Morgunblaðið - 08.08.2006, Blaðsíða 37

Morgunblaðið - 08.08.2006, Blaðsíða 37
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 8. ÁGÚST 2006 37 Vallaskóli — Selfossi Enn vantar kennara fyrir skólaárið 2006 – 2007 í eftirfarandi: Smíðar (100%) og sérkennslu (100%). Áhugasamir hafi samband við Eyjólf skólastjóra í síma 480 5800 eða á netfangið eyjolf- ur@vallaskoli.is Viðamiklar upplýsingar um skólann er að finna á slóðinni: www.vallaskoli.is Ritari óskast Við leitum að ritara til starfa sem fyrst, hálfan daginn frá kl. 13.30-18.00. Starfið felst í umsjón með Leigulistanum, símsvörun og almennum ritarastörfum. Viðkomandi þarf að vera við- mótsþýður, heiðarlegur og stundvís. Vinsamlega sendið umsóknir á gulli@leigulistinn.is . Forritari óskast Netdeild mbl.is óskar eftir að ráða forritara til starfa. Viðkomandi þarf að hafa reynslu af UNIX/Linux, þekkingu á forritun í perl og reynslu af SQL-gagnagrunnum ásamt því að þekkja vel til HTML, Javascript, CSS og XML. Leitað er eftir dugmiklum og stundvísum einstaklingi sem getur unnið sjálfstætt og tekist á við margvísleg verkefni í krefjandi umhverfi. Viðkomandi þarf að geta hafið störf sem fyrst. Allar frekari upplýsingar veitir Ingvar Hjálmarsson, netstjóri mbl.is, í síma 569 1308. Einnig er hægt að senda fyrirspurnir á netfangið ingvar@mbl.is. Umsóknir sendast til starfsmannahalds Morgunblaðsins, Hádegismóum 2. Einnig er hægt að fylla út umsókn á eftirfarandi slóð: http://www.focal.is/mbl/webApp.nsf/form/webAppli- cation?OpenForm og veljið Tölvuumsjón. Umsóknarfrestur er til 14. ágúst nk. Fasteignasala — sölumenn Traust fasteignasala óskar eftir samstarfi við reynda sölumenn. Ýmsir möguleikar. Upplýsingar sendist til augld. Morgunblaðsins eða á box@mbl.is merktar: „F — 18845“. Raðauglýsingar 569 1100 KÓPAVOGSBÆR www.kopavogur.is - www.job.is Kennarar – kennarar! Hér kemur tækifæri! Okkur í Snælandsskóla í Kópavogi vantar EINMITT NÚNA kennara. Um er að ræða kennslu og umsjón með bekk á unglingastigi. Við leitum að einstaklingi sem hefur áhuga á skapandi starfi, einstaklingsmiðuðu námi, umhverfismálum á víðfeðmum vettvangi og samstarfi við frábært starfsfólk og skemmtilega nemendur. Einkunnarorð skólans eru: viska, virðing, víðsýni og vinsemd og í anda þeirra fer starfið fram. Upplýsingar gefa Hanna Hjartardóttir, skóla- stjóri í símum 570 4380 og 863 4911 og Jóhann Ólafsson, aðstoðarskólastjóri í símum 570 4380 og 663 5755. Hvetjum karla jafnt sem konur til að sækja um starfið. Ljósmynd/Karl Lúðvíksson Jón Snorri Tómasson er lengst til hægri á myndinni. JÓNI Snorra Tómassyni var á þrítugsafmælisdegi sínum, 2. ágúst sl., veitt viðurkenning af Rauða krossi Íslands fyrir að sýna einstakt snarræði við björgun á félaga sínum er þeir voru í sumarbúðum Rauða krossins fyrir fatlaða á Löngumýri í Skagafirði í síðasta mánuði. Sumarbúðagestir voru staddir í sundlauginni í Varmahlíð hinn 21. júlí sl. er einn þeirra missti meðvitund og sökk til botns í grunnu lauginni. Jón Snorri var þar nærstaddur og þrátt fyrir að eiga erfitt með að tjá sig tókst honum með bendingum og köllum að ná athygli starfsmanns sumarbúðanna sem einnig var í sundi og fá hann til að koma strax til hjálpar. Allt fór svo á besta veg en ekki er gott að segja hvernig farið hefði ef lengri tími hefði liðið. Skynjaði hættuna strax „Jón Snorri er mjög næmur, eftirtektarsamur og vandaður ungur maður,“ segir Karl Lúðvíksson sumarbúðastjóri. „Með því að skynja strax hættuna og tilkynna án tafar hefur hann mjög líklega bjargað lífi félaga síns sem lá meðvitundarlaus á sundlaugarbotni. Við erum öll mjög stolt af þessum gæfusama og góða vini okkar.“ Jón Snorri hefur í nokkur ár sótt sumarbúðirnar á Löngu- mýri. Tómas Gunnarsson, faðir Jóns Snorra, er ákaflega ánægður með starfið sem þar fer fram. „Sérstök ástæða er til að þakka starf sumarbúða Rauða krossins á Löngumýri. Þar er grunnþörfum þátttakenda vel mætt og margt annað boðið, svo sem gönguferðir, golf, veiði- ferð, flúðasigling og reiðtúrar, svo og sögur, söngur og dans á kvöldvökum. Slysavarnir og hjálp í viðlögum hafa ekki gleymst. Hér hefur vel og djarflega verið að verki staðið hjá sumar- búðastjóranum Karli Lúðvíkssyni og hans fólki og þeim sem að baki þeim standa,“ segir Tómas. Sýndi einstakt snarræði FRÉTTIR

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.