Morgunblaðið - 08.08.2006, Page 43
Safnið er opið virka daga kl. 9–17, laug-
ardaga kl. 10–14.
Sýning á teikningum Halldórs Baldurssonar
byggðar á Vetrarborginni eftir Arnald Indr-
iðason. Teikningar Halldórs eru til sölu. Opið
mán.–fösd. kl. 9–17, laugard. kl. 10–14.
Minjasafnið á Akureyri | Ef þú giftist?
Brúðkaupssiðir fyrr og nú fjallar um brúð-
kaup og brúðkaupssiði í gegnum tíðina.
Sýningin er unnin í samstarfi við Þjóðminja-
safn Íslands og er opin alla daga milli 10 og
17. Til 15. sept.
Perlan | Sögusafnið er opið alla daga kl. 10–
18. Hljóðleiðsögn leiðir gesti í gegnum fjölda
leikmynda sem segja söguna frá landnámi
til 1550. ww.sagamuseum.is
Veiðisafnið – Stokkseyri | Skotveiðisafn –
uppstoppuð veiðidýr ásamt veiðitengdum
munum, ísl. og erlend skotvopn o.fl. Opið
alla daga 11–18. Sjá nánar á www.hunting.is
Víkin-Sjóminjasafnið | „Togarar í 100 ár“.
Sýningunni er ætlað að veita innsýn í við-
burðaríka sögu togaraútgerðar og draga
fram fjölþætt áhrif hennar á samfélagið.
„Úr ranni forfeðranna“" er sýning á minja-
safni Hinriks Bjarnasonar og Kolfinnu
Bjarnadóttur. Molakaffi í boði og frábært út-
sýni yfir höfnina.
Þjóðmenningarhúsið | Íslensk tískuhönnun
sem sýnir fjölbreytnina og sköpunarkraft-
inn í tískugeiranum og Í spegli Íslands, um
skrif erlendra manna um Ísland og Íslend-
inga fyrr á öldum. Auk þess helstu handrit
þjóðarinnar í vandaðri umgjörð á hand-
ritasýningunni og Fyrirheitna landið.
Leiklist
Iðnó | The best of Light Nights öll mánu-
dags- og þriðjudagskvöld í ágúst. Sýningar
hefjast kl. 20.30. Efnisskrá flutt á ensku (að
undanskildum þjóðlagatextum og rímum),
þjóðsögur færðar í leikbúning, þættir úr Ís-
lendingasögum, dansar og fleira. Nánari
uppl. á www.lightnights.com
Fyrirlestrar og fundir
Geðhjálp | Sjálfshjálparhópur fyrir aðstand-
endur fólks með geðraskanir kemur saman
öll þriðjudagskvöld í húsi Geðhjálpar að Tún-
götu 7 í Reykjavík. Frekari upplýsingar eru
að finna á vefnum www.gedhjalp.is
Fréttir og tilkynningar
Fjölskylduhjálp Íslands | Tekið á móti mat-
vælum, fatnaði og leikföngum á mið-
vikudögum kl. 13–17. Úthlutun matvæla
sama dag kl. 15–17 að Eskihlíð 2–4 v/
Miklatorg. Þeir sem vilja styðja starfið fjár-
hagslega, geta lagt inn á reikning 101-26-
66090 kt. 660903-2590.
JCI Heimilið | Ljósmyndasamkeppni JCI Ís-
lands stendur yfir. Keppnin er opin öllum
áhugaljósmyndurum og verða úrslitin kynnt
á Menningarnótt Reykjavíkur 19. ágúst.
Þemað í ár er Höfuðborgin í ýmsum mynd-
um. Veitt verða fern verðlaun frá Ormsson
og ljosmyndari.is. Sjá nánar www.jci.is.
Frístundir og námskeið
Árbæjarsafn | Boðið er upp á örnámskeið
tengd sýningunni „Diskó & pönk – ólíkir
straumar?“ Námskeiðin eru ætluð börnum
á aldrinum 7–12 ára. Hvert námskeið stend-
ur í 3 klukkustundir og verða nokkur und-
irstöðuatriði í pönk-tónlist og diskó-dansi
kennd. Nánari upplýsingar og skráning í
síma 411 6320.
Útivist og íþróttir
Viðey | Örlygur Hálfdanarson, bókaútgef-
andi og Viðeyingur, stýrir gönguferð í Viðey
í kvöld. Gengur Örlygur um æskuslóðir sínar
í þorpinu á Sundbakka og litið verður inn í
skólann og tankinn. Gangan hefst með sigl-
ingu úr Sundahöfn kl. 19 og er ferjutollur
750 kr. fyrir fullorðna og 350 kr. fyrir börn.
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 8. ÁGÚST 2006 43
DAGBÓK
50% Helmingsafsláttur 50%
50% af öllum sumarvörum 50%
v/Laugalæk • sími 553 3755
Staður og stund á mbl.is.
Nánari upplýsingar um viðburði dagsins er að
finna á Staður og stund undir Fólkið á mbl.is
Meira á mbl.is
ALÞJÓÐLEGA orgelsumarið, tón-
leikaröðin í Hallgrímskirkju sem ef
rétt er skilið gegndi til skamms
tíma hinu gustminna nafni „Sum-
arkvöld við orgelið“, tefldi á sunnu-
dag fram einum af færustu org-
anleikurum Dana af yngri kynslóð.
Þ.e.a.s. ef leiða mátti af líkum, því
Bine Katrine Bryndorf hefur þegar
gegnt prófessorsstöðu við Kon-
unglega tónlistarháskólann í Kaup-
mannahöfn í fimm ár, og kvað hafa
verið reynt að fá hana hingað til
leiks allt frá aldamótum.
En loksins tókst það, og verður
að segjast að frúin var biðarinnar
virði. Því þótt kosti spennufall í
lestri þá má alveg eins afhjúpa
strax að leikur hennar náði fylli-
lega háum gæðastaðli tónleikarað-
arinnar og vel það. Jafnframt rann
upp fyrir mér (að ég held) hvers
vegna svo margir gestaspilendur
kjósa að leika fyrri hluta tónleika
uppi úr augsýn en hinn seinni niðri
við kirkjugólfsspilborðið – a.m.k.
þeir er minnst gera út á glæstar
hreyfingar og spilfettur. Nefnilega
til að verða fyrst dæmdir af eyrum
(s.s. fyrir tónræna inntakstjáningu)
fremur en af framkomu! Alltjent
virtist það augljóst í þessu tilviki,
því öll sjónræn virtúósaleikbrögð
Bryndorfs gjörsamlega „glitruðu
við fjarveru þeirra“ eins og sagt er
á dönsku.
Það voru ár og dagar síðan mað-
ur hafði augum litið jafnhverfandi
fyrirferð og áreynslu og þegar org-
anistinn leyfði hlustendum loks að
sjá sig að verki í tveimur síðustu
og erfiðustu atriðum dagskrár.
Gamla kennisetning hljóðfærakenn-
ara – að forsenda nákvæmni og
snerpu sé fólgin í sem mestri ráð-
deild í limaburði – opinberaðist hér
svört á hvítu. Bine Bryndorf virtist
hafa nákvæmlega ekkert fyrir
neinu.
Prelúdíur Dideriks („Dietrichs“
utan Danmerkur) Buxtehudes
(1637–1701) í byrjun og lok voru
organistanum skyldar að fleira en
að einu leyti, þar sem hvorttveggja
var að Bryndorf er frá Hels-
ingjaeyri, fæðingarbæ mikla Dan-
ans, og hefur undanfarin ár hljóð-
ritað orgelverk þessarar kunnu
fyrirmyndar Bachs. Sú fyrri í D
(BuxWV 139) var vellandi fjörug og
litríkt raddvalin, og stórsópaði að
þeirri seinni í d (BuxWV 140). Þar
á milli fóru kliðmjúkt og háskreytt
Sanctus eftir François Couperin og
tvö svipmikil númer úr Les Corps
glorieux eftir Messiaen. Andante
Mozarts í F K616 tísti á alhæsta
tónsviði, líkt og til að herma eftir
spiladósinni sem það var frum-
samið fyrir, svo verjast varð brosi
út í annað.
Þættirnir sex í Contrasti per
organo (1972) eftir Vagn Holmboe
hröpuðu að mínu viti talsvert úr
innblæstri eftir vænlegan fyrri
hluta þrátt fyrir ljómandi flutning.
Hins vegar hélt 5. Tríósónata J.S.
Bachs í C (BWV 529) fullum
glampa sínum í meistaralegri túlk-
un Bryndorfs, og kom raunar lítt á
óvart að sjá á útleið hljómdisk
hennar með öllum þessum sex org-
elgimsteinum fyrir músíkalskasta
(en því miður jafnframt drykkfelld-
asta) son snillingsins, Wilhelm
Friedemann. Tríósónöturnar þykja
annars með erfiðustu orgelverkum
fyrr og síðar í flutningi. En í sveifl-
andi laufléttum flutningi Bryndorfs
var bókstaflega eins og Fimman
væri aðeins kálfskinn eitt.
Slíkan galdur fremja engir au-
kvisar.
Hið fullkomna
áreynsluleysi
TÓNLIST
Hallgrímskirkja
Verk eftir Buxtehude, Fr. Couperin,
Messiaen, Mozart, Holmboe og Bach.
Bine Katrine Bryndorf orgel. Sunnudag-
inn 30. júlí kl. 20.
Alþjóðlegt orgelsumar
„Það voru ár og dagar síðan maður hafði augum litið jafnhverfandi fyrirferð
og áreynslu ,“ segir Ríkarður Ö. Pálsson um orgelleik Bine Bryndorf.
Ríkarður Ö. Pálsson
Í SUMAR hefur auk fastra úti-
listaverka í Viðey mátt skoða verk
eftir nokkra erlenda listamenn. Sýn-
ingin er sú síðasta í listverkefninu
Site Ations: Sense in Place sem átt
hefur sér stað víða um heim með
þátttöku erlendra og íslenskra lista-
manna, en átta íslenskir listamenn
hafa sýnt verk sín erlendis í tengslum
við verkefnið. Það er myndhöggv-
arafélagið sem skipulagði sýninguna í
Viðey og sýningarstjórar eru Hannes
Lárusson og Rósa Sigrún Jónsdóttir.
Sum verkin á sýningunni voru í
gjörningsformi og eru því eðlis síns
vegna ekki sýnileg í Viðey nú, en sjá
má verk eftir Philippu Lawrence frá
Wales, Sarah Brown frá Írlandi,
Mariusz Soltysik frá Póllandi, Krist-
aps Gulbis frá Lettlandi og Monicu
Foster frá Spáni. Markmið sýning-
arinnar er meðal annars að tengjast
umhverfi sínu en samtímalistamenn
leggja gjarnan mikla áherslu á það í
verkum sínum, hvort sem nálgunin er
menningarleg, söguleg, landfræðileg,
fagurfræðileg eða eitthvað enn ann-
að.
Listaverkið sem mætir farþegum
ferjunnar þegar lagt er að í Viðey
vekur athygli margra en hér er um að
ræða skilti sem auglýsir byggingu
íbúðar- og skrifstofuhúsnæðis í Við-
ey, 700 íbúðir. Þetta verk hittir í
mark á tímum mikillar þenslu og
margir hafa brugðist ókvæða við í
símanúmeri því sem upp er gefið á
skiltinu.Verkið er eftir Kristab Gul-
bis frá Lettlandi.
Listaverk Philippu Lawrence er að
finna í smáhýsi skammt aftan við Við-
eyjarstofu, ljóðrænt verk með tilvís-
unum í menningu og tækni samtím-
ans. Utan á gamla skólahúsinu er
síðan einnig að finna verk eftir Phil-
ippu, skondið útlits en merkingin er
dýpri, eins konar efnisgerð hugleið-
ing um vatn í landi hreins vatns fyrir
alla.
Sarah Browne frá Írlandi leggur út
af hugmyndinni um fyrirmynd-
arþjóðfélagið. Hún sýnir inni í skóla-
húsinu og velur persónulega útfærslu
á íslensku lopapeysunni hugmynd
sinni til myndbirtingar, auk hefð-
bundins mynsturs má sjá texta á
borð við „high taxes (háir skattar“,
„rotten politics“ (spillt stjórnmál),
„the banks own us“ (bankarnir eiga
okkur) og „awesome daycare“ (ótrú-
leg daggæsla) prjónaða í peysurnar.
Textarnir eru fengnir úr skoð-
anakönnun sem listakonan gerði á því
hvað fólki fyndist verst og best á Ís-
landi. Útkoman er nokkuð sönn, en
um leið yfirborðsleg mynd af sam-
félagi okkar, sérstöðu þess, kostum
og göllum.
Í fjörunni neðan við skólahúsið er
að finna rýmisverk Mariusz Soltysik
frá Póllandi. Afmarkað rými undir
nafninu Búningsherbergi á að skapa
áhorfandanum tækifæri til hugleið-
ingar, eins konar viðkomustaður sem
minnir á hverfulleika mannlífsins.
Monica Fuster frá Spáni sýnir
verk sitt utandyra en hún hefur látið
reisa byggingu, sem minnir á vörðu,
úr grjóti úr fjörunni. Samhliða er
álíka form en úr plasti og uppblásið,
það rís og hnígur. Hér spila saman
ólík efnistilfinning, andstæður menn-
ingar og náttúru og rytmi sem minnir
á sjávarföllin, ris og hnig.
Nálgun listamanna við umhverfið
er mjög áhugaverð og margir lista-
menn ferðast um heiminn og skapa
myndverk út frá ólíkri menningu og
landsvæðum. Sú spurning vaknar þó
hvort ekki væri líka áhugavert að
færa sína eigin menningu inn í annað
umhverfi, nálgun af þessum toga á
það á hættu að verða yfirborðsleg.
En hér vinna listamennirnir af aug-
ljósum heilindum og eftir að skoða
verk þeirra fær áhorfandinn þá til-
finningu að hann hafi séð meira en
virðist við fyrstu sýn.
Myndir af landi og þjóð
MYNDLIST
Viðey
Sýningin stendur út sumarið og er opin
alla daga.
Site-ations
Alþjóðleg samsýning, Myndhöggv-
arafélagið skipulagði.
Morgunblaðið/ÓmarEitt verkanna sem verða á vegi sýningargesta í Viðey.
Ragna Sigurðardóttir
MENNING