Morgunblaðið - 18.08.2006, Blaðsíða 38

Morgunblaðið - 18.08.2006, Blaðsíða 38
38|Morgunblaðið Hvað getur þú sagt okkur um til- drög símenntunarmiðstöðvanna? „Fræðslu- og símenntunarmið- stöðvarnar voru allar stofnaðar af heimamönnum vegna þess að þörf var í samfélaginu fyrir þá þjónustu sem símenntunarmiðstöðvarnar bjóða upp á í dag. Það var þörf fyr- ir stofnun sem hefði það markmið að efla símenntun meðal ein- staklinga og fyrirtækja og efla al- menna menntun á landsbyggðinni. Hver og ein miðstöð er sjálfseign- arstofnun og eru stofnaðar á mis- munandi tímum. Sú fyrsta var stofnuð 1998 og sú yngsta árið 2003. Í dag eru þessar miðstöðvar níu talsins og hafa bundist sam- tökum sem kallast Kvasir og er samvinnugrundvöllur þeirra.“ Hver er aðaláherslan í ykkar starfsemi? „Ég myndi segja að hægt væri að skipta starfsemi okkar í fernt. Það er að hvetja einstaklinga til að sækja sér menntun, námskeiðahald, náms- og starfsráðgjöf og fjarnám á háskólastigi.“ Hvetja til náms „Stór hluti af starfsemi okkar er að hvetja einstaklinga til að sækja sér nám í einhverju formi. Það get- ur verið óhefðbundið nám s.s. styttri námskeið eða hefðbundið nám sem er hluti af hinu formlega skólakerfi. Við reynum að nálgast einstaklingana þar sem þeir eru staddir og þurfum oft að leita t.d. inn á vinnustaði til að ná til þeirra. Við bjóðum upp á bæði stutt og löng námskeið. Þetta geta verið tómstundanámskeið, tungumál, tölvur, handverks- og/eða starfs- tengd námskeið. Flestar miðstöðvarnar hafa hald- ið úti aðstöðu við fjarnám í mörg ár. Mikið og gott samstarf hefur verið við háskólana í landinu um fjarnám á háskólastigi. Miðstöðv- arnar hafa haldið úti fjar- fundaaðstöðu sem m.a. Háskólinn á Akureyri hefur nýtt sér í ríkum mæli. Fjölmargir háskólanemar á landsbyggðinni hafa útskrifast með háskólapróf með þessum hætti án þess að þurfa að flytja úr sinni heimabyggð. Ég held að óhætt sé að segja að með því að færa menntunina með þessum hætti til einstaklinganna sé verið að gefa fleirum tækifæri á að mennta sig, sem að öðrum kosti hefði ekki orð- ið.“ Náms- og starfsráðgjöf Hverjar verða helstu áherslur ykkar í vetur? „Miðstöðvarnar hafa nýverið gert samning við Fræðslumiðstöð at- vinnulífsins um að sinna náms- og starfsráðgjöf fyrir einstaklinga sem eru úti á vinnumarkaði. Miðstöðv- arnar munu fara í fyrirtækin og kynna starfsfólki þessa þjónustu. Einnig vil ég benda öllum áhuga- sömum að hafa samband við sína stöð og panta sér tíma. Miðstöðvarnar hafa einnig samið við Fræðslumiðstöðina um ákveðnar námsleiðir sem eru þá niðurgreiddar af menntamálaráðu- neytinu. Þessar námsleiðir eru metnar til eininga inn í framhalds- skólana. Þetta er t.d. nám fyrir les- blinda, verslunarfagnám, land- nemaskólinn o.s.frv. Það er mismunandi hvað er í boði í hverri miðstöð, það fer eftir þörfum hvers svæðis fyrir sig.“ Hvernig metur þú árangur af starfi símenntunarmiðstöðvanna? „Í mínum huga er engin spurn- ing að miðstöðvarnar hafa skilað því sem ætlast var til og gott bet- ur. Starfsemin hefur blómstrað og aðsókn í námskeið og nám hefur aldrei verið meiri. Eitt meginmark- mið miðstöðvanna hefur verið að hjálpa þeim sem minnstu mennt- unina hafa til að komast af stað í nám og erum við mjög stolt yfir að sjá fjölmarga sem koma til okkar með enga menntun í upphafi út- skrifast með háskólapróf að lok- um.“ Starfsemi símenntunarmiðstöðvanna á lands- byggðinni hefur vaxið undanfarin ár. Símennt- unarmiðstöðvarnar á landsbyggðinni hafa bund- ist samtökum sem kallast Kvasir og tókum við Guðjónínu Sæmundsdóttur, formann Kvasis, tali til að fræðast um starfsemina. Guðjónína Sæmundsdóttir, formaður Kvasis. Gróska í símenntuninni á landsbyggðinni Ítarleg leit | Panta auglýsingu | Vinsælustu leitirnar | Mínar auglýsingar | Spurt og svarað | Setja í leitarstiku | Emblan þín! Leitarvélin sem kann íslensku Embla er umfangsmesta íslenska leitarvélin og jafnast í leitargetu á við það sem best þekkist hjá erlendum leitarvélum og búin einstökum eiginleikum fyrir íslenskar aðstæður. Emblan kann skil á eintölu, fleirtölu og beygingum íslenskra orða. Sé slegið inn orðið "hestur" skilar hún niðurstöðum með öllum beygingarmyndum orðsins. Embla leiðréttir einnig innsláttarvillur í íslenskum orðum sem slegin eru inn þegar leit er framkvæmd og býður upp á ítarlegri leit til að ná fram enn betri niðurstöðum. Ítarleg leit H V ÍT A H Ú S IÐ / S ÍA

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.