Morgunblaðið - 08.08.2006, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 08.08.2006, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 8. ÁGÚST 2006 21 UMRÆÐAN HUGURINN BER ÞIG AÐEINS HÁLFA LEIÐ * Verð á mann í tvíbýli. Innifalið í verði: Flug, gisting í 10 nætur á Alden Beach Resort á St. Petersburg og ein nótt á Florida Mall hótelinu á leiðinni heim, íslensk fararstjórn, flugvallarskattar og þjónustugjöld. Munið ferðaávísunina frá Master Card. Takmarkað sætaframboð. ÍS LE N SK A A U G LÝ SI N G A ST O FA N /S IA .I S I C E3 36 83 08 /2 00 6 + Nánari upplýsingar á icelandair.is/serferdir Hafið samband við hópadeild í 50 50 406 eða hopar@icelandair.is SÓLSKINSRÍKIÐ FLORIDA ER PARADÍS ELDRI BORGARA. Í ferðunum verður margvíslegt í boði til skemmtunar og hressingar, morgunhreyfing, gönguferðir, skoðunarferðir, félagsvist og bingó og ferðafélögum gefst kostur á að fara saman út að borða. Flug og gisting í 11 nætur. Verð: 104.360 kr. á mann í tvíbýli.* 7.–18. nóvember, fararstjóri Þráinn Þorleifsson. Vildarpunktar Ferðaávísun gildir ELDRI BORGARAR FLORIDA - ST. PETERSBURG ÞAÐ getur hent blaðamenn að falla fyrir lygum og blekkingum. Enda er heilmiklu dreift um heiminn af slíku efni sem er einmitt ætlað til þess að fela hið sanna og sá efasemd- arfræjum í brjósti almennings í mál- um sem deilt er um. Nasistar beittu þessari list, ráðmenn Sovétríkjanna, stjórn Kína, stjórnvöld í Bandaríkj- unum og fleiri hafa beitt lygi og hálf- sannleik þegar þeim hefur þótt það henta. Stjórnvöld í Ísrael eru ákaflega dugleg á þessu sviði. Enda mikil þörf á slíku hjá ríki sem hefur allt frá stofnun (1948) stundað landrán, kúgað og drepið þúsundir manna, hundsað alþjóðalög og byggt upp herveldi sem engu eir- ir. Með lygalistinni hefur þeim tekist að telja mörgum trú um að við- brögðin hjá þeim, sem eru rændir landi sínu, horfa á fjölskylduna drepna eða fangelsaða og heimilin lögð í rúst, eru sviptir öllum mann- réttindum og möguleikum á lífs- afkomu, séu orsök ástandsins. Skólabókardæmi Staksteinar Morgunblaðsins 2. ágúst sl. eru skólabókardæmi um það hvernig öllu hefur verið snúið á haus í huga þess sem þar ritar. Þar er vitnað í bók eftir Bandaríkja- manninn Alan Dershowitz sem segir að Arafat hafi hafnað stórkostlegu tilboði Baraks, forsætisráðherra Ísr- aels, um að skila 95% af herteknu svæðunum, greiða skaðabætur fyrir hernám og viðurkenna sjálfstætt ríki Palestínumanna með höfuðborg í Jerúsalem o.fl. En í stað þess að taka þessu kostaboði þá hafi Arafat fyrirskipað stríð og blóðsúthellingar og kaldrifjaður reiknað það út að sökinni á ástandinu yrði varpað á Ísrael. Staksteinar velta sér síðan upp úr þessum staðhæfingum Alans og varpa fram getgátu um að Palest- ínumenn og Hizbollah séu að end- urtaka leikinn, þ.e. að hefja árásir á Ísraela og vonast til þess að um- heimurinn fordæmi þá þegar þeir svari árásunum. Raunverulegt innihald tilboðsins Þekking Staksteina á tilboði Bar- aks ristir ekki djúpt. Alan Dersho- witz segir ekki frá því að tilboðið gerði ráð fyrir að hið „sjálfstæða“ ríki Palestínumanna innihéldi 69 ólöglegar landtökubyggðir, sem skera sundur land þeim ætlað. Hvernig litist blaðamönnum Morg- unblaðsins sem búa í Vesturbænum á að verða að fara fyrst upp á Kjal- arnes til þess að komast í vinnuna við Rauðavatn? Þannig er staða Pal- estínumanna í dag og þannig var hluti af tilboði Baraks, hernámið héldi áfram með margvíslegum hindrunum á ferðafrelsi Palest- ínumanna. Yfirráð landamæra hins nýja „rík- is“ yrðu í höndum Ísraela og stjórn vatnsbirgða sömuleiðis. Ísraelar ætluðu ekki að fylgja samþykktum SÞ um að draga sig frá öllum her- teknum svæðum. Ísraelar ætluðu að ráða áfram yfir megninu af Jórd- andalnum og ætluðu að eiga rétt á því að fara með her inn í land Palest- ínumanna hvenær sem þeim þókn- aðist. Í landi Palestínumanna yrðu áfram vegir sem eingöngu væru ætl- aðir landtökumönnum. Loforðið um að skila 95% af herteknu landi var því svipað því að þjófur myndi skila hluta þýfis en áskilja sér allan rétt varðandi það hvernig réttmætur eig- andi nýtti eignir sínar framvegis. Tilboðið var blekking Hið „rausnarlega“ tilboð var ekk- ert nema tilraun til að staðfesta landrán og koma á „friði“ á kostnað Palestínumanna. Ísraelar vissu fyr- irfram að Arafat og hans menn myndu aldrei geta samþykkt slíkt tilboð. Þess vegna var svo mikilvægt fyrir Ísraela að láta líta svo út að það hefði verið Arafat sem hefði slitið viðræðunum og fyrirskipað sjálfs- morðsárásir. Staðreyndin er hins vegar sú að það var Barak sem sleit þeim 2001 er hann aflýsti fundi með Arafat í borginni Taba í Egypta- landi, en þar höfðu samningamenn Palestínumanna og Ísr- aela setið á fundum sem virtust skila árangri. Skömmu síðar tapaði Barak í kosningum og Sharon komst til valda. Arafat var lýstur óal- andi og óferjandi, Shar- on fór í hina frægu ferð sína til Al-Aqsa- moskunnar og allt fór í bál og brand. Um allt þetta vitna reyndir blaðamenn og samningamenn frá Bandaríkjunum, Ísrael, Bretlandi og fleiri löndum, m.a. menn sem voru viðstaddir at- burðina. Fræðimenn sem hafa skoð- að atburðarásina komust að því að tilboð Ísraela var blekking. Ég nefni hér nokkur nöfn þessara manna til þess að menn átti sig á því að hér eru ekki einhverjir ómerk- ingar á ferð: Yoav Pe- led, sem kennir stjórnmálafræði við háskólann í Tel Aviv, Jude Wanniski, fv. að- stoðarritstjóri The Wall Street Journal, Amira Hass, blaða- maður í Ísrael, Ro- bert Malley, aðstoð- armaður Clintons og þátttakandi í Camp David II-samning- unum f.h. BNA, Menahem Klein, stjórnmálafræðingur í Ísrael, og Uri Avnery, ísraelskur þingmaður. Og Mitchell-nefndin sem starfaði á veg- um Bandaríkjastjórnar komst að þeirri niðurstöðu að það var ekki Arafat sem kom stríðinu af stað, þvert á móti reyndi hann allt sem hann gat til þess að afstýra átökum. Um þetta má fræðast á netinu. Skylda blaðamanna Það er skylda blaðamanna að kynna sér vel viðfangsefni sín. Staksteinar eru á ábyrgð rit- stjórnar Morgunblaðsins, eins út- breiddasta fjölmiðils landsins. Því verður að gera miklar kröfur til þeirra sem þar tjá sig, þeir geta ekki leyft sér að fjalla af vanþekk- ingu um málefni sem hafa kostað svo mörg mannslíf og slíkar þjáningar að það er ofvaxið skilningi venju- legra Íslendinga. Hjálmtýr Heiðdal gerir athugasemd við Staksteina Morgunblaðsins. ’Það er skylda blaða-manna að kynna sér vel viðfangsefni sín.‘ Hjálmtýr Heiðdal Höfundur er kvikmyndagerðarmaður. Staksteinar falla í gildru

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.