Morgunblaðið - 10.06.2006, Síða 24

Morgunblaðið - 10.06.2006, Síða 24
24 LAUGARDAGUR 10. JÚNÍ 2006 MORGUNBLAÐIÐ ERLENT Varsjá. AP. | Samkynhneigðir í Aust- ur-Evrópuríkjum leggja nú æ meiri áherslu á að krefjast fullra mann- réttinda sem hafa lengi verið hunsuð í umræddum löndum. Baráttumenn fyrir mannréttindum efna til kröfu- göngu í Varsjá í Póllandi í dag til stuðnings samkynhneigðum í Aust- ur-Evrópu. Gangan ber yfirskriftina Jafnréttisgangan og munu stjórn- málamenn og aðrir stuðningsmenn frá ýmsum löndum taka þátt í henni. Baráttumenn samkynhneigðra segja að íhaldssamir stjórnmála- menn hamli umbótum í réttindamál- um homma og lesbía í austanverðri álfunni. Samkynhneigð er nánast bönnuð í Póllandi og víðar í austur- hluta álfunnar. Sú skoðun er algeng meðal íbúanna að samkynhneigðir eigi að leita sér hjálpar hjá geðlækn- um, þeir séu andlega sjúkir. „Sjúkdóma ætti að lækna en ekki auglýsa,“ sagði Miroslawa Nowa- kowska, 55 ára gamlla kennari á eft- irlaunum og þoóttu ummæli hennar endurspegla sjónarmið margra full- orðinna Pólverja. Slíkur hugsunar- háttur er rakinn til hugmyndafræði kommúnista, þar sem samkynhneigð var ekki hluti af draumsýninni um kommúnistaríkið og talin afsprengi kapítalismans. Pólverjar eru auk þess flestir kaþ- ólskrar trúar og kirkjan hefur þar mikil áhrif á daglegt líf fólks en sam- kynhneigð hugnast ekki leiðtogum Rómarkirkjunnar. Nú er við völd samsteypustjórn hægrimanna sem taka mjög mið af skoðunum kirkj- unnar í siðferðismálum. Leiðtogar eins stjórnarflokksins hafa beinlínis fordæmt samkynhneigð og ungliðar annars hafa ráðist á þátttakendur í göngum samkynhneigðra síðustu ár- in. Vilja full réttindi samkynhneigðra Kröfuganga fyrirhuguð í Varsjá í dag Washington. AFP. | Bresku hjálpar- samtökin Oxfam segja að þær fjár- veitingar sem ríkustu þjóðir heims leggja til þróunaraðstoðar nægi ekki til að fullnægja loforðum sem voru gefin á fundi átta helstu iðnríkja heims (G8) í Gleneagles í fyrra. Fjár- málaráðherrar G8 eiga nú undirbún- ingsfund í St. Pétursborg en þar verður sjálfur leiðtogafundurinn í júlí. G8-ríkin skuldbundu sig í fyrra til þess að auka fjárútlát til þróunar- mála um 50 milljarða dala á ári fyrir 2010. Bráðabirgðaáætlanir gefa til kynna að útgjöld til þróunarmála hafi aukist um 21 milljarð dala árið 2005 miðað við árið á undan. Það var á sams konar fjármálaráð- herrafundi í fyrra sem ákveðið var að veita fleiri þróunarríkjum en áður skuldaaflausn, þar á meðal Nígeríu. Oxfam gagnrýnir hins vegar G8-rík- in fyrir að bæta afléttingu skulda inn í heildartölu fjár til þróunarmála til þess að fegra hana. Standa ekki við þróunarloforð Oxfam-samtökin gagnrýna G-8 Colombo. AFP, AP. | Norðmenn gagnrýna harðlega Evrópusam- bandið, ESB, fyrir að setja tam- ílsku Tígrana (LTTE) á lista sinn yfir hryðjuverkasamtök og segja það hafa stuðlað að upplausn samningaviðræðna stjórnvalda á Sri Lanka og Tígranna. Þá hafa Norðmenn krafist þess að stjórn- völd á Sri Lanka og tamílsku Tígrarnir geri skýra grein fyrir afstöðu sinni til stöðu Norð- manna sem sáttasemjara í deil- unni en þeir fara fyrir erlenda eftirlitsliðinu. Stjórn Sri Lanka sakaði í gær norræna fulltrúa í eftirlitinu um að draga taum Tí- granna. Það sem einkum fór fyrir brjóstið á ráðamönnum í Co- lombo voru ummæli í skýrslu eft- irlitsmanna frá 4. júní þar sem stjórnarhermönnum var kennt um aukin átök að undanförnu. Þeir hefðu ekki staðið við fyr- irheit um að hafa hemil á klofn- ingshópum úr samtökum Tí- granna sem keppa við þá um áhrif á sumum svæðum. En Tígr- arnir voru einnig sakaðir í skýrslunni um að brjóta sam- komulag við stjórnvöld. Rúmlega 680 manns hafa fallið í árásum og átökum tamílsku Tí- granna og stjórnarhersins í land- inu það sem af er þessu ári þrátt fyrir vopnahléið sem hefur verið við lýði síðan 2002. Tamílsku Tígrarnir lýstu því yfir í gærmorgun, að þeir væru mótfallnir því að fulltrúar frá ESB-löndum tækju þátt í starf- inu á Sri Lanka og sniðgengu fund í Ósló þar sem ræða átti ör- yggi erlendu fulltrúanna. „Ákvörðun Evrópusambands- ins var tekin á ákveðnum for- sendum um það hvaða samtök eigi heima á listanum, án þess að tillit væri tekið til þess hvaða af- leiðingar ákvörðunin hefði á að- ildarríki þess,“ sagði Stein Tønn- esson, yfirmaður Friðarrann- sóknarstofunnar í Ósló (PRIO), um þá ákvörðun ESB að skil- greina Tígrana sem hryðjuverka- samtök. Lengi hefði verið vitað að Tígrarnir legðu áherslu á að þeir yrðu ekki settir á umræddan hryðjuverkalista ESB en sam- bandið væri illa hæft til að taka skynsamlega á deilum sem þess- um, að sögn Tønnesen. Norðmenn ætla að endurskoða hlutverk sitt Norsk stjórnvöld sendu frá sér yfirlýsingu í gær þar sem segir að þau muni endurskoða hlutverk sitt sem sáttasemjarar á Sri Lanka eftir að þeim mistókst að koma á fundi deiluaðila. Þá segir í yfirlýsingunni að gripið hafi verið til þeirra úrræða að skrifa stjórnvöldum á Sri Lanka og leiðtogum Tígranna bréf þar sem spurt var hvort deiluaðilar hygð- ust standa við skuldbindingar í gildandi vopnahléi. Það myndi síðan ráðast af svörunum hvert framhaldið yrði en haft yrði sam- ráð við alþjóðasamfélagið um næstu skref. „Það er enginn vafi á því að af- staða Tígranna hefur verið að harðna í aðdraganda Óslóar- fundarins,“ sagði Erik Solheim, utanríkisráðherra Noregs. „Deiluaðilar verða að taka ábyrgð á þeirri neikvæðu þróun sem orðið hefur. Þeir hafa ekki farið að ráðum okkar. Eins og sakir standa er ekkert rúm fyrir frumkvæði Norðmanna í friðar- ferlinu.“ Talsmenn Tígranna segja Norðmenn hins vegar leggja of mikla áherslu á beina fundi deiluaðila og að nær væri að ræða þau vandamál sem fyrir liggi með aðstoð milligöngu- manna. Stjórn Sri Lanka sakar Norðmenn um hlutdrægni Stjórnvöld í Ósló ósátt við að ESB skuli skilgreina tamílsku Tígrana sem hermdar- verkamenn Reuters Eiginkona fallins stjórnarhermanns syrgir ásamt barni sínu við minnis- merki í grennd við borgina Kandy á Sri Lanka. Yfir 22.000 stjórnar- hermenn hafa fallið í átökum við tamílsku Tígrana síðustu tvo áratugi. HELEN Ólafsdóttir, talsmaður norrænu eftirlitssveitanna (SLMM) á Srí Lanka, segir mikla óvissu ríkja um framhald eft- irlitsins eftir að tam- ílsku Tígrarnir gáfu út þá yfirlýsingu að þeir tækju ekki í mál að fulltrúar frá Evrópu- sambandsríkjunum tækju áfram þátt í starf- inu á svæðinu. Helen sagði eftirlitið þó hafa gengið eðlilega fyrir sig í gær og að Danir, Finnar og Svíar, sem vinni með henni, hefðu sinnt störfum sínum eins og ekkert hefði í skorist. „Þetta er allt mjög óljóst og á meðan við bíðum eftir að sjá hvernig hlutirnir þróast höld- um við áfram okkar vinnu,“ sagði hún í samtali við blaðamann mbl.is í gær. Ljóst væri að það myndi vanda miklum vanda yrðu Danir, Finnar og Svíar að draga sig út úr samstarfinu. Sextíu erlendir eftirlits- menn eru nú að störfum í landinu, þar af sautján Norðmenn og fimm Íslendingar. Helen segir mikla spennu vera í landinu og að hún hafi verið að aukast jafnt og þétt á síðustu vikum. Ástandið hafi þó ekki hindrað eftirlitið, það fari enn fram með eðlilegum hætti þótt öryggisviðbúnaður hafi verið aukinn. Hugsanlegt sé þó að leggja verði niður eftirlit á ákveðnum svæðum haldi ástandið áfram að versna en að það sé eitthvað sem yfirstjórnin vegi og meti dag frá degi. Helen segir jafnframt að brotum á vopnahléinu hafi fjölgað á undanförnum mánuðum og að hún óttist að stjórnvöld og tamílsku Tígrarnir séu að venjast auknu ofbeldi, þótt óbreyttir borgarar geri það auðvitað aldrei. Hún telji þó enn von um að hægt verði að snúa þróuninni og hvor- ugur deiluaðila hafi enn sagt vopnahléinu upp með formlegum hætti. Óvissa um fram- hald eftirlitsins Helen Ólafsdóttir NÆR milljón manna fagnaði í gær 60 ára valdaafmæli Bhumibol Adu- lyadej konungs í höfuðborg Taí- lands, Bangkok, en hann hefur verið lengur við völd en nokkur annar krýndur þjóðhöfðingi í heiminum. Konungurinn, sem er 78 ára gamall, heilsar hér mann- fjöldanum af svölum konungshall- arinnar með Sirikit drottningu, en það hefur hann einungis gert þrisvar sinnum á ferli sínum. Öld- um saman töldu Taílendingar kon- unga landsins vera guðlegar verur og þótt sú trú hafi dvínað er Bhumibol mjög dáður en hann hefur eftir megni haldið sig utan við deilur og reynt að liðsinna fá- tækum. Bhumibol hvatti þegna sína til þess að sýna samheldni en umrót hefur verið í stjórnmálum Taílendinga undanfarna mánuði. Reuters Bhumibol hylltur í Bangkok

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.