Morgunblaðið - 10.06.2006, Page 14

Morgunblaðið - 10.06.2006, Page 14
14 LAUGARDAGUR 10. JÚNÍ 2006 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Hnöttur um knött... á morgun  Glerbrotunum rigndi yfir tengdó JÓHANN Hauksson blaðamaður á Fréttablaðinu var í vikunni kallaður á fund Þorsteins Pálssonar, ritstjóra Fréttablaðsins, og Sigurjóns M. Eg- ilssonar, fréttarit- stjóra, og tjáð að ákveðið hefði ver- ið að hann hætti pólitískum skrif- um fyrir blaðið. Jóhann hefur skrifað fréttir um stjórnmál og inn- lendar fréttir auk þess að skrifa pistla. Jóhann segist hafa fengið þá skýringu frá Þorsteini að mönnum þætti sem hann blandaði saman skoðunum sínum og fréttaskrifum. Þá hafi Þorsteinn og Sigurjón gefið í skyn að „ég hafi farið yfir strikið í skrifum mínum um Björn Bjarnason í dálkinum Frá degi til dags og á stjórnmálasíðunni,“ segir Jóhann. Málið tengist símahlerunum á tímum kalda stríðsins sem Guðni Th. Jóhannesson, sagnfræðingur, hefur rannsakað og voru í fréttum á dögunum. Eftir dálk sem birtist 2. júní ritaði Björn bréf til Þorsteins og sagði Jó- hann þar hafa ráðist með ómaklegum hætti að Bjarna Benediktssyni föður sínum vegna símhleranamálsins. Í dálkinum kom fram að Bjarni hefði verið sá dómsmálaráðherra sem mestu réð um símahleranirnar á sín- um tíma. Jóhann sem fundaði með ritstjór- anum og fréttaritstjóranum vegna málsins á þriðjudag og miðvikudag, segir að á fundunum hafi kvörtun Björns Bjarnasonar borið á góma. Vantraustsyfirlýsing Hann kveðst hafa mótmælt því að hann blandaði saman skoðunum og fréttaskrifum. „Ég sagðist hafa ára- langa þjálfun í því að aðskilja frétta- skrif frá mínum skoðunum. En ég væri settur í þá sérkennilegu og að mörgu leyti afleitu stöðu á Frétta- blaðinu að vera falið að skrifa hlut- lægar og hlutlausar fréttir, m.a. af stjórnmálum, en um leið vera falin ábyrgð á allskonar ritstjórnarpistl- um,“ segir Jóhann „Það hefur enginn gert athugasemdir við störf mín á blaðinu frá því ég byrjaði,“ bætir hann við. „Ég sagði að mér þætti þetta óþægileg sending frá mínum yf- irmönnum sem ekki hafa gert athuga- semd við mig svo mánuðum skiptir,“ segir Jóhann. „Ég mótmælti þessu og sagðist líta svo á að veri væri að lækka mig í tign og þetta væri van- traustsyfirlýsing á mín störf,“ segir hann. Hann bætir því við að til hafi staðið að leiða mál sitt endanlega til lykta í fyrradag, en vegna veikinda sinna hafi ekki orðið af því. Til standi að ljúka málinu á mánudag í næstu viku. Ekki náðist í Þorstein Pálsson vegna málsins í gær. Sigurjón M. Eg- ilsson, fréttaritstjóri Fréttablaðsins, sagði að mál einstakra starfsmanna og vinnutilhögun á ritstjórn Frétta- blaðsins væri einkamál blaðsins. Látinn hætta pólitískum skrifum fyrir Fréttablaðið Jóhann Hauksson TAP Byggðastofnunar á síðasta ári var rúmar 272 milljónir króna, en það er rúmum eitt hundrað milljón- um króna minna tap en var á rekstri stofnunarinnar árið áður. Eigið fé stofnunarinnar nam rúmum 1.040 milljónum króna í árslok og lækkaði úr 1.314 milljónum króna árið áður. Ársfundur stofnunarinnar var haldinn í gær á Ólafsvík og segir Herdís Á. Sæmundardóttir, formað- ur stjórnar Byggðastofnunar, í árs- skýrslu hennar meðal annars að um- ræða um starf Byggðastofnunar byggist ekki alltaf á mikilli þekkingu eða sanngirni. Þannig sé því haldið fram að opinberum fjármunum sé sóað í vonlaus verkefni og fyrirtæki á landsbyggðinni. Staðreyndin sé hins vegar sú að þau fyrirtæki og verk- efni sem af einhverjum ástæðum mistakist séu miklu mun færri en þau sem vel fari „og þau eru orðin býsna mörg fyrirtækin sem ekki síst fyrir aðkomu Byggðastofnunar lifa góðu lífi og skapa mörgum vinnufús- um höndum atvinnu á sínum svæð- um.“ Herdís gerði einnig að umtalsefni fyrirætlanir um breytingar á starf- semi Byggðastofnunar, sem felast í frumvarpi um Nýsköpunarmiðstöð Íslands og sagði að ekki lægi fyrir með nákvæmum hætti hvernig starf- semi stofnunarinnar yrði hagað. „Það er þó ljóst að markmið þeirrar vinnu er að styrkja og efla þann stuðning við atvinnulífið sem iðnað- ar- og viðskiptaráðuneytið hefur á sínum höndum. Það er mín skoðun að sú svæðisbundna hugsun sem kemur fram í því, þar sem leitast er við að tengja saman atvinnulíf, mennta- og menningarstofnanir og aðra staðbundna starfsemi, feli í sér mörg tækifæri til að efla og styrkja einstök svæði. Með því eru líka gerð- ar meiri kröfur til heimamanna á einstökum svæðum að bindast sam- takamætti og samvinnu í þágu fram- fara á sínu svæði. Það er þó ljóst að mikið starf er óunnið í mótun þess- arar nýju stofnunar. Í þeirri vinnu er mikilvægt að sú þekking og yfirsýn sem fyrir er í kerfinu fari ekki for- görðum og þeir hafðir með í ráðum sem gerst þekkja til atvinnu- og byggðaþróunar á landsbyggðinni.“ Stendur á tímamótum Aðalsteinn Þorsteinsson, forstjóri Byggðastofnunar, gerði þetta einnig að umtalsefni. Hann sagði að stofn- unin stæði nú á tímamótum, en tutt- ugu ár hefðu verið frá stofnun henn- ar á síðasta ári. „Nú hefur verið lagt fyrir Alþingi frumvarp til laga um opinberan stuðning við tæknirann- sóknir, nýsköpun og atvinnuþróun. Með frumvarpinu eru lagðar fram tillögur um uppstokkun á opinberu stuðningskerfi nýsköpunar og at- vinnuþróunar á vegum iðnaðar- og viðskiptaráðuneytisins. Uppstokk- unin byggist á því að sameina starf- semi Byggðastofnunar, Iðntækni- stofnunar og Rannsóknastofnunar byggingariðnaðarins í einni stofnun, Nýsköpunarmiðstöð Íslands. Stoð- kerfi atvinnulífsins Íslandi er flókið. Veruleg skörun er í starfsemi Byggðastofnunar og ýmissa opin- berra sjóða og stofnana sem starfa að atvinnuþróun. Það er álit Byggða- stofnunar að meginhugmynd frum- varpsins hvað þetta varðar horfi til framfara. Gangi þessar breytingar eftir verður árið 2006 síðasta heila starfsár Byggðastofnunar.“ Byggðastofnun tapaði 272 milljónum í fyrra Morgunblaðið/Alfons Ársfundur Byggðastofnunar var haldinn á Ólafsvík í gær. Eftir Hjálmar Jónsson hjalmar@mbl.is „FYRRI áfanga uppbyggingar Landhelgisgæslunnar er lokið,“ sagði Björn Bjarnason, dómsmála- ráðherra, við undirritun samnings um leigu á tveimur björgunarþyrl- um. Þyrlurnar eru leigðar af norska fyrirtækinu Airlift sem hefur m.a. starfað með sýslumanninum á Sval- barða. Þyrlurnar eru leigðar til eins árs og koma til landsins í september. Er um að ræða þyrlur af gerðinni Super Puma og Dauphin, sams kon- ar þyrlur og fyrir eru í flugdeild Landhelgisgæslunnar, TF-LÍF og TF-SIF. Í samtali við Morgunblaðið kvað Björn kostnað við samninginn nema ríflega 200 milljónum króna og auk þess sé gert ráð fyrir því að kostnaður við þjálfun áhafnar og viðhald á vélunum á lánstímanum nemi um hálfum milljarði króna. Björn sagði við undirritun leigu- samningsins að í febrúar hefði legið ljóst fyrir að bæta þyrfti tækjakost Landhelgisgæslunnar en vegna uppsagnar Bandaríkjanna á varn- arsamstarfinu í mars hefði ekki gef- ist jafn langur tími til ákvarðana- töku og við var búist. Á svo knöppum tíma hefði ekki verið mögulegt að ganga frá kaupum á þyrlum. Í apríl var tillaga um að leigðar yrðu til bráðabirgða tvær björgunarþyrlur samþykkt á ríkis- stjórnarfundi. Ákveðið var að uppbygging Landhelgisgæslunnar færi fram í tveimur áföngum. Fyrri áfanginn myndi felast í því að ganga frá leigu á þyrlum þar til mögulegt yrði að festa kaup á nýjum. Þeim áfanga er nú náð og sagði Björn af því tilefni að Landhelgisgæslan, sérstaklega flugdeildin, hefði sannað sig og nyti mikils trausts. Aðspurður sagðist Björn fastlega gera ráð fyrir því að Landhelgisgæslan gæti á leigutím- anum axlað þá auknu ábyrgð sem leiddi af lokum varnarsamstarfsins. Starfsfólki fjölgar Um seinni áfangann sagði Björn að til stæði að breyta umgjörð Landhelgisgæslunnar varanlega þannig að hún gæti sinnt öllum þeim skyldum sem falla í hennar skaut þegar þyrlur varnarliðsins hverfa. Björn vildi ekki láta mikið uppi um seinni áfanga uppbygging- arinnar en nefndi þó að reynt yrði að ganga frá kaupum á tveimur þyrlum auk þess sem ný flugvél yrði boðin út, eins skjótt og unnt væri, í stað Fokker-flugvélar gæslunnar, TF-SÝN. Ennfremur stæði til end- urnýjun í varðskipaflotanum. „Merkis- og gleðidagur sem markar að mörgu leyti nýtt upphaf uppbyggingar Landhelgisgæslunn- ar,“ sagði Benóný Ásgrímsson yf- irflugstjóri, en í máli hans kom fram að stjórnvöld hefðu þurft að bregð- ast skjótt við er varnarsamstarfinu var slitið og það hefðu þau gert. Bætti Benóný við að flugdeildinni væri sýnt mikið traust og hún myndi áfram inna störf sín af hendi með festu og fagmennsku. Geirþrúður Alfreðsdóttir er nýr flugrekstrarstjóri Landhelgisgæsl- unnar. Er hún var spurð um ráð- stafanir vegna leigusamningsins sagði hún að þegar væri búið að ganga frá ráðningu fjögurra manna í þyrluáhöfn og til stæði að bæta tveimur við. Fyrir væru sex flug- menn hjá Landhelgisgæslunni. Þó leigan væri einungis millibilsástand mundi þjálfun starfsmanna nýtast að leigutíma loknum við rekstur þyrlnanna, sem þá verður búið að ganga frá kaupum á. Morgunblaðið/Ásdís Benóný Ásgrímsson yfirflugstjóri Landhelgisgæslunnar tekur í hönd Björns Bjarnasonar dómsmálaráðherra. Í bakgrunni sést glitta í TF-LÍF. „Fyrri áfanga uppbyggingar Landhelgisgæslunnar lokið“ Undirritun samnings um leigu á tveimur björgunarþyrlum Eftir Jóhann M. Jóhannsson johaj@mbl.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.