21. maí. Húsnæðið er
stærra en virðist af götunni, því
auk sýningarsalarins erum við með
verk listamannanna okkar í um-
boðssölu bakatil,“ segir Hólm-
fríður.
Nánari upplýsingar um söng-
skólann og galleríið má finna á
www.animagalleri.is.
Tónlist | Hádegistónleikar í sumar í
Animu, myndlistargalleríi og söngskóla
Þýðir tónar í
Ingólfsstræti
Stefán Helgi Stefánsson og Davíð
Ólafsson syngja í Animu í dag.
Dagskrá hádegistónleika Anima í
sumar, á fimmtudögum kl. 12.15.
18. maí: Davíð Ólafsson bassi og
Stefán Helgi Stefánsson tenór.
Gróa Hreinsdóttir píanó
1. júní: Ingveldur Ýr Jónsdóttir
messósópran og Guðríður St. Sig-
urðardóttir píanó
8. júní: Alda Ingibergsdóttir sópr-
an og Sólveig Jónsdóttir píanó
15. júní: Signý Sæmundsdóttir
sópran og Bjarni Jónatansson
píanó
22. júní: Hallveig Rúnarsdóttir
sópran og Árni Heimir Ingólfsson
píanó
29. júní: Hólmfríður Jóhann-
esdóttir messósópran og Gerrit
Schuil píanó
MINNING Mozart verður heiðruð
á tónleikum Sinfóníuhljómsveitar
Íslands í dag og á morgun. Austur-
ríski fiðluleikarinn Ernst Kovacic
mun stjórna hljómsveitinni og leika
einleik. „Í fiðlukonsertinum leik ég
einleik og stjórna en í hinum verk-
unum er ég aðeins hljómsveitar-
stjóri,“ segir Ernst.
Á efnisskrá eru fjögur verk; sin-
fónía nr. 40 í g-moll eftir Mozart
sem er ein af hans þekktustu sin-
fóníum, fiðlukonsert í D-dúr KV
261a og spilar Kovacic einleik í hon-
um, tónverk eftir Frank Martin sem
heitir Ouverture en hommage a
Mozart og verkið Wandlungen op.
21 eftir Gottfried von Einem.
„Aðalverkin eru sinfónía nr. 40 og
fiðlukonsertinn sem er reyndar ekki
víst að sé eftir Mozart, en mér
finnst þetta vera fallegt verk svo ég
valdi það. Svo kaus ég tvö verk sem
voru skrifuð fyrir 200 ára afmæli
Mozarts árið 1956, eftir Martin og
Einem.“
Vitað er að Mozart samdi fimm
fiðlukonserta, en auk þess eru tveir
konsertar eignaðir honum þótt upp-
haflegu handritin séu löngu glötuð.
Fiðlukonsertinn í D-dúr er annar
þeirra. „Sinfónía nr. 40 er ein þrosk-
aðasta sinfónía Mozarts og er frek-
ar dramatísk og ástríðufull með
dökkar hliðar en eins og í öllum
verkum hans er góð blanda af björt-
um og dökkum hliðum. Verkin eftir
Martin og Einem eru mjög áhuga-
verð en tónskáldin reyna bæði á
sinn eigin hátt að nota einkenni
Mozarts í verkin.“
Mozart er alltaf áskorun
Svissneska tónskáldið Frank
Martin samdi Ouverture en homm-
age a Mozart í minningu Mozarts
árið 1956. Þetta er stutt og líflegt
verk, og Martin leitast við að ná
fram anda Mozarts án þess að nota
ódýrar stíleftirlíkingar eða innan-
tómar tilvísanir úr verkum meist-
arans. Sama ár pantaði suðvestur-
þýska útvarpið verk í tólf þáttum
frá jafnmörgum tónskáldum, sem
bar yfirskriftina Divertimento für
Mozart. Meðal tónskáldanna var
Gottfried von Einem, sem lagði til
upphafskafla verksins, Wandlung-
en.
Spurður hvort Mozart sé eitt af
uppáhaldstónskáldum hans svarar
Kovacic að hann sé ekki endilega
uppáhalds en fyrir alla tónlistar-
menn sé Mozart skemmtileg áskor-
un. „Maður skoðar verk hans aftur
og aftur og uppgötvar alltaf nýja
hluti.“
Kovacic segir mjög góðan anda
ríkja hjá Sinfóníuhljómsveit Íslands
og gaman sé að stjórna henni. Hann
hefur oft komið hingað til lands,
bæði sem hljómsveitarstjóri og til
að halda tónleika. „Þetta er í annað
sinn sem ég er hljómsveitarstjóri á
Íslandi en ég hef oft komið hingað
og kann mjög vel við land og þjóð.“
Tónlist | Ernst Kovacic stjórnar Sinfóníuhljómsveit Íslands
Í minningu Mozarts
Eftir Ingveldi Geirsdóttur
ingveldur@mbl.is
Tónleikarnir eru í dag, fimmtudag-
inn 18. maí, og á morgun, föstu-
daginn 19. maí, kl. 19.30 í Há-
skólabíói.
Morgunblaðið/Eyþór
Ernst Kovacic er hljómsveitarstjóri Sinfóníunnar á tvennum tónleikum.
ÞEGAR blaðamaður nær tali af Finnboga Pét-
urssyni í aðdraganda sýningar hans í i8, sem
verður opnuð í dag kl. 17, er hann á leiðinni í
verslunina Góða hirðinn. Ætlunin er að ná sér í
„nokkrar snúrur og fleira“ til að slá smiðs-
höggið á innsetninguna í galleríinu. Við frest-
um því samtali að sinni, en þegar við ræðum
saman síðar um daginn kemur í ljós að ferðin
hefur gengið vonum framar.
„Ég er búinn að tengja þetta allt við tölvuna
og nú er allt farið að víbra og ljósgeislar farnir
að skína hér um alla veggi,“ segir hann.
Í raun er erfitt að lýsa verkum Finnboga
Péturssonar nánar en þetta með orðum. Verk
hans snúast um hljóðbylgjur, eða tíðnir, og
myndgerð þeirra á ýmsan hátt. Með þeim
hætti vann Finnbogi til dæmis verk á Listahá-
tíð í fyrra, sem sett var upp í tönkunum við
Háteigsveg, verk inn í Kúluna í Ásmund-
arsafni fyrir þremur árum og á Feneyjatvíær-
ingnum árið 2001, svo dæmi séu nefnd.
Verkið nú byggist, líkt og stundum áður, á
hljóði, vatni og ljósi og hefur Finnbogi tekið
vitund mannsins fyrir, enda hefur vitundin
ýmislegt að gera með tíðnir, að sögn Finnboga.
Mannshugurinn starfi á ýmsum tíðnum eftir
því hvert hugarástandið er, mjög lágri tíðni í
svefnástandi, en hærri í vökuástandi.
En það er bilið milli vöku og draums sem
Finnbogi er að skoða. „Í þessu verki hér í i8
nota ég frá fjórum og upp í ellefu rið, og lít á
það sem línuna á milli þessara tveggja heima
sem við lifum í – heimsins sem við erum sam-
mála um að sé til, og hins vegar heimsins sem
við erum ekki eins sammála um en vitum þó að
er til – draumaheimsins. Á milli þessara heima
liggur lína, sem er auðvitað loðin þegar við för-
um í þetta ferðalag milli þeirra. Innsetningin
er þetta ferðalag.“
Strangt til tekið samanstendur innsetningin
af tveimur stöplum, samsíða veggjunum, og
nær annar frá gólfi og upp á miðjan vegg, en
hinn frá lofti og niður að miðju veggjarins.
Upp úr stöplunum berast ljósgeislar. „Hæðin
er nokkurn vegin jöfn, en þó skilja að um það
bil tíu sentimetrar, sem er þessi huglæga lína
sem ég dreg. Þegar þú stendur í miðju rým-
isins skynjarðu hana, en þú getur ekki hent
reiður á hvar hún er nákvæmlega,“ segir Finn-
bogi.
Eins og fyrr segir er ekki auðvelt að útskýra
verk Finnboga með orðum, þótt þau séu hríf-
andi að upplifa í sjálfum sér. En hvers vegna
kýs hann þessa nálgun að myndlist? „Þetta er
bara það sem ég hef mestan áhuga á þessa
stundina, þetta millibil. Í stað þess að horfa á
blóm og reyna að ná mynd af því er ég að
reyna að framkalla þetta bil, bæði myndrænt
og þannig að maður finni fyrir því. Þetta er
einfaldlega mín nálgun á efni,“ segir Finnbogi.
13 myndlistarkonur
Á sama tíma verður opnuð sýning á verkum
13 myndlistarkvenna í i8. Sýnt verður á neðri
hæð gallerísins og í skrifstofurými á Klapp-
arstíg 35 og gefur þar að líta ljósmyndir, mál-
verk, skúlptúra og myndbönd.
Myndlistarkonurnar þrettán eru: Gabríela
Friðriksdóttir, Guðrún Einarsdóttir, Gjörn-
ingaklúbburinn, Hildur Bjarnadóttir, Inga
Svala Þórsdóttir, Jeanine Cohen, Karin Sand-
er, Katrín Sigurðardóttir, Margrét Blöndal,
Ólöf Nordal, Ragna Róbertsdóttir, Roni Horn
og Sara Björnsdóttir.
Myndlist | Finnbogi Pétursson og 13 myndlistarkonur í i8 á Listahátíð í Reykjavík
Bil milli heima
Morgunblaðið/Kristinn
Finnbogi Pétursson opnar sýningu í i8 í dag.
Sýningarnar standa til 1. júlí.
Eftir Ingu Maríu Leifsdóttur
ingamaria@mbl.is