Morgunblaðið - 18.08.2006, Blaðsíða 34
34|Morgunblaðið
„Stefna okkar er að fá sem stærst
net af fyrirlesurum og það þurfa
ekki að vera einvörðungu starfs-
tengdir fyrirlestrar, þótt fyrirtæki
og stofnanir séu viðskiptavinir okk-
ar,“ segir Ingrid, en hún og maður
hennar, Eyþór Eðvarðsson, reka
Þekkingarmiðlunina.
Þekkingarmiðlun er öflugt þjálf-
unarfyrirtæki sem var stofnað í
byrjun ársins 2002. Það sérhæfir
sig í því að miðla þekkingu og
styrkja þannig einstaklinga og
vinnustaði. Það er gert með nám-
skeiðum, þjálfun, fyrirlestrum,
einkaþjálfun, aðgerðamótun, úttekt-
um, könnunum og ráðstefnum.
Búa yfir mikilli reynslu
Boðið er annars vegar upp á
námskeið fyrir hópa og vinnustaði
þar sem tekið er mið af aðstæðum,
sérþörfum og óskum þeirra. Hins
vegar er boðið upp á opin námskeið
sem allir geta skráð sig á.
Sérfræðingar Þekkingarmiðlunar
hafa mikla reynslu af námskeiða-
og fyrirlestrahaldi bæði hérlendis
og erlendis. Fjöldi innlendra sér-
fræðinga er á skrá hjá Þekking-
armiðlun og taka þeir að sér sér-
hæfð og krefjandi verkefni.
Þekkingarmiðlun hefur komið að
stórum og smáum verkefnum hjá
flestum stærstu fyrirtækjum lands-
ins.
„Við höfum reynt að tengjast fyr-
irlesurum og sérfræðingum sem
taka fyrir málefni og þema frá mis-
munandi sjónarhornum og út frá
sérfræðikunnáttu, hver á sínu
sviði.“
Hláturinn lengir lífið
Meðal annars er boðið upp á hlát-
urjóga, sem Ásta Valdimarsdóttir
stjórnar.
„Þetta eru æfingar sem efla hlát-
urinn hjá fólki og hafa jákvæð áhrif
á vinnustöðum, stofnunum eða í
hópum. Það er meira að segja til
Hláturkætiklúbbur sem hittist einu
sinni í viku til þess að iðka hlát-
uræfingar og þessi hópur er sann-
færður um að máltækið „hláturinn
lengir lífið“ sé satt og rétt,“ segir
Ingrid.
Þá er Jón Gnarr að þróa fyr-
irlestur um húmor af mismunandi
tegundum og hvaða áhrif slíkur
húmor hefur á vinnustaði og í lífinu
sjálfu.
„Jón er að fjalla um þjónustuna á
gamansaman hátt og þetta er alls
ekki nein vísindaleg úttekt á húm-
ornum. Hann er einfaldlega að
spyrja sjálfan sig og aðra hvað er
góð þjónusta og hvað er það ekki,
en hann notar húmorinn til að sýna
hvernig það virkar.“
Amerísk áhrif
Ágúst Guðmundsson kvikmynda-
leikstjóri er einnig meðal fyrirles-
ara Þekkingarmiðlunarinnar, en
hann tekur fyrir menningarstóriðj-
una og þá sérstaklega hvaða áhrif
amerískar kvikmyndir og sjón-
varpsþættir hafi á okkur íslendinga.
„Að mati Ágústs fáum við oftast
nær allt of einhliða mynd af lífinu,
eins og til dæmis hvernig hlutverk
konunnar er skilgreint og sýnt í
þessari framleiðslu,“ segir Ingrid.
Edda Björgvins hefur um lengri
tíma verið fyrirlesari á vegum
Þekkingarmiðlunarinnar, en hún
hefur þjálfað fólk í raddbeitingu og
framkomu. Fyrir þá sem þurfa að
tala allan daginn, kenna eða svara í
síma, eða horfa í myndavélar og
koma fram, er þetta mjög gagn-
legur fyrirlestur, að mati Ingridar.
„Eggert Skúlason hefur líka ver-
ið með fjölmiðlanámskeið, þar sem
tekin hafa verið viðtöl við fólk og
svo rýnt í þau á eftir. Hvernig á að
haga sér fyrir framan myndavélina
eða hljóðnemann getur oft verið
umhugsunarefni sem varðar fram-
komu fólks á öðrum sviðum þar
sem fólk er í framlínu og þjónustu,“
segir Ingrid.
Í vor gaf Ingrid út bók sem heitir
„Tímastjórnun í starfi og einkalífi“,
en bókin er að sögn Ingridar þróuð
upp úr fyrirlestrum, sem hún hefur
haldið um áraskeið.
Þekkingarmiðlunin býður nú líka
upp á lengri námskeið, meðal ann-
ars í ráðgjafarfærni og um listina
að stjórna fólki.
Einvala lið
hjá Þekking-
armiðluninni
Eyþór/Morgunblaðið
Ingrid Kuhlman og Eyþór Eðvarðsson reka Þekkingarmiðlun ehf
Þekkingarmiðlun ehf. er eiginlega tveggja manna
fyrirtæki en hefur líka á sínum snærum einvala
lið fyrirlesara. Menntun talaði við Ingrid Ku-
hlman framkvæmdastjóra.
Lækjargata 2a 101 Reykjavík sími 511-5001 opið 9.00 - 22.00 alla daga