Morgunblaðið - 10.06.2006, Side 28

Morgunblaðið - 10.06.2006, Side 28
28 LAUGARDAGUR 10. JÚNÍ 2006 MORGUNBLAÐIÐ MINNSTAÐUR www.bluelagoon.is Styrkur Í MÁLEFNASAMNINGI Samfylk- ingar og Sjálfstæðisflokks í bæjar- stjórn Akureyrar, sem kynntur var í gær, kemur m.a. fram að gert er ráð fyrir nýrri nefndaskipan að talsverðu leyti. Þá er sagt öruggt að Kristján Þór Júlíusson, oddviti sjálfstæðis- manna í bæjarstjórn, verði bæjar- stjóri næstu árin. Gert er ráð fyrir því að jafnréttis- og fjölskyldunefnd ásamt áfengis- og vímuvarnanefnd verði sameinaðar í Fjölskylduráð sem einnig mun fara með tómstundamál; stofnuð verður ný nefnd, Umhverfisnefnd, sem fer með sorpmál og málefni núverandi náttúruverndarnefndar; menningar- málanefnd verður lögð niður en menningarmál ásamt málefnum sem tilheyra kynningar- og markaðssetn- ingu, atvinnumálum og ferðaþjón- ustu verða sett undir Akureyrar- stofu. Stjórn Akureyrarstofu verður skipuð fimm fulltrúum bæjarstjórn- ar. Starfsemi og skipulag stofunnar verður nánar útfært í samvinnu við hagsmunaaðila á Akureyri. Í málefnasamningnum eru skil- greind meginmarkmið meirihluta- flokkanna og tilgreindar helstu að- gerðir sem þeir eru sammála um að ráðist verði í í málaflokki hverrar fastanefndar. Þar segir m.a.: Íbúalýðræði Aðgerðaáætlun fyrir framkvæmd samningsins verður unnin í septem- ber. Þar verða einstök verkefni skil- greind, tímasett, kostnaðarmetin og þeim forgangsraðað.  Á sviði fjármála og stjórnsýslu er meginmarkmið flokkanna að stjórn- sýsla bæjarins verði skilvirk og hag- kvæm, að fjárhagur bæjarfélagsins verði traustur og að íbúar geti tekið þátt í stórum ákvörðunum. Íbúalýð- ræði verður aukið og þátttöku bæj- arbúa í stórum ákvörðunum verður komið í skilgreindan farveg.  Leiðarljós meirihlutaflokkanna á sviði félags- og heilbrigðismála er að sveitarfélagið haldi fast við þá stefnu sína að taka við verkefnum frá ríkinu svo að ákvarðanir um þjónustu séu teknar sem næst þeim sem hennar eiga að njóta.  Á sviði skólamála verður stutt dyggilega við þróunarstarf í leik- og grunnskólum á forsendum hvers skóla fyrir sig. Unnið verður að auknu samstarfi við kennaradeild og skólaþróunarsvið Háskólans á Akur- eyri til að efla þróunarstarf í skólum bæjarins. Lögð verður áherslu á end- urmenntun starfsfólks og ráðgjöf til þess.  Stefnt er að því að ávallt séu til óbyggðar lóðir fyrir ólíkar gerðir íbúðar-, þjónustu- og iðnaðarhúsa. Í boði séu íbúðarlóðir á mismunandi stöðum í bænum. Skipulag íbúða- hverfa á að miðast við þarfir fjöl- skyldunnar með því að lögð sé áhersla á gæði umhverfis, öryggi og greiðan aðgang að hverfisþjónustu og útivistar- og leiksvæðum. Óskað verður eftir samvinnu við Hörgár- byggð um vinnu við samræmingu skipulags á mörkum sveitarfélag- anna við Lónið. Umhverfismál  Umhverfismál heyra undir nýja nefnd, umhverfisnefnd, sem fjallar um málefni sem náttúruverndar- nefnd hafði áður til meðferðar auk sorpmála. Leiðarljós Staðardag- skrár 21 um sjálfbært samfélag verða jafnframt leiðarljós umhverf- isnefndar. Stefnt er að því að bæj- arbúar geti notið náttúrulegs um- hverfis m.a. á verndarsvæðum á Glerárdal og í Krossanesborgum og að atvinnulífið verði í sátt við um- hverfið. Akureyrarbær mun draga sig út úr Sorpsamlagi Eyjafjarðar bs. og stofna hlutafélag ásamt fyr- irtækjum til að annast sorpförgun í bænum.  Meginmarkmið í íþróttamálum er að skapa aðstæður og ýta undir verk- efni sem hvetja fjölskyldur til hollrar hreyfingar og tómstunda. Byggt verður íþróttahús við Giljaskóla sem hentar bæði íþróttakennslu við skól- ann og sem framtíðarhúsnæði Fim- leikafélags Akureyrar. Stefnt er að því að húsið verði tekið í notkun 2008.  Ný fastanefnd, fjölskylduráð, fjallar um mál sem áður heyrðu und- ir jafnréttis- og fjölskyldunefnd ann- arsvegar og áfengis- og vímuvarna- nefnd hinsvegar auk þess sem fjölskylduráð fjallar um tómstunda- mál svo sem málefni félagsmiðstöðva fyrir ungt fólk. Meginmarkmið nefndarinnar felast í samþykktri jafnréttisstefnu og fjölskyldustefnu auk þeirrar stefnu að vinna gegn vímuefnanotkun ungmenna.  Markvisst verður unnið að lækk- un leikskólagjalda á kjörtímabilinu. Akureyrarbær verður áfram með lægstu þjónustugjöldin í leik- og grunnskólum miðað við samkeppnis- sveitarfélög.  Málefni nýbúa fá aukið vægi inn- an bæjarkerfisins og verður mark- visst reynt að mæta þörfum þessa hóps t.d. með aðgengi að túlkaþjón- ustu, íslenskunámi og kynningarefni á vegum sveitarfélagsins. Alþjóða- stofa verður efld í þessu skyni.  Skattar verða lækkaðir á atvinnu- rekstur með lækkun holræsagjalds á árinu 2007. Til að bæta stöðu fram- leiðslufyrirtækja mun bæjarstjórn kalla eftir aðgerðum af hálfu ríkis- valdsins varðandi lækkun flutnings- kostnaðar.  Almenningssamgöngur verða gjaldfrjálsar frá árinu 2007, bæði hjá Strætisvögnum Akureyrar og í Hrís- eyjarferju.  Akureyrarbær mun beita sér fyrir því að vinna við gerð Vaðlaheiðar- ganga hefjist strax á árinu 2007.  Unnið verður að því með sam- gönguráðuneyti að lengja flugbraut Akureyrarflugvallar og að þar verði útflutningsflughöfn. Í þessu sam- hengi þarf jafnframt að skoða hvort að Akureyrarbær geti tekið við rekstri flugvallarins. Kristján situr áfram Kristján Þór Júlíusson verður bæjarstjóri, a.m.k. fyrst um sinn, en Sjálfstæðisflokkurinn hefur embætt- ið til ráðstöfunar fyrstu þrjá árin en Samfylkingin það fjórða og síðasta. Forseti bæjarstjórnar verður frá Sjálfstæðisflokki, formaður bæjar- ráðs fyrstu þrjú árin frá Samfylk- ingu og síðasta árið frá Sjálfstæðis- flokki. Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson Í sviðsljósinu eftir kynninguna Hermann Jón Tómasson, oddviti Samfylkingarinnar, í viðtali við Björn Þorláks- son fréttamann NFS. Fjær er Kristján Þór Júlíusson bæjarstjóri í viðtali við Karl Eskil Pálsson fréttamann RÚV. Kraftur og lífsgæði á Akureyri TENGLAR .............................................. www.akureyri.is Hún II á ferðinni | Á morgun, sjó- mannadaginn, mun Hollvinafélag Húna II bjóða upp á fjöl- skyldusiglingu á Pollinum. Farið verður frá Torfunefsbryggju við Kaupvangsstræti kl. 13 og á hálf- tímafresti til klukkan 17. Húni II er 130 tonna eikarbátur sem ber vitni um hagleik og hand- verk eyfirskra skipasmiða, en hann var smíðaður í skipa- smíðastöð KEA á Akureyri 1963, rétt áður en smíði slíkra tréskipa var hætt. Húni II er eini óbreytti báturinn af þessari stærð sem til er á Íslandi. Í mars síðastliðnum færði Holl- vinafélag Húna II Iðnaðarsafninu á Akureyri að gjöf þennan tæp- lega 26 metra langa bát, sem gerður var út til fiskveiða í 30 ár. Þessi fjölskyldusigling er hluti af því að fræða fólk á öllum aldri um þennan merka grip sem Húni II er og er það ætlun Hollvinafélags- ins að standa fyrir slíkum ferðum nokkrum sinnum á ári. Söngvökur | Fyrsta söngvaka sumarsins verður haldin í dag, laugardag, kl. 20.30 í Minjasafns- kirkjunni. Minjasafnið á Akureyri hefur boðið upp á söngvökur síðan 1994. Þær hafa vakið verðskuld- aða athygli enda hvergi hægt að finna skemmtidagskrá af þessum toga. Í sérstakri en viðeigandi um- gjörð Minjasafnskirkjunnar eru áheyrendur leiddir í söngferðalag í tali og tónum um íslenska tón- listarsögu frá miðöldum til okkar daga. Efnisskráin er afar fjöl- breytt og spannar allt frá drótt- kvæðum miðalda til söngva og þjóðlaga frá nítjándu og tutt- ugustu öld. Fram að 20. öld er íslensk tón- listarsaga nær einvörðungu saga söngs, og sá söngur var nátengdur orðsins list sem ávallt hefur verið þungamiðja íslenskrar menningar. Öðruvísi gat tónlistin varla verið þ.e. lengst af voru nær engin hljóðfæri til í landinu. Efniviður til að smíða hljóðfæri var enginn til né heldur fjármunir til að kaupa þau. Ekki var heldur til stétt hefð- arfólks sem í útlöndum hélt uppi hljómsveitum, hljóðfæraleikurum. Flytjendur eru Þuríður Vil- hjálmsdóttir og Þórarinn Hjart- arson. Aðgangseyrir er 1.000 krónur. AKUREYRI

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.