Morgunblaðið - 10.06.2006, Side 53

Morgunblaðið - 10.06.2006, Side 53
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 10. JÚNÍ 2006 53 KIRKJUSTARF Sjómannadagur í Norð- fjarðarkirkju SJÓMANNADAGINN 11. júní ber upp á Þrenningarhátíð og er hann haldinn hátíðlegur í Norðfjarð- arsókn að venju með hátíðarguð- sþjónustu í kirkjunni kl. 14. Hátíð- arstundin mun bera svip sjómannasamfélagsins. Kór Norð- fjarðarkirkju flytur m.a. gospellög og sjómannasálma í athöfninni, en stjórnandi er Ágúst Ármann Þor- láksson organisti. Ritningarlestr- ana í guðsþjónustunni lesa konur úr Kór Norðfjarðarkirkju og ræðu- maður að þessu sinni er Björn S. Lárusson, samskiptastjóri hjá Bech- tel. Samfélag og sjómenn verða eitt. Allir velkomnir. Gerum öll sjó- mannadaginn sem hátíðlegastan. Eftir athöfnina í kirkjunni verður blómsveigur sjómannadagsráðs borinn í kirkjugarðinn til minn- ingar um látna sjómenn. Þangað er öllum heimilt að koma og gott að sýna látnum sjómönnum virðingu með slíkri viðhöfn. Norðfjarðarkirkja og sókn- arnefnd færir öllum sjómönnum og fjölskyldum þeirra hátíðarkveðjur í tilefni dagsins. Sigurður Rúnar Ragnarsson, sóknarprestur. Sjómannadagurinn í Grafarvogi HÁTÍÐAHÖLD sjómannadagsins í Grafarvogi hefjast kl. 10 með helgi- stund við fornt naust, bátalægi sem er fyrir neðan kirkjuna, þá kirkju sem stendur einna næst sjó af kirkjum landsins. Félagar úr Björg- unarsveitinni Ársæli í Reykjavík taka þátt í helgistundinni. Flutt verða ritningarorð og sungnir sálmar, Þorvaldur Halldórsson mun leiða almennan söng. Guðsþjónusta hefst kl. 11:00 í Grafarvogskirkju. Séra Lena Rós Matthíasdóttir þjónar fyrir altari ásamt séra Elínborgu Gísladóttur. Nýráðinn æskulýðsfulltrúi við Graf- arvogskirkju, Gunnar Einar Stein- grímsson, flytur predikun dagsins. Leikmenn flytja ritningarlestra. Þorvaldur Halldórsson flytur tón- list og stýrir almennum safn- aðarsöng. Kaffi og kleinur eftir messu að íslenskum sjómannasið. Fjölskylduguðsþjón- usta í Árbæjarkirkju FJÖLSKYLDUGUÐSÞJÓNUSTA, grill og bílskúrssala á sunnudaginn í Árbæjarkirkju. Það verður sunnu- dagaskólastemning í fjölskyldu- guðsþjónustu kl. 11. Barn verður borið til skírnar. Mikill söngur og sögur sagðar. Boðið verður upp á grillaðar pylsur og djús að stund- inni lokinni. Þá verður utanfar- arhópur Æskulýðsfélagsins með bílskúrssölu. Þar er margt spenn- andi í boði og hægt að gera reyf- arakaup. Unglingarnir eru með fjáröflun vegna ferðar til Rúmeníu og Ungverjalands þar sem þau ætla að læra kristilegan dans. Við von- umst til að sjá börn á öllum aldri á sunnudaginn. Dr. Jakob flytur sjómannadagsræðu í Langholtskirkju Á SJÓMANNADAGINN mun dr. Jakob Jakobsson fiskifræðingur og fyrrverandi forstjóri Hafrann- sóknastofnunar flytja ræðu við há- tíðarguðsþjónustu kl. 11 í Lang- holtskirkju. Einsöngur Harpa Harðardóttir en organisti verður Ólafur W. Finnsson. Sumar-hjónanámskeið í Hafnarfjarðarkirkju Á ÞESSU sumri er ætlunin að bjóða upp á sérstakt sumar-hjóna- námskeið í Hafnarfjarðarkirkju, en slík námskeið hafa verið haldin þar undanfarna 10 vetur. Er þetta fyrsta sumarnámskeiðið sem boðið er upp á, þar sem eftirspurn er mik- il. Um 7.500 manns hafa sótt nám- skeiðin frá upphafi. Á NÁMSKEIÐUNUM er fjallað um samskipti hjóna í víðum skiln- ingi. En fyrst og fremst er talað um þær leiðir sem hægt er að fara til að sleppa út úr hring deilna og átaka í sambúð og hvernig styrkja má inn- viði fjölskyldunnar. Námskeiðið fer fram í formi samtals milli þátttak- enda og leiðbeinanda, þar sem pör- in eru m.a. látin vinna ýmis verk- efni, hvert fyrir sig. Enginn þarf að tjá sig á námskeiðinu frekar en hann vill. Nánari upplýsingar um námskeiðið og tímann er hægt að fá á thorhallur.heimisson@kirkjan.is, en þar fer einnig fram skráning. Sr. Þórhallur Heimisson, prestur við Hafnarfjarðarkirkju. Skapti Ólafsson syngur í Fríkirkjunni í Reykjavík SKAPTI Ólafsson syngur sjó- mannalög við undirleik Tríós Carls Möller í guðsþjónustu kl. 20 á sjó- mannadag. Anna Sigga og Carl Möller leiða almennan safn- aðarsöng, sjómenn lesa ritning- arlestra og Ása Björk Ólafsdóttir prédikar út frá Guðs orði. Ása Björk leiðir jafnframt guðsþjón- ustuna. Sr. Gunnar Björnsson. Kvöldguðsþjónustur í Seljakirkju AÐ sumarlagi eru guðsþjónustur í Seljakirkju haldnar á sunnudags- kvöldum kl. 20. Sá háttur hefur ver- ið hafður á um árabil. Það gefur færi til þess í lok helgarinnar að koma til kirkjunnar og eiga þar helgistund, og biðja fyrir störfum komandi viku. Fyrsta kvöldguðsþjónusta þessa sumars verður sunnudaginn 11. júní. Þá er sjómannadagurinn og þess minnst með því að biðja fyrir sjómönnum og fjölskyldum þeirra. Í guðsþjónustunni á sunnudag pré- dikar sr. Valgeir Ástráðsson og org- anisti verður Jón Bjarnason. Fé- lagar úr kirkjukórnum leiða söng safnaðarins. Sr. Sigurður Jónsson sóknarprestur Áskirkju settur inn í embætti Á SUNNUDAGINN 11. júní kl 14 verður sr. Sigurður Jónsson fyrrum sóknarprestur á Patreksfirði og síð- ar í Odda á Rangárvöllum settur inn í embætti sóknarprests Áskirkju. Sr Jón Dalbú Hróbjartsson pró- fastur mun annast athöfnina. Kór Áskirkju syngur undir stjórn og við undirleik Kára Þormar organista. Þá mun Elma Atladóttir syngja ein- söng. Að messu lokinn verður við- stöddum boðið í kaffisamsæti í safn- aðarsal kirkjunnar. Allir velkomn- ir. Karlakór Litla-Hrauns í Selfosskirkju Á SJÓMANNADAGINN, sunnudag- inn 11. júní næstkomandi, verður guðsþjónusta í Selfosskirkju kl. 11.00. Sóknarprestur prédikar og þjónar fyrir altari. Karlakór fanga á Litla-Hrauni syngur við athöfnina, sem verður með nokkuð öðru formi en venju- lega. Kórnum var komið á fót haustið 2004 og hefur hann sungið á aðventusamkomum stofnunar- innar. Fyrst kom kórinn fram op- inberlega á Hótel Selfossi hinn 19. maí síðastliðinn, en þá var þar hald- in ráðstefna fólks, sem stundar kennslu í fangelsum á Norð- urlöndum. Eftir guðsþjónustuna verður bor- inn fram léttur hádegisverður í Safnaðarheimili Selfosskirkju. Allir velkomnir. Sjómannadagurinn á Hrafnistu í Reykjavík FJÖRUKVARTETTINN syngur þekkt sjómannalög frá klukkan 13– 13.30 í samkomusalnum Helgafelli. Kvartettinn skipa þau Margrét Grétarsdóttir, Hrönn Hrafnsdóttir, Kári Friðriksson og Stefán Arn- grímsson. Píanóleikari er Magnús Ragnarsson. Guðsþjónusta hefst síðan klukk- an 13.30. Organisti Magnús Ragn- arsson en kór Hrafnistu syngur ásamt kvartettinum. Prestur sr. Svanhildur Blöndal. Ritning- arlestra lesa Edda Jóhannesdóttir og Lilja Sigurðardóttir. Allir vel- komnir. Morgunblaðið/Kristinn Norðfjarðarkirkja. Á hvítasunnudag, 4. júní sl., fór fram ferming hjá íslensku kirkj- unni í Gautaborg. Það var óvenju- stór hópur unglinga sem fermdur var í þetta sinn. Oftast eru bara eitt eða tvö ungmenni sem velja fermingu hér á meðan hin taka fermingarundirbúninginn í Svíþjóð og fermast svo á Íslandi. Í þetta sinn völdu 10 ungmenni að láta ferma sig við messu hjá séra Ágústi Einarssyni í Frölunda- kirkju, sem er staðsett í úthverfi Gautaborgar. Eins og sjá má á meðfylgjandi mynd er þetta fagur hópur, 5 stelpur og 5 strákar sem fermd voru á heitum og fallegum sumardegi. Fermingarhópur íslenskra unglinga í Gautaborg

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.