Morgunblaðið - 18.08.2006, Síða 18

Morgunblaðið - 18.08.2006, Síða 18
18|Morgunblaðið Það er hátt til lofts og vítt til veggja í húsakynnum skólans, þar sem áður var starfrækt netagerð og hugað að fiskvinnslu. Við höfum í rauninni rifið niður það mesta og endurbyggt húsnæðið þannig að það henti starfsemi skól- ans sem best, segir Leifur, um leið og hann sýnir blaðamanni húsakynn- in, sem einvörðungu eru máluð í svörtu og hvítu. Og svart og hvítt er mikill hluti af heimspeki og starfsemi skólans, því nemendur sem hingað koma læra grundvallaratriði ljósmyndunar, eins og framköllun svart-hvítra filma í myrkraherbergi og notkun stúd- íóljóss. Upp á gamla mátann Skólinn er tvær annir og fyrsta önnin er notuð til að kynna nem- endum grundvallartækni ljósmynd- arans og allt er gert upp á gamla mátann. Við viljum að nemendurnir nái valdi á grunntækninni áður en þeir fara að notast við stafrænan búnað, sérstaklega svart-hvíta ljósmyndun, en út frá því er auðveldara að til- einka sér notkun og meðhöndlun nú- tíma stafrænnar tækni, segir Sissa. Á veggjunum hanga myndir sem nemendur hafa unnið og stúd- íóaðstaðan er óaðfinnanleg. En nú- tímatækni er samt alls staðar nálæg í þessum svarta og hvíta heimi, sem er umgjörð Ljósmyndaskólans. Afstaða Leifs og Sissu til starfa ljósmyndarans er líka nútímaleg. Við lítum ekki á ljósmyndun sem handverk eða iðnverk en leggjum áherslu á hið listræna í ljósmynd- uninni, við lítum á þetta starf fyrst og fremst sem skapandi, segir Leif- ur. Hefur starfað víða Leifur hefur langan starfsferil sem ljósmyndari og ljósmyndakenn- ari að baki og starfið sem ljósmynd- ari hefur leitt hann víða um heim. Ég byrjaði sem unglingur að taka myndir fyrir blöðin 1977, en ákvað að halda til náms þremur árum seinna. Hann tók ljósmyndunarnám í Stokkhólmi frá 1980 til 1982 og hefur síðan unnið víða um heim. Að sjálf- sögðu dvaldist hann og starfaði um skeið í New York, höfuðstað lista og ljósmyndunar, en hann hefur einnig starfað í Frakklandi, Svíþjóð og víð- ar um heim. Þau Leifur og Sissa njóta aðstoðar gestakennara og meðal þeirra eru nokkrir af frægustu ljósmyndurum landsins. Við fáum gestakennara til að lyfta kennslunni, það getur verið ljós- myndasaga, portrettljósmyndun, blaðaljósmyndun, tískuljósmyndun eða listræn ljósmyndun, sem þessir gestakennarar fjalla um, en það gef- ur nemendunum mikið að hafa fleiri kennara og kynnast sérfræðingum á fleiri sviðum ljósmyndarastarfsins, segir Leifur. Ekki allir halda áfram Nemendur skólans eru venjulega frá 18 til 20 á hverju ári og þeir eru valdir út eftir samtöl, enda vilja Sissa og Leifur vera viss um að þeir sem gangi í skólann hafi í raun brennandi áhuga á því sem þeir eru að læra. Það skiptir miklu máli fyrir heild- ina að allir séu áhugafullir um það sem þeir eru að gera og það skiptir náttúrulega miklu máli fyrir hvern og einn af nemendunum. En það eru ekki allir sem sækja Ljósmyndaskólann til þess að und- irbúa sig undir frekara nám erlendis. Það er svolítið mismunandi. Auð- vitað koma hingað nemendur í þess- um tilgangi, en svo eru hinir sem koma bara vegna þess að þeir hafa brennandi áhuga á ljósmyndun og langar að læra tæknina eins vel og auðið er. Svo eru aðrir sem sjá þetta sem undirbúning undir annað nám, kannski arkitektar, málarar eða aðr- ir sem geta nýtt sér ljósmyndun í námi sínu á einhvern hátt. Margir nemenda okkar hafa til dæmis haldið áfram námi við Listaháskólann, seg- ir Leifur. Mynda frekari tengsl Tengslin við gestafyrirlesarana geta líka verið nytsöm í öðrum skiln- ingi en þeim að læra af tækni, hugs- unarhætti og vinnubrögðum þeirra. Nemendur, sem hallast að ákveðnum þáttum í starfi ljósmynd- arans, fá oft tengsl við erlenda skóla eða ljósmyndara gegnum gestakenn- arana, því flestir kennaranna hafa góð tengsl við starfsbræður sína og -systur í öðrum löndum. Þannig geta þeir opnað dyr fyrir nemendunum, sem þeir annars hefðu átt í erf- iðleikum með að finna. Nemendurnir sjá líka gegnum kennslu þessara kennara hvernig á að nálgast frekara nám og finna tækifæri til að verða sér úti um áframhaldandi leiðsögn og lærdóm í faginu eða einstökum þáttum þess, segir Leifur. Auðvitað fá svo allir nemendur, sem ljúka náminu, umsögn frá skól- anum enda nýtur hann talsverðrar virðingar erlendis og hefur góð tengsl við ljósmyndara í öðrum lönd- um. Þar sem heimurinn er svartur og hvítur Í gamalli netagerð úti á Örfirisey heldur Ljós- myndaskólinn til. Við hittum Leif Rögnvaldsson og Sigríði Ólafsdóttur, betur þekkta sem Sissu, að máli og ræddum um málefni skólans. Morgunblaðið/Eyþór Sissa og Leifur reka Ljósmyndaskólann í húsi fyrrverandi netagerðar á Örfirisey Ljósmyndaskóli Sissu hefur verið starfræktur síðan 1997 og er stað- settur að Hólmaslóð 6, Örfirisey í 101 Reyjavík. Markmið skólans er að kenna undirstöðu ljósmyndunar bæði fyrir þá sem vilja ljósmynda sér til ánægju eins og þeim sem hyggja á frekara nám og starf. Kennd er meðhöndlun ýmissa myndavéla, svart/hvít filmufram- köllun og stækkun. Frágangur mynda, stúdíó-lýsing og hvernig nýta má birtu. Stafræn ljósmyndun og litmyndavinnsla er skoðuð. Nemendum eru kynntar ýmsar leiðir í ljósmyndun svo sem port- rett-, tísku-, landslags-, auglýs- inga-, blaðaljósmyndun og ljós- myndum sem list. Skólinn verður settur miðvikudaginn 6. september, kl. 19.00 og lýkur laugardaginn 26. maí 2007. Kennsla fer að mestu leyti fram á kvöldin og um helgar en krafa er gerð um að nemendur gefi heima- námi drjúgan tíma. Margir af helstu ljósmyndurum landsins kenna og leiðbeina við skólann. Má nefna m.a. Ara Magg, Börk, Einar Fal, Golla, Kristján Maack, Pál Stefánsson, Sigfús Má, Sig- urgeir Sigurjónsson, Spessa auk Sissu og Leifs. Í skólanum eru stúd- íó og myrkraherbergi sem eru vel tækjum búin. Ekki eru gerðar kröfur um þekk- ingu á ljósmyndun þegar valið er inn í skólann. Námið er ætlað þeim sem sem vilja ná tökum á ljósmyndun sér til ánægju, þeim sem þurfa að hafa vald á ljósmyndun í öðrum störfum, td. myndlist og svo þeim sem hyggj- ast leggja ljósmyndun fyrir sig sem ævistarf. Námið er þó ekki tæm- andi en gefur nemendum tækifæri til að átta sig á því hvort þetta sé rétta leiðin fyrir viðkomandi og gefur góðan undirbúning til að geta valið og sótt um frekara nám er- lendis. Námið er þannig uppbyggt að haustönnin er að mestu leyti notuð til að ná tökum á grundvallartækni í ljósmyndun. Skilning á funksjón myndavéla, ljósopi, hraða, ljós- næmi, ljósmælingu, framköllun s/h filmu og stækkun. Skoðuð er litljós- myndun, stúdíólýsing og ljós- myndasaga. Á vorönn gefst nemendum síðan kostur á að kynnast ýmsum leiðum innan ljósmyndunar til að átta sig á breidd fagsins og hvaða tegund ljósmyndunar hentar hverjum og einum. Skólinn nýtur aðstoðar margra þekktustu ljósmyndara landsins á þessum sviðum. Þessir gestakenn- arar koma mismikið við sögu, allt frá því að sýna verk sín og segja frá því hvernig vikomandi hefur nálg- ast starfið og sitt nám til þess að fylgja nemendum í nokkrar vikur og leiðbeina með verkefnum í þeirri tegund ljósmyndunar sem viðkom- andi hefur lagt fyrir sig o.s.frv. Náminu lýkur svo með lokaverk- efni sem er tvíþætt. Lokasýning er unnin í nánu sam- starfi við aðalkennara skólans og/ eða þá kennara sem sterkust áhrif hafa haft á viðkomandi nemenda. Sýningin sem opnuð er í lok maí og stendur í u.þ.b. 10 daga er eins- konar lokapróf. Samhliða sýningunni vinna nem- endur einnig portfólíu eða mynda- möppu sem er helsta verkfæri þeirra til að halda áfram hvort sem er að sækja inn í skóla hérlendis, erlendis eða til að komast í læri á annan hátt. Ljósmyndaskóli Sissu www.ljosmyndaskolinn.is

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.