Morgunblaðið - 18.08.2006, Qupperneq 24

Morgunblaðið - 18.08.2006, Qupperneq 24
Mikil gróska og fjölbreytni voru í starfsemi Símennt- unar á árinu 2005 og ásókn í lengra nám, sem metið er til eininga, einkum á sviðum rekstrar og stjórn- unar, jókst mikið að sögn Elínar Margrétar Hall- grímsdóttur, símenntunarstjóra háskólans. „Á vormisseri luku 22 nemendur þriggja anna, 27 eininga rekstrar- og viðskiptanámi sem var í sam- starfi við viðskiptadeild. Þá voru 39 þátttakendur á annarri önn í rekstrar- og stjórnunarnámi sem er í samstarfi við viðskiptadeild og Félagsmálaskóla al- þýðu en það er fyrir talsmenn stéttarfélaga og er kennt í fjarkennslu vítt og breitt um land,“ segir Elín Margrét. Styrkir frá Ítalíu Að sögn Elínar Margrétar hófst einnig öðru sinni þriggja anna, 15 eininga stjórnunarnám í samstarfi við Eyþing með 23 þátttakendum, og þriðji hópur „stjórnenda framtíðarinnar“, sem haldið er í sam- starfi við IMG, lauk námi. „Ítölskunámskeið, sem eru 3 einingar, voru haldin með styrk frá ítalska utanríkisráðuneytinu eins og undanfarin ár. Þá eru ótalin ýmis styttri námskeið en 236 manns sóttu nám eða námskeið á misserinu.“ Elín Margrét segir að áhugi grunnskólakennara á sumarnámskeiðum hafi farið minnkandi og styrkir sem Símenntun hafi hlotið frá menntamálaráðuneyt- inu til námskeiða verið vannýttir undanfarin ár. Aðeins tvö námskeið voru haldin á Akureyri en þrjú á Húsavík og þátttakendur á námskeiðunum voru alls 53. Aðfararnámskeið „Starfsemi haustmisseris hófst með aðfar- arnámskeiðum fyrir nýja háskólanemendur í efna- fræði, fjárhagsbókhaldi og stærðfræði. Þessi nám- skeið voru mjög vel sótt af nemendum deilda og Símenntunar en þátttakendur í þeim voru 204,“ segir Elín Margrét. Þriggja missera rekstrar- og við- skiptanám hófst öðru sinni með 26 nemendum, 42 þátttakendur voru á annarri önn í stjórnunarnáminu og þriðju önn í rekstrar- og stjórnunarnáminu. „Einnig fór „Stjórnendur framtíðarinnar“ af stað í fjórða sinn og 3 eininga námskeið í mannauðs- stjórnun var haldið með 37 nemendur á 11 stöðum á landinu. Auk þessa sóttu 175 manns ýmis styttri námskeið.“ Símenntun ásamt ýmsum félagasamtökum, fram- haldsskólum á Akureyri og Akureyrarbæ stóð í apríl fyrir ráðstefnunni „Hver er sá veggur?“ þar sem fjallað var um samkynhneigð og ungt fólk. Ráð- stefnan var haldin fyrir fullu Oddfellowhúsi, að sögn Elínar Margrétar. „Í september stóðu svo Símenntun og krabba- meinsfélag Akureyrar sameiginlega fyrir opnum fyr- irlestri dr. Jane Planet um áhrif mataræðis á ýmsa sjúkdóma en þann fyrirlestur sóttu um 100 manns,“ segir Elín Margrét Hallgrímsdóttir að lokum. Gróska í símenntun við Háskólann á Akureyri Elín Margrét Hallgrímsdóttur, símennt- unarstjóri Háskóla Akureyrar Háskólinn á Akureyri er með öflugt endurmenntunarstarf og stórt, rafrænt bókasafn. 24|Morgunblaðið Sigrún Magnúsdóttir, forstöðumað- ur upplýsinga- og gæðastjórn- unarsviðs Háskóla Akureyrar, eða UNAK, eins og skólinn er oft kall- aður, er sannfærð um að netið sé undirstaða þess að kalla megi bóka- safn skólans háskólabókasafn. Engin spjaldskrá Sem forstöðumaður upplýsinga- og gæðastjórnunarsviðs hefur Sig- rún starfað við bókasafnið allar göt- ur frá því það var formlega sett á laggirnar árið 1989. „Eitt það fyrsta sem ég krafðist var að fá nettengingu, það er nefni- lega sú staðreynd að bókasafnið er rafrænt sem gerir það að verkum að við getum kallað okkur ekta há- skólabókasafn,“ segir Sigrún. Bókasafnið hefur allt frá upphafi verið byggt á rafrænu kerfi og það hefur aldrei verið til nein spjaldskrá í bókasafninu. „Uppbygging bókasafnsins hefur verið mér mjög hugleikin og nú höf- um við um það bil 50 þúsund titla hér á fjölmörgum tungumálum, en þó fyrst og fremst á ensku,“ segir Sig- rún. Bækurnar eru flestar keyptar inn frá Amazon.com og Bóksölu stúd- enta, en flestar þeirra eru fræðibæk- ur. „Bókasafnið er byggt upp með þröngum fókus á fræðigreinar og þær eru flestar tengdar því námi sem fram fer í hinum ýmsu deildum háskólans. Þetta er rannsókna- og sérfræðibókasafn og efni er keypt að mestu leyti eftir þörfum há- skóladeildanna fjögurra svo og þeim rannsóknum sem við háskólann eru stundaðar,“ segir Sigrún. Nemendur taka þátt Við háskólann eru fjórar deildir; kennaradeild, heilbrigðisdeild, fé- lagsvísinda- og lagadeild og við- skipta- og raunvísindadeild. Við skólann er hægt að taka meistaragráðu í heilbrigðisvísindum og fjölmiðlafræði og lögfræði er á meðal kennslugreina. Nýlega hófst einnig kennsla í sálfræði við háskól- ann. Sigrún er Reykvíkingur, en var á Ísafirði í níu ár áður en hún kom til Akureyrar. „Ég er menntuð í bókasafns- og upplýsingafræði og einnig tók ég MA-próf í stjórnun í fjarnámi við há- skóla í Wales. Reyndar varð ég að fara á hverju ári til Wales í sam- bandi við námið, en það var bara skemmtilegt.“ Við háskólabókasafnið eru sjö manns í fastri vinnu, en á veturna taka nemendur háskólans einnig þátt í störfum við bókasafnið. Rafrænt bókasafn við UNAK Háskólinn á Akureyri hefur haslað sér völl sem eitt af mikilvægustu lærdómssetrum á landinu. Blaða- maður Menntunar leit við og kynnti sér málin. Kristján Guðlaugsson Sigrún Magnúsdóttir forstöðumaður upplýsinga- og gæðastjórnunarsviðs Háskóla Akureyrar Mál og menning á Laugavegi 18 býður til skólaskemmt- unar í tilefni upphafs skóla- ársins. Hátíðin hefst mánudaginn 21. ágúst kl. 15.00 með upp- lestri frá Nyhil. Óttar M. Norðfjörð, Örvar Þóreyj- arson Smárason, Valur Brynjar Antonsson og Eirík- ur Nordal lesa upp úr verkum sínum. Kl. 17.00 stígur hljóm- sveitin Fræ á svið og flytur lög af nýútkominni plötu sinni, Eyðilegðu þig smá. Á miðvikudag kl. 17.00 spila Jóhann Friðgeir Jó- hannsson, öðru nafni 701, tvíeykið Mr. Silla og Mon- goose og einnig stígur hljóm- sveitin Mammút á svið. Boðið verður upp á súpu af þessu tilefni. Rokkað í Máli og menningu Morgunblaðið/Eggert Elsa María Ólafsdóttir versl- unarstjóri Máls og menningar býður til uppákoma í tilefni nýs skólaárs.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.