Morgunblaðið - 10.06.2006, Qupperneq 58

Morgunblaðið - 10.06.2006, Qupperneq 58
58 LAUGARDAGUR 10. JÚNÍ 2006 MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR ✝ Bára Steindórs-dóttir fæddist á Stokkseyri 7. desem- ber 1938. Hún and- aðist á Heilbrigðis- stofnun Suðurlands á Selfossi 6. júní síð- astliðinn. Foreldrar hennar voru hjónin Steindór Guðmunds- son (1904–1959), sjó- maður, bifreiðar- stjóri og vega- gerðarmaður frá Stokkseyri, og Guðný Regína Stef- ánsdóttir (1905–1986) frá Orms- staðahjáleigu í Norðfirði. Systkini Báru voru Laufey (d. 2001), versl- unarmaður á Selfossi, gift Leifi Guðmundssyni, og Einar Sigurð- ur, fiskkaupmaður í Reykjavík, kvæntur Þóru Egilsdóttur. Hálf- bræður Báru að móðurinni voru Guðjón Högni (d. 2001) og Páll Hörður (d. 1990). Faðir þeirra var Páll Þórðarson frá Stokkseyri. Bára giftist 26. desember 1959 Sverri Steindórssyni, rafvirkja, frá Sólbakka á Sel- fossi. Þau skildu. Sverrir andaðist 4. nóvember 2005. Börn Báru og Sverr- is eru: 1) Guðbjörg Dóra, kennari á Sel- fossi, maður hennar er Magnús Bergs- son. 2) Steindór, vaktstjóri, kona hans er Hjördís Ás- geirsdóttir. 3) Rík- harður, kennari á Selfossi, kona hans er Valgerður Hans- dóttir. Barnabörnin eru átta og barna- barnabörnin þrjú. Eftirlifandi maður Báru er Jón Hallgrímsson, starfsmaður Húsa- smiðjunnar, frá Vestra-Íragerði á Stokkseyri. Bára starfaði við verslunar- og þjónustustörf, lengst af hjá Kaup- félagi Árnesinga á Selfossi. Útför Báru verður gerð frá Sel- fosskirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 13.30. Elsku mamma mín. Nóttina sem þú yfirgafst þennan heim grét him- inninn með okkur. Skýfall, enda sorgin mikil. Skjótt skipast veður í lofti. Við áttum von á þér heim af spítalanum og vorum að undirbúa komu þína. Sumarið framundan og loksins tími eftir strangan vetur til að njóta samvista. Við tvær ætluðum að sitja á pallinum þínum og njóta veðurblíðunnar í sumar og margt var framundan hjá okkur næsta vetur. Þú ætlaðir að kenna mér að föndra ýmsa fallega hluti. Þar varst þú svo sannarlega á heimavelli. Nú verður ekkert af því. Þú varst falleg kona og vildir alltaf líta vel út og lést veikindin ekki koma í veg fyrir það. Rúllur voru settar í hárið, augnabrúnir litaðar og fötin smekklega valin. Allt var í lagi. Gjafmildi þín var alla tíð einstök. Þú varst stórhuga og eyddir hiklaust síðustu aurunum í gjöf handa ein- hverju okkar þrátt fyrir að þig van- hagaði um eitthvað sjálfa. Ég sagði stundum við þig að þú yrðir að fara að minnka gjafirnar. Þú tókst undir það með mér en gleðin yfir að gefa var of mikil. Á hverju afmæli og við öll tækifæri sem fundust beið okkar pakki frá þér. Ýmsu smálegu var oft gaukað að barnabörnunum þegar þau komu í heimsókn og oftast átt- irðu kökur, sem þú bakaðir sjálf. Þér þótti alltaf svo vænt um öll ömmu- börnin þín og þau hændust að þér. Nú saknar hann Ari Sverrir ömmu sinnar en hann er viss um að þú sért nú orðinn engill á himnum og fylgist með okkur. Þú varst aðdáunarverð, mamma mín, tókst því sem að höndum bar í lífinu og gerðir alltaf gott úr öllu. Það var fjarri þér að kvarta eða spyrja: ,,Af hverju ég?“ þótt margt væri á þig lagt. Það eina sem þú tókst nærri þér voru vandamál annarra, þá leið þér oft illa. Það var oft ótrúlegt hvað þú varst fær um að gera öðrum til hjálpar, eins veikbyggð og þú varst. Sjálfsagt varstu ennþá veikari en ég áttaði mig á. Alltaf stóðstu keik og stappaðir stálinu í okkur hin. Það er svo ótrúlega stutt síðan við tvær ræddum saman um lífið og tilveruna eins og við gerðum stundum. Þá sagðir þú við mig: ,,Það er eins gott að ég deyi ekki fljótlega, það er nóg komið hjá ykkur systkinunum í bili.“ Þá varstu ekki að hugsa um sjálfa þig frekar en fyrri daginn. En þótt þú værir sterk í öllum veikindum þínum og mótlæti þá veit ég að þú hefðir ekki getað átt jafn góða daga og þú í rauninni áttir ef Jonni hefði ekki staðið við bakið á þér og stutt þig með ráðum og dáð. Hann er einstakur öðlingur eins og þú sagðir mér svo oft. Nú, þegar ég kveð þig, elsku mamma mín, vil ég þakka þér fyrir öll árin okkar saman. Þín er sárt saknað en ég veit að við hittumst aft- ur þegar minn tími kemur. Þín Dóra. Elsku mamma. Það er mér þyngra en orð fá lýst að kveðja þig. Við vor- um svo góðir vinir, mamma. Enginn þekkti né skildi mig betur en þú og til þín leitaði ég eftir ráðum og styrk þegar á bjátaði hjá mér í lífinu. Þú leiddir mig á réttan veg og sefaðir áhyggjur mínar. Þú tjáðir mér líka margt um þínar tilfinningar, áhyggj- ur, sorgir og gleði og trúðir mér fyrir mörgu sem ekki mátti fara lengra. Okkur var mikill styrkur að hafa hvort annað, við skildum hvort ann- að. Nú ertu farin svo snögglega, það er eins og lífið hafi stöðvast og ég sé ekki til sólar. En ég veit, mamma, að þú vilt ekki að ég dvelji í myrkrinu því við ræddum oft um þessa stund, vissum að hún gæti komið hvenær sem væri. Minningarnar um þig eru dýr- mætar, mamma mín, við áttum svo yndislegar stundir saman. Fyrir þær er ég þakklátur. Þú varst alltaf falleg og fín – lífsglöð með ríka samúðar- kennd. Af hlýju áttir þú nóg og óend- anleg var ást þín, örlæti og gjafmildi. Fátt gladdi þig meir en að gefa og þú varst alltaf gefa, mamma mín. En mest gafstu af sjálfri þér. Þú fylgdist vel með okkur öllum, vildir að við hefðum það gott og gengi vel og gerðir allt til að svo mætti verða. Hugsaðir meir um að við hefðum það gott frekar en þú. Þú talaðir stundum við mig um gömlu dagana þegar þú varst barn og ung kona. Það voru margar skemmtilegar sögur sem þú sagðir mér. Og þú kunnir að gleðjast, jafnt yfir stóru sem smáu. Í mótlæti varstu hugprúð og tókst öllu af æðruleysi, gerðir það besta úr öllu þótt útlitið væri ekki gott. Ég velti því oft fyrir mér hvernig þú komst í gegnum dagana, bundin heima vegna sjúkdómsins. En þú kvartaðir sjaldan, sættir þig við þitt hlutskipti og sagðir að margir hefðu það miklu verra. Það var skelfilegur dagur 11. maí síðastliðinn. Þú flutt með hraði á spítala og vart hugað líf. En þér fór batnandi og útlitið var gott. Ætlunin var að útskrifa þig eftir hvítasunn- una, við orðin bjartsýn á að þú mynd- ir ná þér. En þú veiktist skyndilega og kvaddir hinn 6. júní. Þú veist, mamma, að ég hef kviðið þessari stund í mörg ár. Þú varst mitt at- hvarf og skjól. Ég er þakklátur fyrir að hafa náð að klára námið áður en þú fórst. Ég veit að það skipti þig miklu máli og gladdi þig mikið. Þú studdir mig í gegnum námið, hvattir mig áfram og léttir mér lífið á allan þann hátt sem þú gast. Takk fyrir það, mamma, ég hefði aldrei getað þetta án þín. Sár- ast finnst mér að fá ekki tækifæri til að fagna þessum áfanga með þér og þakka þér á þann hátt sem mig lang- aði til. Þú varst Ernu og Lenu svo mikils virði og þær þér. Hún Erna mín sagði við mig daginn eftir að þú lést að hjarta hennar væri bara hálft því amma hefði verið sér eins og önnur mamma. Þannig var það líka, mamma mín, og þú dásamaðir þær oft við mig og lést þér svo annt um þær. Elsku mamma, nú kveð ég þig með ástarþökk. Við gáfum hvort öðru lof- orð. Þú efndir þín og ég mun efna mín. Ég veit að þú munt líta eftir okkur öllum áfram og mín heitasta ósk er að hitta þig aftur hinum meg- in. Guð geymi þig, elsku mamma mín. Þinn Ríkharður. Elsku Bára mín. Síst hefði mig grunað að þú kæmir ekki heim af spítalanum á mánudaginn eins og til stóð. Þú varst farin að hressast og eygðir von um að komast heim eftir erfið veikindi þegar þér skyndilega hrakaði og tæpum sólarhring síðar varst þú látin. Ég kynntist þér fyrst fyrir rúmum tuttugu árum. Þá heilsuhraustri og fullri af lífsgleði. Mér er minnisstætt hvað þú varst alltaf fín og vel til höfð, svo vandlega snyrt og myndarleg. Allt í stíl frá toppi til táar. Heimilið bar þess merki hversu mikill fagurkeri þú varst. Þú hafðir unun af fallegum munum og varst einstaklega mynd- arleg húsmóðir. Mikil matargerðar- kona, á sunnudögum voru jafnvel smurðar snittur eins og á fínasta veitingahúsi. Þú varst afskaplega gjafmild og þér var mjög umhugað um fjölskylduna. Barnabörnin voru gullmolarnir þínir og hænd að þér, enda gafstu þeim tíma þinn óspart eftir að þú varst hætt að vinna sökum heilsuleysis. Fyrir jólin fóru Andrea og Bára nafna þín jafnan til þín og föndruðu með þér. Hafðir þú ekki síður gaman af. Þá aðstoðaðir þú þær við prjónaskap og sauma og spilaðir við þær. Þú varst myndarleg í hönd- unum jafnt að prjóna sem sauma, með óbilandi þolinmæði sem öfunds- verð er. Alltaf svo létt og stutt í hlát- urinn. Seinni árin voru þér erfið, með ólæknandi sjúkdóm og ekki síður að missa ástkæra systur þína og vin- konu Laufeyju, langt um aldur fram. En lánið þitt, elsku Bára mín, var að kynnast Jonna fáum árum eftir að þið Sverrir skilduð. Hefur hann reynst þér afskaplega vel í gegnum súrt og sætt og hugsað svo yndislega vel um þig. Þið voruð miklir félagar og gaman að sækja ykkur heim, oft mikið hlegið og gantast. Þín verður sárt saknað, elsku Bára mín, af okk- ur öllum. Elsku Jonni, missir þinn er mikill og votta ég þér innilega sam- úð. Elsku Steindór, Dóra og Rikki, það er mikið á ykkur lagt þar sem þið sjáið nú á eftir elskulegri móður, að- eins sjö mánuðum eftir andlát föður ykkar. Guð veri með ykkur og styrki í sorginni sem og okkur öllum sem syrgjum Báru. Takk fyrir allt og allt, elsku Bára. Blessuð sé minning þín. Þín tengdadóttir Hjördís. Elsku Bára mín. Hér sit ég og reyni að skrifa kveðjuorð til þín. Það er mér erfitt en ég hef margt að segja um þig frá þeim tíma sem ég hef átt með þér síðan ég kynntist syni þínum honum Rikka sem ég veit að þú elskaðir svo heitt. Síðustu sjö mánuðina höfum við skrifað þrjár minningargreinar eins og þú vissir. Þetta hefur verið mjög erfiður tími og okkur þótti öllum nóg komið, en að við ættum eftir að skrifa minning- argrein um þig, elsku Bára, er alltof snemmt, við ætluðum að gera svo margt saman. Við áttum svo margar góðar stundir við eldhúsborðið heima hjá þér, ég átti svo auðvelt með að tala við þig. Við vorum eins og vinkonur á sama reki. Þegar ég sagði eitthvað svaraðir þú gjarnan: ,,Já, ég þekki það svo vel.“ Þegar ég missti vinkonu mína þann 2. maí síðastliðinn þá sendirðu mér svo falleg blóm og ég varð svo hissa en svona varst þú, allt- af svo sæt og góð í þér. Þú fannst til með öllum og gafst svo mikið af þér, elskan mín. Ég verð þér ævinlega þakklát. Þegar þú vannst í kaupfélaginu í gamla daga ásamt systur þinni henni Laufeyju, þegar ég var unglingur, man ég hve sætar og fínar þið voruð. Alltaf fínar um hárið rétt eins og þið væruð að koma beint úr lagningu. Þú varst mjög smart kona og hugsaðir vel um útlitið. Þegar þú varst flutt með hraði á spítala í Reykjavík hinn 11. maí síð- astliðinn, mjög veik, var tvísýnt um líf þitt en þú náðir þér á strik og varst komin um viku síðar á spítal- ann hér á Selfossi. Þar batnaði þér smám saman og áttir að útskrifast hinn 5. maí. En lífið er stundum óréttlátt. Allt í einu veiktist þú svo mikið. Í stað þess að þú kæmir heim 5. maí fórum við á spítalann til þín og biðum milli vonar og ótta allt þar til yfir lauk. Ég skal hugsa vel um hann Rikka þinn. Þú varst svo glöð þegar hann kláraði nám sitt sem þú áttir svo mikinn þátt í. Nú er hann orðinn lög- giltur kennari en því hafðir þú beðið eftir síðustu fjögur árin. Fráfall þitt er mikill missir fyrir son þinn, þið voruð svo náin. En við mennirnir fáum engu ráðið. Þinn tími var kom- inn, elsku Bára mín, bara svo alltof fljótt. Ég veit að þér líður vel hjá þín- um sem á undan eru farnir. Elsku Jonni, megi guð og englar vaka yfir þér og styðja í sorg þinni. Ég sendi þér kæra kveðju, nú komin er lífsins nótt, þig umvefji blessun og bænir, ég bið að þú sofir rótt. Þó svíði sorg mitt hjarta, þá sælt er að vita af því þú laus ert úr veikinda viðjum, þín veröld er björt á ný. (Þórunn Sig.) Elsku Bára, takk fyrir allt. Valgerður. Amma Bára var alltaf rosalega góð kona, hún var góð við alla sem henni þótti vænt um. Þegar ég var nýbyrjuð í skóla fór ég oft til hennar eftir skóla og fékk hádegismat og við spiluðum, við spiluðum oftast yatsy eða slönguspil. Síðan fór ég oft og fór í öll pæjufötin hennar og alla hæla- skóna en það var sko nóg til. Það er rosalega erfitt að hugsa til þess að fá aldrei að hitta hana ömmu aftur, hún kenndi mér svo margt sem ég kann. Amma var alltaf rosalega dugleg að prjóna og sauma. Mjög oft þegar við fórum til hennar var hún búin að prjóna handa okkur lopavettlinga eða húfu eða jafnvel eitthvað á Baby born dúkkurnar okkar. Amma var alltaf svo glöð þó að hún væri svona veik, hún var alltaf til í að spjalla við mann eða baka pönnukök- ur. Hún bakaði bestu kökur í heim- inum og átti alltaf mikið af kökum og góðgæti, hún bauð alltaf öllum gest- um sínum upp á alls konar góðgæti. Mér hefur alltaf þótt ofboðslega vænt um hana ömmu Báru, mér fannst líka svo gaman að eiga al- nöfnu og að vera skírð í höfuðið á henni. Það helsta sem ég man eftir frá ömmu er dótakassinn í búrinu og lopapeysurnar sem hún prjónaði. Amma Bára var mjög falleg bæði að utan og innan og lífið án hennar verður allt öðruvísi heldur en vana- lega. Amma var alltaf svo yndisleg og var alltaf með ráð við öllu. Elsku amma, ég á eftir að sakna þín rosalega. Þín nafna, Bára Steindórsdóttir. Nú ert þú farin frá okkur, elsku amma mín. Ósköp finnst mér það erf- itt. Samt fannst mér gott að geta ver- ið hjá þér þegar þú kvaddir. Þegar ég sit hér við skattholið, sem þú gafst mér, koma margar minningar upp í hugann. Minningar sem eru mér svo dýrmætar núna. Þegar ég kom heim áðan, var það mitt fyrsta verk að kveikja á ljósaenglinum sem þú gafst mér. Þú varst alltaf að gefa mér eitt- hvað. Þrátt fyrir að þú værir svona mikið veik og gætir ekki unnið, varstu alltaf að gefa okkur barna- börnunum þínum eitthvað. Þú varst svo dugleg að föndra og ég á nokkur dýrmæt listaverk eftir þig. Myndirn- ar í eldhúsinu, pokakerlinguna, engl- ana og margt fleira. Þegar ég var lítil stelpa fannst mér voða gaman að máta eyrnalokkana þína, þeir voru margir hverjir með klemmum og þess vegna gat ég verið að máta þá sjálf. Svo komstu líka allt- af með eitthvert glingur handa mér þegar þú komst frá útlöndum, arm- bönd og hálsmen og þess háttar. Ég man líka þegar þú komst til mín í Búrfell þegar ég bjó þar. Þá komstu stundum með barmmerki handa mér og mér fannst ég svo fín þegar ég var búin að næla þeim í mig. Þú varst líka alltaf svo fín, og það breyttist ekkert þrátt fyrir veikindin þín. Þó að lungun væru viðkvæm og þú gætir þess vegna ekki klæðst hverju sem var, varstu samt alltaf í fínum fötum og með málaðar varir. Þegar ég var lítil vannstu í Kaupfélaginu á Sel- fossi. Þá ætlaði ég sko að verða alveg eins og þú þegar ég yrði stór, og vinna við búðarkassa. Elsku amma mín, ég mun sakna þín. Að geta ekki komið og fengið kaffisopa og jafnvel spilað smá yatzy. En eins og segir í laginu sem þú hlustaðir stundum á með Vilhjálmi Vilhjálmssyni, „Eitt sinn verða allir menn að deyja“. Ég kveð þig með þökk fyrir allt og allt, amma mín. Þín Bára María. Nú er elsku amma mín dáin. Mikið er erfitt að vera langt frá öllum á sorgarstundum, en þá er gott að eiga góðar minningar. Minningarnar um þig eru margar. Ein af mínum fyrstu minningum er frá því ég var fjögurra ára og þú varst hjá mér þar sem mamma og pabbi voru uppi á fæðing- ardeild. Margar eru minningarnar úr kaupfélagsferðum með mömmu þegar við fórum á kassann til þín. Þú varst alltaf svo vel til höfð, með lang- ar, lakkaðar neglur og fallega litaðar varir. Mikið langaði mig að hafa neglur eins og þú. Marga fatapokana hef ég fengið frá þér og margt fallegt komið upp úr þeim. Föt sem þú gast ekki lengur notað en vildir ekki henda. Heilt sumar vorum við að vinna saman í gróðurhúsinu hjá Rikka. Þá áttum við margar góðar stundir saman. Þegar ég var au pair í Frakklandi voru ómetanlegar send- ingarnar frá þér. Bréfin með fréttum að heiman og blöðin sem lesin voru aftur og aftur. Þá var gott að eiga þig að. Þú varst alltaf dugleg við að fylgj- ast með langömmubörnunum þínum og gefa þeim gjafir. Þegar við fjöl- skyldan komum í heimsókn var farið BÁRA STEINDÓRSDÓTTIR
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.