Morgunblaðið - 10.06.2006, Blaðsíða 44

Morgunblaðið - 10.06.2006, Blaðsíða 44
44 LAUGARDAGUR 10. JÚNÍ 2006 MORGUNBLAÐIÐ UMRÆÐAN HIÐ unga félag hugsjóna- og áhugamanna um velferð byggða um land allt, Landsbyggðarvinir í Reykjavík og nágrenni, LBVRN, stofnað 2003, ýtti úr vör í byrjun yfirstandandi skólaárs verkefni, sem varðar 13-17 ára unglinga og kallast Unglingalýðræði í sveit og bæ. Verkefnið miðar að því, að unglingarnir gaumgæfi málefni byggðar sinnar, velti fyrir sér framtíðar- möguleikum hennar og geri sér grein fyrir hvað þeir geti lagt af mörkum í því efni. Allt í von um að það efli bjartsýni og styrki sjálfsmynd fólksins og þar með framgang atvinnu- og menningarlífs á hverjum stað og sam- félagsins í heild. Verkefnið er unnið í góðri samvinnu við norrænu samtökin, Hela Norden ska leva!, HNSL. Þau samtök hafa staðið að mörgum vel heppn- uðum verkefnum, sem undirrituð hefur tekið virkan þátt í, allt frá árinu 1996. Reynslan af þessu starfi var mér hvati til að ráðast í þetta verkefni. Reynt var að hafa þátttökuskólana sem dreifðasta um landið, en þeir voru: Grenivíkurskóli fyr- ir Norðurland, Grunn- skólinn í Breiðdals- hreppi fyrir Austurland, Grunn- skólinn í Hveragerði fyrir Suðurland og Varmalandsskóli fyrir Vesturland, Grunnskóli Vest- urbyggðar, þ.e.a.s. Patreksskóli og Bíldudalsskóli, fyrir hönd Vest- fjarða og svo einn skóli úr Reykja- vík, Víkurskóli í Grafarvogi. Unnur Birna Vilhjálmsdóttir, al- heimsfegurðardrottning, er vernd- ari verkefnisins og Sigurlína Dav- íðsdóttir, dósent við Háskóla Íslands, hefur tekið að sér að meta, hvað út úr því kemur. Vænta má, að aðkoma þeirra gefi verkefninu sérstakan meðbyr og styrk. Verkefnið var tvískipt. Fyrri hlutinn var einstaklingsverkefni og fólst í ritgerðarvinnu. Áhersla var lögð á góðar hugmyndir höfunda til bóta fyrir heimabyggðina og hvernig framlag þeirra gæti skipt máli við að framkvæma þær. Besta hugmyndin kom frá Grunnskóla Vesturbyggðar. Una Áslaug Sverr- isdóttir, nemandi í 8. bekk Bíldu- dalsskóla, fékk þá fyrstu verðlaun, flugferð innanlands fyrir tvo að eigin vali í boði Flugfélags Íslands. „Víst er, að ekki er nóg að skrifa eða tala bara um hlutina. Það gerist lítið með því! Að fram- kvæma hlutina vill oft verða þraut- in þyngri!“ Þetta sagði verkefn- isstjóri í ræðu sinni við verðlaunaafhendinguna, sem fram fór fyrir fullu húsi í Þjóðmenning- arhúsinu við Hverfisgötu, stóra salnum, 19. maí s.l. Í síðari hlutanum var lögð áhersla á framkvæmdina. Mælst hafði verið til þess, að reynt væri að nýta einhverja af þeim uppörv- andi hugmyndum, sem komu fram í ritgerðarhlutanum, til frekari út- færslu. Þetta gekk eftir. Tveir skólar af þremur, sem mættu til verðlauna- afhendingar í Þjóðmenningarhús- inu, sýndu útfærslur sínar og lausnir í verkefnum, sem byggðust á ritgerðarhlutanum. Hlutskarp- astur var Grunnskóli Vest- urbyggðar, sem hlaut fyrstu verð- laun, ferð til Kaupmannahafnar, allur 8. bekkur Patreksskóla, 15 að tölu. Verkefnið þeirra nefndist Hreiðrið, og fjallaði um skólabúðir að sumarlagi. Þátttakan sjálf reyndist vera uppbyggjandi og áhugavekjandi að mati kennara. Önnur verðlaun hlaut 8. bekkur Víkurskóla fyrir verkefni sitt: Skipulagning Geldinganess. Þar var hugmyndin sú að gera Geld- inganesið að áhugaverðum fjöl- skyldu- og skemmti- garði. Kennari sá sem hélt utan um verkefnið uppgötvaði fljótlega, að hann gæti ekki staðið einn í því að koma verkefninu á laggirnar. Aðrir kenn- arar tóku sig þá til og lögðu hönd á plóginn. Í lokin áttu allir helstu fagkennarar skólans sinn þátt í lausn þess. „Annars hefðum við aldrei náð þessu,“ sagði aðal- kennarinn. Landsbyggðarvinir í Reykjavík og ná- grenni eru stoltir af því, hve vel verkefnið hefur verkað á skap- andi hugsun og þver- faglega starfshætti, og um leið stuðlað að framþróun í skóla- málum. Ferð til Kaup- mannahafnar – Draumur sem get- ur ræst Fyrir lítið og ungt félag eins og Lands- byggðarvini í Reykja- vík og nágrenni er það meira en að segja það að ætla sér að fara með stóran hóp til út- landa. Okkar lán er, að margir hafa lagt fram fé til að stuðla að framgangi verkefnisins, bæði opinberir aðilar, fyrirtæki og einstaklingar. Þar við bætist, að Sparisjóðirnir á Íslandi hafa ákveðið að verða okkar fjárhags- legi bakhjarl. Ný aðferðarfræði í byggðaþróun samtímans Unglingar á 21. öldinni eru bráðþroska – á sumum sviðum – og vilja að eftir þeim sé tekið og því mikilvægt að grípa þá til virkr- ar þátttöku, þegar þeir sýna áhuga og vilja til að sinna þeim málum, sem varða þá sjálfa og framtíðina. Því má segja, að verkefnið Ung- lingalýðræði í sveit og bæ feli í sér nýja aðferðafræði í byggðaþróun samtímans. Á meðan á verkefninu stóð kom í ljós, að krakkar í Reykjavík vissu lítið um, hvernig það er að búa ut- an Reykjavíkur og öfugt. Til að bæta úr þessu munu Landsbyggð- arvinir í Reykjavík og nágrenni, beita sér fyrir gagnkvæmum heim- sóknum og netsambandi milli þátt- takenda, t.d. á milli Víkurskóla í Reykjavík og skóla í Vesturbyggð. Þannig viljum við stuðla að já- kvæðri víxlverkun borgar og byggðar. Verkefnið hefur sannað sig, sem virkt afl til framþróunar byggða. Því er hugmyndin að endurtaka það næsta skólaár undir heitinu Unglingar, lýðræði og heima- byggðin. Unga fólkið – fyrir- heit til framtíðar fyrir byggðarlagið Fríða Vala Ásbjörnsdóttir fjallar um verkefnið „Unglinga- lýðræði í sveit og bæ“ Fríða Vala Ásbjörnsdóttir ’Verkefnið hefursannað sig, sem virkt afl til framþróunar byggða. Því er hugmyndin að endurtaka það næsta skólaár undir heitinu Unglingar, lýð- ræði og heima- byggðin.‘ Höfundur er skipuleggjandi verkefn- isins og stjórnandi og formaður Landsbyggðarvina í Reykjavík og nágrenni. MEÐ boðaðri afsögn Halldórs Ás- grímssonar er viðurkennt í verki að ríkisstjórnin og stjórnarsamstarfið sem slíkt er komið í þrot. Við blasir að rík- isstjórnin er óstarfhæf og hefur reyndar verið lítt starfhæf um margra mánaða skeið. Sú atburðarás sem landsmenn hafa agn- dofa orðið vitni að und- anfarna daga fer að sjálfsögðu ekki af stað upp úr þurru. Ástand- ið innanbúðar skýrir að hluta til hvers vegna ríkisstjórnin hefur verið máttlaus, aðgerðalaus og á full- komnu afneitunarstigi gagnvart verkefnum sínum undanfarna mán- uði og misseri, einkum á sviði efna- hagsmála. Ástandið í Framsóknarflokknum talar fyrir sig sjálft. Ábyrgðin á því að framlengja líf ríkisstjórnarinnar er hins vegar alfarið Sjálfstæð- isflokksins og Geirs H. Haarde. Hann gengst nú undir sitt stærsta próf hingað til sem formaður Sjálf- stæðisflokksins og það próf er ein- faldlega fólgið í eftirfarandi: Hvort velur hann frekar að máta sig í for- sætisráðherrastólinn með ónýta rík- isstjórn að baki sér í nokkra mánuði eða að taka ábyrga afstöðu og stuðla að kosningum? Kostir þess að boða til kosninga eru augljósir. Þá getur ný og starfhæf stjórn með nýtt um- boð snúið sér að því af alefli að tak- ast á við óumflýjanleg verkefni í landsstjórninni. Geir axlar mikla ábyrgð ef hann, þrátt fyrir augljós rök sem mæla með kosningum, ákveður að bjóða þjóðinni uppá áframhaldandi samstarf við Fram- sóknarflokkinn eins og hann er á sig kominn. Með því axlar hann ábyrgð á framhaldinu ekki aðeins sem for- sætisráðherra heldur líka á því að þjóðinni sitji uppi með draghalta rík- isstjórn heilan vetur. Verkefnin erfið og ærin Verkefnin sem við ríkisstjórn og Alþingi blasa eru erfið og ærin. Langhæst ber þar jafnvægisleysið í efnahagsmálum og brýn úrlausn- arefni í hagstjórn. Þar er allt það að koma fram sem varað hefur verið við og spáð fyrir um undanfarin misseri. Afleiðingar stór- iðjustefnunnar, hinna miklu og samþjöppuðu framkvæmda og þeirra væntinga sem þeim tengjast, afleiðingar illa tímasettra og ranglátra skattalækkana, mistaka í húsnæðismálum og á fasteignamarkaði, blasa nú við hverjum manni. Innlendar og erlendar sérfræðistofnanir með Seðlabanka Íslands í broddi fylkingar hafa varað við þessu ástandi. Seðlabankinn hef- ur undanfarin misseri beðið um hjálp og sagt að hann og stjórntæki hans eða úrræði muni ekki duga til ein og sér. Ríkisstjórnin hefur dauf- heyrst við öllum slíkum tilmælum og lifað sjálfri sér inní fílabeinsturni ímyndaðs góðæris en starfað út á við á grundvelli afneitunar- og af- skiptaleysisstefnunnar. Stóraukin verðbólga er alvarleg- asta og hættulegasta vandamálið. Hún er nú nálægt 8% á árs- grundvelli en um og yfir 15% miðað við síðustu þriggja mánaða meðaltöl. Viðskiptahallinn slær öll met og hef- ur tvöfaldast á fyrsta ársfjórðungi þessa árs miðað við sama tíma í fyrra. Er 66 milljarðar nú í stað 33 milljarða í fyrra. Miðað við þetta er eins líklegt að viðskiptahalli ársins fari um eða yfir 200 milljarða í stað þeirra 150 sem spáð hefur verið. Þessar tölur eru geigvænlegar í ljósi gríðarlegrar skuldaaukningar þjóð- arbúsins út á við á undanförnum ár- um. Hagvöxturinn undanfarið sem svo mjög hefur verið gumað af hefur að verulegu leyti verið drifinn áfram af stórauknum lántökum erlendis. Gengisfallið að undanförnu færir nú upp hinar himinháu tölur erlendra skulda þjóðarbúsins þannig að þær nema hátt á fjórða hundrað prósent- um af landsframleiðslu. Horfurnar versnandi Tvö virt erlend matsfyrirtæki hafa nú með stuttu millibili breytt horfum um lánshæfismat ríkissjóðs úr stöð- ugum í neikvæðar. Fyrst Fitch í febrúarmánuði sl. með alkunnum af- leiðingum, ekki síst fyrir gengi krón- unnar, og nú Standard & Poor’s. Mat þessara aðila og fleiri í kjölfarið svo sem vina okkar hjá Den Danske Bank er að líkur á harðri lendingu í íslenska efnahagslífinu hafi aukist. Við þessar aðstæður er hreint ábyrgðarleysi af ríkisstjórninni að láta sem ekkert sé og stritast við að sitja þessa mánuði sem hún getur húkt í stólunum án þess að vera við stjórn. Einhverjar mannabreytingar og hrókeringar í tengslum við afsögn forsætisráðherra breyta að sjálf- sögðu engu ef stjórnarstefnan verð- ur áfram sú sama, ef ríkisstjórnin verður áfram ófær um að koma sér saman um nokkurn skapaðan hlut sem snýr að vanda þjóðarbúsins annað en það að gera ekkert neitt. Slík ríkisstjórn er ekki við völd, hún bara situr. Hún er í reynd eins og starfsstjórn. Hefur Geir H. Haarde, formaður Sjálfstæðisflokksins, ekki meiri metnað en þann í íslenskum stjórnmálum að vera forsætisráð- herra starfsstjórnar í 10–11 mánuði og síðan ef til vill ekki söguna meir? Hvers vegna á að kjósa? Steingrímur J. Sigfússon fjallar um stjórnmálaviðhorfið ’Kostir þess að boða tilkosninga eru augljósir. Þá getur ný og starfhæf stjórn með nýtt umboð snúið sér að því af alefli að takast á við óumflýj- anleg verkefni í lands- stjórninni.‘ Steingrímur J. Sigfússon Höfundur er formaður Vinstrihreyf- ingarinnar – græns framboðs.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.