Morgunblaðið - 08.08.2006, Blaðsíða 38

Morgunblaðið - 08.08.2006, Blaðsíða 38
38 ÞRIÐJUDAGUR 8. ÁGÚST 2006 MORGUNBLAÐIÐ Skólaskrifstofa Hafnarfjarðar Skólabyrjun Formlegt skólastarf nemenda í grunnskólum Hafnarfjarðar hefst 22. ágúst 2005. Nemendur mæti í skólana samkvæmt þessari tímatöflu: Kl. 9:00 8., 9. og 10. bekkir Kl. 10:00 5., 6. og 7. bekkir Kl. 11:00 3. og 4. bekkir Kl. 13.00 1. bekkur * Kl. 14:00 2. bekkur Hraunvallaskóli Skólasetning Hraunvallaskóla verður í veislusal Hauka á Ásvöllum 22. ágúst nk. og mæta nemendur samkvæmt tímatöflu hér að ofan. * Kennarar nemenda í 1. bekk boða nemendur og foreldra þeirra í viðtal mánudaginn 28. ágúst í nýbyggingu Hraunvallaskóla. Formlegt skólastarf nemenda í 2.-7. bekk hefst samkvæmt stundaskrá 28. ágúst í nýju húsnæði skólans á Drekavöllum 9. Foreldrar eru velkomnir við skólasetningar með börnum sínum. Fræðslustjórinn í Hafnarfirði VELKOMIN TIL HAFNARFJARÐAR! Hafðu samband og fáðu frekari upplýsingar um Hafnarfjörð og margvíslega starfsemi á vegum sveitar- félagsins hjá þjónustuveri bæjarins í síma 585 5500 og á heimasíðunni www.hafnarfjordur.is Tilkynningar Mat á umhverfisáhrifum Ákvörðun Skipulagsstofnunar um matsskyldu framkvæmda Skipulagsstofnun hefur tekið ákvörðun um að eftirtalin framkvæmd skuli ekki háð mati á um- hverfisáhrifum samkvæmt lögum um mat á umhverfisáhrifum. nr. 106/2000 m.s.br. Breyting á starfsemi Íslandslax hf. að Núp- um, Sveitarfélaginu Ölfuss. Ákvörðunin liggur frammi hjá Skipulagsstofn- un, Laugavegi 166, 150 Reykjavík. Hana er einnig að finna á heimasíðu Skipulagsstofnun- ar: www.skipulag.is. Ákvörðun Skipulagsstofnunar má kæra til umhverfisráðherra og er kærufrestur til 8. september 2006. Skipulagsstofnun. Kennsla Raðauglýsingar 569 1100 Raðauglýsingar sími 569 1100 RÚSSNESKI skákmaðurinn Vladimir Kramnik hefur verið á meðal þeirra bestu í heimi síðan hann sló í gegn á Ólympíuskák- mótinu í Manila árið 1992. Kramnik var þá eingöngu 17 ára og naut hann umtalsverðrar velgengni eftir það. Árið 2000 lagði hann Kasparov að vell í einvígi um heimsmeistara- titilinn og hefur hann síðan kallað sig heimsmeistarann í klassískri skák. Hann varði titil sinn með naumindum árið 2004 í einvígi gegn Peter Leko en síðan þá hefur hann engan veginn náð sér á strik. Svo virðist sem sjúkdómur hafi hrjáð hann og ákvað hann um síðustu ára- mót að hvíla sig alfarið til að jafna sig. Það virðist hafa tekist þar eð á Ólympíuskákmótinu í Torínó á Ítal- íu í lok maí sl. tefldi Kramnik vel og náði bestum stigaárangri allra keppenda. Áður en ofurmótið í Dortmund hófst 29. júlí sl. beindist áhugi manna að því hvort rússneski björn- inn væri í raun og veru vaknaður úr dvala eða hvort að árangurinn í Torínó hafi verið tilviljun ein. Þetta var sérstaklega mikilvægt vegna þess að í haust á Kramnik að tefla heimsmeistaraeinvígi við FIDE- heimsmeistarann Veselin Topalov. Framan af á mótinu leit ekki út fyr- ir að Kramnik myndi blanda sér í toppbaráttuna þar sem hann gerði hvert jafnteflið á fætur öðru. Þó vildi það honum til happs að aðrir keppendur voru einnig á því að gera mikið af jafnteflum en það hentaði vel hinum ofurörugga Ungverja, Peter Leko, en hann náði forystu á mótinu með sigri í sinni fyrstu skák. Þegar fimm umferðum var lokið hafði Ungverjinn unnið aðra skák í viðbót og leiddi mótið einn og óstuddur með 3½ vinning á meðan Rússinn Svidler kom næstur með 3 vinninga. Í sjöttu umferð tefldi Leko varfærnislega með hvítu gegn Gelfand og gerði jafntefli á meðan Svidler vann sína skák ásamt því sem Kramnik fór úr jafnteflisgírn- um þegar andstæðingur hans frá Georgíu, Jobava, féll í byrjunar- gildru.Í lokaumferðinni gerði Svid- ler stutt jafntefli við Adams á með- an Kramnik hafði hvítt gegn Leko. Þeir félagar höfðu leikið 21 leik og fylgt teóríunni út í ystu æsar þegar eftirfarandi staða kom upp: Sjá stöðumynd 1. Kramnik er þekktur fyrir að tefla drottningarlaus miðtöfl listavel. Staðan kom upp úr 4. Dc2 afbrigð- inu í Nimzo-indverskri vörn og hef- ur hún komið upp áður í skák ná- inna samstarfsmanna og landa Kramniks og Lekos, þ.e. Rússans Bareevs og Ungverjans Almasi. Í þeirri skák lék Bareev 22. Kc2 en Kramnik lumar á nýjung. 22. b4! Re6 23. Kc2 Rc6 24. Kb2 Kf8 25. Bc4! Rcd4 Sennilega var óskynsamlegt hjá svörtum að stilla mönnum sínum upp með þeim hætti sem hann gerði þar eð eftir næsta leik hvíts er staða svarts erfið. 26. Bxe6! Rxe6 27. Rb5 Ha8 28. a4! Ba6 29. Ra3 Hc8 30. b5 Bb7 Svo virðist sem svartur standi prýðilega að vígi en kröftug tafl- mennska hvíts leiðir annað í ljós. Sjá stöðumynd 2. 31. Hc1! Hxc1 32. Kxc1 Ke7 33. a5! bxa5 34. Bxa7 f5? Örvæntingarfull tilraun til að flækja taflið. Þó að það hefði verið skárra að leika 34...a4 hefði svartur staðið höllum fæti eftir 35. Rc4. 35. exf5 Rf4 36. g3 Rh3 37. Rc4 Rg5 38. Rxa5 Bd5 39. b6 Rxf3 40. h3 Rg5 41. b7 Bxb7 42. Rxb7 Rxh3 Hvítur hefur unnið mann en hann verður samt að tefla nákvæmt til að innbyrða vinninginn. Sjá stöðumynd 3. 43. Bb6! Besti leikurinn þar sem fari svartur kóngurinn á skeið til g4 vinnur hvítur með að stilla riddara sínum á d6 og fara svo með biskup sinn á f8. 43...Kd7 44. Be3 Ke7 45. Rc5 g6 46. fxg6 Kf6 47. Bxh6 Kxg6 48. Be3 og svartur gafst upp. Þessi sigur Kramniks þýddi að hann varð efstur á mótinu ásamt landa sínum Svidler með 4½ vinn- ing af 7 mögulegum. Eftir stigaút- reikning var Kramnik lýstur sigu- vegari en lokastaðan varð annars þessi: 1.–2. Vladimir Kramnik (2743) og Peter Svidler (2742) 4½ v. 3.–5. Michael Adams (2732), Peter Leko (2738) og Boris Gelfand (2729) 4 v. 6. Arkadij Naiditsch (2664) 3½ v. 7. Levon Aronjan (2761) 2 v. 8. Baadur Jobava (2651) 1½ v. Meðalstig keppenda á mótinu voru 2720 stig og var því mótið í 19. styrkleikaflokki. Allir keppendur stóðu sig betur en stig þeirra gáfu til kynna nema Armeninn Aronjan og Georgíumaðurinn Jobava. Nán- ari upplýsingar um mótið er m.a. að finna á heimasíðu þess, http://dort- mund.chessgate.de/. Rússneski björninn vaknar úr dvala Kramnik, t.v., lagði Leko að velli og varð efstur í Dortmund. SKÁK Dortmund í Þýskalandi OFURSTÓRMEISTARAMÓTIÐ Í DORTMUND 29. júlí–6. ágúst 2006 Helgi Áss Grétarsson daggi@internet.is Stöðumynd 1. Stöðumynd 2. Stöðumynd 3. SÖNGHÓPURINN Öðlingar úr Rangárvallasýslu er þessa dagana á ferð á slóðum Vestur-Íslendinga í Bandaríkjunum og Kanada. Sönghópurinn er skipaður fimmtán mönnum og stjórnandi er Guðjón Halldór Óskarsson. Á laugardaginn söng hópurinn á Íslendingahátíð í Mountain í Norður-Dakota og á sunnudag voru tón- leikar í Gimli sem voru fjölsóttir. Á meðal gesta á tón- leikunum var forseti Alþingis, Sólveig Pétursdóttir, sendiherra Íslands í Kanada, Markús Örn Antonsson og aðalræðismaður Íslands í Kanada, Atli Ásmundsson. Í gær, mánudag, söng hópurinn svo við hátíðardag- skrá vegna Íslendingadagsins í Gimli en hann var hald- inn hátíðlegur í gær. Í dag verður svo haldið til Riverton í Manitoba og þar haldnir tónleikar, en hópurinn heldur svo heim á leið á fimmtudag. Öðlingar sungu á Íslendingahátíð í Gimli í gær FRÉTTIR Á VEF Orkuseturs, sem er verk- efni sem starfrækt er af Orku- stofnun í samstarfi við iðnaðar- og viðskiptaráðuneytið, er að finna reiknivél þar sem fólk getur reikn- að út orku- og mengunartölur fyrir bifreiðar sínar. Meðal annars er hægt að bera saman rekstrar- og umhverfiskostnað bifreiða eftir mismunandi forsendum, reikna út ferðakostnað og fleira. Á vefnum velur maður bílafram- leiðanda og undirgerð og upphafs- og áfangastað ferðalagsins og get- ur þannig auðveldlega séð tölur um mengun og kostnað. Með reiknivélinni má t.d. sjá að 653 km akstur frá Reykjavík til Egilsstaða kostar budduna 4.329 krónur og umhverfið 89,5 kíló af koldíoxíði sé vegalengdin keyrð á sjálfskiptum Toyota Yaris með eins lítra vél og miðað við að bens- ínlítrinn kosti 130 krónur. Sé leiðin hins vegar ekin á sjálfskiptum Ford 150 pallbíl með 4,6 lítra vél hækkar bensínupphæðin í 11.121 krónur og útblástursmengunin í 295,2 kíló. Tvö hundruð þúsund krónur árlega Á síðunni er einnig hægt að bera saman bílategundir miðað við ákveðna keyrslu á ári. Þannig má t.d. fá út að miðað við 12 þúsund kílómetra akstur á ári sé 203.243 krónum ódýrara að aka um á Yaris heldur en Ford-pallbílnum og að sá síðarnefndi blási út 3,8 tonnum meira af koldíoxíði. Jafnframt er hægt að sjá á síðunni að til að binda jafnmikið koldíoxíð aftur inn í andrúmsloftið þurfi árlega súr- efnisframleiðslu 0,9 hektara skóg- lendis, eða 1916 tré. Á síðunni er einnig að finna upp- lýsingar um viðhald á bílum og aksturslag til að koma megi í veg fyrir óþarfaeyðslu og -mengun. Hægt að reikna út ferðakostnað á netinu TENGLAR .............................................. www.orkusetur.is

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.