Morgunblaðið - 18.08.2006, Qupperneq 29

Morgunblaðið - 18.08.2006, Qupperneq 29
Morgunblaðið |29 Myndlestur eða PhotoReading er öflug lestrar- og námstækni sem getur gjörbreytt vinnu með mikinn texta. Með myndlestri er leshraðinn meiri en ella og tæknin bætir einnig til muna einbeitingu lesandans og auðveldar leit að aðalatriðum text- ans. Þetta er aðferð sem hentar bæði þeim sem eru í námi og öllum sem þurfa að lesa mikið og vilja fá góða yfirsýn yfir mikinn texta á skömmum tíma. Þetta er athygl- isverð aðferð sem hefur gjörbreytt afstöðu margra til lestrar og hentar bæði fluglæsum og leshægum. Tæknin getur auðveldað mjög lestur til dæmis námsbóka og fræðiefnis og skipt sköpum varðandi árangur, sér- staklega þegar tíminn er naumur. Heilhuga aðferð Bandaríkjamaðurinn Paul R. Scheele hafði lengi haft áhuga á því að kenna fólki á öllum aldri að nýta betur hugann og færni heilans til þekkingaröflunar þegar hann þróaði lestrar- og námstæknina Photo- Reading, sem nefnd hefur verið myndlestur á íslensku. Scheele talar um myndlestur sem heilhuga aðferð því hér er lögð áhersla á að örva sem best virkni heilans við vinnu með hvers konar texta. Kennsla í mynd- lestri hófst í Bandaríkjunum 1985 og hefur nú náð útbreiðslu til yfir 30 landa. Hér á landi hófst kennsla í myndlestri í lok ársins 2004 þegar Jóna Björg Sætran M .Ed., uppeldis og menntunarfræðingur hjá Náms- tækni ehf., öðlaðist réttindi sem myndlestrarkennari. Grunntæknin við myndlesturinn er kennd þar á stuttum námskeiðum þar sem þátt- takendur vinna með eigið lesefni. Eftir námskeiðin eiga þeir svo kost á áframhaldandi þjálfun og stuðningi. Hentar á alla texta Myndlestraraðferðin hentar fyrir allan lestur, svo sem bækur, ljósrit, tímarit, dagblöð og einnig efni á tölvuskjá. Nokkuð hefur borið á þeim misskilningi að hér væri á ferð- inni aðferð til að túlka myndir eða málverk, en svo er ekki. Myndlest- urinn miðar að því að veita skjóta yf- irsýn yfir mikið textamagn og finna þau atriði sem skipta lesandann mestu máli hverju sinni. Sá sem nýt- ir sér myndlestrartæknina þarf því að vera læs. Það hefur hins vegar sýnt sig að þessi tækni nýtist vel óháð lestrarfærni viðkomandi. Þannig hafa leshægir einstaklingar svo og fólk greint með lesblindu (dyslexíu) fundið fyrir miklum fram- förum við það að ná tökum á og nýta sér myndlestur. Slökun og einbeiting Í myndlestri er unnið með textann í stærri áföngum en almennt tíðkast. Jafnvel heil bók eða skýrsla er myndlesin í einu, en síðan er unnið með textann í smærri einingum. Oft er farið fimm til sjö sinnum yfir allan textann en þó á mun skemmri tíma í heildina en með hefðbundnum lestr- araðferðum. Tilgangurinn með textavinnunni þarf að vera skýr, les- andinn skoðar uppsetningu textans lítillega í upphafi og notar síðan ein- falda slökunartækni til að festa ein- beitinguna áður en myndlesturinn hefst. Lesandinn útvíkkar sjónsvið sitt í svonefndan myndafókus, horfir á textann með ákveðnum hætti og flettir blaðsíðunum síðan taktfast. Fyrst á eftir veit lesandinn lítið með- vitað um efnið sem var myndlesið, en eftir ákveðinn biðtíma er mun auðveldara en annars að fara hratt yfir textann og átta sig á innihaldi hans, með betri skilningi en ella. Skammur undirbúningur Myndlestur hentar vel þegar þarf að fara yfir tiltekið lesefni á skömm- um tíma við ýmsan undirbúning, svo sem fyrir fundi, ráðstefnur eða kynningar, til að ná að vinsa þau at- riði úr textanum sem máli skipta. Hér er mikilvægast að finna aðal- atriði textans, en talið er að um 4%– 11% lesefnis innihaldi aðalinntak þess og skipti mestu máli fyrir merkingu hans. Hugarkort Þegar um námsefni er að ræða er samhliða lestrinum gert svokallað hugarkort yfir aðalatriðin. Nemandinn útbýr jafnvel eitt hugarkort fyrir hvern kafla kennslu- bókarinnar og fær þannig góða yf- irsýn yfir allt innihald hennar. Nem- endur geta einnig nýtt sér myndlestur í upphafi kennsluannar til að myndlesa allt námsefni ann- arinnar á skömmum tíma og náð þannig góðri yfirsýn yfir námsefnið strax á fyrstu dögunum áður en kennarinn fer yfir námsefnið í kennslustundum. Gjörbreytt viðhorf Segja má að myndlestrartæknin hafi gjörbreytt viðhorfi margra til lesturs. Myndlesturinn sjálfur tekur aðeins um 10–15 mínútur fyrir með- alstóra bók og síðan er hægt að vinna áfram með efnið síðar. Fólk í viðskiptalífinu, jafnt sem nemendur í framhaldsskólum og háskólum, þarf ekki lengur að skjóta lestrinum á frest sökum tímaskorts. Kennarar geta auðveldað sér undirbúning kennslu, og svo framvegis. Ólesnir bókastaflar lækka hratt og ólesin gögn í bunkum á skrifborðinu geta nú heyrt sögunni til. Myndlestur getur gjörbreytt að- stöðu þeirra sem þurfa að lesa mik- inn texta, hvort heldur sem um er að ræða námsefni, fræðiefni, vísinda- rannsóknarefni eða samanburð upp- lýsinga og óháð því hvort um er að ræða bækur, ljósrit eða jafnvel efni á tölvuskjá. Myndlestur – öflug lestrar- og námstækni Morgunblaðið/Árni Sæberg Hraðlestur eða myndlestur get- ur sparað mikinn tíma og gefið góðan árangur. Það er nauðsynlegt að hafa fleiri en eina bók liggjandi á náttborðinu ef maður kann hraðlestur. Jóna Björg Sætran M. Ed. Námstækni ehf. s.899 4023 www.photoreading.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.