Morgunblaðið - 10.06.2006, Blaðsíða 71

Morgunblaðið - 10.06.2006, Blaðsíða 71
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 10. JÚNÍ 2006 71 MENNING TVÖ NÝ dansleikhúsverk, No, he was white og Rauðar liljur, verða frumsýnd á svokölluðu Panic-kvöldi í Hafnarfjarðarleikhúsinu í kvöld klukkan 20 en það er dansleikhóp- urinn Panic Productions sem stend- ur fyrir sýningunni í samstarfi við Hafnarfjarðarleikhúsið. Panic Pro- ductions var stofnað af Margréti Söru Guðjónsdóttur og Sveinbjörgu Þórhallsdóttur í kringum uppsetn- ingu á dansverki á Nútíma- danshátíð Reykjavíkur fyrir rúmu ári. Hópurinn leggur áherslu á samvinnu við erlenda listamenn með það að markmiði að flytja inn erlend áhrif og auðga dansleik- húsmenningu á Íslandi. Án leikstjóra No, he was white er alþjóðlegt samstarfsverkefni sem sam- anstendur af leikurum, dönsurum og tónlistarmanni en sýningin var unnin án leikstjóra og danshöf- undar. Flytjendurnir eru höfundar verksins. Þarna eru mörk dans og leiks nokkuð óljós enda er um að ræða dansleikverk og auk þess er söngur stór þáttur í sýningunni. Flytjendur og höfundar verksins eru þau Anne Tismer, Rahel Sal- voldelli, Margrét Sara Guðjóns- dóttir og Sveinbjörg Þórhallsdóttir. Margrét kynntist Anne og Rahel í Berlín þar sem þær tvær síð- arnefndu starfræktu leikhópinn Gu- tes tun 1,3 en sá leikhópur notast ekki við leikstjóra. Þau ákváðu að tengja saman Panic Production og Gutes tun 1,3 í sýningu þar sem dansi og leik yrði blandað saman og úr varð No, he was white. Verkið er í senn hrátt og einlægt þar sem eintöl einmana sálar og samspil þátttakenda renna saman í eina brotakennda heild. Tónlist er í höndum Davids Kiers og búningar eru í umsjá Nir de Volff. Sýningin var frumsýnd í Berlín í febrúar síð- astliðnum og einnig er búið að bjóða henni til Pakistans og Belgíu og víðar um Evrópu. Anne Tismer er mjög virt og margverðlaunuð leikkona í Þýska- landi og hefur hún starfað í nokkur ár hjá hinu framsækna leikhúsi Schaubühne í Berlín. Hún hefur töluverða reynslu af leikstjóralausri aðferð, líkt og notuð er í No, he was white, en slík aðferð hefur ver- ið mjög vinsæl á meðal leikhópa í Berlín. Áhrif frá ljóðum Toms Wait Rauðar liljur er nýtt íslenskt dansverk eftir Sveinbjörgu Þór- hallsdóttur en þar eru skoðuð áleit- in efni eins og öfgafullar ástríður og þráhyggja og varpar sýningin upp ofsafenginni birtingarmynd þessara kennda. Gréta María Bergsdóttir, framkvæmdastjóri Pa- nic Productions, er dramatúrg í verkinu og dansararnir eru tveir nýútskrifaðir nemar frá listaháskól- anum í Arnheim í Hollandi, þær Saga Sigurðardóttir og Tanja Frið- jónsdóttir. Hildur Hafstein sér um búninga og útlit sýningarinnar. Að sögn Sveinbjargar gætir áhrifa frá ljóðum Toms Waits og verkum Svövu Jakobsdóttur í Rauðum lilj- um. Lifandi tónlist leikur stórt hlutverk í sýningunni en hún er frumsamin og flutt af þeim Eiríki Orra Ólafssyni og Kristínu Valtýs- dóttur en þau hafa komið ansi víða við í íslensku tónlistarlífi og meðal annars bæði spilað með hljómsveit- inunum Múm og Stórsveit Nix Nol- tes. Verkin tvö eru mjög ólík að sögn Sveinbjargar þar sem No, he was white er mjög gamansamt verk með miklum söng en Rauðar liljur afar átakanlegt, fallegt og gróteskt. Panic-kvöldið verður sem fyrr segir frumsýnt í kvöld klukkan 20 í Hafnarfjarðarleikhúsi, Strandgötu 50 og önnur og jafnframt síðasta sýning verður annað kvöld, 11. júní, á sama tíma. Menning | Panic Productions kynnir tvö ný dansleikhúsverk í samstarfi við Hafnarfjarðarleikhúsið Einmana sálir og öfgafullar ástríður Eftir Þormóð Dagsson thorri@mbl.is Morgunblaðið/Eyþór No, he was white er gamansamt verk með miklum söng. TÓNLISTARHÓPURINN Camerarctica held- ur í dag síðustu tónleika 15:15-tónleikarað- arinnar í Norræna húsinu undir yfirskriftinni „Þýsk léttklassík og franskur sjarmi – léttleiki og húmor ólíkra heima“. Efnisskráin verður sumarleg. Leikin verður tónlist í anda áhyggjulausra sumardaga 19. aldar, þar sem hljóðfærasláttur heyrist frá garðskálanum, í bland við líf og fjör Par- ísarborgar á 20. öld. Verkin sem á að flytja eru stef og tilbrigði fyrir klarinettu og strengi eft- ir Jozef Küffner, serenaða fyrir flautu, fiðlu og víólu eftir Ludwig van Beethoven og kvintett fyrir klarinettu og strengi eftir franska tón- skáldið Jean Francaix. Verk Küffners var samið snemma á 19. öld, og samanstendur af fjörugum tilbrigðum þar sem klarinettan fær að njóta sín. Tónlistin er að sögn Ármanns Helgasonar, klarinettu- leikara Camerarcticu, „hrein skemmtitónlist“. Serenaðan sem flutt verður eftir Beethoven er „gegnsæ klassík, og í henni er mikil heiðríkja“, að sögn Ármanns. „Verkið er með því léttara sem Beethoven samdi.“ Síðasta verkið er kvintett eftir Francaiz frá 1977. „Í því er einhver stemning, þannig að þegar mað- ur hlustar er maður eina stundina staddur á götum Parísar, en stuttu síðar kominn í franska bíómynd,“ segir Ármann og bætir við að í verkinu séu líka ótrúlega fallegir hægir kaflar. Ármann telur það erfiða við tónlistina sem flutt verður hvað allt þarf að hljóma létt og leikandi. „Það getur verið krefjandi, jafnvel meira krefjandi en nútímatónlist. En við von- um að okkur takist að spila okkur inn í sum- arið.“ Ekkert verkanna hefur verið flutt áður af Camerarctica, en hópinn skipa auk Ármanns Hallfríður Ólafsdóttir flautuleikari, Una Sveinbjarnardóttir og Hildigunnur Halldórs- dóttir fiðluleikarar, Jónína Auður Hilm- arsdóttir víóluleikari og Sigurður Halldórsson sellóleikari. Almennt miðaverð á tónleikana er 1.500 kr., en 750 kr. fyrir eldri borgara og nemendur. Tónlist | Þýsk léttklassík og franskur sjarmi í Norræna húsinu í dag Camerarctica spilar sig inn í sumarið Morgunblaðið/Eggert Camerarctica leikur á 15:15 tónleikum í Norræna húsinu í dag. HÁDEGISTÓNLEIKAR verða haldnir í Hafnarborg í dag kl. 12 undir yfirskriftinni „Áfram veginn – uppáhaldslögin Stefáns Íslandi“. Þar kemur fram Stefán Helgi Stef- ánsson tenór ásamt Antoníu Hevesí píanóleikara. Á efnisskránni eru m.a. verk eftir Puccini, Verdi, Leh- ár og Karl O. Runólfsson. Aðgangur er ókeypis. Stefán Helgi og Antonía í Hafnarborg Í MINJASAFNINU á Akureyri verður í dag haldin fyrsta söngvaka sumarsins. Minjasafnið hefur boðið upp á söngvökur að sumri síðan 1994 og hafa þær vakið mikla at- hygli. Eins og segir í tilkynningu eru áheyrendur leiddir í söngferðalag í tali og tónum um íslenska tónlist- arsögu, allt frá miðöldum til okkar daga. Á söngvökunni í kvöld eru flytj- endur Þuríður Vilhjálmsdóttir og Þórarinn Hjartarson en efnisskráin er afar fjölbreytt; allt frá drótt- kvæðum miðalda til söngva og þjóð- laga tuttugustu aldar. Söngvakan hefst kl. 20.30 í Minjasafnskirkjunni og er aðgangs- eyrir kr. 1.000 Söngvaka í Minjasafni Akureyrar SÝNINGIN „Söguþráður“ stendur nú yfir í Listasal Mosfellsbæjar. Listamaðurinn sem á heiðurinn af sýningunni er Þórdís Alda Sigurð- ardóttir, sem sýnir lágmyndir sem gerðar eru m.a. úr járni og textíl. Sum verkanna eru nýgerð og ósýnd en flest þeirra voru gerð ár- ið 2005 og voru sýnd á Hótel Djúpavík á Ströndum í fyrrasum- ar. Sýningarrýmið er í Bókasafni Mosfellsbæjar, í Kjarna, Þverholti 2 og er opið á sama tíma og bóka- safnið. Sýningunni lýkur laug- ardaginn 24. júní. Söguþráður Þórdísar Öldu í Listasal Mosfellsbæjar LEIKRITIÐ Mr. Skalla- grímsson var sýnt við miklar vinsældir á Listahátíð. Hefur verið ákveðið að halda áfram sýningum á verkinu, en sýningar fara fram á Söguloftinu í gamla pakk- húsinu í Landnámssetri, Borgarnesi, föstudaga, laug- ardaga og sunnudaga kl. 20. Í leikritinu segir Benedikt Erlingsson sögu Egils Skallagrímssonar í knöppu formi, og nýtir sér að sögu- svið Egilssögu er allt um kring. Borgfirðingahátíð er um helgina og býður Landnáms- setur af því tilefni einnig til sögustunda fyrir börn og fullorðna. Þorgerður Brák, fóstra Egils, gengur aftur og segir börnunum sögur, auk þess sem Hjörleifur Stef- ánsson, sem þekktur er í héraðinu fyrir hæfileika sína sem sagnamaður, segir sög- ur af álfum og furðuverum. Mr. Skallagrímsson snýr aftur www.landnam.is. Í GALLERÍI Sævars Karls opnar á í dag sýning á verkum bæverska listamannsins Rudolf L. Reiter. Verkin tengjast öll Íslandi og hug- hrifum listamannsins frá Íslandsför hans fyrir hálfu öðru ári. Rudolf Reiter er með þekktari samtíðarlistamönnum í Þýskalandi og eru verk hans kennd við róm- antíska nýlist (Romantische Mod- erne). Sýningin stendur í mánuð og er opin á opnunartímum verslunar- innar. Morgunblaðið/Ásdís Sævar Karl og Kristjana Guðbrandsdóttir undirbúa sýninguna. Rudolf L. Reiter hjá Sævari
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.