Morgunblaðið - 10.06.2006, Page 4

Morgunblaðið - 10.06.2006, Page 4
4 LAUGARDAGUR 10. JÚNÍ 2006 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR RANNSÓKNARNEFND sjóslysa telur að orsök þess að skemmtibáturinn Harpa steytti á skeri á Viðeyjarsundi í september á síðasta ári hafi verið stórkostlegt gáleysi við stjórn bátsins og veru- legar líkur eru á því að þar hafi ölvunarástand skipstjóra skipt verulegu máli. Þá telur nefndin, að það hafi verið röng ákvörðun að sigla bátnum frá skerinu. Þetta kemur fram í lokaskýrslu nefndarinnar um slysið sem birt var nú í vikulok. Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi í vikunni Jónas Garðarsson, sem var skipstjóri á bátnum, í 3 ára fangelsi fyrir manndráp af gáleysi en tveir far- þegar um borð í bátnum, þau Matthildur Harð- ardóttir og Friðrik Ásgeir Hermannsson, létu lífið í slysinu. Þá var Jónas dæmdur til að greiða að- standendum þeirra sem létust samtals 9 milljónir króna í bætur. Skýrslan staðfestir gagnrýni ættingja hinna látnu Að mati Jóhannesar Rúnars Jóhannssonar hrl., lögmanns ættingja hinna látnu, staðfestir nýbirt skýrsla Rannsóknarnefndar sjóslysa gagnrýni ættingjanna þess efnis að pottur hafi verið brotinn í viðbrögðum björgunaraðila. „Það er alveg klárt mál að þennan þátt munum við skoða mjög vand- lega í framhaldi af skýrslu rannsóknarnefndarinn- ar, sem við höfum raunar beðið eftir,“ sagði Jó- hannes í samtali við Morgunblaðið. Sagði hann ekki tímabært að tjá sig mikið um skýrsluna að svo stöddu eða hvað hugsanlega hefði farið úr- skeiðis við björgunina. „Það hefur verið okkar af- staða að við höfum ekki viljað trufla þessi mála- ferli sem hafa verið í gangi gegn Jónasi, því það er fyrst og fremst og raunar einvörðungu hann sem ber ábyrgð á dauða Matthildar og Friðriks,“ sagði Jóhannes. Í niðurlagi skýrslu Rannsóknarnefndar sjóslysa er að finna sérstakar ábendingar og þar beinir nefndin því til stjórnvalda sem fara með leitar- og björgunarmál að taka afdráttarlaust af allan vafa um það hver fari með stjórnun þessara mála á hafnarsvæðum. Jafnframt telur nefndin mjög mikilvægt að aðilar innan björgunarmiðstöðvar í Skógarhlíð tryggi að samstarf þeirra á neyðar- stundu sé hnökralaust og í samræmi við gildandi reglur og fyrirmæli. Bendir nefndin á að í þessu tilfelli hefði strax átt að boða út svæðisstjórn björgunarsveita og kalla út þyrlu Landhelgisgæsl- unnar. Einnig telur nefndin að samræma þurfi fjarskiptabúnað leitar-, björgunar- og stjórnunar- aðila á svæðinu. Meðal þess sem fram kemur í skýrslunni er að textaskilaboð í útkallsboðun Neyðarlínunnar til áhafnar Ásgríms S. Björnssonar, björgunarskips Slysavarnafélagsins Landsbjargar, hafi ekki verið í samræmi við aðstæður. Sent var út „F1 útkall rauður“ sem er, að því er fram kemur í skýrslunni, forgangsútkall og táknar fólk í lífsháska. „Texta- boð útkallsins var ekki í samræmi við aðstæður og aðeins talað um bát á reki sem væri ófær um að komast í land. Var það mat viðbragðsaðila að text- inn hefði dregið úr alvarleika boðsins,“ segir m.a. í skýrslunni. Samskiptaörðugleikar og óljósar upplýsingar Fram kemur einnig að skipstjórinn á Ásgrími S. Björnssyni hafi strax eftir útkallið reynt að leita frekari upplýsinga hjá Neyðarlínunni (NL) en að allar upplýsingar þar hafi verið óljósar. „Þá var reynt að hafa samband við VSS [Vaktstöð sigl- inga] en þar kom fram að málið væri enn hjá NL. Í annarri tilraun við NL fengust þær upplýsingar að ölvun væri um borð í bátnum, einhver vélarbilun og/eða erfiðleikar við að komast í land. Í þriðju hringingu skipstjórans til NL var óskað eftir lög- reglu í útkallið en þá var honum ráðlagt að hringja sjálfur í hana. Hringja þurfti í þrjú símanúmer til að ná sambandi við varðstjóra lögreglu,“ segir í skýrslunni. Einnig kemur í skýrslunni fram að svo virðist sem samskiptaörðugleikar innan Vaktstöðvar siglinga (VSS) í kjölfar slyssins hafi valdið því að mikilvægar upplýsingar bárust ekki til björgunar- aðila um leið og þær lágu fyrir. Tekið er fram að VSS segi að óljósar upplýsingar og fyrirspurnir hafi borist til mismunandi starfsstöðva innan VSS sem hafi orðið til þess að heildarsýn á atvikið og al- varleika þess hafi ekki orðið varðstjórum VSS ljós fyrr en um kl. 2.24 slysanóttina. Rannsóknarnefnd sjóslysa birtir lokaskýrslu sína um sjóslysið á Viðeyjarsundi Orsökin rakin til stórkostlegs gáleysis við stjórn bátsins Eftir Silju Björk Huldudóttur silja@mbl.is þeim sem óskar eftir reynslulausn skuli að jafnaði hafna beiðni hans. Er þetta ákvæði nú að finna í lög- um um fullnustu refsinga. Aftur reyndi Pétur Þór eftir að hafa af- plánað tvo þriðju af refsingunni en fékk sömu svör. Ragnar Aðalsteinsson, hrl., lög- maður Péturs, segir að lagaákvæð- ið feli í sér brot á jafnræðisregl- unni. Sé mál í gangi gegn fanga fái hann að jafnaði ekki reynslulausn PÉTUR Þór Gunnarsson, einn ákærðu í málverkafölsunarmálinu svonefnda, hefur höfðað mál gegn íslenska ríkinu og krafist rúmlega 3,8 milljóna króna skaðabóta. Krafa Péturs gengur út á að þegar hann afplánaði sex mánaða dóm vegna falsana fór hann fram á reynslulausn eftir þrjá mánuði en ósk hans var hafnað á grundvelli lagaákvæðis um að sé annað mál í gangi í réttarvörslukerfinu gegn en sé slíkt mál ekki í gangi gegn honum sé farið öðruvísi með beiðni hans. Málið fór til umboðsmanns Al- þingis og segir Ragnar að hann hafi í áliti sínu komist að þeirri niðurstöðu að ekki hafi verið full- nægjandi lagastoð fyrir því að synja beiðni Péturs, auk þess sem málsmeðferðarreglur hafi ekki verið virtar. Þá bendir Ragnar ennfremur á að fyrir Mannréttindadómstól Evrópu hafi gengið dómur þar sem reyndi á tyrknesk lagaákvæði um reynslulausn, sem kveði á um að hafi fangi brotið gegn hryðju- verkalöggjöf eigi hann ekki mögu- leika á reynslulausn og stóðst sú framkvæmd að mati dómstólsins, þar sem um afmarkaða brota- flokka væri að ræða. Hér á landi sé þessu ekki til að dreifa, enginn munur sé gerður á brotaflokkum. Pétur Þór í skaðabótamál við ríkið JÓNAS Garðarsson, formaður Sjómannafélags Reykjavíkur og stjórnarmaður í Sjómanna- sambandi Íslands, sendi í gær frá sér yfirlýsingu þar sem hann dregur sig út úr báðum fyrr- nefndum stjórnum. „Að dómi Héraðsdóms Reykjavíkur gengnum hef ég að vel athuguðu máli ákveðið að draga mig í hlé frá öllum trúnaðarstörfum fyrir Sjó- mannafélag Reykjavíkur og Sjómannasamband Íslands að svo komnu. Ákvörðun þessi er tekin til að koma í veg fyrir að mín persónulegu mál í kjölfar þess hörmulega slyss sem varð þann 10. september 2005 trufli hagsmunabaráttu sjó- manna,“ segir í yfirlýsingunni. Jónas Garðarsson seg- ir af sér formennsku SKILNINGUR Tómasar Zoëga á niðurstöðu Hæsta- réttar í máli hans gegn Land- spítala – háskólasjúkrahúsi er rangur. Þetta segir Anton B. Markússon hrl., sem flutti um- rætt mál fyrir hönd LSH. Ant- on vísar í þessu sambandi til ummæla Tómasar í Morgun- blaðinu í gær, þar hann túlki niðurstöðuna á þann veg að ólögmæti jafngildi ógildingu. „Það er auðvitað fjar- stæða,“ segir Anton og bendir á að lögfræðilega séð sé grundvallarmunur á þessum hugtökum. „Ákvörðunin var dæmd ólögmæt en það þýðir í raun að ákvörðunin sem slík stend- ur. […] Í niðurstöðu Hæsta- réttar felst að Tómas er ekki dæmdur að nýju inn í starfið eins og sagði í héraðsdómi á sínum tíma. Þetta grundvall- aratriði er munurinn á niður- stöðu héraðsdóms og Hæsta- réttar og skiptir mestu máli fyrir LSH. Þannig opnar nið- urstaða Hæstaréttar ekki dyr fyrir aðra yfirlækna varðandi þetta atriði.“ Anton segir að í dag sé Tómas áfram sérfræðilæknir og beri réttindi og skyldur sem slíkur. Hann geti hugs- anlega sett fram kröfu um miskabætur en LSH beri hins vegar engin lagaleg skylda til þess að láta Tómas taka aftur við fyrri stöðu sinni sem yf- irlæknir geðsviðs. Tómas taki aftur við starfi sínu Karl Axelsson hrl., sem flutti málið fyrir hönd Tóm- asar, segir að Hæstiréttur hafi í dómi sínum viðurkennt að aðgerðir LSH hafi verið ólög- mætar og óheimilar. Hann segir að eina rétta og löglega niðurstaðan væri sú að Tómas taki aftur við starfi sínu í kjöl- far dómsins og jafnframt hljóti hann að eiga miskabóta- kröfu vegna þessara ólög- mætu aðgerða. Verði honum neitað um starfið þýði það hins vegar háar og miklar skaðabótakröfur. Karl segir að miðað við það sem á undan er gengið og þekkjandi til óskammfeilni yf- irstjórnenda LSH teldi hann hins vegar ekki útilokað að þar á bæ þrjóskuðust menn við, viðhéldu ólögmætinu og neituðu Tómasi um að taka við starfi sínu á ný. „Þá eru brostnar forsendur fyrir áframhaldandi störfum hans fyrir LSH og hann mun þá til viðbótar gera skaðabóta- kröfu sem svarar launum hans út starfsævina.“ Yfirstjórnendur LSH eru nú að fara yfir málið með lög- fræðingum sínum en tjá sig ekki um málið að svo stöddu. Lögfræð- ingur LSH segir skiln- ing Tóm- asar rangan EKKI er gott að vera týndur og vita ekki hvert för er heitið. Þá er vissara að spyrja til vegar. Hins vegar geta leiðbeiningar um stystu leið verið ansi flóknar, sér- staklega ef tungumálaörðugleikar spila inn í. Eitthvað virtust leiðbeiningar tveggja vegfarenda fara fyrir ofan garð og neðan hjá þeim þriðja þegar ljósmyndari Morg- unblaðsins átti leið um Austurstrætið í gær. Vonandi er þó að maðurinn hafi komist á leiðarenda að lokum. Morgunblaðið/Ómar Hvert liggur leið? HÉRAÐSDÓMUR Reykjavíkur sýknaði í gær karlmann af ákæru fyrir að hafa framið kynferðisbrot á tveimur konum. Maðurinn og konurnar tvær eru öll greind- arskert og konurnar eru þar að auki hreyfihamlaðar. Í dómnum kemur fram að of mik- ill vafi hafi leikið á því hvort kyn- ferðismökin sem maðurinn átti við aðra konuna hafi verið framkvæmd gegn vilja hennar. Varðandi hina konuna taldist ekki sannað að mað- urinn hafi haft í frammi ofbeldi eða annarskonar ólögmæta nauðung til að þröngva hana til kynferð- isathafna. Sýknaður af ákæru um að hafa nauðgað tveimur konum FÓLKSBÍLUM á Íslandi hefur fjölgað töluvert á undanförnum ár- um. Fram kom í ½5 fréttum KB banka í gær, að í lok síðasta árs hafi samtals verið 187.442 bílar hér á landi, samkvæmt tölum frá Um- ferðarstofu, eða 0,9 bílar á hvern einstakling á aldrinum 18 til 75 ára. Frá árinu 1994 hefur fólksbílum á hvern íbúa á þessu aldursbili fjölgað úr 0,65 bílum á íbúa. Bílum fjölgaði hratt á tímabilinu 1994 til 2000, úr um 0,65 bílum á íbúa í 0,8 bíla á íbúa. Síðustu vikurnar hefur heldur dregið úr vexti innflutnings fólksbíla. Segir KB banki, að ástæð- urnar séu að öllum líkindum hærra bílverð í kjölfar gengislækkunar, minni bjartsýni neytenda og jafnvel einhver mettun í bifreiðaeign. Næstum einn bíll á mann KARLMAÐUR á þrítugsaldri sem lýst hafði verið eftir síðan á mið- vikudaginn fannst látinn í gær- morgun skv. upplýsingum frá lög- reglunni í Reykjavík. Ekkert hafði spurst til hans síðan 1. júní. Fannst látinn

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.