Morgunblaðið - 10.06.2006, Síða 26

Morgunblaðið - 10.06.2006, Síða 26
Reykjavík | Eitt það góða sem sumir sjá við hið sjaldgæfa fyr- irbæri snjóinn er að hann hylur svo vel eitt og annað sem helst ekki má sjást. Til dæmis jórt- urgúmmí, tyggjó, sé það skilið eftir á gangstéttinni vegna óút- skýranlegrar leti eða vanhugs- unar. Landinn er afar iðinn við að nota tyggjó til þess að liðka kjálkaliðina, allt árið reyndar, en þegar snjóa leysir kemur oft í ljós að ansi margir hafa misst gúmmíið út úr sér þar sem síst skyldi. Þess vegna þurfa þessir menn t.d. að hreinsa Austur- strætið eins og þeir gerðu í vik- unni. Morgunblaðið/Ómar Tyggjóklessurnar fjarlægðar Hreinlæti Akureyri | Árborg | Landið Minnstaður Höfuðborgarsvæðið Guðrún Aðalsteinsdóttir, frett@mbl.is sími 569-1100. Suðurnes Helgi Bjarnason, helgi@mbl.is, sími 569-1310 og 669-1310. Akureyri sími 569-1100, Skapti Hallgrímsson, skapti@mbl.is, 669-1114. Vesturland Guðrún Aðalsteinsdóttir, frett@mbl.is, sími 569-1290. Austurland Steinunn Ásmundsdóttir, austurland@mbl.is, sími 669-1115. Árborgarsvæðið og Landið Helgi Bjarnason, helgi@mbl.is, sími 569-1310 og 669-1310 og Guðrún Aðalsteinsdóttir, frett@mbl.is, sími 569-1290. Mínstund frett@mbl.is Lífið er fótbolti á Akranesi, hjá stórum hluta bæjarbúa í það minnsta. Skagamenn hafa verið iðnir við að ræða um liðið sitt undanfarnar vikur eftir verstu byrjun þeirra á Íslandsmótinu í knattspyrnu í 39 ár. Sólin er hinsvegar farin að skína á ný á Skipaskaga eftir að taphrinunni lauk í Keflavík á fimmtudaginn.    Magnús Þór Hafsteinsson, alþingismaður Frjálslynda flokksins og varamaður í bæj- arstjórn Akraness, skrifaði meitlaða pistla á heimasíðu flokksins í aðdraganda sveit- arstjórnakosninganna um daginn og þar á meðal sendi hann Sjálfstæðisflokknum tóninn. Sverðin hafa nú verið slíðruð og segir Magnús að nýja meirihluta- samstarfið í bæjarstjórn á Akranesi verði gott og farsælt. Það sama sagði Gunnar Sigurðsson, oddviti Sjálfstæðisflokksins, eftir að nýr meirihluti var myndaður. Stríð og friður á Akranesi.    Það var mikið líf í gamla miðbænum í að- draganda kosninganna þar sem þeir flokk- ar sem buðu sig fram hreiðruðu um sig í verslunar og þjónustuhúsnæði, sem stend- ur að öllu jöfnu tómt við aðalgötu bæj- arins, Kirkjubraut. Framboðin styrktu mjög ásýnd gamla miðbæjarins sem á verulega undir högg að sækja.    Elstu nemendur Brekkubæjarskóla gáfu út veglegt skólablað á dögunum og þar má finna gullkorn frá nemendum úr 1. bekk. Í matsal skólans heyrðist frá einum nýlið- anum. „Kennari, það er sjóbragð af fisk- inum. Ég get ekki borðað hann.“ Að ein- hverra mati líklega óskiljanleg ummæli íbúa sjávarútvegsbæjarins Akraness.    Í sama blaði gefur Bjarni Guðjónsson, leikmaður Skagaliðsins, góð ráð til yngri kynslóðarinnar. Hann hvetur börn og ung- linga til þess að fara út og leika sér: „Slökkvið á sjónvarpinu og setjið leikja- tölvuna upp í skáp í sumar,“ segir Bjarni. Ég veit ekki hvort slökkt verði á sjónvarp- inu fyrr en eftir 9. júlí þegar lokaflautið gellur á HM í Þýskalandi. Úr bæjarlífinu AKRANES EFTIR SIGURÐ ELVAR ÞÓRÓLFSSON BLAÐAMANN Stór flutningabíll lenti í mesta baslimeð að komast á milli Reyð-arfjarðar og Eskifjarðar fyrr í vikunni. Bíllinn er 38 hjóla og þurfti að fara yfir Hólmaás til þess að komast á milli. Eftir að hafa ekið hálfa leið upp varð bíllinn frá að hverfa þar sem hann spólaði einfaldlega í malbikinu. Vegurinn á þessum slóðum hefur ver- ið nokkuð í umræðunni á undanförnum vikum og mánuðum vegna þess að ástand hans þykir afleitt um hann er töluverð umferð. Ef til vill hefur þyngd farmsins einnig skipt máli því hlassið vó tæp 70 tonn. Urðu nokkrar truflanir á umferð af þessum sökum. Morgunblaðið/Helgi Garðarsson Spólaði upp Hólmaásinn Eiríkur Grímssonsendi inn vísu umófarir Framsókn- arflokksins: Framsóknar í flokki gaus, fylltust þingmenn ótta, enda herinn höfuðlaus; Halldór lagði á flótta. Og Daði Garðarsson orti í ferð með gönguhópnum: Framsókn er eins og fínleg mey, feimin og siðuð mönnum hjá. Þegar hún segir nei, nei, nei, hún náttúrlega meinar já. Vísa barst frá Halldóri Halldórssyni skipherra: Í útlöndum þeir allt nú kaupa aura sinna vita ei tal. Yfirvöldin upp hér hlaupa ár skal virkja í hverjum dal. Þá Friðrik Stein- grímsson: Þetta vesen Valgerðar veldi Guðna heftir, fækkar vígjum framsóknar þeim fáu sem voru eftir. Eins og fínleg mey pebl@mbl.is ♦♦♦ STARFSENDURHÆFING Norður- lands, sjálfseignarstofnun sem stofnuð var 9. febrúar sl., hefur gert þriggja ára þjónustusamning við Heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytið um starfsend- urhæfingu fyrir 21 einstakling á ári. Geirlaug G. Björnsdóttir hefur verið ráðin framkvæmdastjóri og er starfsemi hafin. Markmið starfsendurhæfingarinnar er að bjóða fólki með skerta starfsgetu, af ýmsum orsökum, upp á starfsendurhæf- ingu í heimabyggð. Þar er um að ræða heildstæða lausn á vanda hvers þátttak- anda. Unnið er með heilbrigðis-, félags- og sálræna þætti auk þess sem boðið er nám á framhaldsskólastigi. Stofnframlag Starfsendurhæfingar er greitt af Vaxtarsamningi Eyjafjarðar og KEA. Stofnendur eru; Akureyrarbær, Félags- og skólaþjónusta Þingeyinga, Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri, Framhaldsskólinn á Húsavík, Heilbrigð- isstofnun Þingeyinga, KEA, Lífeyris- sjóður Norðurlands, Símenntunarmið- stöð Eyjafjarðar, og Svæðisvinnumiðlun Norðurlands eystra. Starfsend- urhæfing í heimabyggð ORKUVEITA Reykjavíkur hefur komist að samkomulagi við Borgarfjarðarsveit um kaup á fjórum vatnsveitum. Um er að ræða vatnsveitur á Hvanneyri, í Bæj- arsveit, á Kleppjárnsreykjum og í Reyk- holti. Í stað greiðslu mun Orkuveitan skuldbinda sig til framkvæmda við nýja aðveitu fyrir vatnsveiturnar á Klepp- járnsreykjum og í Reykholti, en áætlað er að sú framkvæmd muni kosta um 150 milljónir. Orkuveitan mun yfirtaka rekst- ur og eigur vatnsveitnanna frá og með 1. september næstkomandi. Samningar um kaupin voru undirritaðir í gær í Snorrastofu í Reykholti og því loknu afhenti forstjóri Orkuveitu Reykja- víkur Snorrastofu styrk til uppbyggingar Minjagarðs. „Með aðkomu Orkuveitunnar að rekstri vatnsveitna Borgarfjarðarsveitar skapast tækifæri til að kanna heildar- og framtíð- arsýn vatnsveitumála Borgfirðinga með tilliti til samnýtingar vatnsbóla og vatns- lagna í vaxandi byggð Borgarfjarðar,“ segir í frétt frá OR. OR kaupir vatns- veitur í Borgarfirði Stærsti tímarita- og blaðalager 20. aldar. RÝMINGARSALA í gamla verslunarhúsi Ellingsens í Grandagarði, Mýrargötumegin, rishæð. OPIÐ Í DAG KL. 13-18. Skólavörðustíg 21, Reykjavík sími 551 4050 Glæsileg brúðarrúmföt í úrvali Fáðu fréttirnar sendar í símann þinn

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.