Morgunblaðið - 10.06.2006, Blaðsíða 57
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 10. JÚNÍ 2006 57
MINNINGAR
✝ Gunnlaugur Jó-hannsson fædd-
ist á Bjarnastöðum í
Unadal 19. apríl
1914. Hann lést á
Heilbrigðisstofnun
Sauðárkróks 2. júní
síðastliðinn. For-
eldrar hans voru
Anna Guðrún Þor-
leifsdóttir, f. 20
ágúst 1883, d. 18.
júlí 1965 og Jóhann
Gunnarsson bóndi,
síðast á Krossi í Ós-
landshlíð, f. 20.
ágúst 1880, d. 27. ágúst 1962. Al-
systkini Gunnlaugs voru Arin-
björn, f. 9 október 1810, d. 11. jan-
úar 1985, og Elínborg, f. 3.
september 1912. Hálfsystir sam-
feðra er Svava, f. 6.
desember 1915, d.
18. janúar 1990.
Gunnlaugur bjó
fyrstu æviár sín á
Bjarnastöðum en
flutti með foreldr-
um sínum og systk-
inum að Krossi í Ós-
landshlíð árið 1928.
Þau fluttu síðan til
Sauðárkróks ásamt
móður sinni eftir
andlát föður Gunn-
laugs 1962 og
bjuggu saman á
Freyjugötu 40 meðan heilsan
leyfði.
Útför Gunnlaugs verður gerð
frá Sauðárkrókskirkju í dag og
hefst athöfnin klukkan 11.
Gunnlaugur frændi minn er dá-
inn 92 ára.
Ég minnist hans sem mikils
snyrtimennis og heiðarlegs reglu-
manns á allan hátt. Ég hef mest
umgengist hann á síðustu árum eft-
ir að sjónin og þrekið var næstum
farið, en hann hugsaði um sig á
heimili sínu meðan stætt var. Það
má segja að hann hafi vitað um
hvern hlut þar og alltaf var allt í röð
og reglu og hreint. Hann flutti frá
Krossi í Óslandshlíð 2. júní 1963 að
Freyjugötu 40 á Sauðárkróki og
starfaði við vegavinnu og fiskvinnu.
Það er kannski ekki tilviljun að
hann skuli svo vera kallaður héðan
2. júní 2006. Fyrir tæpu ári fór
hann á sjúkrahúsið og dvaldi þar en
var löngu farinn að þrá að biðin yrði
ekki löng.
Ég vil að leiðarlokum þakka sam-
fylgdina og veit að vel verður tekið
á móti honum. „Far þú í friði,
friður Guðs þig blessi.“
Samúðarkveðjur til Elínborgar
og annarra ættingja.
Sigurlaug Ólafsdóttir.
GUNNLAUGUR
JÓHANNSSON
Elsku Margrét.
Okkur langar að
kveðja þig með
nokkrum orðum.
Þú varst alltaf
brosandi, hjálpsöm, í góðu skapi og
besti nágranni sem við höfum
MARGRÉT
FRIÐRIKSDÓTTIR
✝ Margrét Frið-riksdóttir ljós-
móðir fæddist 1.
desember 1927.
Hún lést á heimili
sínu 28. maí síðast-
liðinn og var útför
hennar gerð frá
Fossvogskapellu 2.
júní.
kynnst. Þú varst ekki
beðin um hjálp, þú
bauðst til að hjálpa.
Þú talaðir aldrei illa
um nokkurn mann.
Okkur er mikill léttir
í því að hafa fengið að
taka utan um þig og
knúsa viku áður en
kallið kom.
Við sjáum þig
ennþá, litla, sæta,
brosandi og yndis-
lega konu.
Þeir verða ófáir
englarnir sem taka á
móti þér hjá Guði.
Harpa og Franz.
Elsku vinur, það er
sárt að vita að þú ert
farinn frá okkur og að
við fáum aldrei að sjá
blíða brosið þitt fram-
ar. Ég var bara pla-
tamma eins og krakkarnir sögðu, en
samt fannst mér ég eiga svo mikið í
þér, taldi þig 20. barnabarnið okkar.
Þú komst inní svo ljúfur og góður
drengur, og þegar þú varst farinn að
vera á sjónum komstu oft til okkar á
aðfangadagskvöld eins og allir hinir
úr fjölskyldunni. Það var svo gaman
að hafa þig líka með í hópnum okkar.
Það kom líka fyrir að þið Sisi komuð
til að fá eitthvað í svanginn. og oft
gafstu okkur fisk í matinn þegar þú
komst af sjónum, þú gleymdir ekki
okkur gömlu hjónunum. Þá fékk ég
líka faðmlag og koss frá þér. Þetta
sýndi þitt góða innræti. Stundum
hitti ég þig útu í bæ og þú hikaðir
ekki við að gefa mér faðmlag og koss
á kinnina og það gladdi mig svo mik-
ið.
Elsku Biggi minn það er svo
margs að minnast sem ég geymi í
hjarta mínu, minningu um góðan
dreng.
Svo fluttir þú til Akureyrar og við
misstum af þér þann tíma, en nú ertu
kominn aftur heim í Ólafsfjörð eins
og þú baðst um sjálfur, vildir fá að
hvíla hér. Ég bið góðan guð að geyma
þig og varðveita alla þá sem sárt
sakna þín. Hvíldu í friði, elsku vinur.
Við hittumst seinna.
BIRGIR
BERTELSEN
✝ Birgir Bertelsenfæddist í
Reykjavík 7. nóvem-
ber 1978. Hann lést
af slysförum 27. maí
síðastliðinn og var
útför hans gerð frá
Akureyrarkirkju 6.
júní.
Ævin hún er undarleg,
elska, syrgja, þreyja,
leita gulls um langan veg
og lifa til að deyja.
(Óskar Karlsson.)
Amma Ragna
í Ólafsfirði.
Kveðja frá
skipsfélögum
Kæri vinur okkar.
Það er nú svo í lífinu að
hið óvænta er oft svo
erfitt að sætta sig við.
Stundum er höggvið á hnút sem er
bundinn með mikilli kunnáttu og
vandvirkni. Það að hafa deilt með þér
skiprúmi og fengið að njóta nærveru
þinnar gerir okkur að betri mönnum.
Við fyllumst þakklæti yfir því að
þú auðgaðir líf okkar, gafst okkur
nýja sýn með návist þinni. Margir af
okkur hafa verið lengi til sjós, kynnst
fjölbreytileika lífsins.
Við áttum þess kost að eiga stundir
með ungum manni með svo mikla og
jákvæða lífssýn. Fyrir það erum við
þakklátir og nálgun þín fyllir hjarta
okkar trega.
Þessir tímar sem við áttum saman
á sænum við að draga björg í bú
gleymast aldrei.
Atorka þín, áhugi á öllu því sem
viðkemur sjómennsku, var þinn
sterki hlekkur.
Alltaf tilbúinn að rétta hönd, ætíð
var þinn dugur og kraftur okkur hin-
um vegvísir og innblástur til betri
verka. Þú varst að byrja að hnýta
möskva þíns lífs, vinnan við að afla
tekna var þitt æðsta markmið. Það
hafðir þú að leiðarljósi til hinstu
stundar að standa þig í lífsins ólgusjó
og skila þínu verki með vandvirkni og
festu.
Eitt er víst, elsku Biggi. Við mun-
um alltaf minnast þín sem góðs fé-
laga og dugandi sjómanns. Við vitum
það að Drottinn tekur vel á móti þér
og umvefur þig kærleik sínum.
Viljum við votta fjölskyldu Bigga
dýpstu samúð okkar á þessari erfiðu
stundu og kveðjum hann með virð-
ingu og þökk.
Birgir Bertelsen hóf störf hjá
Samherja í apríl í fyrra en þá var
hann ráðinn háseti á Akureyrina
EA-110. Í sömu áhöfn var besti vinur
hans, Pálmi Hjörleifsson, 2. stýri-
maður, og einnig eldri bróðir Birgis,
Andrés. Þeir fóru saman í veiðiferð-
ina örlagaríku þegar eldur braust út í
áhafnarrýminu og kostaði líf sóma-
mannanna Birgis og Hafþórs Sigur-
geirssonar. Birgir var traustur og
skemmtilegur félagi og verkmaður
góður og frábær samnefnari fyrir
ungu kynslóðina. Við tregum sviplegt
fráfall hans og kveðjum með söknuði
þennan unga mann.
Við sendum Lilju, Magnúsi, þeim
feðgum Andrési og Andrési sem og
öðrum aðstandendum hugheilar
samúðarkveðjur. Drottinn blessi
minningu góðs drengs.
Fyrir hönd samstarfsfólks hjá
Samherja,
Þorsteinn Már Baldvinsson og
Kristján Vilhelmsson.
Elsku Biggi minn. Ég á erfitt með
að trúa því enn að þú sért farinn vin-
urinn minn. Ég sé fyrir mér fallega
brosið þitt og góðu augun. Með frá-
falli þínu stendur eftir tómarúm í
hjarta okkar sem eftir erum og feng-
um þann heiður að kynnast þér. Með
tímanum mun það þó fyllast af góð-
um minningum um þig og þeirri hlýju
sem þú gafst af þér.
Ég kveð þig hér nú með sorg í
hjarta. Þar verður þú þó ávallt lifandi
áfram sem minning um einn einlæg-
asta og sannasta vin sem nokkur get-
ur átt. Vin sem alltaf hafði samband
og var til staðar þrátt fyrir að lands-
hlutar og aðstæður skildu að. Mun ég
alltaf vera þakklát fyrir það.
Ásgerður Þ. Hannesdóttir.
✝ GuðbrandurKristinn Sörens-
son fæddist í Kefla-
vík 12. ágúst 1934.
Hann lést á Heil-
brigðisstofnun Suð-
urnesja 1. júní síð-
astliðinn. Foreldrar
Guðbrands voru
hjónin Sören Val-
entínusson segla-
saumari, f. 1. júlí
1887, d. 30. október
1962, og Vigdís
Guðbrandsdóttir
húsfreyja, f. 2. mars
1897, d. 26. júlí 1970. Bróðir Guð-
brands er Sævar, f. 20. október
1935, kvæntur Guðfinnu Sigur-
þórsdóttur, f. 29. maí 1946.
Guðbrandur kvæntist Huldu
Sigurðardóttur, f. 19. nóvember
1934, d. 8. apríl
1990. Guðbrandur
og Hulda eignuðust
þrjú börn, þau eru:
Sigurður Sören, f.
16. desember 1956,
kvæntur Elínu Mar-
gréti Pálsdóttur, f.
12. september 1951;
Jón, f. 30. apríl
1959, kvæntur Hel-
enu Alfreðsdóttur,
f. 30. nóvember
1960, og Vigdís, f.
18. september 1963,
gift Benedikt
Hreinssyni, f. 25 nóvember 1962.
Guðbrandur á sjö barnabörn og
sex barnabarnabörn.
Útför Guðbrands verður gerð
frá Ytri-Njarðvíkurkirkju í dag
og hefst athöfnin klukkan 13.
Elsku besti tengdó, pabbi og okk-
ar vinur. Það er alltaf sárt að
kveðja og hvað þá fyrir fullt og allt.
Þú ert búinn að vera okkur góður
vinur síðastliðin 30 ár. Margt hefur
verið brallað og margs er að minn-
ast í gegnum árin en þó sérstaklega
Spánarferðarinnar til Fuengirola
og ferðarinnar til Hollands þegar
ég varð 50 ára. Litla fjölskyldan
mín kom með í þessar ferðir og
mikið var nú hlegið og gert pínu
grín að þér sem þú tókst með jafn-
aðargeði eins og alltaf. Þú misstir
okkar elskulegu tengdamömmu og
mömmu 8. apríl 1990. Eftir það
varð sambandið enn sterkara okkar
á milli. Það voru ekki margir dagar
sem féllu úr sem við höfðum ekki
samband í síma eða hittumst. Það
var einkum þegar þú dvaldir er-
lendis hjá þinni heittelskuðu dóttur
Dísu og fjölskyldu hennar, sem er
búin að búa erlendis undanfarin ár.
Eftir að þú hættir störfum á lager
ITS á Keflavíkurflugvelli dvaldir þú
oftar hjá Dísu og fjölskyldu og
eignaðist þú marga góða vini sem
þú hélst sambandi við fram á síð-
asta dag. Síðasta ferðin þín var til
Kaupmannahafnar til að sjá nýja
heimilið þeirra sem þú varst mjög
ánægður með. Þau voru komin í
höfn. Eftir heimkomu þína fóru
veikindi þín að segja meira til sín.
Mikið ertu búinn að vera veikur síð-
astliðinn einn og hálfan mánuð,
reisn og virðing farin sem við vor-
um alltaf svo stolt af, flottur kall.
Nú er komin lokastundin og okkur
langar til að minnast þín og kveðja
með þessu fallega ljóði.
Margs er að minnast,
margt er hér að þakka.
Guði sé lof fyrir liðna tíð.
Margs er að minnast,
margs er að sakna.
Guð þerri tregatárin stríð.
Far þú í friði,
friður Guðs þig blessi,
hafðu þökk fyrir allt og allt.
Gekkst þú með Guði,
Guð þér nú fylgi,
hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt.
(V. Briem.)
Við vitum að það var tekið vel á
móti þér hinum megin af mömmum
og tengdamömmum okkar og fleir-
um. Blessuð sé minning þín.
Elín og Sigurður Sören.
Elsku afi, nú hefur þú kvatt
þennan heim og ert kominn til
ömmu þar sem þú ert laus við allar
þrautir. Það er sárt að þurfa að
kveðja, ég sakna þín svo mikið.
Eftir lifa margar góðar minning-
ar, þær ætla ég að geyma í hjarta
mínu.
Elsku afi, ég kveð þig með sökn-
uði, því ekki varstu bara afi minn
heldur góður vinur okkar Víðis.
Margar voru stundirnar er við sát-
um yfir kaffibolla ég, þú og Víðir í
eldhúsinu heima og röbbuðum um
heima og geima.
Ég kveð þig, hugann heillar minning blíð,
hjartans þakkir fyrir liðna tíð,
lifðu sæl á ljóssins friðar strönd,
leiði sjálfur Drottinn þig við hönd.
(Guðrún Jóhannsdóttir.)
Elsku afi takk fyrir allt saman,
þín
Inga Birna.
GUÐBRANDUR
KRISTINN
SÖRENSSON
Elsku langafi, takk fyrir allt.
Minning þín lifir í hjörtum
okkar.
Vertu yfir og allt um kring
með eilífri blessun þinni,
sitji Guðs englar saman í hring
sænginni yfir minni.
(Sig. Jónsson frá Presthólum.)
Þín barnabarnabörn
Elín Margrét og
Sigurður Sören.
HINSTA KVEÐJA
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð, hlýhug og
veitta aðstoð við andlát og útför elskulegs eigin-
manns míns, sonar, föður, tengdaföður og afa,
SIGURÐAR ÞORGEIRSSONAR,
Múlavegi 59,
Seyðisfirði.
Guðný Björg Þorvaldsdóttir,
Þorgeir Einar Þórarinsson,
Oddný Ragna Sigurðardóttir, Einar Þór Hauksson,
Þorgeir Einar Sigurðsson, Jakobína Björnsdóttir,
Sigríður Björg Sigurðardóttir, Richard Schols
og afabörn.
Innilegar þakkir sendum við öllum þeim sem sýndu
okkur samúð og hlýhug við fráfall eiginkonu minnar,
móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu,
HREFNU BERGMANN EINARSDÓTTUR,
Bústaðavegi 83.
Magnús Ásmundsson,
Ásmundur Magnússon,
Auður Magnúsdóttir, Halldór Kristiansen,
Stefanía Júlíusdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.