Morgunblaðið - 10.06.2006, Qupperneq 80
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122 LAUGARDAGUR 10. JÚNÍ 2006 VERÐ Í LAUSASÖLU 220 KR. MEÐ VSK.
endurskoðun
reikningsskil
skattar / ráðgjöf
www.ey.is
VIKA er í að bændur undir
Eyjafjöllum hefji slátt, en
grasvöxtur á sunnanverðu
landinu hefur verið mjög góð-
ur síðustu daga. Allt önnur
staða er á Norðurlandi. Í Að-
aldalnum eru bændur að klára
að bera á og segir Árni
Snorrason, bóndi í Mið-
hvammi, að gróðurinn þar um
slóðir sé hálfum mánuði seinna
á ferðinni en venjulega.
„Það er mjög góð spretta
núna,“ sagði Ólafur Eggerts-
son, bóndi á Þorvaldseyri und-
ir Eyjafjöllum, þegar Morgun-
blaðið ræddi við hann um
tíðarfarið. Mikið hefur rignt
undanfarna daga og sagði
Ólafur að ef sólin myndi sýna
sig mætti tala um kjöraðstæð-
ur fyrir grassprettu. Hann
myndi því hefja slátt á svip-
uðum tíma og venjulega.
Mikla kulda gerði í síðari
hluta maímánaðar og víða var
moldin mjög þurr. Sums stað-
ar varð tjón á kornökrum
vegna moldroks og veðrið er
búið að valda sauðfjárbændum
miklum erfiðleikum. Nú er
hins vegar næg væta í mold-
inni og spáð er hlýju veðri
næstu daga, ekki síst á Norð-
ur- og Austurlandi. Það hafa
því orðið mikil umskipti á
skömmum tíma. „Ég á von á
því að sláttur hefjist á svipuð-
um tíma og venjulega, eða í
kringum 20. júní,“ sagði Ólafur
á Þorvaldseyri.
Allt annað hljóð er í Árna í
Miðhvammi, en hann sagði að
tún í Aðaldal í S-Þingeyjar-
sýslu væru ekki almennilega
orðin græn. „Síðasti skaflinn
er að hverfa úr túninu,“ sagði
Árni, en mikið snjóaði á Norð-
urlandi í lok maí.
Árni hefur búið í Mið-
hvammi í 10 ár og sagðist
aldrei hafa upplifað annað eins
tíðarfar. Veturinn hefði verið
mjög snjóléttur, en síðan hefði
farið að snjóa í maí og sá snjór
væri að fara núna. Árni sagði
að hvergi væri búið að setja út
kýr og sumir bændur væru að
verða heylitlir.
Óvenjulega seint
Þegar Morgunblaðið ræddi
við Árna var hann að ljúka við
að bera á túnin. Þetta væri
óvenjulega seint, en það hefði
ekki verið hægt fyrr. „Hér er
allur gróður hálfum mánuði
seinna á ferð en venjulega.
Það er langt í að við förum að
slá og líklega verður eitthvað
lítið úr seinni slætti.“
Áður en kuldakastið reið yf-
ir var Árni búinn að sá korni
og sagði hann að það kæmi
grænt undan snjónum. Hann
sagðist því bjartsýnn á góða
kornuppskeru.
Vel lítur einnig út með korn-
ið á Þorvaldseyri undir Eyja-
fjöllum, en þar hefur verið
stunduð kornrækt í áratugi. Í
ár sáðu bændur þar í um 30
hektara. Ólafur sagði að
akrarnir litu mjög vel út, sér-
staklega þeir sem náðist að sá
í í apríl. Hann sagði að áhugi
bænda á kornrækt væri sífellt
að aukast, bæði vegna þess að
uppskera hefði verið góð og
eins vegna hækkandi verðs á
kjarnfóðri.
Vika í að sláttur hefjist undir Eyjafjöllum
Bændur í Aðaldal í S-Þingeyjarsýslu eru að klára að bera á túnin og hvergi búið að setja út kýrnar
Morgunblaðið/Jónas Erlendsson
Bændur sunnanlands hefja senn slátt. Túnin eru víða orðin
græn líkt og hjá Andrési Pálmasyni, austan Víkur í Mýrdal.
Eftir Egil Ólafsson
egol@mbl.is
MARGA hefur vafalítið rekið í rogastans í
gær þegar þeim bárust smáskilaboð í far-
símann um að búið væri að skrá þá inn á
stefnumótasíðuna www.irrealhost.com að
þeim forspurðum. Í skilaboðunum, sem
giftir jafnt sem
ógiftir fengu
send, kom fram
að færi fólk
ekki inn á
tilgreindan vef
og afskráði sig
yrði það rukkað
um tvær evrur
á dag í gegnum
símreikning
sinn.
Samkvæmt
upplýsingum
frá Evu Magn-
úsdóttur, upp-
lýsingafulltrúa
Símans, barst
Símanum fjöldi
kvartana í gær
vegna þessara skilaboða. Segir hún þetta
ruslpóstsendingar sem ekki séu á vegum
Símans. Aðspurð segist hún ekki vita
hversu margir viðskiptavina Símans hafi
fengið slík skilaboð, en fyrirtækið brá á
það ráð að senda öllum viðskiptavinum
smáskilaboð þar sem varað er við þessari
sendingu. „Við ráðleggjum farsíma-
notendum að eyða skeytinu en undir eng-
um kringumstæðum fara inn á vefsíðuna
sem um ræðir og reyna að afskrá sig.
Þarna er vísvitandi verið að blekkja fólk til
þess að fara inn á ákveðna síðu,“ segir Eva.
Fyrsta tilfellið hér á landi?
Hjá Gísla Þorsteinssyni, upplýsingafull-
trúa OgVodafone, fengust þær upplýsingar
að þar á bæ hefðu borist nokkrar fyrir-
spurnir frá viðskiptavinum vegna um-
ræddra sms-sendinga. Tók hann fram að
þeir sem fengið hefðu þessi smáskilaboð
væru allir handhafar númera sem upphaf-
lega komu úr númeraseríu frá Landssím-
anum, að því er vitað væri. Sagði hann vit-
að að sendingar væru að berast erlendis
frá, en þar er slíkur sms-ruslpóstur vel
þekktur. „Þetta virðist vera eitt af fyrstu
tilfellunum hérlendis þar sem farsímanot-
endur verða fyrir ruslpóstsendingum sam-
bærilegum þeim sem tölvunotendur
þekkja,“ sagði Gísli.
Óvelkomin
sms frá
stefnu-
mótasíðu
Smáskilaboðin dular-
fullu sem farsímanot-
endum bárust í gær.
ÞESSI kátu börn undu sér vel í veglegum
hoppukastala sem komið hafði verið upp í
sundlaugargarðinum á Akureyri í gær enda
veðrið með besta móti – sól og blíða. Að sögn
lögreglunnar á Akureyri var nokkur umferð
til Akureyrar í gær og nokkur fjöldi fjöl-
skyldufólks hafði hreiðrað um sig á tjaldstæð-
um bæjarins. Gert er ráð fyrir áframhaldandi
blíðviðri á Akureyri í dag.
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Brugðið á leik í blíðviðri
MIÐSTJÓRN Framsóknarflokks-
ins samþykkti í gær umræðulaust
og með lófaklappi að flokksþing
framsóknarmanna yrði haldið
þriðju helgina í ágúst. Tillagan var
lögð fram af hálfu formanns flokks-
ins og varaformanns, með stuðningi
þingflokks og framkvæmdastjórn-
ar. Fyrir flokksþingi liggur að kjósa
m.a. nýjan formann flokksins.
Halldór Ásgrímsson, fráfarandi
formaður Framsóknarflokksins,
sagði í ræðu sem hann flutti í upp-
hafi fundarins að sú ókyrrð sem ein-
kennt hefði umræðuna í flokknum
að undanförnu væri að sjálfsögðu
ekki góð og skapaði vandamál í röð-
um framsóknarmanna.
Eftir ræðu formanns fóru fram
almennar umræður á fundinum,
sem lokaðar voru fjölmiðlum. Sam-
kvæmt upplýsingum Morgunblaðs-
ins var í þeim umræðum m.a. farið
yfir atburðarásina síðustu daga og
hvatt til þess að látið yrði af per-
sónulegum yfirlýsingum manna
hvers til annars; þess í stað skyldu
menn reyna að þjappa sér saman.
Einstaka miðstjórnarmenn
hvöttu til þess að viðræðum um
breytingar á ríkisstjórn yrði lokið
sem fyrst. Stóðu umræður fram eft-
ir kvöldi og lauk fundi seint á tíunda
tímanum. Eitt framboð kom fram á
fundinum, en Haukur Logi Karls-
son, fyrrv. formaður Sambands
ungra framsóknarmanna, lýsti því
yfir að hann hygðist gefa kost á sér
sem ritari flokksins á komandi
flokksþingi. Um 180 manns voru á
fundinum þegar mest var, að sögn
Sigurðar Eyþórssonar, fram-
kvæmdastjóra flokksins.
Tryggja þarf | Miðopna
Ókyrrðin í umræðunni
ekki flokknum til góðs
Eftir Örnu Schram
arna@mbl.is
Morgunblaðið/Golli
Halldór Ásgrímsson ávarpar mið-
stjórnarfundinn á Hótel Sögu í gær.