Morgunblaðið - 08.08.2006, Síða 15
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 8. ÁGÚST 2006 15
ERLENT
EÞÍÓPÍSKUR hermaður stendur vörð við veg sem
næstum eyðilagðist í miklum flóðum í hverfinu Afetesia í
borginni Dire Dawa í austurhluta landsins. Talið er að
a.m.k. 206 manns hafi látið lífið í flóðinu sem hófst á
sunnudag. Óttast er að tala látinna eigi enn eftir að
hækka mjög en um 300 manns er ennþá saknað. Afetesia-
hverfið er afar þéttbýlt og hefur það gert allt hjálparstarf
erfiðara.
AP
Á þriðja hundrað fórst í Eþíópíu
Bónus-vinningur
2
milljónir
Alltaf á mi›vikudögum!
60
100
160
1. vinningur
MILLJÓNIR
Fá›u fl
ér mi›
a fyrir
kl. 16
á mi›v
ikudag
inn e›
a
taktu s
éns á a
› miss
a af fle
ssu!
MILLJÓNIR
Á LAUSU!
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
2
2
8
7
3
Potturinn stefnir í 100 milljónir. Ofurpotturinn stefnir
í 60 milljónir og bónusvinningurinn í 2 milljónir.
Tvöfald
ur
pottur2
Mexíkó. AFP. | Kosningayfirvöld í
Mexíkó höfnuðu um helgina
þeirri beiðni forsetaframbjóð-
andans Andres Manuel Lopez
Obrador að öll atkvæði í kosning-
unum 2. júlí yrðu endurtalin.
Þess í stað var ákveðið að end-
urtelja um níu prósent atkvæða
frá um 130.000 kjörstöðum.
Obrador, sem tapaði afar
naumlega í kosningunum fyrir
hægrimanninum Felipe Calderon,
mótmælti ákvörðuninni þegar í
stað.
„Við munum halda mótmæla-
göngunum áfram,“ sagði Obrador
við stuðningsmenn sína í Mexíkó-
borg á sunnudag. „Við munum
ekki gefast upp. Við samþykkjum
ekki endurtalningu hluta at-
kvæða. Við viljum endurtalningu
atkvæða frá öllum kjörstöðum.
Við viljum 100 prósent lýðræði.“
Stuðningsmenn Obradors hafa
sett upp tjöld í miðborg Mexíkó-
borgar og þannig lamað umferð
og viðskipti á svæðinu. Versl-
unarráð Mexíkóborgar hefur
gagnrýnt mótmælin og sagt þau
kosta borgina um 36 milljónir
Bandaríkjadala á dag, eða um
2.545 milljónir króna, og ógna
störfum þúsunda manna.
Fullri endur-
talningu hafnað
í Mexíkó
Ósló. AFP. | Fjöldi þeirra Norð-
manna sem er hlynntur inngöngu
í Evrópusambandið fer vaxandi,
að því er fram kemur í nýrri
könnun sem birt var í dagblaðinu
Nationen í gær. Þar kemur einnig
fram að fjöldi þeirra sem er and-
vígur aðild stendur í stað miðað
við fyrri kannanir.
Alls segjast 47 prósent þátttak-
enda ekki vilja ganga í ESB, eða
litlu fleiri en þau 43 prósent sem
eru nú hlynnt inngöngu. Dregið
hefur saman á milli fylkinganna
en í svipaðri könnun í júní höfðu
andstæðingar aðildar 10 prósenta
forskot í svipaðri könnun.
Norðmenn hafa tvisvar hafnað
aðild að ESB í þjóðaratkvæða-
greiðslum, árin 1972 og 1994. Nú-
verandi vinstristjórn er klofin í
afstöðu sinni til ESB og hefur úti-
lokað að skref verði stigin í átt til
aðildar áður en kjörtímabili
hennar lýkur árið 2009. Um 1.000
manns tóku þátt í könnuninni
sem var framkvæmd dagana 25.
til 31. júlí.
Fleiri vilja ganga
í ESB í Noregi
GEORGE W. Bush, forseti Banda-
ríkjanna, sagðist í gær ekki búast við
því að leiðtogar Hizbollah-hreyfingar-
innar og Ísraelsmanna myndu sam-
þykkja öll atriði nýs uppkasts í örygg-
isráði Sameinuðu
þjóðanna, þar sem
kveðið er á um hlé
á vopnuðum átök-
um í Líbanon.
„Markmið
ályktunarinnar er
að styrkja líbönsk
stjórnvöld svo að
Ísraelsmenn hafi
félaga í friðarum-
leitunum,“ sagði
forsetinn í gær. „Hvað svo sem mun
gerast hjá Sameinuðu þjóðunum
megum við ekki skapa tómarúm sem
Hizbollah og stuðningsmenn hreyf-
ingarinnar geta notað til að flytja
meira af vopnum.“
Þá lagði Bush, sem tjáði sig um
ástandið fyrir botni Miðjarðarhafs frá
búgarði sínum í Crawford, Texas,
áherslu á að „átökunum yrði að linna“
sem fyrst. Enn fremur beindi hann
orðum sínum til stjórnvalda í Dam-
askus og Teheran. „Sýrlendingar og
Íranar styðja aðgerðir Hizbollah til
þess að skapa glundroða, allt til þess
að nota hryðjuverk til að stöðva fram-
rás lýðræðisríkja.“
Vilja breyta uppkastinu
Um helgina náðu samningamenn
Bandaríkjamanna og Frakka sam-
komulagi um uppkast að ályktun þar
sem þess er krafist að Hizbollah hætti
tafarlaust árásum og að Ísraelsher
stöðvi sókn sína í Líbanon. Er álykt-
uninni þannig ætlað að skapa skilyrði
fyrir aðra ályktun öryggisráðsins sem
myndi heimila flutning alþjóðlegs
herliðs til suðurhluta Líbanon.
Háttsettir embættismenn í Ísr-
aelsstjórn eru almennt sáttir við upp-
kastið. Líbönsk stjórnvöld vilja hins
vegar að ályktunin kveði á um tafar-
laust vopnahlé og brottflutning ísr-
aelskra hermanna, en hún hefur einn-
ig samþykkt að senda 15.000 manna
herlið að landamærunum dragi Ísr-
aelsher lið sitt í burtu. Þá hafa tals-
menn Hizbollah hafnað uppkastinu
með þeim rökum að það feli í sér
áframhaldandi dvöl ísraelskra her-
manna í Suður-Líbanon.
Styðja tillögur Líbana
Búist er við að fulltrúar nokkurra
helstu ríkja Arababandalagsins verði
viðstaddir umræður um uppkastið í
öryggisráðinu í dag. Eru þeir hlynntir
breytingartillögum líbanskra stjórn-
valda, en talið er að samþykkt upp-
kastsins muni frestast vegna krafna
stjórnarinnar í Beirút um endurskoð-
un á ákvæðum þess.
Fari svo að öryggisráðinu mistakist
að komast að samkomulagi um álykt-
un á næstu dögum er næsta víst að
framhald verði á átökunum.
Þannig fyrirskipaði Amir Peretz,
varnarmálaráðherra Ísraels, í gær
hernum að undirbúa hertar aðgerðir
gegn Hizbollah ef niðurstaða fengist
ekki innan skamms í öryggisráðinu.
Á sama tíma táraðist Fuad Siniora,
forsætisráðherra Líbanons, á fundi
með utanríkisráðherrum nokkurra
arabaríkja í Beirút í gær og sagði ein-
staklega brýnt að koma á friði.
Mikið mannfall varð í Líbanon í
gær þegar allt að 57 menn létu lífið í
árásum Ísraelshers. Hizbollah hélt
árásum sínum einnig áfram og lét á
annað hundrað flugskeytum rigna yf-
ir norðurhluta Ísraels.
Mikill stuðningur við Hizbollah
Mikill meirihluti Palestínumanna á
Vesturbakkanum og Gaza styðja að-
gerðir Hizbollah gegn Ísraelsmönn-
um og eru andvígir skilyrðislausri
lausn ísraelskra fanga, sem eru í haldi
hreyfingarinnar, til að flýta fyrir
endalokum átakanna, að því er fram
kemur í nýrri könnun sem birt var í
gær. Alls sögðust 97 prósent þátttak-
enda í könnuninni, sem var fram-
kvæmd fyrir Near East Consulting
Group, styðja Hizbollah, á meðan
þrjú prósent sögðust henni andvígir.
Bush þrýstir
á um vopnahlé
í Líbanon
Stjórnvöld í Beirút ósátt við uppkast
öryggisráðsins og vilja breytingar
Eftir Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
George W. Bush