Morgunblaðið - 10.06.2006, Side 10

Morgunblaðið - 10.06.2006, Side 10
10 LAUGARDAGUR 10. JÚNÍ 2006 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR JAKE L. Siewert, for- stöðumaður upplýs- ingamála hjá Alcoa, segir að upplýsingar sem komu fram í grein í brasilísku dagblaði og Alcoa birti til skamms tíma á vefsíðu sinni, um að Alcoa greiði um helmingi minna fyrir raforkuna á Íslandi en í Brasilíu, vera byggðar á mis- skilningi, sem bæði megi rekja til Alain Belda, stjórnarfor- manns Alcoa, og blaðamannsins sem tók viðtal við hann. Belda hafi borið flókna samninga saman með of ein- földum hætti og blaðamaðurinn hafi „svo einfaldað hlutina enn frekar með þeim afleiðingum að einhverjar upplýsingar fóru for- görðum í ferlinu,“ segir hann. „Okkur þykir leitt að misskilningur hafi skapast. Það sem fram kom í brasilíska dag- blaðinu var ekki rétt. Þar var afar flóknum raforkusamningi lýst eins og hann væri mjög einfaldur,“ segir Sie- wert. Hann segir að Alcoa birti oft fréttir á vefsvæði sínum sem fengnar séu úr dag- blöðum. „Við erum með tengla á ýmsar vefsíður þar sem fram koma upplýsingar sem við get- um ekki vitað með vissu hvort eru réttar. Við erum meðal annars með tengil inn á Náttúruverndarsamtök Íslands á vefsíðu okkar, en það felur ekki í sér að við teljum að allar þær upplýsingar sem þar koma fram séu réttar,“ segir hann. Um raforkusamninga Alcoa í Brasilíu og á Íslandi segir Siewert að þeir séu flóknir og ekki hægt að útskýra þá með því að nefna eitt raforkuverð. Samningarnir séu gerðir með langtímahagsmuni beggja samningsaðila að leiðarljósi og þeir breytist með tímanum. „Brasilíski raforkumarkaðurinn er mjög ólíkur þeim íslenska. Í Bras- ilíu er eftirspurn eftir raforku langt umfram framboð. Þar búa milljónir manna við fátækt og hafa ekki að- gang að raforku. Brasilíumenn eru að reyna að þróa sinn raforkumark- að til þess að mæta þörfum fólks. Á Íslandi er staðan allt önnur, þið haf- ið meira en nóg af raforku,“ segir hann. Þau skilaboð sem Belda hafi vilj- að koma á framfæri í Brasilíu hafi verið þau að hugsanlegt væri að Brasilíumenn og önnur ríki gætu orðið undir í samkeppni um raf- orkuverð þegar þau þyrftu að keppa við lönd á borð við Ísland sem hefðu samkeppnisforskot í raforkumálum. Hafi þetta komið fram á fundi sem Belda átti með forseta Brasilíu. Á Íslandi sé ekki aðeins hagstætt raf- orkuverð, heldur sé skattastefna landsins, gagnsæir stjórnarhættir og fleira í þeim dúr nokkuð sem fjárfestar líti jákvætt á. Alcoa sé ekki eina fyrirtækið sem renni hýru auga til Íslands um þessar mundir. Siewert segist ekki geta veitt upplýsingar um það verð sem Alcoa hyggist greiða vegna Kárahnjúka- virkjunar. Samningarnir séu flóknir og taki breytingum með tímanum. Forstöðumaður upplýsingamála hjá Alcoa segir upplýsingar um raforkuverð á Íslandi í brasilísku dagblaði á misskilningi byggðar Jake Siewert Segir stjórnarformann Alcoa hafa einfaldað mál um of Létti leynd af raf- orkuverði til Alcoa „Enda þótt það hafi verið dregið til baka þá er ástæða til þess að opna málið,“ segir Álfheiður. Um sé að ræða stórt mál og í samkeppnisum- hverfi eins og verið sé að koma upp hér á landi í raforkuiðnaðinum, verði öll samskipti fyrirtækjanna og við- skipti að vera gagnsæ og opinber. „Viðskiptaleynd í þetta stóru máli á ekki við,“ segir Álfheiður. „Það hafa komið fram upplýsingar sem er mik- ilvægt að almenningur fái að vita hvort eru réttar eða rangar,“ bætir hún við og kveðst vænta þess að aðrir stjórnarmenn í Landsvirkjun muni samþykkja tillöguna, enda hafi leynd- in í upphafi verið sett á að frumkvæði Alcoa. „Ástæðan fyrir því hvað þetta er mikilvægt í mínum huga er sú að það hafa alla tíð staðið miklar deilur um arðsemi Kárahnjúkavirkjunar. Menn hafa fullyrt að arðsemin væri svo mik- il af þessari virkjun að það réttlætti fyllilega allar þær landskemmdir og þau landspjöll sem virkjunin hefur í för með sér. Aðrir hafa sagt að þetta sé rangt og arðsemin sé engin. Það sé verið að fórna þarna landi til einskis í því tilliti. Þetta er það sem ég vil fá upp á borðið. Ég vil fá að vita raun- verulega hver arðsemin er. Fyrir hvað erum við að fórna þessu landi?“ segir Álfheiður Ingadóttir. BOÐUÐ hefur verið tillaga sem lögð verður fyrir stjórn Landsvirkjunar á fundi hennar 26. júní nk.um að létt verði leynd af raforkuverði til Alcoa, að sögn Álfheiðar Ingadóttur, eins þriggja fulltrúa Reykjavíkurborgar í stjórn Landsvirkjunar. Helgi Hjörv- ar, sem einnig situr í stjórninni fyrir hönd borgarinnar, mun flytja tillög- una en Álfheiður styður hana og flyt- ur með Helga. Álfheiður segir að sér skiljist að Alcoa hafi farið fram á það á sínum tíma að leynd um raforkuverð- ið yrði viðhöfð. „Ég var ekki í stjórn Landsvirkj- unar þegar samningar voru gerðir við Alcoa eða ákvarðanir teknar um Kárahnjúkavirkjun. Ég hef því ekki annað fyrir mér í þessu heldur en það sem fram hefur komið opinberlega um að það hafi verið Alcoa sem óskaði eftir því að leynd hvíldi yfir þessu. Nú er Alcoa fyrir sína parta búið að af- létta þeirri leynd,“ segir Álfheiður. Hún vísar í þessu sambandi til upp- lýsinga sem fram komu í viðtali við Alain Belda, stjórnarformann Alcoa, í brasilísku dagblaði, sem var birt á vefsíðu Alcoa. Þar var haft eftir Belda að Alcoa greiddi um 15 dali fyrir megawattið. Eftir Elvu Björk Sverrisdóttur elva@mbl.is HANN var heldur ógætilega hlaðinn flutningabíllinn sem ljósmyndari Morgunblaðsins sá á Þorlákshafn- arvegi í fyrradag. Hafði fjölda gosflaskna og dósa verið hlaðið ofan á gám á bílnum og ekkert skjólborð var fyrir hendi, heldur ólar notaðar til þess að festa farminn. Ágúst Mogensen, forstöðumaður rann- sóknanefndar umferðarslysa, segir að í reglugerð um frágang á farmi komi fram að styttur eða skjólborð skuli vera til varnar skriði á varningi sem ekið er með. „Stundum þegar menn hlaða farm svona eru þeir að miða við að geta flutt hann milli staða. Í flestum tilfellum gengur það alveg upp. En hvað ef eitthvað kemur fyrir, ef bíllinn þarf að nauðhemla eða lendir í árekstri eða bregðast þarf við óvæntri hættu? Þá get- ur svona farmur skotist af og þess vegna er þessi kvöð um skjólborðin,“ segir Ágúst. Hann bendir á að slys hafi orðið vegna þess að farmur sem var illa festur hafi losnað. Í fyrra hafi farmur til að mynda lent á vélarhlíf bíls sem var á ferð í Ártúnsbrekku. Ekki hafi orðið mikil slys á fólki en afar litlu hafi munað að illa færi. Morgunblaðið/Júlíus Í reglugerð um frágang á farmi kemur fram að styttur eða skjólborð skuli vera til varnar skriði á varningi. Ógætilegur frágangur farms skapar slysahættu Sækir um ís- lenskan ríkis- borgararétt DORRIT Moussaieff forsetafrú hefur sótt um íslenskan ríkisborgararétt, samkvæmt upplýsingum frá forseta- embættinu. Hún lagði inn umsókn til dómsmálaráðuneytisins hinn 22. maí sl., en þá voru liðin rúm þrjú ár frá því hún og Ólafur Ragnar Grímsson, for- seti Íslands, giftu sig. Í lögum um íslenskan ríkisborgara- rétt segir m.a. að dómsmálaráðherra sé heimilt, að fenginni umsögn lög- reglustjóra á dvalarstað umsækjanda og Útlendingastofnunar, að veita um- sækjendum íslenskan ríkisborgara- rétt að uppfylltum ákveðnum skilyrð- um um búsetu, hegðun og framfærslu. Meðal annars þarf um- sækjandi, sem er í hjúskap með ís- lenskum ríkisborgara, að hafa átt hér lögheimili í þrjú ár frá giftingu. Á vef dómsmálaráðuneytisins kem- ur fram að afgreiðslutími umsókna um ríkisborgararétt sé að meðaltali fimm til 12 mánuðir. Dorrit er með breskt og ísraelskt ríkisfang. Hún er af ísraelsku bergi brotin en áður en hún fluttist til Íslands bjó hún í Bret- landi. Dorrit Moussaieff EINAR Ögmundsson, bifreiðastjóri og verka- lýðsforingi, er látinn 89 ára að aldri. Hann lést á Landspítalanum við Hringbraut 2. júní sl. Einar fæddist í Hóla- brekku í Reykjavík 23. október 1916. Foreldr- ar hans voru Ögmund- ur Stephensen bóndi og vörubifreiðastjóri Hanssonar bónda á Hurðarbaki í Kjós og Ingibjörg Þorsteins- dóttir bónda á Högna- stöðum í Þverárhlíð Péturssonar. Einar hóf snemma akstur vörubif- reiða og sat í forystu bílstjórasam- taka lengi af. Hann var einn af stofn- endum vörubílstjóra- félagsins Þróttar og sat í stjórn þess um árabil og var formaður í alls fimmtán ár. Hann var formaður Landssam- bands vörubifreiða- stjóra frá 1957 til 1980 og í stjórn lífeyrissjóðs þess um langt skeið. Árið 1981 var hann kosinn heiðursfélagi Þróttar. Einar Ögmundsson kvæntist Margréti Bjarnadóttur Þor- steinssonar frá Hlemmiskeiði og Ingveldar Jónsdóttur frá Vorsabæ. Hún lést árið 2003. Þau eignuðust fjögur börn. Andlát EINAR ÖGMUNDSSON

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.