Morgunblaðið - 18.05.2006, Side 61
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 18. MAÍ 2006 61
SAMBÍÓ ÁLFABAKKA SAMBÍÓ KRINGLUNNI
MI : 3 kl. 5:30 - 8 - 10:40 B.I. 14 ára
SHAGGY DOG kl. 5:50 - 8 - 10:10
INSIDE MAN kl. 5:30 - 8 - 10:40 B.I. 16 ára
SÝND Í
STAFRÆNNI
ÚTGÁFU,
MYND OG HLJÓÐ
SHAGGY DOG kl. 3:40 - 5:50 - 8:30 - 10:40
MI : 3 kl. 3:30 - 6 - 8 - 10:40 B.I. 14 ára
MI : 3 LÚXUS VIP kl. 5:30 - 8 - 10:30
FAILURE TO LAUNCH kl. 4 - 6 - 8 - 10:10
SCARY MOVIE 4 kl. 4 - 6 - 8 - 10:10 B.I. 10 ára
FIREWALL kl. 6 - 8:15 - 10:40 B.I. 16 ára
BAMBI 2 m/ísl. tali kl. 4
TIM ALLEN ( THE SANTA CLAUSE/TOY STORY)
SKIPTIR UM HAM Í GRÍNVIÐBURÐI ÁRSINS.
VERÐUR HANN HUNDHEPPINN
EÐA HVAÐ?
FRÁ J.J.ABRAMS,
HÖFUNDI LOST OG ALIAS
AF MÖRGUM TALIN VERA BESTA
MISSION IMPOSSIBLE MYNDIN TIL ÞESSA.
eeee
VJV, Topp5.is
eeeH.J. mbl
“ÞAÐ ER VEL HÆGT AÐ MÆLA MEÐ
“M:I:III” SEM GÓÐRI AFÞREYINGU
OG SUMARSMELLI.”
eee
JÞP blaðið
S.U.S. XFM
FORSALA AÐGÖNGUMIÐA Í FULLUM GANGI
HEIMSFRUMSÝND Á MORGUN
jass á fimmtudögum
Við höldum áfram með
lifandi jass alla fimmtu-
daga í maí á Primavera
í samstarfi við
vínframleiðandann
Castello Banfi.
Í kvöld spilar Óskar
Guðjónsson, ásamt
bróður sínum Ómari og
Tómasi R. Einarssyni
Borðapantanir í síma
561 8555
Í næstu viku:
Trio Jóels Pálssonar
#3: 18. maí
Matseðill
Grilluð hörpuskel á teini með blómkálspurré og humargljáa
Gnocchi með graslauk, ólífum og tómötum
Hægeldaður svínabógur kryddaður með fennel,
chili og hvítlauk
Lime-og ricotta kaka með vanilluís og jarðaberjasalati
kr.5200.-
ÞÓ að Fríkirkjan sé að mörgu leyti
huggulegt tónleikahúsnæði, þá eru
stórkostlegir gallar á því sem draga
umtalsvert úr ánægjunni sem vand-
aður tónlistarflutningur getur fært
manni. Allir sem sitja utan við súl-
urnar á neðri hæðinni geta gleymt
því að sjá nokkuð alla tónleikana, og
sama gildir um aftari bekki á svöl-
um. Tónleikahaldarinn Austur-
Þýskaland seldi að vísu ekki á aftari
bekkina á svölunum, en það breytir
ekki því að helmingur tónleikagesta
– sá helmingur sem sat fjær gang-
inum – sá nær ekkert meðan á tón-
leikunum stóð. Þetta var sérstaklega
áberandi meðan Slowblow lék. Allir
liðsmenn sveitarinnar sátu meðan á
tónleikunum stóð og sjónræni þátt-
urinn fólst eftir því í stöku fiðluboga
hér og þar, og lubbanum á Degi
Kára þegar hann flutti sig milli
hljóðfæra. En þá var bara að treysta
á eyrun.
Slowblow var í öðrum ham en hún
hefur sýnt hingað til. Liðsmenn
sveitarinnar, þeir Dagur Kári og
Orri, voru studdir trommuleikara og
strengjasveit. Fyrsta lag sveit-
arinnar var langt og þungt og
byggðist nær alfarið á strengjum.
Þaðan lá leiðin í hefðbundnari og
hrárri Slowblow-hljóm, þó að allur
söngur hafi verið fjarri góðu gamni.
Einnig bar meira á hljómborði held-
ur en á plötum sveitarinnar. Lögin
voru nær öll ný af nálinni (eða hafa
ekki heyrst mikið áður) að und-
anskildu stuttu stefi sem mig minnir
að hafi hljómað í Nóa albinóa. Þrátt
fyrir leiðinlega smelli og suð í hljóð-
kerfi stóð Slowblow sig ágætlega.
Þau spiluðu hins vegar fullstutt fyrir
minn smekk – ég var rétt að kveikja
á þessari nýju stefnu þeirra þegar
prógramminu lauk.
Andstæðan átti við um Smog, sem
lék þremur ef ekki fjórum lögum of
mikið. Smog, eða Bill Callahan, er
ekki beinlínis tónlistarmaður; oftar
en ekki lægi betur við að fjalla um
hann sem ljóðskáld. Lögin sam-
anstanda af einföldu gítarplokki og
djúpri röddu Smogs sem fer með
langa og ljóðræna texta. Laglínur
eru á reiki og áherslan er fremur á
hughrifin sem Smog tekst að skapa
með flutningi textans. Þar sem gítar
Smogs hljómaði ekki sem best og
fólk var orðið óþreyjufullt eftir
kærustunni hans – sjálfri Jóhönnu
Newsom – þá var sjarminn fljótur að
hverfa.
Joanna Newsom stillti sér upp
skör hærra en Slowblow og Smog
svo fleiri gestir sáu til hennar með
hörpuna í fanginu. Á hinni frábæru
frumraun Newsom, The Milk-Eyed
Mender, hljómar hún ekki deginum
eldri en 10 ára, en þegar hún hóf upp
raust sína í fyrsta laginu „Bridges
and Balloons“ var ekki annað að
heyra en í kirkjuskipið væri komin
kona á áttræðisaldri. (Hér ber að
geta þess að hún er ekki nema
hálþrítug.) Flutningurinn var mjög
ólíkur þeim sem hljómar á plötunni;
Newsom var miklu öruggari og hafði
meira vald á röddinni. Röddin var
einnig þýðari og líklegri til þess að
ná til þeirra sem þoldu hana ekki á
Milk-Eyed Mender.
Hörpuleikurinn var einnig örugg-
ari, hún leyfði sér meira, t.d. í
skemmtilegu sólói í „The Book of
Right-On“ og flóknari spilamennsku
í „Sadie“. Allar laglínur, öll hrynj-
andi og allar áherslur léku í hönd-
unum á Newsom sem virkaði næst-
um samvaxin við lögin sín, líklegast
eftir mikla spilamennsku víðsvegar
um hnöttinn.
Joanna lék alls sex lög af Milk-
Eyed Mender auk þriggja nýrra
laga. Nýju lögin voru af allt öðrum
toga en þau eldri. Þau voru öll um og
yfir tíu mínútur og áttu nær ekkert
skylt við það sem við nefnum popp.
Þau voru skyldari framúrstefnulegri
eða nýklassískri tónlist, fóru um
ýmsa ófyrirsjáanlega ranghala og
höfðu öll til að bera texta sem hefðu í
sameiningu auðveldlega fyllt eitt
smásagnasafn. Joanna sýndi ótrú-
lega hæfni í raddbeitingu; í einum og
sama taktinum gat hún hljómað eins
og gamalmenni, sópransöngkona,
smástelpa, skrímsli og karlmaður.
Gömlu lögin hennar bliknuðu raunar
í samanburði við nýju lagasmíðarnar
og spenna undirritaðs fyrir nýrri
plötu Newsom óx margfalt í Frí-
kirkjunni á þriðjudagskvöld.
Nýjar lagasmíðar Jóhönnu sýna
að það sem hefur hingað til verið
nefnt „indípopp“ er að sprengja utan
af sér allar skilgreiningar og það
kæmi mér ekki á óvart ef hún næði
til glænýs hlustendahóps úr allt ann-
arri átt á næstu plötu sinni, þ.e.a.s.
ef áhugamenn um nýklassík koma til
með að sætta sig við óvenjulegan (og
stundum óþægilegan) sönginn.
Joanna Newsom sat því skör
hærra en upphitunarsveitir hennar,
bæði bókstaflega og í listrænum
skilningi. Auk þess sýndi hún og
sannaði að hún tekur flestum tónlist-
armönnum í sínum geira fram og á
eflaust eftir að stimpla sig enn betur
inn á komandi árum.
Að sitja skör hærra
TÓNLIST
Fríkirkjan
Tónleikar Joönnu Newsom í Fríkirkjunni
16. maí. Smog og Slowblow hituðu upp.
Joanna Newsom – Atli Bollason
Þeir Björn Sigurðsson, fram-kvæmdastjóri Senu, og Krist-
inn Þórðarson framleiðandi munu
á laugardaginn í Skandinavíu-
básnum í Cannes skrifa undir með-
framleiðslusamning á íslensku
kvikmyndinni Köld slóð. Þar með
mun Sena eignast dreifingar- og
sýningarrétt á myndinni í kvik-
myndahúsum, á myndbandi/
mynddiski, VOD og sjónvarpi og fá
auk þess hlutdeild í tekjum af sölu
myndarinnar á heimsvísu. Sam-
kvæmt uppsýsingum frá Senu er
þetta í fyrsta skipti sem sjálfstætt
íslenskt dreifingarfyrirtæki gerist
meðframleiðandi á íslenskri kvik-
mynd.
Köld slóð er spennumynd um
harðsvíraðan íslenskan blaðamann
sem lendir í mikilli hættu þegar
hann rannsakar dularfullt dauðs-
fall á virkjunarsvæði á hálendi Ís-
lands. Leikstjóri myndarinnar er
Björn Brynjúlfur Björnsson og
handritið skrifaði Kristinn Þórð-
arson. Myndin verður frumsýnd
um jólin 2006 og með aðalhlutverk
fara þau Þröstur Leó Gunnarsson
og Elva Ósk Ólafsdóttir. Myndin
er framleidd af Sagafilm ehf. og 22
ehf.
Fólk folk@mbl.is
AUGLÝSINGADEILD
netfang: augl@mbl.is eða sími 569 1111