Morgunblaðið - 10.06.2006, Page 29

Morgunblaðið - 10.06.2006, Page 29
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 10. JÚNÍ 2006 29 MINNSTAÐUR LANDIÐ Hrafnseyri | „Þetta er einstakt tækifæri til að hitta þetta fólk og njóta þekkingar þess,“ segir Soffía Vagnsdóttir, verkefnisstjóri Sum- arháskóla Há- skólaseturs Vest- fjarða. Þetta er í fyrsta skipti sem Háskólasetrið stendur fyrir sumarháskóla og er viðfangsefnið sýningahönnun og safnagerð. Sumarháskólinn er haldinn á Hrafnseyri við Arnarfjörð í sam- vinnu við Safn Jóns Sigurðssonar sem þar er. Soffía segir að frumkvæðið að verkefninu hafi komið frá Valdimar Halldórssyni hjá Safni Jóns Sig- urðssonar. „Það stendur til að end- urnýja safnið frá grunni og því kom upp sú hugmynd að nýta þetta nám til að fá fram hugmyndir um hvernig að því skuli staðið. Hug- myndin hefur síðan þróast áfram og niðurstaðan varð sex daga nám í sýningahönnun og safnagerð,“ seg- ir Soffía. Gróska í menningartengdri ferðaþjónustu Sumarháskólinn hefst 17. júní, á fæðingardegi Jóns Sigurðssonar, og lýkur 22. júní. Soffía er ánægð með hvernig til hefur tekist með að fá fyrirlesara. Nefnir fyrst bandaríska safna- og sýningahönnuðinn Ralph Appelbaum sem rekur stærsta sýn- ingahönnunarfyrirtæki heims. Einnig sjö norræna fyrirlesara sem fjalla um mismunandi svið, svo sem hönnun persónusafna, hvernig unnt er að setja upp sýningu í litlu rými og nýta umhverfið og markaðs- setningu safna. Auk fyrirlestra er farið í skoðunarferð um svæðið og námskeiðinu lýkur á tveggja daga vinnustofu þar sem nemendur geta unnið með eigin hugmyndir. Fyr- irlestrarnir, sem fara fram á ensku, eru opnir almenningi en námið sjálft krefst meiri vinnu enda gefur það einingar á háskólastigi. Gróska hefur verið í menningar- tengdri ferðaþjónustu hér á landi og víða um land hafa sprottið upp söfn og sýningar af ýmsum gerðum og stærðum. Soffía segir að þekk- ingin sem sumarháskólinn færi fram ætti að nýtast vel í þessu sambandi. Hún segir að hann sé hugsaður fyrir safnafólk, há- skólanema, hugmyndasmiði og aðra sem áhuga hafa. Hún segir að þátt- taka sé ágæt en mætti vera meiri. „Það eru margir einyrkjar í þess- um söfnum og þeir virðast eiga erf- itt með að komast frá þegar ferða- mannatíminn er byrjaður. En ég vona svo sannarlega að fólk nýti sér þetta tækifæri,“ segir hún. Með margt í takinu Soffía Vagnsdóttir hefur verið í stjórn Háskólaseturs Vestfjarða á Ísafirði frá upphafi þessarar ungu stofnunar. Hún segir að það hafi verið afar áhugavert. Svo er hún á kafi í bæjarpólitíkinni í heimabæ sínum, Bolungarvík, og tekur við embætti forseta bæjarstjórnar í næstu viku. Loks hefur hún verið ráðin skólastjóri Grunnskóla Bol- ungarvíkur og tekur við því starfi 1. ágúst. Áður var hún skólastjóri Tónlistarskóla Bolungarvíkur. Það verður því nóg að sýsla hjá henni þótt sumarháskólinn standi ekki lengi yfir. Ef vel tekst til telur Soffía að Háskólasetur Vestfjarða standi áfram fyrir sumarháskóla enda sé það áhugaverður kostur til að móta sérhæft stutt nám og Hrafnseyri sé spennandi staður. Viðfangsefnið hverju sinni geti síðan mótast af því hvað sé að gerast í þjóðfélaginu á hverjum tíma. Háskólasetur Vestfjarða heldur sumar- háskóla í sýningahönnun og safnagerð Vona að fólk nýti þetta tækifæri Eftir Helga Bjarnason helgi@mbl.is Soffía Vagnsdóttir Vestmannaeyjar | Páll Stein- grímsson kvikmyndagerðarmaður var ásamt samstarfsfólki í Vest- mannaeyjum á dögunum við tökur á kvikmynd um ginklofa en sjúk- dómurinn lagðist þungt á ungabörn í Vestmannaeyjum og víðar áður fyrr. Stóðu tökur yfir í fjóra daga og meðal annars var farið út í El- liðaey þar sem sigið var niður háu- bæli í fyrsta skipti í hálfa öld. Það var Óskar Svavarsson sem seig. „Ég hef mikið dálæti á Óskari sem sigmanni og treysti honum fullkomlega í verkið. Það er langt síðan þetta var reynt og það eru hörð sigin í Háubæli, þarna er vindasamt og vandasamt að síga. Þetta heppnaðist þó vel hjá Óskari og við náðum því sem við ætluðum okkur,“ sagði Páll og bætti við að það hefðu verið glettilega margir sem komu að tökum í Eyjum þessa helgi. „Ég hafði svo góða fyr- irgreiðslu hjá bæjarfélaginu. Berg- ur Elías bæjarstjóri reyndist mér mjög vel og allir sem hann kallaði til stóðu fyrir sínu. Það er ljúft að vinna með svona fólki og svo komu leikarar og aukaleikarar með mér að sunnan.“ Sviðsett atriði frá St. Kildu Meirihluti myndarinnar verður tekin upp í Eyjum, meðal annars þau atriði sem eiga að gerast á skosku eyjunni, St. Kildu. „Þar er allt friðað og ekkert má snerta þannig að við þurfum að sviðsetja þau atriði og það verður gert í Eyj- um. Við verðum við tökur þar í júlí og ágúst í sumar.“ Páll sagði að hugmyndin að kvikmyndinni hefði blundað í sér mjög lengi. „Þetta er mjög dramatísk saga og snerti mig mikið. Ég vissi líka að þrátt fyrir að talið hefði verið að sjúkdómnum hefði verið eytt um 1850 þá komu upp tilfelli í Eyjum eftir það, eitt sem ég horfði upp á hjá ungu barni og síðan dó fullorðinn maður úr þessu 1951. Kildubúar héldu áfram að deyja úr veikinni í áttatíu ár eft- ir að henni var útrýmt í Eyjum og fólk var flutt þaðan í burtu yfir á meginlandið.“ Páll áætlar að skila myndinni af sér fyrir næstu áramót. Páll Steingrímsson tekur upp kvikmynd um ginklofa Morgunblaðið/Sigurgeir Bræður Páll Steingrímsson stendur á milli bræðra sinna Gísla og Svavars eftir að hafa myndað sigið í Háurð. Dramatísk saga sem snertir mig mikið Eftir Sigursvein Þórðarson

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.