Morgunblaðið - 08.08.2006, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 08.08.2006, Blaðsíða 20
20 ÞRIÐJUDAGUR 8. ÁGÚST 2006 MORGUNBLAÐIÐ UMRÆÐAN HINN 26. júní sl. féll dómur í Héraðsdómi Reykjavíkur í máli Sjúkraliðafélags Íslands, fyrir hönd félagsmans, gegn Reykhóla- hreppi vegna þess hvar sjúkralið- inn var sniðgenginn á ráðningu og ófaglærðir ráðnir í staðinn. Samdægurs var birt frétt um málið á vef Sjúkraliðafélags- ins þar sem dómurinn var gerður að fagn- aðarefni og mikilvægi hans tíundað. Málinu var svo fylgt eftir með greinaskrifum í Morgunblaðinu næstu vikur á eftir. Sjálfur hef ég kynnt mér málið eftir því sem best verður að komist frá báðum hliðum, þar sem ég sjálfur er starfandi sjúkraliði hjá Reykhólahreppi, og get ég ekki betur séð en að um mjög leiðinlegt og erfitt mál sé að ræða þar sem lítið sveitarfélag hefur verið mis- notað til að fá fram prófmál til fordæmisgefandi dóms. En hvaða fordæmi gefur þessi dómur? Í máli fyrrverandi hjúkrunarfor- stjóra hjá Reykhólahreppi (Dval- ar- og hjúkrunarheimilisins Barmahlíðar) hefur komið fram, sbr. grein í Morgunblaðinu 16. júlí sl., að umræddur sjúkraliði hafi verið meðmælalaus, hafi fengið ítrekaðar kvartanir undan sér frá heimilisfólki og hafi verið áminnt- ur a.m.k tvisvar í starfi á reynslu- tíma sínum. Hann hafi einnig á engan hátt getað lynt við samstafsfólk sitt. Nú tek ég fram að ég var ekki á staðnum þegar umræddur sjúkra- liði starfaði á Barmahlíð en ég hef persónulega fengið það staðfest frá heimilisfólki og starfsfólki að það sem fram komi í áðurnefndri grein hjúkrunarforstjórans fyrr- verandi sé eins satt og það getur verið. Ég sé því ekki betur en svo að sjúkraliðanum hafi verið hafnað á grundvelli vanhæfni og með hag heimilismanna og heimilisins að leiðarljósi. Einnig get ég staðfest það að fyrrum hjúkrunarforstjóri Barma- hlíðar hafði mikinn metnað fyrir því að laða að fleiri faglærða ein- staklinga á staðinn, og er ég starfandi þar nú vegna þess metn- aðar. Það er því ekki svo að sjúkraliðanum hafi verið hafnað á grun- velli sparnaðar í laun- um eða slíks, enda hefði það að sjálf- sögðu verið efni til málaferla að þessu tagi. Enn er því spurt um fordæmið? Dómurinn, sem uppfullur er af tilvís- unum í lögin, tekur ekkert á því hvort hæfni sjúkraliðans vegi eitt- hvað við ráðningu eða hæfni hafi nokkuð vægi almennt. Ég spyr því hvort hjúkrunarfor- stjórar séu nú bundnir af því að velja eingöngu menntaðasta ein- staklinginn í störf en ekki þann hæfasta. Í þessu tilviki sótti aðeins einn sjúkraliði um starfið en aðrir voru ófaglærðir. Sjúkraliðinn hafði áður starfað á heimilinu og hafði lokið sínum reynslutíma þar. Því gat hjúkrunarforstjórinn metið sjúkraliðan sem sótti um af eigin reynslu og sú reynsla virðist ekki hafa verið góð og eins og áð- ur hefur komið fram var sjúkralið- inn meðmælalaus. Því kaus hún að hafna þeim um- sækjanda. Eftir stóðu því bara ófaglærðir umsækjendur og reyndust það því eini kosturinn til ráðninga. Þarna sér hver og einn að menntun sjúkraliðans var á engan hátt sniðgengin. Fordæmi dómsins er því al- slæmt og hreinlega til skammar fyrir Sjúkraliðafélagið að reka slíkt mál fyrir dómi. Samkvæmt dómnum get ég því hagað mér eins og mér sýnist, brotið að baki mér allar brýr og fengið svo Sjúkraliðafélag Íslands til að pota mér einhvers staðar í vinnu með einhverju lagamáli. Þetta er sorglegur dómur fyrir alla heilbrigðisstéttina og þá sem aðstoð hennar þurfa því þarna var mannúð, velferð og hæfni alger- lega sniðgengin og lítið sveitafélag misnotað til þess að ná fram for- dæmi sem ætti ekki að sjást í vel- ferðarsamfélagi. Það verður lengi deilt um laga- bókstafinn en ef þetta er í raun það sem landslög kveða á um, þarf einhverju að breyta. Ég hvet Sjúkraliðafélag Íslands til þess að gleyma ekki þeirri hug- sjón sem þarf að fylgja starfi sjúkraliðans, því siðferði og ábyrgð sem starfinu fylgir og láta ekki sveigjanleg álitamál verða til þess að valda skaða þeim sem ekki eiga það skilið. Ég er stoltur af minni menntun sem sjúkraliði en hæfni mín skal seint metin af prófskírteininu eða leyfisbréfinu mínu. Hún skal metin af því sem ég sýni í starfi og fæ tækifæri til þess að sýna. Umræddur sjúkraliði fékk sitt tækifæri til þess sama og hrein- lega nýtti það ekki betur en svo. Greinarhöfundur vill taka það fram að það sem fram kemur í greininni er persónulegt álit hans og er byggt á viðtölum, yfirlestri á dómi og persónulegri túlkun. Höf- undur hefur ekki starfað með um- ræddum sjúkraliða. Hafi einhver eitthvað við grein þess að athuga þætti höfundi vænt um að fá fyrirspurnir og/eða svör. Var sjúkraliði sniðgenginn um ráðningu? Birkir Egilsson skrifar um ráðningu í starf sjúkraliða í Reykhólahreppi ’Ég sé því ekki beturen svo að sjúkraliðanum hafi verið hafnað á grundvelli vanhæfni og með hag heimilis- manna og heimilisins að leiðarljósi.‘ Birkir Egilsson Höfundur er sjúkraliði. EFTIR að hafa verið á Íslandi í tæplega eitt ár vekur athygli mína hversu margir menningarviðburðir eru í boði fyrir hina 300.000 íbúa þessa lands og stöðugt fleiri ferða- menn, sem heimsækja landið árlega. Ég dáist að öllum þessum merku söfn- um sem er að finna í hverju sveitarfélagi, hátíðunum og ekki síst tónlistarviðburð- unum. Því miður finnst mér oft að þeir viðburðir sem eiga sér stað utan Reykja- víkur veki litla at- hygli hjá fjölmiðlum og fréttir af þeim berist seint. Ég er nýkomin frá Húsavík þar sem ég tók þátt í Mæru- og sænskum dögum. Þar var alltaf eitthvað um að vera frá morgni til kvölds, eins og t.d. sigl- inga- og akróbatikskóli fyrir börn, harmonikuleikarar frá Svíþjóð og Íslandi, barnahljómsveitir, djass, blús, afrískur trumbusláttur, hvalaskoðun, grill, veiðikeppni, sænskur matur, golfkeppni og „kubb“ (leikur sem allir geta tekið þátt í) svo dæmi séu tekin um þessa skemmtilegu fjölskylduhá- tíð. Fyrirlestrar voru fluttir um sænska húsagerðarlist, um Dag Hammarskjöld og um ferð vík- ingaskips til Svarta- hafs. Bæta má við, að nýtt víkingaskip verð- ur smíðað, en því er ætlað að sigla til Vín- lands með viðkomu á Húsavík eftir nokkur ár! Forsetinn opnaði á ný hluta af sænsku glerlistarsýningunni sem Carl Gustaf XVI. afhenti fyrir tveimur árum og hafði á orði, að um merka og höfð- inglega vinargjöf hefði verið að ræða. Við sama tækifæri var nýr ræð- ismaður Svíþjóðar kynntur, en umdæmi hans nær yfir Norð- urþing og Akureyri. Mér vitanlega er þetta fyrsti ræðismaðurinn, sem er búsettur á Húsavík. Sænsku atriðin voru viðurkenning til Svíþjóðarsonarins Garðars Svavarssonar, en hann var fyrstur til að byggja hús í Húsavík og uppgötva að landið var eyja í kringum árið 870. Utanríkisráðherrann, Valgerður Sverrisdóttir, tók þátt í miðnæt- urferð með Náttfara til víkurinnar sem ber nafn hans ásamt mörgum Húsvíkingum. Ég vona, að Morgunblaðið og aðrir fréttamiðlar sjái ástæðu til að skoða glerlistarsýninguna, sem er í Safnahúsinu á Húsavík og var opin til 7. ágúst, einnig að ræða við nýju sveitarstjórnina um ár- angursríka Mæru- og sænska daga, en ákveðið hefur verið að halda þá framvegis á hverju ári til að efla tengslin milli Íslands og Svíþjóðar. Flestir menningarviðburðir á Íslandi miðað við höfðatölu Madeleine Ströje Wilkens skrifar um menningarviðburði á Húsavík ’Ég dáist að öllumþessum merku söfnum sem er að finna í hverju sveitarfélagi, hátíðunum og ekk síst tónlistarviðburð- unum.‘ Madeleine Ströje Wilkens Höfundur er sendiherra Svíþjóðar. „Við munum hækka laun okkar sem bæjarfulltrúa um 350% ef við náum setu í meirihluta bæj- arstjórnar.“ Var þetta nokkuð á stefnuskrám flokka í kosningum í vor? Í bæj- arráði Fjallabyggðar þann 27/7 voru samþykktar greiðslur fyrir nefndarstörf bæj- arstjórnar og þar kemur í ljós þvílík grímulaus græðgi að engu tali tekur. Sett- ur bæjarstjóri, Þor- steinn Ásgeirsson, jafnframt forseti bæjarstjórnar, lagði fram tillögu sem fól í sér að föst laun hans sem forseta bæj- arstjórnar hækkuðu um 350% ef miðað er við laun forseta bæj- arstjórnar Siglu- fjarðar áður. Með sameiningu sveitarfélaganna áttu að sparast verulegar upphæðir með fækk- un nefndarmanna og bæjarfulltrúa. Með þeirri hækkun sem bæjarráð hefur nú samþykkt á nefndarlaunum er ljóst að engir fjármunir sparast, launagreiðslur til nefndarmanna munu ekki lækka heldur verða mun hærri heldur en samanlagt í báðum sveitarfélögunum áður! Hvað gengur fólkinu til? Tökum sem dæmi formann bæj- arráðs Fjallabyggðar sem hugs- anlega fundar fjórum sinnum í mánuði í bæjarráði. Samanburður á mánaðarlaunum bæjarráðsfulltrúa, formanns bæj- arráðs og forseta bæjarstjórnar Fjallabyggðar nú og Siglufjarð- arkaupstaðar áður sýnir eftirfar- andi: Formaður bæjarráðs nú, Jónína Magnúsdóttir Föst laun kr. 80.000 Fjórir fundir kr. 80.000 Sími kr. 10.000 Samtals kr. 170.000 Formaður bæjarráðs áður, Ólafur Kárason Föst laun kr. 20.000 4 fundir kr. 32.000 Sími kr. 0 Samtals kr. 52.000 Hækkunin er kr. 118.000 á mán- uði eða 327% Forseti bæjarstj. nú, Þorsteinn Ásgeirsson Föst laun kr. 100.000 1 fundur kr. 25.000 Sími kr. 10.000 Samtals kr. 135.000 Forseti bæjarstj.áður, Guðný Pálsdóttir Föst laun kr. 30.000 1 fundur kr. 8.000 Sími kr. 0 Samtals kr. 38.000 Hækkunin er kr. 97.000 á mán- uði eða 355% Bæjarráðsfulltrúi nú, Hermann Einarsson Föst laun kr. 65.000 4 fundir kr. 60.000 Sími kr. 0 Samtals kr. 135.000 Bæjarráðsfulltrúi áður, Skarphéðinn Guðmundsson Föst laun kr. 10.000 4 fundir kr. 32.000 Sími kr. 0 Samtals kr. 42.000 Hækkunin er kr. 93.000 á mán- uði eða 321% Hækkun um ríflega 300% þætti líklega fullboðleg öðrum starfs- mönnum Fjallabyggðar. Föst laun formanns bæjarráðs hækka um 400% frá því sem áður var í bæjarráði Siglufjarðar, föst laun bæjarráðsfulltrúa um 650% og bjóði nú aðrir betur í launa- hækkunum! Formaður bæjarráðs þiggur ríflega 2 milljónir króna á ári nú sem er hærri upphæð en allt bæjarráð Siglufjarðar þáði á ári í síðustu bæjarstjórn. Ekki nóg með að hækkunin sé frá 300–500% heldur er það aðeins bæjarráð sem tekur þessa ákvörð- un, ekki bæjarstjórn eins og venja er með svo miklar fjárhagslegar skuldbindingar. Það er semsagt 3 manna bæjarráð með Þor- stein Ásgeirsson sett- an bæjarstjóra í far- arbroddi sem tekur ákvörðun um þessa sjálftöku á almannafé. Var ætlunin sú að menn hefðu af störf- um sínum sem bæj- arfulltrúar mun hærri mánaðarlaun en verkamannalaun í hærri kantinum? Var ætlunin sú að bæj- arfulltrúar sem hugs- anlega hafa verið at- vinnulausir séu nú komnir í fullt starf og þiggi laun fyrir af fjármunum útsvars- greiðenda? Skólastjórinn kannski svarar því hvað hann er að bjóða nýjum kennurum í föst laun á mánuði þegar hann sjálfur tekur sér kr. 200.000 í laun fyrir starf sitt í bæjarráði og ákveður laun sín sjálfur! Birkir Jónsson alþing- ismaður upplýsir okkur kannski um hversu mikið hann tekur sér nú í laun ofan á þingmennskuna á sama tíma og hann í landsstjórn- armeirihluta reynir að kveða niður þensluna hjá sveitarfélögunum! Kannski forseti bæjarstjórnar og settur bæjarstjóri, Þorsteinn Ás- geirsson, upplýsi hvað hann þigg- ur í laun samanlagt þann tíma sem hann gegnir störfum bæj- arstjóra, aðalbókara og forseta bæjarstjórnar? Ég hef ávallt tekið undir það að bæjarfulltrúar eiga ekki að þurfa að bera kostnað af sínum störfum, hvort sem er vegna vinnutaps eða annars og nauðsynlegt er að bæj- arfulltrúar fái sanngjarna umbun fyrir sín störf en fyrr má nú rota en dauðrota. Ástæða var til að hækka þessar greiðslur en er nú ekki verið að seilast full djúpt í vasa útsvars- greiðenda. Bæjarfulltrúar hafa hingað til verið í annarri vinnu í fullu starfi og því hefur ekki þótt eðlilegt að þeir þiggi laun sem þeir væru at- vinnustjórnmálamenn. Það hefur nú breyst. Ef vera skyldi að Fjallabyggð eigi fjárhagslega kröfu á einhvern bæjarfulltrúa þá gefst a.m.k. kjör- ið tækifæri til þess nú að viðkom- andi geri þær kröfur upp með launum sínum. Því miður lofar fjármálastefna nýrrar bæjarstjórnar Fjallabyggð- ar ekki góðu þegar byrjað er á því að maka krókinn eins veglega og gert hefur verið með þessum hækkunum á launum bæjarfull- trúa. Við sameiningu sveitarfélaganna áttu að sparast fjármunir með sameiningu nefnda og fækkun full- trúa en nú hefur það gerst að kostnaður vegna þessa verður mun hærri heldur en í báðum sveitarfélögunum til samans áður! Hvaða endemis snillingar stjórna svona ákvörðunum. Sem fyrrverandi íbúi Siglu- fjarðar skora ég á íbúa Fjalla- byggðar að láta þetta ekki yfir sig ganga hávaðalaust og hvetja bæj- arfulltrúa til þess að endurskoða þessa ákvörðun. Fjármálafjör í Fjallabyggð Þórir Hákonarson fjallar um laun bæjarfulltrúa Þórir Hákonarson ’… þar kemur í ljós þvílík grímulaus græðgi að engu tali tekur.‘ Höfundur er fyrrverandi skrifstofustjóri.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.