Morgunblaðið - 10.06.2006, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 10.06.2006, Blaðsíða 22
22 LAUGARDAGUR 10. JÚNÍ 2006 MORGUNBLAÐIÐ ERLENT ÁLAFOSSHLAUPIÐ 2006 12. júní Hlaupið verður frá Álafossi um austursvæði Mosfellsbæjar. Vegalengdir verða tvær: 4 km = hlaup með ratleik (sveitir) kl. 19:15 og 9 km = hlaup kl. 19:00 - Tímataka er í 9 km hlaupi. Skráning og verð: Skráning hefst tímanlega við Álafosskvosina í Mosfellsbæ kl. 18:00. Búningsaðstaða er við sundlaug Varmár (Íþróttamiðstöð) frá kl. 18:00. Fæðingarár 1992 og eldri = 1.000 kr. Fæðingarár 1993 og yngri = 500 kr. Fjölskyldur greiða = 2.000 kr. Verðlaun og annað: Allir sem ljúka hlaupi fá sérmerktan pening, hlaupanúmer eru til útdráttar og verðlaun verða veitt. Verslun og menning Álafoss- kvosar býður ykkur velkomin fyrir og eftir hlaup. Upplýsingar gefur Tryggvi Jónsson í síma 553 9301 FÓLK í Tromsléni í Norður- Noregi og vestanverðri Finn- mörku varð vitni að geysistór- um eldhnetti sem fór á ör- skömmum tíma yfir himininn með logahala á eftir sér aðfara- nótt miðvikudags, að sögn vef- síðu dagblaðsins Aftenposten í gær. Mun hafa verið um stóran loftstein að ræða. Norska jarð- fræðistofnunin NORSAR til- kynnti að heyra hefði mátt kraftmiklar drunur nærri eft- irlitsstöð í Karasjok klukkan 02.13. Eftirlitsstöð nam bæði hljóð- bylgjur og hræringar í jörðu og telja menn að steinninn hafi lent í fjallshlíð í Reisadalen í Norður-Tromsléni. Knut Jørgen Røed Ødegård, stjörnufræð- ingur hjá NORSAR, sem m.a. annast jarðskjálftamælingar, líkti kraftinum þegar loftsteinn- inn lenti á norskri jörð við kjarnorkusprengjuna sem varp- að var á Hiroshima. Hann telur að jafnstór loftsteinn hafi ekki fallið í Noregi á sögulegum tíma. „Stærstur var Alta-loftsteinn- inn sem lenti árið 1904. Hann var 90 kíló en við álítum að steinninn sem lenti aðfaranótt miðvikudags hafi verið mun stærri,“ sagði Ødegård. Hann sagði að líklega hefði mátt sjá loftsteininn á mörg hundruð ferkílómetra stóru svæði þrátt fyrir að þarna væri nú orðið al- bjart á nóttunni. Aftenposten ræddi við Peter Bruvold bónda, sem var að stumra yfir hryssunni Viriku sem var við það að kasta í fyrsta sinn á ævinni um nóttina. Hann sá þá eldhnöttinn, náði að taka ljósmynd af fyrirbærinu og skömmu síðar heyrði hann miklar drunur. Stór loftsteinn féll í Norður-Noregi ÍBÚAR Bagdadborgar upplifðu óvenjulega kyrrlátan dag í gær, daginn eftir að tilkynnt var, að Abu Musab al-Zarqawi, leiðtogi deildar al-Qaeda-hryðjuverkasamtakanna í Írak, hefði verið felldur. Ástæðan var hins vegar sú, að algert útgöngubann var í borg- inni mest allan daginn. Búist hafði verið við, að al-Qaeda reyndi að hefna dauða al-Zar- qawis og strax eftir tilkynninguna um fall hans í fyrradag sprakk bílsprengja á mark- aðstorgi í sjítahverfi og varð 15 manns að bana. Útgöngubannið gilti ekki aðeins í Bagdad, heldur einnig í borginni Baquba þar sem al- Zarqawi var felldur og lítil aðsókn var að moskunum þrátt fyrir föstudagsbænirnar. Ýmsir klerkar sjíta fögnuðu þó tíðindunum um dauða al-Zarqawis og sögðu, að þau væ- riu mikilvægur áfangi í baráttunni gegn morðum og mannránum. Írösk dagblöð koma yfirleitt ekki út á föstudögum, sem er helgur dagur meðal múslíma, en það gerði þó hið óháða dagblað Al-Mada, sem helgaði allt blaðið dauða al- Zarqawis. Líkti það mikilvægi hans við handtöku Saddam Husseins, fyrrverandi for- seta. Sveigjanleg og erfið viðureignar Vefsíður, sem styðja al-Qaeda og önnur öfgasamtök, voru í gær yfirfullar af stuðn- ingsyfirlýsingum og fyrirheitum um að herða baráttuna og enginn býst við, að ofbeldinu linni í bráð. Sjítinn og stjórnmálaskýrandinn Ali Dabbagh sagði í gær, að al-Zarqawi hefði skilið eftir sig sveigjanleg og valddreifð sam- tök, sem væru fær um að starfa án hans. Um allt landið væru sjálfstæðar sellur, tilbúnar til hryðjuverka. Margir súnnítar una því illa, að allt ofbeldið skuli kennt trúbræðrum þeirra og segja, að vopnaðar sveitir sjíta eigi sína sök á óöldinni. Benda þeir á, að dagleg morð og mannrán í Basra og víðar í suður- hluta landsins eigi ekkert skylt við al-Zar- qawi. Þar séu sjítar allsráðandi og þar standi átökin milli þeirra eigin fylkinga. Leiðtogar eltir uppi Írösk og bandarísk yfirvöld hétu því í gær að elta uppi leiðtoga skæruliða og segjast hafa fundið „sannkallaðan fjársjóð“ af upp- lýsingum eftir árásina á verustað al-Zarqaw- is. Þá hefur einnig komið fram, að Banda- ríkjamenn fengu upplýsingar um al-Zarqawi frá einhverjum innan hans eigin samtaka. Geta grunsemdir um slíkt haft sínar afleið- ingar fyrir hryðjuverkasamtökin. Mikið áfall fyrir al-Qaeda George W. Bush, forseti Bandaríkjanna, sagði í sjónvarpsávarpi í fyrrakvöld, sem sent var út beint frá Rósagarðinum við Hvíta húsið, að dauði al-Zarqawi væri „mikið áfall fyrir al-Qaeda hryðjuverkasamtökin“ og tækifæri fyrir hina nýju stjórn Íraka til að „snúa við blaðinu“. Fjölmargir þjóðarleiðtogar aðrir tjáðu sig um fall al-Zarqawis og bar flestum saman um að það væri mikilvægt skref í baráttunni gegn hryðjuverkum. Þannig sagði Tony Blair, forsætisráðherra Bretlands, dauða al- Zarqawis táknrænan. „Ef við sigrum hryðjuverkamennina í Írak, munum við sigra þá allsstaðar.“ Hamid Karzai, forseti Afganistans, var varkárari í orðavali og sagði að dauði al- Zarqawis markaði „ekki endalok hryðju- verka í heiminum, en væri engu að síður mikilvægt skref í að losa heiminn við ógnina af þeim“. Ólík viðbrögð ættingja og vina Bróðir al-Zarqawis, Sayel al-Khalayleh, sagði í viðtali við AP-fréttastofuna í fyrradag að fjölskylda hans hefði um nokkurt skeið búist við dauða hans. „Við bjuggumst við því að hann myndi líða píslarvættisdauða,“ sagði al-Khalayleh. „Við vonum að hann muni sam- einast öðrum píslarvottum á himni.“ Friðarsinninn Michael Berg, faðir Nicho- las Berg, sem talið er að al-Zarqawi hafi sjálfur afhöfðað í myndbandsupptöku sem sett var á netið, sagði í gær að dauði al- Zarqawis myndi auka enn andúð al-Qaeda í garð Bandaríkjamanna. „Ég sé meira mann- fall í kjölfar dauða al-Zarqawis,“ sagði Berg í gær. „Dauði hans mun kalla á nýja bylgju hefndarverka. George W. Bush og al-Zar- qawi eru menn sem trúa báðir á hefndina.“ Bróðir Kens Bigleys, Breta sem talið er að al-Zarqawi hafi rænt í Írak og afhöfðað á myndbandi sem birtist á netinu, var á allt öðru máli í gær. „Ég glaður yfir því að hann sé ekki lengur á yfirborði jarðar,“ sagði Stan Bigley. „Hann var skrímsli.“ Útgöngubann og kyrrt í Bagdad Bandarísk og írösk stjórnvöld segjast hafa komist yfir „fjársjóð“ upplýsinga í fylgsni al-Zarqawis AP Íraskir hermenn ræða við tvo menn á vélhjólum í miðborg Bagdad í gær, umferð þyngri öku- tækja í almenningseigu var bönnuð af ótta við árásir vegna dauða al-Zarqawis í fyrradag. Eftir Svein Sigurðsson svs@mbl.is Washington. AP. | Lyfjafyrirtækið Merck í Bandaríkjunum mun síðar í mánuðinum geta sent á markað bóluefni gegn leghálskrabbameini og verður hægt að nota það til að bólusetja stúlkur niður í níu ára aldur og upp í 26 ára. Efnið heitir Gardasil. Tilraunir hafa sýnt að efnið virð- ist koma í veg fyrir sýkingu af völdum fjögurra af um 12 afbrigð- um HPV, algengasta sjúkdómsins sem smitast við kynmök. Tvö af- brigðanna valda um 70% af öllum tilfellum krabbameins í leghálsi. Fyrirbyggjandi áhrifin virðast vera fullnægjandi í nær öllum til- vikum þar sem viðkomandi hefur ekki þegar smitast. „Sú ákvörðun l.yfjaeftirlitsins (FDA) að samþykkja HPV-bólu- efnið, sem er fyrsta bóluefnið sem sérstaklega er ætlað til að fyrir- byggja krabbamein, er eitthvert mesta framfaraspor varðandi heilsu kvenna sem um getur á síð- ari árum,“ sagði dr. Carolyn Runo- wicz, formaður Bandaríska krabbameinsfélagsins, í gær. Minnst 290.000 konur deyja úr leg- hálskrabbameini ár hvert í heim- inum. Bóluefni gegn leg- hálskrabbameini
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.