Morgunblaðið - 18.08.2006, Side 26

Morgunblaðið - 18.08.2006, Side 26
26|Morgunblaðið Afrískur guðaheimur á Kúbu Námskeið um trúarbrögð, helgi- siði og menningu sem blökkumenn af Yorubakynstofni báru með sér frá Nígeríu í Afríku til Kúbu á tím- um þrælahalds og hafa varðveist í skjóli kristindóms og kommúnisma. Á námskeiðinu verður leitast við að draga upp mynd af guðaheimi san- teria-trúarbragðanna á Kúbu, tákn- rænni og sögulegri merkingu hans og heimsmynd og hvernig hann birtist í helgisiðum, trúarathöfnum, tónlist og myndlist. Námskeiðið er einkum ætlað áhugafólki um mann- fræði og trúarbragðasögu. Egils saga Skipta má Egils sögu í tvo hluta, sá fyrri fjallar um Kveld-Úlf og syni hans, Þórólf og Skallagrím og deil- ur þeirra við norska konungs- valdið. Sagt er frá samskiptum við Harald konung hinn hárfagra, veg- semd Þórólfs og falli, hefnd eftir hann og flótta þeirra feðga til Ís- lands. Með víðáttumiklu landnámi í Borgarfirði, ómetanlegum lýs- ingum á búskaparháttum og bernsku söguhetjunnar hefst síðari hlutinn, hin eiginlega saga Egils Skallagrímssonar. Meginþema verksins er samskipti bændahöfð- ingja við konungsvaldið og hæst rís árekstur Egils við Eirík konung blóðöx og Gunnhildi drottningu. Egill er hinn stórbrotni bóndi sem gefur konungum ekkert eftir að viti og viljastyrk. Þessi víðförli vík- ingur er öllum fremri sem skáld og bardagamaður. 250 ára afmæli Mozarts Námskeið í samstarfi við Vina- félag Íslensku óperunnar. Í tilefni af 250 ára afmæli Moz- arts sýnir Íslenska óperan Brott- námið úr kvennabúrinu en þetta er í fyrsta skipti sem þessi vel þekkta ópera er sýnd hér á landi. Skrán- ingarfrestur er til 20. september. Brottnámið úr kvennabúrinu var fyrsta óperan sem Mozart samdi fyrir óperuhús Vínarborgar eftir að hann fluttist þangað í óþökk fjöl- skyldu sinnar vorið 1781. Með henni sýndi hinn 25 ára gamli Moz- art að hann hafði þegar náð full- komnum tökum á óperuforminu og var fær í flestan sjó. Á námskeiðinu verður óperan og efni hennar kynnt, helstu einkenni tónlistar- innar rædd og skoðuð með tón- dæmum. Auk þess verður fjallað um „tyrknesk“ áhrif í tónlist Moz- arts í óperunni og víðar, en óperan gerist í Tyrklandi á 17. öld. Síðasta kvöldið verður farið á sýningu í óp- erunni þar sem færi gefst á stuttu spjalli við nokkra af aðstandendum sýningarinnar. Steðjar hætta að íslenskri tungu? Ætlað áhugafólki um stöðu ís- lenskrar tungu. Snemma árs 2006 urðu miklar umræður í samfélaginu um stöðu ís- lenskrar tungu. Því var jafnvel spáð að íslenska yrði horfin eftir 100 ár. Í þessu námskeiði verður farið í ýmsa ytri og innri þætti sem ráða stöðu og viðgangi tungumáls á borð við íslensku og rætt hvernig á því stendur að talað er um hnignun málsins. Meðal viðfangsefna verða hugtökin gott/vont mál og rétt/ rangt mál; munur ritmáls og tal- máls og breytileg málnotkun eftir aðstæðum; endurnýjun orðaforð- ans, nýyrði og tökuorð; málpólitík og málrækt á Íslandi í samanburði við önnur málsamfélög. Draumalandið Segja má að fáar bækur á und- anförnum árum hafi haft jafnmikil áhrif og Draumaland Andra Snæs Magnasonar en í henni er tekist á við mörg stærstu málefni okkar tíma. Á fjórum tveggja tíma kvöld- um er ætlunin að skapa vettvang þar sem tekist er á við heimsmynd okkar. Listamenn, fræðimenn og vísindamenn munu rekja þræði úr Draumalandinu eða gefa okkur inn- sýn í skapandi hugsun og hvernig hugmyndir verða til, fyrirtæki eru stofnuð eða listaverk kvikna til lífs. Með aðstoð valinkunnra gestafyr- irlesara verður rætt um möguleika Íslands, Íslönd sem gætu orðið til og hvaða hugmyndir munu hafa mest áhrif á líf okkar á næstu árum. Búast má við líflegum fyrirlestrum og fjörlegum umræðum. Ævi, saga og kenningar Freuds Á námskeiðinu verður fjallað um ævi S. Freuds og gefið yfirlit yfir helstu verk hans og þeim lýst stutt- lega. Þá verður gerð ýtarleg grein fyrir persónuleikakenningu Freuds og námskeiðinu lýkur með umfjöll- un um kenningu hans um drauma. Listin að meta vín Í samstarfi við vínbúðir ÁTVR. Meginviðfangsefni námskeiðsins er vínsmökkun. Lögð er áhersla á að gera grein fyrir hugtökum vín- smökkunar og merkingu þeirra og reynt að beita tungumálinu á ná- kvæman hátt þegar talað er um vín. Spáð verður í gæði vína: Hvað gerir vín góð og hvers vegna? Einnig verður fjallað um vínræktun og vín- gerð og helstu stíla og stefnur í þeim efnum. Námskeiðið fer fram í aðalstöðvum ÁTVR. Listin að meta vín – framhald Í samstarfi við vínbúðir ÁTVR. Ætlað þeim sem hafa nokkra þekkingu á vínsmökkun eða hafa tekið þátt í námskeiðinu „Vín- smökkun: Ilmur, bragð, áferð – list- in að meta vín“. Sjálfstætt framhald af námskeið- inu „Vínsmökkun: Ilmur, bragð, áferð – listin að meta vín“. Meg- inviðfangsefnið er áfram vín- smökkun, en lögð meiri áhersla á vínstíla og víngerðaraðferðir en á fyrra námskeiðinu. Fjallað verður meðal annars um áhrif þroskunar- og víngerðaraðferða, blinds- mökkun og gæði miðað við verð. Menningarnámskeið Helstu nýjungar í haust eru nám- skeið á meistarastigi í heilsu- hagfræði og viðskiptafræði. Að sögn Rögnu Haraldsdóttur, verkefnastjóra EHÍ, er um að ræða fjögur námskeið í heilsuhagfræði og sjö námskeið í viðskiptafræði. Heilsuhagfræði „Öll fjögur námskeiðin í heilsu- hagfræði eru sniðin að þörfum þeirra, sem hafa bakgrunn í heil- brigðisvísindum eða bakgrunn í hagfræði eða viðskiptafræði, en markmið námskeiðanna eru mis- munandi. Það getur verið um að ræða grundvallarhugtök í heilsu- hagfræðinni, rekstur, kostnað og nytjagreiningu heilsuhagfræðinnar eða afmörkuð efni heilsuhagfræð- innar eins og til dæmis fíkniefna- notkun, hreyfingu og næringu eða kynlífshegðun,“ segir Ragna. Þá er í boði tveggja ára nám fyrir geðlækna og sálfræðinga sem mið- ast að hagnýtri þekkingu á sviði hugrænnar atferlismeðferðar. „Meðal annars fáum við hingað erlenda sérfræðinga frá Cognitive Centre í Oxford til að halda fyr- irlestra á námskeiðunum. Annað námskeið, sem einnig er ætlað sál- fræðingum og geðlæknum, lýtur að sérnámi í hugrænni atferlismeðferð og meðal fyrirlesara eru sérfræð- ingar frá Oxford Cognitive Therapy Centre,“ segir Hans Júlíus Þórð- arson, verkefnastjóri fyrir Stjórnun og starfsþróun. Fjölbreytt nám EHÍ nýtir rauntíma hugbúnað í fjarkennslu og hægt er að velja ein- stök námskeið samhliða vinnu. „Notkun rauntímabúnaðar er náttúrulega misjafn eftir nám- skeiðum. Fólk er að sækjast eftir einingum og gráðum og tekur nám- skeiðin eins og þau passa því. En fyrir þá sem búa úti á landi er raun- tímabúnaðurinn mjög stór kostur,“ segir Hans Júlíus. Hann segir að 70 prósent af nám- skeiðunum séu viðskiptatengd á einn eða annan hátt. Einnig eru í boði námskeið í hjúkrunarfræðum, læknisfræði, guðfræði og ekki er óalgengt að fólk taki MA-gráðu þótt sumir láti sér fáeinar einingar nægja. „Við bjóðum líka námskeið í tölv- unarfræði, sem við köllum Sam- skipti manns og tölvu, en segja má að það fjalli um mannlega hlið tölv- unarfræðinnar, hvernig forritun hentar fólki, eins konar notenda- viðmót. Þetta er raunar þverfaglegt efni,“ segir Hans Júlíus. Menningarnámskeið „Auðvitað eru menningar- námskeiðin, sem EHÍ býður, jafn- gild þessum námskeiðum, en þau eru yfirleitt styttri,“ segir Ragna. Hún nefnir sem dæmi námskeið í samstarfi við Íslensku óperuna á námskeiði sem haldið er í tilefni 250 ára afmælis Mozarts. „Þar verður óperan „Brottnámið úr kvennabúrinu“ frumflutt á Ís- landi. Annað athyglisvert námskeið er fyrirlestraröð Andra Snæs Magnasonar um Draumalandið, og svo er náttúrulega Egilssaga klass- ískt viðfangsefni,“ segir Ragna. Meðal annarra námskeiða má nefna fyrirlestra um kúbanska San- teria-trú, íslenska málpólitík og fyr- ir lestra Gunnars Hersveins um gildin í lífinu, sem hann nefnir „Gæfuspor“. Morgunblaðið/Sverrir Ragna Haraldsdóttir og Hans Júlíus Þórðarson , verkefnastjórar hjá Endurmenntun Háskóla Íslands Nýjungar hjá Endur- menntun Háskóla Íslands Endurmenntun HÍ er stærsta endurmennt- unarstofnun landsins, en þar miðla nær 500 kennarar af kunnáttu sinni á ári hverju, en nem- endur á styttri námskeiðum og í lengra námi nálgast tíu þúsund. Menntun heimsótti EHÍ. www.endurmennt.is Fjarnám á haustönn 2006 • Þriðja og fjórða árið á stúdentsbrautum • 30 rúmlesta skipstjórnarnám • Allir áfangar í WebCT • Námið kostar einungis 4.250 krónur á önn fyrir utan námsgögn • Umsóknarfrestur til 30. ágúst • Skráning á vef skólans www.fas.is fas@fas.is sími 470 8070 Menntamálaráðherra, Þor- gerður Katrín Gunnarsdóttir, segir að það stefni í samein- ingu Kennaraháskóla Íslands og Háskóla Íslands. Rektorar beggja skólanna munu hafa tekið vel í þessa tillögu, en af sameiningu get- ur orðið 1. júlí 2008, ef hug- myndin verður að veruleika. Hugmyndin er þó mun eldri, eða frá 2002, þegar Páll Skúlason og Ólafur Proppé létu gera skýrslu um mögu- lega sameiningu skólanna. Önnur skýrsla, að þessu sinni á vegum mennta- málaráðuneytisins, var unnin í sumar og er það á henni sem ráðherra byggir tillögu sína. Sameining háskóla

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.