Morgunblaðið - 10.06.2006, Qupperneq 9
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 10. JÚNÍ 2006 9
FRÉTTIR
Opið virka daga frá kl. 10-18 laugardaga frá kl. 10-16
• Engjateigi 5
• sími 581 2141
15% afsláttur
af öllum stökum jökkum
Síðasti tilboðsdagur
Kvartbuxur, galla og spari
Eddufelli 2 Bæjarlind 6
sími 557 1730 sími 554 7030
Opið mán.-fös. kl. 10-18, lau. kl. 10-15
Kringlunni
s. 588 1680
Laugavegi 40
s. 561 1690
iðunn
tískuverslun
Glæsilegt úrval
af kvartbuxum
og bolum
frá Gardeur
2 stk verð aðeins kr. 1.400.-
VINSÆL VERSLUN
KRINGLUNNI
L í t t u á w w w. t k . i s
BJÓR-glösin
fyrir HM
HM 2006 -TILBOÐ
Mikið úrval af glösum & karöflum
á frábæru HM-TILBOÐI!
t.d. 6 stk MAXIMA BJÓRGLÖS
aðeins kr. 1.995.-
Ókeypis prjónaklúbbur
Skráning á www.tinna.is
Laugavegi 51, sími 552 2201
Ný sending
Laugavegi 63 • s: 551 4422
Fallegu dönsku
sumarkápurnar frá
Herluf-Design nú með
15% afslætti
Sjáið sýnishornin á laxdal.is
Mörkinni 6, sími 588 5518.
Opið virka daga frá kl. 10-18
Útsala 20-50%
afsláttur
ARTHUR Morthens, forstöðumaður
menntasviðs Reykjavíkurborgar,
segir að niðurstöður skýrslu Bene-
dikts Jóhannssonar, sálfræðings,
byggist á stórri könnun sem unnin
var af þróunarsviði Fræðslumið-
stöðvar Reykjavíkur og Rannsókn
og greiningu og kynnt árið 2003.
Greint var frá skýrslu Benedikts í
Morgunblaðinu á fimmtudaginn.
Arthur segir að hann telji aðalat-
riðið í könnuninni og það sem fyrst
og fremst megi lesa úr henni vera að
eftir því sem börnin séu frá sterkari
fjölskyldum líði þeim betur og á móti
að eftir því sem fjölskyldurnar séu
veikari, líði þeim verr.
„Það er ljóst að fjölskylda og
tengsl barns við foreldra sína er
veigamikil breyta í líðan barna,“ seg-
ir Arthur og bætir við að þetta megi
segja með nokkurri vissu en annað sé
erfiðara að fullyrða um. Til að mynda
sé erfitt að staðhæfa að börn sem búi
hjá einstæðum feðrum standi verr
félagslega en önnur börn, þótt vís-
bendingar í þá átt megi finna í niður-
stöðum könnunarinnar. Þar kemur
fram að börn sem búa hjá einstæðum
föður segja sjaldnar að sér líði vel en
börn sem búa hjá báðum foreldrum.
Arthur segir að hlutfall barna í könn-
uninni sem búa hjá einstæðum feðr-
um sé lágt og erfitt að lesa mikið út
úr þessum niðurstöðum.
Viðkvæm staða
„Við vissum það hins vegar að við-
kvæm staða barna hjá einstæðum
foreldrum er fyrir hendi,“ segir
Arthur og nefnir að til að mynda
gæti langur vinnudagur einstæðra
feðra í ákveðnum tilvikum haft áhrif.
„En hvort tengsl föður og barns séu
ekki þau sömu og móður og barns,
það þarf miklu meiri rannsóknir til
að geta fullyrt eitthvað í þeim efn-
um.“
Arthur segir að tilgangur könnun-
arinnar hafi fyrst og fremst verið að
kanna líðan barna í 5.–7. bekk grunn-
skólum og í ljós hafi komið að um
3,5% þeirra líði illa öllum stundum í
skóla. Reynt hafi verið að koma til
móts við þetta með því að senda
skýrsluna í grunnskóla og þeir beðn-
ir að skoða þann hóp barna sem áttu í
mestum erfiðleikum. Þá voru sál-
fræðingar Fræðslumiðstöðvar settir
í þessi mál. Aðspurður hvort þeim
aðgerðum verði fylgt eftir með frek-
ari könnun á líðan barna segir Arth-
ur að slík könnun hafi verið gerð á
þessu ári og skýrsla um hana sé nú í
vinnslu. „Þá sjáum við hver staðan
er,“ segir Arthur.
Tengsl foreldra við barn
mikilvæg fyrir líðan þess
Arthur Morthens, forstöðumaður menntasviðs borgarinnar
BJARNI Brynjólfsson, sem sagt
var upp störfum sem ritstjóra Séð
og heyrt fyrir rúmri viku, telur ekki
ólíklegt að hann muni höfða skaða-
bótamál vegna ásakana Elínar G.
Ragnarsdóttur,
framkvæmda-
stjóra tímaritaút-
gáfu Fróða, þess
efnis að hann hafi
gerst sekur um
fjársvik í garð
fyrirtækisins.
„Ég mun leita
réttar míns en
það er hart að
mér vegið með
þessu. Ég vil
hreinsa mitt nafn og fá þessa ásök-
un dæmda dauða og ómerka,“ segir
Bjarni en á fimmtudag fékk hann í
hendurnar bréf frá Fróða, þar sem
gerð er grein fyrir umræddum
ásökunum.
„Mestur hluti af því sem ég fékk í
hendurnar snýr alls ekki að mér en
það skal tekið fram að ég hef ekki
haft neinar fjárreiður með höndum.
Þarna er einnig talað um reikninga
sem eiga að hafa farið í gegnum mig
en hafa ekki gert það. [...] Það
stendur ekki steinn yfir steini í
þessum ásökunum og ég er í sjálfu
sér engu nær eftir að hafa fengið
bréfið í hendur.“
Að sögn Bjarna fer Blaðamanna-
félag Íslands með málið fyrir hans
hönd.
Fær að svara fyrir sig
Elín G. Ragnarsdóttir segir að
engin ákvörðun hafi verið tekin um
að kæra Bjarna til lögreglu að svo
stöddu.
„Hann er hins vegar beðinn um
að svara ákveðnum spurningum og
fær tækifæri til þess áður en næstu
skref eru ákveðin,“ segir Elín og
vísar þar til bréfsins sem Bjarna
barst á fimmtudaginn.
Þegar Elín er spurð um ásakan-
irnar á hendur Bjarna segir hún að
gríðarleg hækkun hafi orðið á
kostnaði tímaritsins Séð og heyrt
þegar Bjarni tók við sem ritstjóri.
Ástæðurnar fyrir þessari hækkun
hafi verið skoðaðar og grunsemdir
um meint fjársvik Bjarna vaknað
eftir að honum var sagt upp störf-
um.
Fyrrverandi ritstjóri
Séð og heyrt íhugar
skaðabótamál
Bjarni
Brynjólfsson
UMHVERFISRÁÐHERRA kynnti í
gær nýtt vegakort á vefnum, en
kortið verður auk þess hengt upp
víða um land. Kortið er ætlað til
leiðbeiningar um hvað eru vegir á
miðhálendinu og er liður í barátt-
unni gegn utanvegaakstri.
Á myndinni eru Árni Bragason,
frá Umhverfisstofnun, Sigríður
Anna Þórðardóttir umhverf-
isráðherra og Haraldur Johann-
essen, aðstoðarmaður ráðherra.
Morgunblaðið/Ásdís
Ráðherra kynnti nýtt vegakort
Fréttir
í
tölvu-
pósti