Morgunblaðið - 10.06.2006, Qupperneq 45

Morgunblaðið - 10.06.2006, Qupperneq 45
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 10. JÚNÍ 2006 45 UMRÆÐAN UNDANFARIÐ hefur mikið ver- ið rætt um utanvegaakstur vélhjóla- manna. Margir hafa vakið athygli á því ófremdarástandi sem hefur skapast í kjölfar þess að yfirvöld leyfðu innflutning á sérútbúnum hjólum án þess að tryggja aðstöðu fyrir notkun þeirra. Um tvenns kon- ar hjól er að ræða, annars vegar motorcross-hjól en hins vegar tor- færuhjól. Þau fyrrnefndu þurfa af- mörkuð æfinga- og keppnissvæði en eigendur hinna vilja helst ferðast á slóðum og vegleysum vítt og breitt um landið. Það eru einkum síð- arnefndu hjólin sem ítrekað hafa valda skaða utan vega undanfarin ár. Í nágrenni Reykjavíkur hafa tor- færuhjólamenn fengið Jósefsdalinn og svæði við Þorlákshöfn til afnota. Margir þeirra skemma land og skapa hættu með því að fara eftir reiðvegum eða öðrum slóðum á leið á þessi svæði eða á staði sem þeir mega ekki vera á eins og í Reykja- nesfólkvangi. Í raun mega vélhjól sem eru með númer einungis vera á vegum og viðurkenndum slóðum en þau númeralausu aðeins á afmörk- uðum æfingasvæðum. Þetta er stað- reynd sem mjög mikilvægt er að all- ir átti sig á. Það er skoðun undirritaðrar að nauðsynlegt sé að stöðva innflutning á torfæruhjólum. Of margir öku- mannanna virða ekki lög og til eru þeir sem virðast jafnvel gangast upp í því að brjóta þau. Auk þess er úti- lokað að það skapist sátt um að mörg svæði verði tekin frá fyrir fólk til að sinna þessu sporti. Ástæður þess eru fyrst og fremst þær að skemmdirnar sem þau valda á landinu eru allt of miklar og hávaðinn í hjólunum trufl- ar fólk sem vill njóta náttúrunnar. Ástandið er orðið skelfilegt víða á Reykjanesi, og þá sérstaklega innan Reykjanesfólkvangs. Menn hjóla um allt og telja sig í fullum rétti þegar þeir sjá kindagötur og för eftir aðra hjólamenn! Löggæsla innan fólk- vangs hefur verið afar lítil en hún er á vegum Hafnarfjarðar og Grinda- víkur. Það var því fagnaðarefni að heyra að yfirvöld fóru í þyrlum yfir Hellisheiðina og inn í fólkvanginn til að fylgjast með ólöglegri umferð. Í framhaldinu birtust fréttir og mynd- ir í sjónvarpinu sem höfðu m.a. þau áhrif að umhverfisráðherra fór á vettvang annan í hvítasunnu til að skoða ummerki í fólkvanginum. Í fréttum í RÚV sást þegar hún hitti tvo menn sem voru að keyra ólög- lega og sagði þeim að ef svona at- hæfi linnti ekki þá yrði að banna tor- færuhjólin. Það gladdi mig mikið að heyra umhverfisráðherra lýsa því yfir að hún muni taka af festu á þessu vandamáli. Fulltrúar sjö sveitarfélaga skipa stjórn fólkvangsins og framundan eru stjórnarskipti í kjölfar sveita- stjórnarkosninga. Stjórnin sem skil- ar nú af sér hefur lagt sig fram við að vekja athygli á þessari gersemi, sem fólkvangurinn er, fyrir sveit- arstjórnum og almenningi, m.a. með því að halda málþing, með opnun heimasíðu og gerð úttektar um stöðu fólkvangsins og framtíðarsýn. Mjög lítið fé hefur verið lagt í rekstur fólk- vangsins og er löngu kominn tími til að breyta því. Í ár samþykktu svo til öll sveitarfélögin að tvöfalda framlag sitt en þrátt fyrir það er sú upphæð sem er til reiðu innan við fimm millj- ónir. Eitt síðasta verk stjórnarinnar var að ráða landvörð, en það hefur ekki verið gert fyrr, sem mun sjá um eftirlit í sumar og standa fyrir gönguferðum. Ég skora á hina nýju stjórn að fylgja málum eftir af festu og berjast fyrir verndun þessa svæð- is svo menn geti notið útivistar þar eins og hugmyndin var þegar fólk- vangurinn var stofnaður fyrir rúm- um 30 árum. Utanvegaakstur – ráðherra boðar aðgerðir Hrefna Sigurjónsdóttir fjallar um utanvegaakstur ’ Það er skoðun undir-ritaðrar að nauðsynlegt sé að stöðva innflutning á torfæruhjólum. Of margir ökumannanna virða ekki lög og til eru þeir sem virðast jafnvel gangast upp í því að brjóta þau.‘ Hrefna Sigurjónsdóttir Höfundur er líffræðingur og hefur verið formaður stjórnar Reykjanes- fólkvangs sl. fjögur ár. edda.is Íslenskir fiskar í Sjóminjasafninu Bókin Íslenskir fiskar er stórvirki í íslenskri bókaútgáfu. Bókin opnar fyrir lesendum heim hafsins umhverfis Íslandmeð aðgengilegum og yfirgripsmiklum upplýsingum sem settar eru fram á nútímalegan ogmyndrænan hátt. Aldrei áður hefur birst jafn heildstætt safn málaðra mynda af fiskum við strendur Íslands. Við höldum upp á Hátíð Hafsins meðmynd- listarsýningu á verkum Jóns Baldurs Hlíðberg úr bókinni Íslenskir fiskar á fyrstu hæð Sjóminjasafns Reykjavíkur, Grandagarði 8. Tryggðu þér stórvirkið Íslenskir fiskar á sérstöku kynningarverði 17.990 kr. Fullt verð 19.980 Þeir fiska sem róa ... gestum sýningarinnar gefst kostur á að taka þátt í getraun og kanna kunnáttu sína um fiskana í sjónum umhverfis Ísland. Fimm heppnar aflaklær sem svara öllum spurningunum rétt geta unnið sér inn hina glæsilegu bók Íslenskir fiskar. Sýnining er opin laugardag frá klukkan 12 til 17 og sunnudag frá klukkan 11 til 17. Allir velkomnir, aðgangur ókeypis. Jón Baldur Hliðberg ER NEFIÐ STÍFLAÐ? Fæst í apótekum og lyfjaverslunum STERIMAR Skemmir ekki slímhimnu er náttúrulegur nefúði sem losar stíflur og léttir öndun. Fyrir 0-99 ára. Fréttir á SMS
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.