Morgunblaðið - 10.06.2006, Side 30

Morgunblaðið - 10.06.2006, Side 30
30 LAUGARDAGUR 10. JÚNÍ 2006 MORGUNBLAÐIÐ MINNSTAÐUR sími 483 5800 Soffía Theodórsdóttir löggiltur fasteignasali OPIÐ HÚS Í DAG FRÁ KL. 14-16 Í FLJÓTSMÖRK 6-12, NÝJU OG GLÆSILEGU FJÖLBÝLISHÚSI Í HJARTA HVERAGERÐISBÆJAR. SÉRINNGANGUR ER Í ALLAR ÍBÚÐIR OG ER ÚTSÝNI Í TVÆR ÁTTIR. HÚSIÐ ER ÞRIGGJA TIL FJÖGURRA HÆÐA LYFTUHÚS OG STUTT ER Í ALLA ÞJÓNUSTU. NÁNARI UPPLÝSINGAR Í SÍMA 895 9098. ÁRBORGARSVÆÐIÐ Selfoss | „Við fáum þessa við- urkenningu fyrir gott uppeldisstarf en fáninn er tákn um árangursríka fræðslu og umhverfisstefnu í skól- anum. Það má því segja að við séum skóli á grænni grein eins og Land- vernd orðar það þegar rætt er um Grænfánann“, sagði Ingibjörg Stef- ánsdóttir, leikskólastjóri í Álf- heimum á Selfossi, en skólinn fékk Grænfánann afhentan öðru sinni síð- astliðinn fimmtudag og heldur fán- anum fram til ársins 2008. „Markmiðið með þátttöku í þessu verkefni er endurnýting og vistvæn hugsun í daglegu starfi. Krakkarnir kynnast þessari hugsun í skólanum og taka þátt í starfinu, fylgjast með að allt sé rétt gert. Þau eru umhverf- islöggurnar okkar og kíkja í dallana þar sem við flokkum og gefa okkur broskarl ef allt er í lagi en grátkarl ef eitthvað er í ólagi. Mér finnst þetta hafa góð áhrif í daglegum rekstri leikskólans. Það kemur fram í betri nýtingu og minni efnis- kaupum. Síðan eru skógarferðirnar okkar hluti af verkefninu. Við förum reglulega í skógarferðir hér í næsta nágrenni. Þar fer fram mikið upp- götvunarnám hjá börnunum sem vilja alls ekki missa af skógarferð- unum. Þær gefa tilefni til meiri úti- vistar og tækifæri fyrir börnin að kynnast náttúrunni“, sagði Ingi- björg. Við afhendingu fánans tilkynnti Einar Njálsson, bæjarstjóri Árborg- ar, þá ákvörðun að skólinn fengi stækkun á lóð sinni sem gerir að verkum að trjábelti verður hluti af lóðinni á einn kantinn og allbreið spilda í suðurkanti lóðarinnar. Þetta gefur að sögn Ingibjargar ný tæki- færi í útikennslu skólans. „Mér finnst ég sjá mun á börnunum sem nú eru að útskrifast. Þau eru mjög meðvituð um flokkun og vistvæna hugsun og þyrftu að fá samfellu áfram í grunnskólanum á því starfi sem hér er unnið en það er því miður ekki. Þessi stefna okkar vekur okkur til umhugsunar og reynir á okkur starfsmennina að hugsa vistvænt sem er öllum hollt,“ sagði Ingibjörg Stefánsdóttir, leikskólastjóri Álf- heima. Börnin verða meðvituð um flokkun og vistvæna hugsun Morgunblaðið/Sigurður Jónsson Umhverfislöggur Ingibjörg Stefánsdóttir með nokkrum umhverfis- löggum, f.v.: Jóhann Bragi Ásgeirsson, Ívar Haukur Bergsson, Unnur Lilja Gísladóttir, Unnur Dóra Bergsdóttir og Tara Mist Haraldsdóttir. Eftir Sigurð Jónsson Ölfus | Landvernd og Náttúru- verndarsamtök Suðurlands hafa kært útgáfu framkvæmdaleyfis til efnistöku úr Ingólfsfjalli til úrskurð- arnefndar skipulags- og byggingar- mála. Samtökin krefjast þess að efn- istakan verði stöðvuð án tafar enda brýnt að þeim hagsmunum sem kær- unum er ætlað að verja verði ekki fórnað áður en úrskurðarnefndin kveður upp úrskurð sinn í málinu. Þá krefjast samtökin þess að fram- kvæmdaleyfið verði fellt úr gildi. Bæjarstjórn Ölfuss samþykkti í byrjun síðasta mánaðar umsókn Fossvéla ehf. um framkvæmdaleyfi fyrir efnistöku á fjallsbrún Þórustað- anámu í Ingólfsfjalli. Framkvæmda- leyfið var veitt til fimmtán ára. Landvernd og Náttúruverndar- samtök Suðurlands telja að útgáfa leyfisins sé í andstöðu við markmið skipulags- og byggingarlaga. „Við blasir að efnistaka úr Ingólfsfjalli mun óhjákvæmilega hafa í för með sér verulega neikvæð og óafturkræf sjónræn áhrif. Áhrifin munu ná til fjölda fólks, þar sem fjallið er í næsta nágrenni við þéttbýlisstaðinn Selfoss og við fjölfarinn þjóðveg sem rúm- lega 8.000 bifreiðar aka um á sum- ardegi,“ segir í fréttatilkynningu. Þegar bæjarstjórn Ölfuss ákvað að gefa út framkvæmdaleyfið gekk hún gegn áliti Skipulagsstofnunar um mat á umhverfisáhrifum náma- vinnslunnar. Meðal annars voru færð fram þau rök að núverandi vegakerfi á Suðurlandi bæri ekki þá auknu umferð sem fyrirsjáanleg er ef efnisflutningabílar þurfi að fara lengri leiðir frá námu til notenda. Fram kemur það álit hjá náttúru- verndarsamtökunum að álit Skipu- lagsstofnunar hafi verið vel rökstutt og að rökstuðningur bæjarstjórnar uppfylli ekki þær kröfur sem gera þurfi til rökstuðnings af hálfu stjórn- valda í málum sem þessu. Mat á um- hverfisáhrifum fyrir efnistöku í Ing- ólfsfjalli er fyrsta umhverfismatið sem fer fram á grundvelli breyttra laga um mat á umhverfisáhrifum. Mál þetta hefur því fordæmisgildi, að mati Landverndar sem segir að nú reyni á það hvort náttúran njóti sömu verndar í nýju lagaumhverfi og áður var. Krefjast þess að efn- istaka verði stöðvuð Hveragerði | Garðplöntusalan Borg að Þelamörk 54 í Hvera- gerði fagnar tuttugu ára afmæli ár. Af því tilefni hefur verð á flestum tegundum plantna og sumarblóma verið lækkað um 20% og í tilkynningu kemur fram að afsláttarverðið muni haldast í allt sumar. Eigendurnir, Lars D. Nielsen og Ragnheiður Guðmundsdóttir eiga 40 ára ræktunarafmæli í ár. Þau stofnuðu Borg árið 1975 og í upphafi ræktuðu þau fyrir gróðrarstöðina Alaska í Breið- holti sem þau ráku einnig en ár- ið 1986 hófu þau sölu í Borg. Op- ið er alla daga vikunnar frá 10–21. Lækka verð á plöntum og blómum Selfoss | Valcalc Jehlicka, þing- maður og formaður mennta- málanefndar tékkneska þingsins, heimsótti hestamenn á Selfossi fyrir skömmu. Valcalc er mikill hesta- maður en hafði ekki kynnst íslenska hestinum fyrr. Hann hafði viðdvöl á skeiðvell- inum á Selfossi ásamt löndum sínum á ferð um Suðurland undir leiðsögn Kjartans Ólafssonar alþingismanns. Hestamenn settu upp sýningu fyr- ir tékknesku gestina og tóku gæð- inga sína til kostanna. Að lokinni sýningunni litu Tékkarnir inn í hest- hús og kynntu sér aðbúnað og að- stæður. Greinilegt var að gestirnir kunnu vel að meta íslenska hestinn og hrif- ust af því sem þeir sáu og kynntu sér. Íslenski hesturinn stóðst greini- lega þetta „tékk“ hjá gestunum. Morgunblaðið/Sigurður Jónsson Íslenski hesturinn Valcalc Jehlicka, formaður menntamálanefndar tékkneska þingsins, ásamt Kjartani Ólafssyni alþingismanni. Fyrir aftan þá eru hestamennirnir Brynjar Jón Stefánsson og Níels Kristján. Tékkar kynna sér íslenska hestinn Selfoss | Ungt fólk á Suðurlandi hefur tekið frumkvæði í söfnun fjár til kaupa á fíkniefnahundi til lög- reglunnar í Árnessýslu. Nýlega af- hentu nemendur Menntaskólans á Laugarvatni myndarlega gjöf til sýslumannsembættisins vegna þessa og í kjölfar þeirrar gjafar gengu formaður og ritari Nemenda- félags Fjölbrautaskóla Suðurlands á fund Ólafs Helga Kjartanssonar sýslumanns og afhentu honum 200 þúsund króna framlag frá nem- endum til verkefnisins. „Við viljum leggja okkar af mörk- um til samfélagsins og þetta kemur sér örugglega vel. Fíkniefnavand- inn er stærra vandamál en fólk ger- ir sér grein fyrir og við vonum að þetta hjálpi til við að koma efn- unum af götunni,“ sagði Ragnar Gylfason formaður þegar hann af- henti sýslumanni umslag með pen- ingagjöfinni. Hann sagði stjórn nemendafélagsins einhuga um þetta framtak en peningagjöfin væri möguleg því vel hefði gengið með skemmtanahald nemenda í vetur og afgangur verið af rekstri félagsins. Ragnar sagði mikið um að fólk kæmi í skólann með fræðslu af ýmsu tagi, einkum á svokölluðum Kátum dögum þegar hefðbundin kennsla væri brotin upp. „Það er jákvætt viðhorf meðal nemenda til þess að berjast gegn fíkniefnum og við vonum að fleiri leggi hönd á plóginn við að fá hundinn,“ sagði Ragnar og Elías Jón ritari tók und- ir orð hans. Ólafur Helgi Kjart- ansson sagði unga fólkið bestu bandamennina í baráttunni gegn fíkniefnunum. Hann sagði að komn- ar væru um 400 þúsund krónur í söfnunina fyrir hundinum, stöðugt væru að berast framlög og hann kvaðst bjartsýnn á að hundurinn kæmi. Morgunblaðið/Sigurður Jónsson Gjöfin afhent Ragnar Gylfason, formaður Nemendafélags Fjölbrautaskól- ans, Ólafur Helgi Kjartansson sýslumaður og Elías Jón Jónsson ritari. Gjöf til kaupa á fíkniefnahundi

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.