Morgunblaðið - 10.06.2006, Page 72

Morgunblaðið - 10.06.2006, Page 72
72 LAUGARDAGUR 10. JÚNÍ 2006 MORGUNBLAÐIÐ T ónleikaferðalag Waters hófst 2. júní í Portúgal og verða tónleikar í Evrópu alls tuttugu. Bandaríkin og Kanada bíða svo haustsins. Áralangar þrætur Waters við fyrrum félaga sína í Floyd eru vel þekktar en hann hætti endanlega í sveitinni árið 1985. Lagaflækjur fylgdu í kjölfarið þar sem deilt var um eignarrétt á sveitarnafninu, ein- stökum lögum og meira að segja upp- blásna svíninu sem sjá má á umslagi Animals (og var það Waters sem tryggði sér það). Mörgum hefur því þótt athygl- isvert að Waters og Mason virðast hafa grafið stríðsaxirnar en sá síð- arnefndi settist á trommusettið á tvennum síðustu tónleikunum í heim- stónleikaferðalagi Roger Waters árið 2002 og spilaði hann í laginu „Set the Controls for the Heart of the Sun“ (af A Saucerful of Secrets, 1968). Auk þess hefur hann nú samþykkt að spila á nokkrum þeim tónleikum sem framundan eru, og mun hann tromma í Dark Side … hlutanum og auk þess í uppklappslögum. Á dauða mínum átti ég von en ekki því að fá textaskilaboð frá trommu- leikara Pink Floyd. Þannig var að ég fékk uppgefið farsímanúmer Masons og var sagt að hringja í hann hvenær sem væri og koma viðtalinu í kring. Eftir að hafa fengið talhólf sendi ég honum því textaskilaboð þar sem ég spurði hvenær væri hentugast að gera þetta. Hann sendi svo skilaboð um hæl að hann myndi hafa samband eins fljótt og auðið væri. Nokkuð sérstakt, þar sem þegar svo hátt er komið í frægðarstiganum fara svona mál vanalega í gegnum skrifstofu. Þetta er þó líklega til vitn- is um tvískiptingu þá sem einkenndi Pink Floyd lungann af ferlinum; tveir aðsópsmiklir framverðir (Gilmour og Waters) og tveir hæglætismenn (Ma- son og Wright). Mér hefði aldrei ver- ið gefinn gemsinn hans Roger Wa- ters. En kannski var þetta þó meira til vitnis um persónuleika Masons, sem reyndist einstaklega ljúfur og „eðlilegur“ viðmælandi. Þetta mál tók svo á sig enn kóm- ískari mynd þegar Mason hringdi loks. Var þá blaðamaður staddur á kaffihúsi, nýkominn úr fótbolta. Þurfti hann því að biðja „Nick“ um að hringja í sig aftur eftir korter, en þá yrði hann kominn heim. „Minnsta mál,“ var svarið. Magnað. Á milli tveggja elda Mason hafði þó lítinn tíma fyrir kurteisishjal, og var það af tækni- legum ástæðum. Hann hóf þó mál sitt á að lýsa yfir ánægju með það að hafa loks náð í blaðamann. „Byrjum bara á þessu,“ sagði hann síðan. „Ég er nefnilega staddur í bíl og rafhlöðurnar í símanum mínum eru orðnar tæpar. Ef ég dett út þá hringi ég í þig seinna í dag.“ Röddin var róleg og yfirveguð, og séntilmennskan skein í gegn með ósviknum enskum hreimnum. „Já!, ekkert mál …,“ hugsaði ég og byrjaði óðar að spyrja. Jafnan reyn- ist best að brjóta ísinn með því að spyrja út í væntanlega Íslands- heimsókn en þess má geta að Ísland er einn af aðeins fimm stöðum þar sem Mason mun koma fram með Wa- ters. „Roger spurði mig fyrir þremur eða fjórum mánuðum síðan hvort ég vildi vera með og fyrst áttu þetta bara að vera tónleikarnir í Frakk- landi,“ svarar Mason. Tónleikar þess- ir fara fram á þjóðhátíðardegi Frakka, þann 14. júlí í Magny Cours, en þar verður og haldið upp á eitt hundrað ára afmæli franska Grand Prix-kappakstursins, sem var sá fyrsti sem haldinn var. Auk þess fer fram keppni í Formúlunni þá um helgina. Mason, sem er þekktur öku- þór og bílasafnari, hafði upprunalega ætlað að slá tvær flugur í einu höggi og sinna meginástríðum sínum, „tón- list og Formúlu eitt“ eins og hann lét hafa eftir sér á blaðamannafundi. „En svo fór ég að hugsa málið að- eins lengra,“ heldur hann svo áfram. „Og við ákváðum að bæta við nokkr- um tónleikum. Svo að það hefur orðið úr að ég spila með Roger í London, New York og Los Angeles líka. Svo fannst okkur sniðugt að bæta Íslandi við en ég hef aldrei komið þangað.“ Mason segist hafa spilað aðeins með Waters undanfarin ár, en ekki oft þó. „Ég spilaði sem gestur hjá honum Tónlist | Nick Mason, trommuleikari Pink Floyd, kemur fram með Roger Waters í Egilshöll Ég er enginn sáttasemjari Reuters Pink Floyd-liðarnir Dave Gilmour, Roger Waters, Nick Mason og Rick Wright komu saman á Live8-tónleikunum í Hyde Park í London í júlí í fyrra. Roger Waters, fyrrum liðsmaður Pink Floyd, er nú á tónleikaferðalagi þar sem hann flytur meistaraverkið Dark Side of the Moon í heild sinni í bland við lög frá sólóferli sínum. Einnig mun hann leika lög frá þeim tíma er hann var enn meðlimur í Pink Floyd. Nick Mason, trommuleikari Floyd, kemur fram á nokkrum tónleikum og ræddi hann við Arnar Eggert Thoroddsen um það óvænta innslag. kemur næst út 17. júní, fullt af spennandi efni um listina að gera vel við sig og sína í mat og drykk Meðal efnisþátta í næsta blaði eru: • Sætur sautjándi • Freistandi fondue • Kenjar kokksins • Rabarbaraævintýri ásamt ýmsum sælkerafróðleik. Auglýsendur! Pantið fyrir kl. 16 miðvikudaginn 14. júní Allar nánari upplýsingar veitir Sif Þorsteinsdóttir í síma 569 1254 eða sif@mbl.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.