Morgunblaðið - 18.08.2006, Side 36
36|Morgunblaðið
Bókarskrifin eru tilkomin vegna
þess að þær Þórhalla og Erla námu
saman við félagsvísindadeild Há-
skóla Íslands og völdu sér loka-
verkefni um kynfræðslu í íslensk-
um skólum.
„Við unnum svo áfram að þessu
verkefni og ákváðum að taka það
saman í kennslubók. Því miður
fengum við ekki nóg fé frá ríkinu
og þess vegna urðum við að stytta
það niður í núverandi form, sem er
heftið „Um stelpur og stráka“, sem
verður tekið inn sem námsefni við
suma grunnskóla í haust. Auk heft-
isins verður gefið út hefti með
kennsluleiðbeiningum fyrir kenn-
ara,“ segir Þórhalla.
Sjálfsvirðing mikilvæg
Erla segir að þær stöllur séu
sáttar við efnistökin og telja að
heftið muni opna fyrir umræður,
sem þær tvær telja mjög mik-
ilvægar.
Þær leggja áherslu á að sjálfs-
virðing og virðing fyrir öðrum séu
gífurlega mikilvægir þættir í kyn-
fræðslunni og að munurinn á kyn-
fræðslu og klámi komi vel fram í
heftinu, sem þær hafa skrifað.
„Efnið opnar fyrir umræðu um
það sem er í gangi í dag. Það er
svo mikill aragrúi af upplýsingum
sem berst unglingum í dag, bæði á
netinu, í sjónvarpi, dagblöðum og
tímaritum. Ekki er alltaf jafneinfalt
fyrir ungt fólk að átta sig á eðli
þessara upplýsinga og heftið er lið-
ur í heilbrigðri umræða um þessi
mál,“ segir Erla.
Þær Þórhalla segja að kennarar
geti notað heftið til þess að skapa
umræðu um það sem er á döfinni í
þjóðfélaginu hverju sinni og skýrt
málin og leiðbeint unglingunum.
Nauðsyn að taka afstöðu
„Nemendur eru langtum meðvit-
aðri en áður og flestir krakkar vita
hvað þau ætla að gera. Það er þess
vegna full þörf fyrir að nemendur
9. og 10. bekkjar taki afstöðu til
kynlífsins og mála sem því eru
tengd. Kennslan miðar að því að
gera krakkana ábyrga fyrir eigin
kynlífi og bera virðingu fyrir öðr-
um á þessu sviði,“ segir Þórhalla.
Höfundar heftisins telja að konur
eigi betra með að kenna kyn-
fræðslu en karlar.
„Já, við teljum að konum sé bet-
ur lagið að kenna þetta efni og
reynslan er sú að karlar á kenn-
arastól reyna oft að forðast þetta
efni eða gera sem minnst úr því.
Auðvitað eru til karlkyns kennarar
sem sinna þessu vel, en reynslan er
sú að konur fara betur yfir efnið og
dýpra í það, hverju sem það veldur.
Hér getur söguleg hlutverka-
skipting haft eitthvað að segja en
það hefur þó ekki verið rannsakað
sérlega eftir því sem við vitum
best. En það er auðvitað mjög mik-
ilvægt að karlar taki líka þátt í um-
ræðunni og kennslunni og sýni
samfélagslega ábyrgð í þessum efn-
um,“ segir Erla.
Samkynhneigð
Heftið fjallar um ýmis grundvall-
aratriði í kynþroska og kynlífi og
þar er samkynhneigð líka gerð skil
á eðlilegan hátt.
„Samkynhneigð er ekkert
undanskilin, allar hneigðir
eiga jafnan sess og mik-
ilvægt er að skýra þetta út
og veita leiðbeiningu.
Draumur okkar er að
krakkar séu ekki að vera
með öllum, en reyni að finna
sig sjálf og við vonum að
efnistökin geti aðstoðað þau
í þeim efnum.
Þá er fjallað um helstu
kynsjúkdóma, getn-
aðarvarnir, getnað, fæðingu
og aðra þætti kynlífsins út
frá íslenskum aðstæðum á
fræðandi og aðgengilegan
hátt í heftinu.“
Þær Þórhalla og Erla
ætla sér að halda starfinu
áfram og hugmyndin er að
vinna efni, sem nota má í
kennslu í framhaldsskól-
unum.
„Hér, sem víðar, eru peningarnir
vandamálið og við erum að sjálf-
sögðu háðar velvilja, áhuga og fjár-
veitingum yfirvalda til þess að
þessi hugmynd geti orðið að veru-
leika,“ segir Þórhalla og bætir við
að slíkt efni, unnið út frá íslenskum
veruleika og daglegu lífi hafi alltaf
vantað.
Heftið „Um stelpur og stráka“,
sem gefið var út í vor, verður tekið
til kennslu í haust og höfundarnir
eru báðar samþykktar sem náms-
efnishöfundar. Þær eru að leggja
hönd á leiðbeiningahefti fyrir kenn-
ara um þessar mundir, en það á að
vera tilbúið þegar grunnskólarnir
fara af stað í haust.
Bók um stelpur og stráka
Um stelpur og stráka heitir kennslubókin. Hún gengur út frá íslenskum aðstæðum.
Morgunblaðið/Eggert
Þórhalla Arnardóttir og Erla Ragnarsdóttir hafa samið kennsluhefti í kynfræðslu fyrir grunnskólana.
Í fyrsta skipti kemur
nú út á vegum Náms-
gagnastofnunar al-
íslensk kennslubók í
kynfræðslu. Höfundar
eru Þórhalla Arn-
ardóttir og Erla Ragn-
arsdóttir. Blaðamaður
Menntunar tók þær
stöllur tali.
Hellir býður upp á öflugt unglinga-
starf með æfingum, námskeiðum og
skólamótum. Námskeið eru haldin
fyrir þá unglinga sem eru duglegir
að taka þátt í starfi félagsins og
hafa náð nokkurri leikni í tafl-
mennskunni. Farið er yfir ýmis
grundvallaratriði skáklistarinnar,
helstu byrjunarleiki og endatöfl og
margt fleira. Þátttaka í mótum fé-
lagsins er öllum heimil og er þátt-
tökugjöldum stillt í hóf. Meðal
helstu móta félagsins er Meist-
aramót Hellis, sem fer fram á vorin
og er kappskák. Það er jafnan vel
skipað og sterkir skákmenn mæta
þar til leiks auk fjölmargra áhuga-
manna. Félagið stendur fyrir svo-
kölluðum hraðkvöldum og atkvöld-
um einu sinni á mánuði þar sem
tefld verður hraðskák og atskák.
Borgarskákmótið er hraðskákmót
sem Hellir heldur ásamt Taflfélagi
Reykjavíkur í Ráðhúsi Reykjavíkur
á afmælisdegi borgarinnar.
Margir af bestu skákmönnum
landsins eru í félaginu. Má þar
nefna stórmeistarana Hannes Hlíf-
ar Stefánsson, margfaldan Íslands-
meistara, Jón L. Árnason og Lenku
Ptácníková Einnig eru í félaginu al-
þjóðlegu meistararnir Karl Þor-
steins og Guðfríður Lilja Grét-
arsdóttir, auk margra bestu
skákmanna af yngri kynslóðinni, en
Hellir er þrefaldur Íslandsmeistari
taflfélaga í unglingaflokki. Kvenna-
og stúlknastarf í Helli er öflugt og
má þar nefna að Íslandsmeistarar
stúlkna hafa síðustu átta ár komið
úr Helli! Frekari upplýsingar um
starfsemi félagsins má finna á
www.hellir.com.
Skáknám-
skeið fyrir
unglinga
Morgunblaðið/Eggert
Nú er tækifæri
Nokkur pláss laus á
skrifstofubraut I
Ef þú hefur nokkra undirstöðu, m.a. í bókhaldi, tölvum og ensku
er möguleiki á að þú getir hafið nám á seinni önninni á
skrifstofubraut I og útskrifast um áramót.
Skrifstofubraut I er tveggja anna braut þar sem höfuðáhersla er
lögð á viðskipta- og samskiptagreinar.
Kennt er frá kl. 12:30 - 17:00.
Upplýsingar veitir fagstjóri viðskipta- og fjármálagreina
í símum 594 4000 og 824 4114. Netfang. ik@mk.is.