Morgunblaðið - 08.08.2006, Blaðsíða 34

Morgunblaðið - 08.08.2006, Blaðsíða 34
34 ÞRIÐJUDAGUR 8. ÁGÚST 2006 MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR ✝ Laufey Einarsdóttir fæddist áDjúpalæk í Skeggjastaða- hreppi 24. janúar 1910. Hún lést á Sundabúð á Vopnafirði 17. febr- úar síðastliðinn. Foreldrar henn- ar voru Einar Vilhjálmur Eiríks- son, f. 28.4. 1871, d. 9.4. 1937, og fyrri kona hans, Sigurlaug Alex- andersdóttir, f. 11.8. 1871, d. 6.1. 1913. Seinni kona Einars var Gunnþórunn Jónasdóttir, f. 26.2. 1895, d. 6.3. 1965. Alsystkini Lauf- eyjar voru Sigríður, Þórarinn, Anna Sigríður, Ljótunn Sigríður, Sigurður Andrés, Steinþór og Al- exander. Þau eru öll látin. Hálf- systkini Laufeyjar, samfeðra, voru Hilmar Sigþór, Kristján frá Djúpalæk og Eiríkur, sem allir eru látnir, en eftirlifandi hálf- systkin eru Aðalheiður, Bergljót og Þórhallur. Laufey ólst upp á Djúpalæk en var bústýra á Bjarmalandi frá 1938, fyrst hjá bróður sínum en síðustu árin bjó hún ein á Bjarmalandi. Laufey var jarðsungin frá Skeggjastaðakirkju 24. febrúar. Mig langar til að minnast Lauf- eyjar frænku minnar með örfáum orðum, þó að hún þakki mér það líklega ekki því hún vildi aldrei vera mikið í sviðsljósinu. Laufey fæddist í torfbændum á Djúpalæk árið 1910 og var aðeins tæplega þriggja ára þegar móðir hennar lést. Fjögur systkini henn- ar höfðu þá látist ung. Systkini Laufeyjar sem upp komust voru: Þórarinn, bóndi á Djúpalæk, d. 1955; Sigurður Andrés, bóndi á Bjarmalandi, d. 1987; og Steinþór, bóndi og kennari á Djúpalæk og víðar, seinna skólastjóri á Kirkju- mel í Norðfirði, d. 1952. Faðir Laufeyjar kvæntist aftur og eignaðist hún sex hálfsystkin, en eitt þeirra dó ungt. Laufey átti ekki kost á skólagöngu, þar sem aðstæður buðu ekki upp á slíkt, en hún var skarpgreind, vel lesin og fylgdist vel með öllu. Hún stóð fyr- ir búi hjá Sigurði bróður sínum á Bjarmalandi, en Bjarmaland var nýbýli frá Djúpalæk. Laufey hjúkraði Sigurði heima síðustu mánuðina í lífi hans og eftir lát hans bjó hún ein á Bjarmalandi. Laufey gerði ekki víðreist um dagana. Hún fór þó til Reykjavík- ur og Akureyrar í lækniserindum en best þótti henni að vera heima og þangað þráði hún alltaf að fara. Eftir mjaðmagrindarbrot fór hún á Sundabúð í Vopnafirði í september 2002 og átti góð ár þar þó heilsan væri ekki alltaf upp á það besta, sbr. þessa vísu sem hún orti: Hrakar bæði heyrn og sjón, sem hafa starfi skilað. Heilsu minni tel ég tjón að toppstykkið er bilað. Laufey kunni ógrynni af ljóðum og var Davíð Stefánsson í miklu uppáhaldi hjá henni. Í mörg ár var farskóli í litla húsinu á Bjarma- landi. Þá bjó kennarinn þar og oft eitthvað af skólabörnum líka og voru þá allir í fæði hjá Laufeyju. Svo voru haldin böll í kjallaranum og fundir líka þannig að í nógu var að snúast hjá húsfreyjunni. Hún naut þess að syngja við vinnu sína og gerði það óspart, bjó þá oft sjálf til lög við textana sem hún kunni. Einnig gat hún sett saman vísur, en var ekkert að flíka því. Ég kom fyrst til sumardvalar á Bjarmalandi 1959, þá níu ára göm- ul, en hafði áður verið á Djúpalæk fimm og sex ára og þá kom ég oft til Laufeyjar og Sigga og fékk smá aukabita hjá Laufeyju. Mörg systkinabörn þeirra voru í sum- ardvöl á Bjarmalandi ásamt fleiri krökkum því í nógu var að snúast í sauðburði og heyskap, þau voru með margt fé og kýr fyrir heimilið. Ég var þarna í fimm sumur og lík- aði vel þó mér fyndist ekki allt jafn skemmtilegt sem ég átti að gera. Mér leiddist sérstaklega að raka skítinn af túninu og bera hann í burtu í pokum. Þá lagðist ég oft niður og orgaði hátt, en þá minntist ég orða Laufeyjar: „Sá sem ekki nennir að vinna, hann á engan mat að fá.“ Það fannst mér ekki gott svo maður lét sig hafa það að klára verkið. Ég skrifaði henni alltaf jólabréf og þótti henni mjög gaman að fá fréttir af mínu fólki. Laufey kom einu sinni til mín í heimsókn í Höfða og hafði gaman af. Laufey var mjög létt á fæti og hljóp oftast við fót, hún setti niður kartöflur niður við sjó og hafði talsvert fyrir þeirri ræktun sem og öðru sem hún var að brasa við, því ekki var þægindunum fyrir að fara á Bjarmalandi. Hún var mikil blómakona og naut þess að sjá þau blómstra. Alltaf var vel tekið á móti gestum og ævinlega átti Laufey eitthvað gott með kaffinu. En nú hefur Laufey frænka mín kvatt fyrir fullt og allt og enginn tekur á móti fólki á Bjarmalandi lengur. Ég minnist þeirra systkina Sigga og Laufeyjar með þökk. Megi þau hvíla í friði. Það er við hæfi að ljúka þessu með ljóði sem var í miklu uppá- haldi hjá Laufeyju. Úti það grær á víðavangi. Veikur leggur krónu ber. Vekur mann af vanans gangi. Viðkvæmni um hugann fer. Dýrðlegt tákn um drottins mildi, draumlynd sál við grýttan svörð. Himinblámans blæju reifað, við brjóst þitt fóstrað, móðir jörð. Eins og barn að blíðri móður blöð það réttir sólu mót. Hljómar dagsins ástaróður. Orku teygar blómsins rót. Í ástarvímu, ef frítt það færir fljóð að barmi unnustans, það dregur sig með duldu afli deyjandi að brjósti hans. Þegar undir sólin sígur, sveipast jörð í rökkurfeld. Tárdögg blómsins titrar, hnígur, tregar dagsins horfna eld. Mót himni lyftir blöðum bláum, bærist hægt í kvöldsins þey. Angurvært af hrelldu hjarta hvíslar: Drottinn, gleym mér ei. (Kristján frá Djúpalæk) Þórdís G. Þórhallsdóttir. Hún Laufey Einarsdóttir, vin- kona mín er dáin. Mig langar til að minnast hennar með fáeinum orð- um þar sem ég verð fjarri þegar hún verður jarðsett. Ef ég man rétt þá varð hún 96 ára í janúar síðastliðnum. Lengi var hún búin að þrá það að fá að fara. Hún sagðist ekkert skilja í almættinu að halda í svona hró eins og hana. Ég kynntist Laufeyju fyrir um 12 árum þegar ég var í nokkur ár skólastjóri á Bakkafirði. Mér fannst ég lánsöm að kynnast henni. Hún auðgaði anda minn og fræddi mig mikið um liðna tíð. Það var hægt að ræða við hana um margvísleg málefni líðandi stundar enda þótt hún væri að sumu leyti bundin skoðunum sinnar kynslóð- ar. Henni þótti t.d. ótækt að konur gegndu einhverjum embættum en vandist þó þeirri hugsun. Konur áttu að giftast og ekki að fara frá mönnum sínum því að þeir áttu að vinna útiverkin en ekki tefja sig á eldhússtörfum. Samt giftist hún aldrei. Ég spurði hana einhvern tíma að því hvers vegna hún hefði ekki gifst. Svarið var á þá leið að hún hafði ekki séð ástæðu til að verða undirgefin einhverjum manni. Aftur á móti sá hún lengst af um heimilið fyrir einn af bræðr- um sínum. Laufeyju þótti líka óþarfi að fara að heiman og gerði það sjald- an ótilneydd. Nokkrum sinnum fékk ég hana þó til að koma með mér í heimsókn til sameiginlegra vina í sveitinni eða þorpinu en það var ekki auðvelt að fá hana til þess. Henni þótti þó gaman þegar hún var komin af stað. Einu sinni fór hún með mér til Akureyrar þennan tíma sem ég var á Bakka- firði. Það kom ekki til af góðu, hún þurfti að fara á spítala. Myndir af ættingjum Laufeyjar prýddu heimilið og var hún stolt af sínum en ef einhver vildi ná mynd af henni færðist hún undan eða brást ókvæða við. Margir, bæði vinir og ættingjar, urðu til þess að heimsækja þessa smávöxnu konu sem hafði sterkar skoðanir á ýms- um málefnum. Enginn kom þar án þess að bornar væru á borð miklar veitingar. Henni þótti hneisa ef hún gat ekki haft fleiri en sex sort- ir með kaffinu. Alveg sama hvern- ig maldað var í móinn og minnt á að fólk væri ekki svangt nú til dags þótt á ferðalagi væri. Ef hún fékk ekki að laga kaffi þá kom hún með konfekt eða ávexti og rjóma. Alltaf var hreint og fínt hjá Laufeyju þótt Djúpilækurinn væri stundum að stríða henni og gæfi ekki mikið rennsli í krana hússins. Líklega hefur hún verið komin um nírætt þegar hún loks þáði aðstoð við þrif. Það var stuttu áður en hún varð að flytja á Sundabúð þar sem hún dvaldi síðustu árin. Hún vildi helst fá að vera áfram á Bjarmalandi, vildi vera sjálfrar sín herra, og átti erfitt með að sætta sig við að þurfa að fara þaðan. Það skildi ég svo mæta vel en heilsu hennar hrakaði svo mikið síðustu árin að útilokað var fyrir hana að vera heima. Ég hitti hana árlega og alltaf þekkti hún mig enda þótt svo langur tími liði á milli heim- sókna. Núna er Laufey laus við lífsins þrautir og andi hennar svífur á Bjarmalandi við Djúpalækinn. Guð varðveiti hana. Valbjörg Jónsdóttir. LAUFEY EINARSDÓTTIR Minningarkort 535 1825 www.hjarta.is 5351800 Það er dýrmætt að eignast góða vini, en gæfa þegar vináttan endist stóran hluta æv- innar. Slíkur eðalvinur var Árni Heimir, sem ég kveð nú. Árna kynntist ég sumarið 1958, þá nýfluttur á Selfoss þar sem Árni og fjölskylda hans bjuggu. Við vorum jafnaldrar og fylgdumst að í skóla og sumarvinnu. Í heimavist Menntaskól- ans á Laugarvatni deildum við her- bergi fjóra vetur. Í Háskóla Íslands las Árni líffræði en ég verkfræði, en við hittumst oft og voru þá iðulega fleiri fé- lagar frá Laugarvatni með. Það er fyrst í framhaldsnámi sem leiðir skilur tímabundið þegar Árni fór til náms í Newcastle í Englandi en ég til Lundar í Svíþjóð. Tvisvar á fjórum árum heimsótti ég þó Árna til Eng- lands og þá var kátt í bæ. Þegar framhaldsnámi lauk jukust samskiptin á ný. Við settumst báðir að í Reykjavík, Árni á Kárastíg þá orðinn kennari við Menntaskólann í Reykja- vík, en ég fljótlega í grennd við hann á Grettisgötunni. Reglulega var farið í gönguferðir og veiðar og svo keyptum við saman trillu með kvóta, því Árni vildi stunda atvinnuveiðar á sumrin. Árni var óhemju skemmtilegur fé- lagi, fljótur að sjá það skemmtilega í hverju tilviki, stríðinn og mikill mann- þekkjari. Hann hafði mjög gaman af fólki og liðsinnti öllum sem hann gat af fremsta megni. Skarpskyggni sína á fólk og aðstæður notaði hann í mati á pólitískum aðstæðum sem hann velti fyrir sér af miklum áhuga. Hann átti jafnframt auðvelt með að setja sig inn í hratt breytilegan fjármálaheim síðustu áratugi og var virkur í að móta ávöxt- unarstefnu fyrir Vinnudeilusjóð kenn- ara. Árni átti auðvelt með að gera grín að sjálfum sér en við vinir hans gátum einnig orðið fyrir óvægnum skotum ef honum fannst við vera sjálfum okkur ósamkvæmir. Hann var snöggur að ákveða sig og áræðinn þegar nauðsyn krafðist. Hann undirbjó sig jafnan ein- ÁRNI HEIMIR JÓNSSON ✝ Árni HeimirJónsson fæddist á Selfossi 24. apríl 1950. Hann lést á heimili sínu, Kára- stíg 10 í Reykjavík, 16. júlí síðastliðinn og var jarðsunginn frá Selfosskirkju 26. júlí. staklega vel hvort sem um var að ræða leik eða starf, en þótti gott að hafa liðsinni þegar kom að verklegum þáttum. Hann var líkamlega sterkur en sá þó ekki ástæðu til að leggja meira á sig heldur en ýtrasta nauðsyn krafð- ist hverju sinni. Einhverju sinni um miðjan desember vill Árni óður og uppvægur fara í enn eina rjúpna- ferð í lok veiðitímabils. Okkur kemur saman um að fara upp á Bláfellsháls og Árni fær leyfi til að gista í skála við Hagavatn, þar sem við ætlum að dveljast tvær nætur. Þegar við erum komnir vel áleiðis er ljóst að það verður þæfingsfæri að veiðisvæð- inu, jafnvel fyrir nokkuð öflugan jeppa. Ég fer að átta mig á að ferðin muni sækjast seint og einnig því að birtutím- inn er stuttur. Árni vel undirbúinn að vanda var vafalaust búinn að sjá þetta allt fyrir, því þegar ég hef orð á því að það sé tæpast skotbjart meira en fjóra tíma og hvort ferðin sé nokkuð van- hugsuð hjá okkur, þá svarar hann kankvís: „Já, það ætti að vera tryggt að gangan verði ekki erfið.“ Það var langur hvíldartími í niðamyrkrinu í skálanum þessa dagana, en notadrjúg- ur í spjall með vel vermdu rauðvíni í hitanum frá ofninum. Þegar séð var að hverju stefndi í veikindum Árna þá sýndi hann mikið æðruleysi, hann var jafnframt fundvís á hvað gæti farið vel en um leið svo greindur að hann reyndi ekki að plata sjálfan sig. Ég þakka það lán að hafa átt Árna Heimi að vini, og sendi aðstandendum og vinum samúðarkveðjur vegna frá- falls hans. Björn Marteinsson (Bangsi). Við fráfall Árna Heimis Jónssonar er séð eftir góðum kennara og vini. Hann hafði sérstakt lag á því að kenna og vekja áhuga á viðfangsefn- inu en þar fyrir utan var hann ávallt skemmtilegur og gamansamur og bar hag nemenda fyrir brjósti. Fyrir það erum við honum ævinlega þakklát. Við vottum fjölskyldu og aðstand- endum Árna samúð okkar. Blessuð sé minning hans. Útskriftarárgangur Mennta- skólans í Reykjavík árið 2004. Frændi minn, Bene- dikt Björnsson hús- gagnasmíðameistari, lést hinn 15. júlí síðastliðinn. Foreldr- ar hans voru Björn Benediktsson frá Bjargarstöðum í Miðfirði og Stefanía Guðbjörg Einarsdóttir, fædd í Hítar- neskoti á Mýrum. Tvær systur Bene- dikts voru Ingibjörg og Einara Guð- björg, báðar látnar. Benedikt hóf byggingu húss á Öldu- götu 25 í Hafnarfirði aðeins 19 ára að aldri og í því húsi átti móðir mín, Ingi- björg, húsaskjól þegar ég fæddist árið 1944. Einnig bjuggu þar Einara Guð- björg og Hálfdán H. Þorgeirsson mað- ur hennar og einnig móðir Benedikts og þeirra systkina, Stefanía Þórný. Benedikt kvæntist fyrri konu sinni, Sigrúnu Jakobsdóttur, árið 1952 og varð þeim þriggja barna auðið, Elínar Jónu, Björns og Guðbjargar. BENEDIKT BJÖRNSSON ✝ BenediktBjörnsson, Arat- úni 38, Garðabæ, fæddist í Hafnar- firði 19. júní 1923. Hann lést á hjúkr- unarheimilinu Holtsbúð 15. júlí síð- astliðinn og var jarðsunginn frá Ví- dalínskirkju í Garðabæ 25. júlí. Þegar svo fór að hjónaband þeirra rofn- aði fengu börn þeirra samastað á heimili Ein- öru og Hálfdáns á Köldukinn 18, en þar átti ég líka heima svo að segja má að þessi börn og ég séum uppeldis- systkin. Benedikt átti einnig heima þar þang- að til hann kvæntist seinni konu sinni, Ólöfu Helgu Guðnadóttur. Þau byggðu sér bráð- myndarlegt heimili í Aratúni í Garðabæ. Þeirra börn eru Jóhanna, dóttir Ólafar frá fyrra hjóna- bandi, Rósa Kristín og tvíburarnir Hrönn og Hildur. Ég hef ævinlega heimsótt þetta gestrisna heimili þegar ég hef verið á ferð og ávallt notið hlýju og góðrar umhyggju. Örlögin lögðu hindrun í veginn fyrir að börnin frá fyrra hjónabandi Bene- dikts næðu því sambandi við þetta heimili sem æskilegt og eðlilegt mætti teljast og tek ég mér það nærri. Benedikt og fjölskylda hans hafa einatt verið hlýleg og hjálpsöm í minn garð og gagnvart minni fjölskyldu. Ég vil votta Ólöfu og öllum börnunum mína innilegustu samúð. Björn Jónsson og fjölskylda, Svíþjóð. Fréttir á SMS

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.