Morgunblaðið - 10.06.2006, Page 70

Morgunblaðið - 10.06.2006, Page 70
70 LAUGARDAGUR 10. JÚNÍ 2006 MORGUNBLAÐIÐ UM ÞESSAR mundir má sjá á tveim- ur stöðum í borginni sýninguna Flug(a) – milli náttúru og menningar. Í Þjóðminjasafni Íslands sýna mynd- listarmennirnir Bryndís Snæbjörns- dóttir og Mark Wilson ljósmyndir á Veggnum á jarðhæð og á Torginu, við safnbúðina, eru skúlptúrar og teikn- ingar eftir nemendur í Austurbæj- arskóla. Þriðji hluti sýningarinnar er á Reykjavíkurtorgi Borgarbókasafns Reykjavíkur í Grófarhúsi. Sýningin er liður í Listahátíð í Reykjavík. Eins og fram kemur á einblöðungi í Þjóðminjasafninu er hér um að ræða samfélagslegt myndlistarverkefni þar sem kannað er samband borg- arbúa við náttúruna með því að skoða tengsl gæludýra og mannfólks. Myndlistarmennirnir fengu rjúpna- skyttur til liðs við sig við gerð slembi- úrtaks á gæludýraeigendum, en þær skutu úr 50 m fjarlægð á kort af mið- borg Reykjavíkur og síðan var haft samband við íbúa í húsunum sem „urðu fyrir skoti“. Þeim sem reynd- ust eiga gæludýr var boðið samstarf í verkefninu. Afraksturinn felst í ljós- myndum sem Bryndís og Mark tóku á gæludýraheimilum og má sjá 16 myndanna á Borgarbókasafninu. Þar gefst sýningargestum einnig kostur á þátttöku með því að skrifa sögur af gæludýrum og hengja á vegg þar sem fyrir eru ritgerðir og teikningar eftir nemendur í Austurbæjarskóla. Í Þjóðminjasafninu má m.a. sjá skrá- setningu í formi ljósmynda af skot- hríð rjúpnaskyttnanna, sem átti sér stað á viðeigandi hátt úti í náttúrunni. Ljósmyndir af skotmönnum í felu- búningi að miða vísa til viðleitni mannsins til að ná valdi á náttúrunni og hagnýta hana. Maðurinn er óneit- anlega hluti af náttúrunni en samfara borgarmyndun, rökvæðingu og sam- félagsþróun nútímans á Vest- urlöndum hefur hann fjarlægst sveit og óbyggða náttúru. Hugmyndafræði borgarastéttarinnar fól í sér að skýr mörk voru dregin milli reglu og óreiðu; menningar og náttúru; sið- menningar andspænis hinu dýrslega. Slíkar áherslur endurspegluðust m.a. í bælingu á starfsemi líkamans í rým- islegu skipulagi heimilisins og í hegð- unarreglum fjölskyldunnar. Dýr, sem voru órjúfanlegur hluti af sveitalífi, öðluðust nýtt hlutverk sem gæludýr á hinu borgaralega heimili. Ljósmyndararnir í Borgarbóka- safninu sýna heimkynni gæludýra, svo sem bastkörfu í geymsluskoti inn- an um ryksugu og skótau, og fóðr- aðra körfu á stofugólfi. Íbúarnir eru fjarri á þessum myndum; þar sjást hvorki menn né dýr, aðeins heimilið frá sjónarhóli gæludýranna – úr þeirra augnhæð. Heimilið, sköp- unarverk mannsins, er þannig séð frá ráðandi sjónarhorni „náttúrunnar“. Valdahlutföllin hafa snúist við: Haglabyssur veiðimannsins hafa um- breyst í ljósmyndalinsu/augnaráð dýrsins sem beinir sjónum að yf- irráðasvæði sínu og þetta er undir- strikað með því að merkja myndirnar nöfnum viðkomandi gæludýra. Reynsla sýningargestsins felst í því að horfa frá og samsama sig sjón- arhorni dýrsins (og finna kannski dýrið í sjálfum sér?). Hin sjónræna samsömun gegnir hér lykilhlutverki á sýningu sem varpar með óvæntum og áreynslu- lausum hætti ljósi á tengsl manns og náttúru og vekur jafnframt ýmsar áleitnar spurningar. Verk nemenda Austurbæjarskóla mynda skemmti- legt samspil við verk Bryndísar og Marks en í þeim fyrrnefndu á sér einnig stað innlifun í heim gæludýra í formi barnslegrar tjáningar sem tengist þannig ýmsum hugmyndum um náttúruna og hið ótamda. „Hin sjónræna samsömun gegnir hér lykilhlutverki á sýningu sem varpar með óvæntum og áreynslulausum hætti ljósi á tengsl manns og náttúru og vekur jafnframt ýmsar áleitnar spurningar,“ segir Anna Jóa m.a. í umfjöllun sinni um sýninguna Flug(a) – milli náttúru og menningar. Borgarbú(a)r MYNDLIST Þjóðminjasafn Íslands og Borg- arbókasafn Reykjavíkur, Gróf- arhúsi. Listahátíð í Reykjavík Bryndís Snæbjörnsdóttir, Mark Wilson og nemendur í Austurbæjarskóla. Til 11. júní 2006 í Þjóðminjasafni, til 30. júní í Grófarhúsi. Flug(a) Anna Jóa GRÓÐURSANDUR TIL RÆKTUNAR WWW.BJORGUN.IS Sævarhöfða 33, 112 Reykjavík, sími 577 2000 Fréttir í tölvupósti Geirmundur Valtýsson með sjómannadansleik í kvöld Stór og fjölbreyttur sérréttaseðill ásamt tilboðsseðli öll kvöld. FULLKOMIÐ BRÚÐKAUP Má 12/6 kl. 20 Þri 13/6 kl. 20 FOOTLOOSE Fim 29/6 kl. 20 Frums. Fö 30/6 kl. 20 Lau 1/7 kl. 20 Fi 6/7 kl.20 Fö 7/7 kl. 20 Lau 8/7 kl. 20 Miðasala hafin VILTU FINNA MILLJÓN Í kvöld kl.20 UPPS. Su 11/6 kl. 20 Fi 15/6 kl. 20 UPPS. Su 18/6 kl. 20 GRÍMAN Íslensku leiklistarverðlaunin 16/6 kl. 19 Grímuballið 16/6 kl. 22 Allir velkomnir Miðasala í síma 4 600 200 / www.leikfelag.is MIÐASALA OPIN ALLAN SÓLAR- HRINGINN Á NETINU. Litla hryllingsbúðin – aukasýningar í september! Vegnar mikillar aðsóknar: Aukasýningar í september! Lau 2/9 kl. 19 AUKASÝNING – örfá sæti laus Sun 3/9 kl. 20 AUKASÝNING – nokkur sæti laus Fös 8/9 kl. 19 AUKASÝNING – örfá sæti laus Lau 9/9 kl. 19 AUKASÝNING – nokkur sæti laus Fullkomið brúðkaup – Borgarleikhúsinu. Sýningar í fullum gangi. Litla hryllingsbúðin – Íslensku óperunni. Sýningar í fullum gangi. Leiklistarnámskeið á Akureyri í júní. Frumsýning í kvöld laugardag 10. júní kl. 20 Síðasta sýning sunnudag 11. júní kl. 20 MIÐASALA: 555 2222 www.midi.is / www.hhh.is RAUÐAR LILJUR Danshöfundur: Sveinbjörg Þórhallsdóttir NO, HE WAS WHITE Höfundar og flytjendur: Anne Tismer, Margrét Sara Guðjónsdóttir, Sveinbjörg Þórhallsdóttir, Rahel Savoldelli Panic Productions í samstarfi við Hafnar fjarðarleikhúsið kynnir tvö ný dans/lei khúsverk: no, he was white var frumsýnt í Berlín í febrúar sl. og fékk frábærar viðtökur.                                      !   " #   $$$     %                              !"#$ !% &'  ' ( ) * ' + , -./ 0 & & ' ' ( ) * ' + , & 0 . 1' ' ( ) * ' + , & 0 & ' 2' ( ) * ' + , & 0 .-' 3' ( ) * ' + , & 0 &' ' ( ) * ' + , & 0 Mr. Skallagrímsson - leiksýning í Borgarnesi MIÐAPANTANIR Í SÍMA 437 1600 Höfundur/leikari: Benedikt Erlingsson Leikstjóri: Peter Engkvist Sýningar í júní Lau. 10. júní kl. 20 örfá sæti laus Sun.11. júní kl. 20 nokkur sæti laus Fös. 16. júní kl. 20 laus sæti Sun.18. júní kl. 20 laus sæti Fös. 23. júní kl. 20 laus sæti Lau. 24. júní kl. 20 laus sæti Sun.25. júní kl. 20 laus sæti Fös. 30. júní kl. 20 laus sæti

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.