Morgunblaðið - 10.06.2006, Síða 6
6 LAUGARDAGUR 10. JÚNÍ 2006 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Terra Nova býður beint flug tvisvar í viku til Parísar í sumar. Flogið er á
mánu- og miðvikudögum. París er ótrúlega spennandi borg, hvort sem
þú vilt þræða listasöfnin, spranga um í Latínuhverfinu eða njóta lífsins
lystisemda sem þessi einstaka borg býður í ríkum mæli. Gríptu tækifærið
og skelltu þér til Parísar í sumar.
kr. 14.990
Netverð á mann.
Flugsæti aðra leið með sköttum
(París-Kef.).
Frá kr. 52.640
– Helgarferð
Netverð á mann, m.v. gistingu í tvíbýli í
4 nætur með morgunverði (miðvikud.-
sunnud.) á Hotel Victoria.
París
frá kr. 14.990
Tvisvar í viku
Skógarhlíð 18 – 105 Reykjavík – sími 591 9000
Akureyri – sími 461 1099 • Hafnarfirði – sími 510 9500
www.terranova.is
- SPENNANDI VALKOSTUR
Eftir Brján Jónasson
brjann@mbl.is
VERJENDUR tveggja sakborninga í Baugs-
málinu telja að settur ríkissaksóknari í málinu
hafi haft áhrif á það hvaða dómari var skip-
aður í þeim hluta málsins sem til er kominn
vegna endurútgáfu ákæranna.
Kröfðust verjendurnir þess við fyrirtöku í
Héraðsdómi Reykjavíkur í gær að bæði Sig-
urður Tómas Magnússon settur ríkissaksókn-
ari og Helgi I. Jónsson dómstjóri Héraðsdóms
Reykjavíkur bæru vitni fyrir dómi um sam-
skipti þeirra áður en ákærur voru gefnar út.
Sigurður Tómas mótmælti þessari kröfu
verjendanna og sagði ekkert athugavert við
samskipti sín við dómstjórann. Hann útilokaði
jafnframt ekki að yrði hann kallaður fyrir sem
vitni mundi hann kalla verjendur fyrir á sama
hátt, enda væri m.a. verið að fjalla um sam-
skipti þeirra sjálfra. Úrskurður í málinu verð-
ur felldur mánudaginn 12. júní.
Við upphaf málflutnings í gær fór Arn-
grímur Ísberg, dómari í málinu, yfir kröfur
verjenda, sem lagðar höfðu verið fram. Hann
spurði því næst verjendur, þá Gest Jónsson,
verjanda Jóns Ásgeirs Jóhannessonar, og Jak-
ob Möller, verjanda Tryggva Jónssonar, hvort
þeir hygðust halda þessum kröfum fram. Var
því játað, og spurði Jakob hvort það kæmi
dómaranum á óvart. „Nei, mér er löngu hætt
að koma eitthvað á óvart,“ svaraði Arngrímur.
Gestur reifaði málið að mestu fyrir hönd
verjenda. Hann sagði það einn grundvöll frá-
vísunarkröfu sinnar og Jakobs að sækjandi í
málinu, Sigurður Tómas, hefði í samskiptum
við dómstjóra héraðsdóms haft afskipti af því
hvaða dómari var skipaður í málinu, með því
að vekja athygli dómstjóra á því að eitt vitn-
anna sem hann hygðist kalla fyrir dóminn
væri tengt Pétri Guðgeirssyni fjölskyldubönd-
um, sem var dómsformaður í fyrri hluta
Baugsmálsins. Pétur var ekki valinn sem dóm-
ari í þessum hluta málsins, heldur Arngrímur
Ísberg, sem var annar tveggja dómara er
dæmdu fyrri hluta Baugsmálsins ásamt Pétri.
Gestur las upp úr bréfi frá Sigurði Tómasi,
þar sem hann svaraði spurningum Gests um
samskipti sín við dómstjóra bréflega. Þar
kemur fram að Sigurður Tómas hefði haft
samband við dómstjóra áður en endurákærur
voru gefnar út, m.a. í þeim tilgangi að und-
irbúa flutning „sendibílsfarms“ af gögnum
sem málinu fylgdu. Í þeim samræðum kom
fram að mögulega yrði Pétur Guðgeirsson
dómari í málinu, þó að allt eins líklegt væri að
einhver annar yrði fyrir valinu. Benti Sigurður
Tómas þá á fjölskyldutengsl Péturs við eitt
vitna málsins, sem kynnu að valda vanhæfi
hans.
Þetta sagði Gestur stangast á við það sem
fram kom í samtali verjenda við Helga dóm-
stjóra. Þar hefði hann sagt að hann hefði látið
Sigurð Tómas vita af því a.m.k. viku áður en
ákæra var gefin út að Pétur yrði dómari í mál-
inu, ef til kæmi. Þetta misræmi verði að skýra
með því að kalla þá Sigurð Tómas og Helga
fyrir dóminn sem vitni.
Sigurður Tómas sagði að fyrir dóminn hefðu
verið lögð bréf frá sér og Helga um þessi sam-
skipti og það væri sín skoðun að það ætti að
nægja. Hann benti ennfremur á að dómarar í
málum væru aldrei skipaðir fyrr en ákærur
hefðu verið birtar, og því fráleitt að það hefði
verið ákveðið að Pétur Guðgeirsson ætti að
verða dómari í þessu máli.
Það kom aðeins fram viku fyrir útgáfu
ákæru að mikilvægt vitni væri tengt Pétri
Guðgeirssyni fjölskylduböndum, og Sigurður
Tómas sagði að hann hefði talið rétt að láta
dómstjóra vita af því. Ef það hefði ekki verið
gert hefði það getað kostað óþarfa tíma og
lagaflækjur að fjalla um vanhæfi dómara.
Sigurður Tómas sagði það ekki sjálfgefið að
Pétur Guðgeirsson hefði orðið fyrir valinu sem
dómari í málinu. Dómstjóra bæri þannig að
meta hvaða dómari yrði skipaður, m.a. með til-
liti til hæfis þeirra, og verjendur hefðu ekki
mótmælt því að Pétur væri vanhæfur.
Í gær voru einnig skipaðir matsmenn til að
fara yfir tölvupósta, og á niðurstaða að liggja
fyrir í síðasta lagi 1. september næstkomandi.
Verjendur tveggja ákærðu í Baugsmálinu segja sækjanda hafa haft áhrif á skipun dómara í málinu
Mögulegt að verjendur beri vitni
Morgunblaðið/Eyþór
Sigurður Tómas Magnússon, settur ríkissaksóknari í Baugsmálinu (t.h.), ræddi málin við sam-
starfsfólk sitt í réttarsal í gær, en þess er krafist að Sigurður beri vitni fyrir héraðsdómi.
ÁHÖFN eftirlitsflugvélar Landhelg-
isgæslunnar, Synjar, stóð flutninga-
skip að því að þjónusta sjóræningja-
skipið Carmen í eftirlitsflugi yfir
úthafskarfamiðin á Reykjaneshrygg
í gær. Þetta mun væntanlega valda
því að flutningaskipið, sem heitir Po-
lestar og er skráð í Panama sem
frystiskip, fer á svarta lista NEAFC
(Norðaustur-Atlantshafsfiskveiði-
ráðsins).
Þegar Syn flaug yfir skipin voru
þau stödd 480 sjómílur frá Reykjavík
eða 190 sjómílur frá mörkum efna-
hagslögsögu Íslands þar sem yfir 50
erlend skip eru að veiðum. Þar sem
Ísland er aðili að NEAFC tekur
Landhelgisgæslan þátt í eftirliti með
fiskveiðum á svæðinu. Greinilegt er
að skipin reyna að athafna sig eins
fjarri lögsögumörkum og hægt er til
að verða síður staðin að verki.
Áhöfnin á Syn tilkynnti skipstjóra
Polestar að ef það þjónustaði skip
sem væri að veiðum án kvóta á samn-
ingssvæði Norðaustur-Atlantshafs-
fiskveiðiráðsins, færi það á svartan
lista ráðsins og það hefði alvarlegar
afleiðingar fyrir skipið og útgerð
þess. Skipstjórinn sagðist eingöngu
vera að láta skipið hafa umbúðir. Í
tilkynningu frá Landhelgisgæslunni
segir að ekki sé ljóst hvort Polestar
hafi verið að taka við afla frá Carmen
eins og áhöfn Synjar grunaði en sam-
kvæmt reglunum má ekki veita sjó-
ræningjaskipum neina þjónustu, þar
með talið að útvega því umbúðir.
Polestar er 120 metra langt og
4.574 brúttótonn að stærð og er
skráð sem frystiskip. Skýrsla um
málið verður send frá Landhelgis-
gæslunni til sjávarútvegsráðuneytis-
ins sem kemur upplýsingunum á
framfæri við aðalskrifstofu NEAFC
í London.
Var að þjónusta
sjóræningjaskip
Bára Sigurjónsdóttir,
fyrrverandi kaupkona,
lést síðastliðinn
fimmtudag á heimili
sínu á Fjarðargötu 17 í
Hafnarfirði. Bára var
84 ára. Hún fæddist 20.
febrúar árið 1922 í
Hafnarfirði. Foreldrar
hennar voru Sigurjón
Pétursson fram-
kvæmdastjóri og
Rannveig Vigfúsdóttir
húsfreyja.
Báru var margt til
lista lagt. Hún lauk
prófi úr Kvennaskólan-
um í Reykjavík en fluttist síðan til
Danmerkur þar sem hún lauk árið
1939 prófi í danskennslu frá Dans-
skóla Fjeldgaard og Flatau og einnig
leikfimi- og sundkennaraprófi frá
Ollerup í Kaupmannahöfn.
Árið 1943 náði Bára einleikara-
prófi á píanó frá Tónlistarskólanum í
Reykjavík og síðan diplómu frá Ed-
mée-snyrtiskólanum í Kaupmanna-
höfn sem snyrtifræðingur árið 1946.
Loks lauk hún sveinsprófi í hatta-
gerð frá Iðnskólanum í
Reykjavík 1954.
Á árunum 1939 til
1943 rak Bára dans-
skóla í Hafnarfirði og
Reykjavík. Jafnframt
því starfaði hún til árs-
ins 1950 við undirleik,
söng, dans og snyrt-
ingu auk verslunar-
starfa.
Frá og með árinu
1950 rak hún eigin
tískuvöruverslun á
Hverfisgötunni í
Reykjavík undir nafn-
inu Hjá Báru. Voru þar
seld kvenföt en kjólar voru aðals-
merki verslunarinnar. Árið 2000
hætti Bára störfum í versluninni eft-
ir 50 ára farsælan rekstur, þá 78 ára
að aldri.
Bára var gift Pétri Guðjónssyni
framkvæmdastjóra til andláts hans
árið 1983 en áður hafði hún verið gift
Kjartani Sigurjónssyni söngvara.
Bára lætur eftir sig tvo syni, Sig-
urjón og Guðjón Péturssyni, og sex
barnabörn.
Andlát
BÁRA
SIGURJÓNSDÓTTIR
UMSLAG sem sent var í pósti frá
Reykjavík til Kaupmannahafnar á 8.
áratug 19. aldar var á fimmtudaginn
selt á uppboði á 91 þúsund dollara
eða rúmar 6,6 milljónir íslenskra
króna hjá bandaríska uppboðsfyrir-
tækinu Cherrystone Auctions. Upp-
hafsboð var 90 þúsund dollarar.
Samkvæmt upplýsingum frá Fé-
lagi frímerkjasafnara á Íslandi er án
efa um að ræða eitt verðmætasta
umslag með íslenskum frímerkjum í
heiminum í dag. Verðmæti umslags-
ins felast einkum í þriggja skildinga
frímerkjunum tveimur sem á um-
slaginu eru en þau eru afar sjaldgæf.
Ástæðan er sú að þessi frímerki voru
í raun óþörf á sínum tíma þar sem
sendandi gat ætíð notað frímerki
með öðru verðgildi, til að mynda
hefði legið beinast við að sendandi
umslagsins fágæta hefði notað eitt 8
skildinga frímerki í stað þeirra
þriggja sem hann notaði. Heilleg
umslög sem þessi eru einnig verð-
mætari en stök frímerki.
Í samtali við Morgunblaðið sagði
Joshua Buchsbaiw, forstjóri Cherry-
stone Auctions, að safnari frá einu
Norðurlandanna hefði hreppt um-
slagið á uppboðinu. Sagði hann að
um hátt verð væri að ræða fyrir um-
slag eins og þetta en áður hefði
þrisvar verið reynt að bjóða það upp
í Danmörku.
Að sögn Buchsbaiw eru íslensk frí-
merki nokkuð vinsæl meðal frí-
merkjasafnara. Landið sé lítið og
framandi og því finnist mörgum
spennandi að safna frímerkjum frá
Íslandi. Þróun frímerkja frá Íslandi
sé áhugaverð og tengslin við Dan-
mörku geri það að verkum að margir
danskir safnarar svipist um eftir frí-
merkjum frá Íslandi.
Umslagið var selt fyrir
rúmar 6,6 milljónir króna
HÉRAÐSDÓMUR Suðurlands
sakfelldi í gær karl og konu á
þrítugsaldri fyrir brot á lögum
um ávana- og fíkniefni. Konan
hafði vafið tæplega fimm
grömmum af amfetamíni,
sprautu og nál í sellófanvafning
sem hún kom fyrir innvortis og
flutt inn í fangelsið á Litla-
Hrauni, þar sem hún afhenti
manninum efnið.
Maðurinn var svo fundinn
sekur um að hafa haft umrætt
magn af amfetamíni í vörslum
sínum en efninu hafði hann
komið fyrir innvortis. Við rann-
sókn þess máls kom í ljós að
maðurinn hafði jafnframt
gleypt 10– 12 grömm af amfeta-
míni fyrr um daginn. Leggja
þurfti manninn inn á spítala,
þar sem hann dvaldi í átta daga
því efnið gekk ekki niður, held-
ur seytlaði smám saman út í lík-
ama hans. Maðurinn hlaut fyrir
vikið tveggja mánaða fangels-
isvist en konan eins mánaðar
fangelsisvist.
Földu
fíkniefni
innvortis