Morgunblaðið - 10.06.2006, Qupperneq 73
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 10. JÚNÍ 2006 73
Faxafen 10
108 Reykjavík
Sími: 517-5040
Fax: 517-5041
Netfang: postur@hradbraut.is
Veffang: www.hradbraut.is
T V E I M U R Á R U M
Á U N D A N
Ágæti verðandi framhaldsskólanemi!
Nú er komið að því að velja framhaldsskóla. Ef þú ert góður nemandi þarft þú
að spyrja þig nokkurra spurninga:
1. Vil ég fara í lítinn persónulegan skóla með líflegu félagslífi?
2. Vil ég fara í skóla með bekkjarkerfi þar sem auðvelt er að mynda vinatengsl?
3. Vil ég fara í skóla sem hefur það að aðalmarkmiði að búa nemendur undir nám í háskóla?
4. Vil ég fara í skóla þar sem ég vinn „heimavinnuna“ í skólanum?
5. Vil ég frekar útskrifast sem stúdent laugardaginn 5. júlí 2008 en laugardaginn 22. maí 2010?
Svarir þú þessum spurningum játandi átt þú erindi í Menntaskólann Hraðbraut!
Skráningarfrestur er til 12. júní 2006.
fyrir nokkrum árum [og er að vísa í
tónleikaferðalagið frá 2002] og eftir
Live8 [þar sem hin fjögurra manna
Pink Floyd kom fram saman í fyrsta
skipti í tuttugu og fjögur ár] lék ég
með honum á góðgerðartónleikum.
Það var fyrir tveimur vikum eða svo.“
Ég heyri á Mason að hann vill ekk-
ert vera að tala um hvaða góðgerð-
artónleikar þetta voru því að þeir
hafa verið afar umdeildir. Um var að
ræða styrktartónleika fyrir samtökin
Countryside Alliance Benefit, sem
meðal annars berjast fyrir áfram-
haldandi refaveiðum og hafa tónleik-
arnir verið á milli tannanna á um-
hverfis- og dýraverndunarsinnum.
Tónleikarnir fóru fram 20. maí síðast-
liðinn í Highclere Castle, Bretlandi,
og komu Eric Clapton, Bryan Ferry
og Mike Rutherford m.a. fram.
Mason tekur undir það að Waters
virðist allur vera farinn að mýkjast
en deilurnar fyrir nokkrum árum
gátu verið æði hatrammar.
„Hann hefur svo sannarlega verið
að slaka aðeins á,“ segir Mason
ákveðinni röddu en bætir við og hlær.
„En til allrar óhamingju er David
núna á sama stað og Roger var fyrir
tuttugu árum síðan. Hann er mjög
ákveðinn í að sinna sólóferli sínum og
engu öðru. Þannig að, já, þetta er
ansi erfitt mál.“ Hann bætir svo við
með yfirvegaðri kaldhæðni. „Þannig
að gefum þessu tuttugu ár í viðbót.
Þá mun allt verða í lukkunnar vel-
standi.“
Mason neitar því þó að hann sé á
milli tveggja elda, en þessi rósemd-
armaður hefur einnig verið að spila
með David Gilmour. Hann lék síðast
með honum á tónleikum sem haldnir
voru til að fylgja nýjustu sólóplötu
Gilmour, On an Island, eftir og fóru
þeir fram í London í endaðan maí.
Mason orðar þetta snilldarlega:
„Það er ekkert sem angrar mig
(eða „I don’t have the same issues“)
og mér finnst ég ekki vera fastur í
einhverju stríði. Þeir tveir verða að
leysa sín mál sjálfir og finna hvað
þeir vilja gera. Ég er enginn sátta-
semjari.“
Minjagripur
Waters bauð hljómborðsleikara
Floyd, Richard eða Rick Wright, að
vera með að einhverju leyti í þessum
túr en hann hafnaði því boði. Bar við
önnum vegna vinnu við sólóverkefni.
Samband Waters og Gilmour er svo
allt annar handleggur. Heyrst hefur
að þeir hafi skipst eitthvað á tölvu-
pósti eftir Live8 en í nýlegu viðtali við
Sunday Telegraph (birt 28. maí á
þessu ári) mælir Gilmour þessi
þungu orð: „Mér finnst ég aldrei hafa
sært Roger … en hann reyndi mikið
að særa mig“.
Nick Mason hefur þá gefið til
kynna að hann sé vel til í að bandið
komi saman á nýjan leik, og Waters
hefur einnig viðrað þá skoðun. Þessar
umleitanir stranda hins vegar allar á
Gilmour sem segist einfaldlega ekki
nenna að standa í þessu meira og lái
honum hver sem vill. Nick Mason
sagði í viðtali við ungverska blaðið
Exit á dögunum að Gilmour þurfi
bara að kinka kolli og þá geti und-
irbúningur fyrir tónleikaferðalag um
heiminn hafist. „Við gætum sett upp
rosalega sýningu, miðað við þá tækni
sem er í boði í dag,“ segir hann þar og
virðist í raun langa til að hin fjögurra
manna sveit komi saman aftur.
Floyd spilaði skammlaust á Live8 í
fyrrasumar en lögin sem sveitin flutti
voru „Speak to Me/Breathe“, „Mo-
ney“, „Wish You Were Here“ og
„Comfortably Numb“ (Gilmour neit-
aði að spila „Another Brick in the
Wall (pt. 2)“, bæði þótti honum text-
inn ekki hæfa tilefninu auk þess sem
lagið væri leiðinlegt!).
„Já, þetta gekk mjög vel,“ rifjar
Mason upp. „Engu að síður er ég
hræddur um að sumir séu ekki alveg
klárir í að gera svona lagað reglu-
bundið .“
Honum líst hins vegar harla vel á
að Dark Side … verði flutt svona í
heild sinni.
„Mér finnst þetta sniðugt, verkið
var samið upprunalega sem eitt
heildstætt verk og við komumst aldr-
ei almennilega í að flytja það þannig.
Það þurfti að skjóta að nýjum lögum
og svoleiðis og því fannst manni full-
langt að vera að flytja heila plötu á
tónleikum.“
Pink Floyd átti rætur í blúsnum
eins og svo margar breskar sveitir
sem komu fram um miðbik sjöunda
áratugarins en þróaðist snemma út í
sýrusveit og síðan í eitthvað sem eng-
in fordæmi voru fyrir í rokksögunni.
„Nei, ekkert sérstaklega en þetta
var aldrei planað svona,“ svarar Ma-
son þegar hann er spurður hvort
þessi þróun hafi komið honum á
óvart, svona eftir á að hyggja.
„Þetta bara gerðist smám saman
og við fundum okkur einhvers konar
svæði sem okkur fannst þægilegt að
vinna í. Þetta gerðist algerlega ómeð-
vitað. Eftir því sem á leið og við urð-
um öruggari fórum við að prófa hitt
og þetta og það var eðlileg þróun að
mínu mati.“
Mason gaf út bókina Inside Out: A
Personal History of Pink Floyd í
hittifyrra þar sem hann rifjar upp
tíma sinn með Floyd og þar hikar
hann ekki við að henda gaman að
brölti sveitarinnar. Gilmour varð víst
eitthvað snúðugur er hann las bókina
en almenningur hefur fagnað henni
sem þægilegu mótvægi við hina al-
varlegu ímynd sem sveitin hefur.
„Ég held að það sé almennt erfitt
að skrifa bækur,“ segir Mason sposk-
ur þegar blaðamaður spyr hvort
skrifin hafi reynt mikið á.
„Ég naut þess samt. Þetta tók
slatta af tíma en ég er ánægður með
að hafa komið þessu frá. Mér finnst
þetta vera fínasti virðingarvottur við
hljómsveitina og ég hafði líka tæki-
færi til að koma ýmsum hlutum á
hreint. Auk þess er þetta snotur
minjagripur um líf mitt ef svo má
segja.“
Andvaka
Mason segist aldrei hafa velt því
sérstaklega fyrir sér hvaða hlutverki
hann gegnir í Pink Floyd, sam-
anborið við félaga sína. Mason er
greinilega lítið fyrir sálfræðilegar
hártoganir en þess má geta að hann
er sá eini í Pink Floyd sem hefur ver-
ið óslitið í sveitinni síðan hún var
stofnuð.
„Nei,“ svarar hann snöggt og hlær
við, nánast hissa yfir spurningunni.
„Alls ekki. Það skilar engu að vera að
velta slíku fyrir sér, maður á bara að
halda sínu striki og gera það sem
maður gerir best. Ég ligg ekki and-
vaka yfir því hvort ég hafi fengið
nægilega mikið kredit fyrir þetta eða
hitt. Ef maður fer að pæla of mikið í
því er voðinn vís – eins og við höfum
nú séð!“
Mason hefur gefið út tvær sóló-
plötur ef sólóplötur skyldi kalla. Plat-
an Fictious Sports (1981) var samin
af Cörlu Bley þó að nafn Masons væri
á umslaginu. Seinni platan, Profiles
(1985), var hins vegar gerð í sam-
starfi við Rick Fenn úr 10cc. Hann
hefur þá stýrt upptökum fyrir lista-
menn eins og Robert Wyatt, Steve
Hillage og The Damned. En hann
hefur engar áætlanir um slíka starf-
semi á næstunni.
„Nei,“ er svarið, skýrt og skor-
inort. „Engan veginn. Ég hef í raun-
inni aldrei verið mikið fyrir svona
sólóplötustúss og þessar sólóplötur
mínar eru engar sólóplötur. Ég hef
litla ástríðu fyrir slíkri starfsemi og
það eru aðrir hlutir sem kalla sterkar
til mín. Ég væri t.d. vel til í að skrifa
aðra bók … og ég held að ég hafi í
raun komist næst því að gera sóló-
plötu með bókinni minni.“
Svo mörg voru þau orð. Mason
þakkar fyrir sig en segir mér að það
sé í góðu lagi að bjalla í sig aftur, ef
það væri eitthvað fleira sem mig
vantaði. Já, skýin byrgja þessum
manni ekki sýn, svo vitnað sé nú í
Pink Floyd.
Tónleikar Roger Waters í Egilshöll fara fram mánudaginn 12. júní. Miðasala er á
midi.is og í Skífuverslunum Laugavegi, Kringlunni og Smáralind. Einnig er
hægt að kaupa miða í BT Akureyri og í BT Selfossi. Uppselt er á svæði A en
miðaverð er 7.900 krónur á svæði B auk miðagjalds.
arnart@mbl.is
Í þá gömlu góðu... Mason er þekktur ökuþór og bílasafnari og segir meginástríður sínar vera tónlist og Formúlu eitt-kappakstur.