Morgunblaðið - 18.08.2006, Qupperneq 41
Morgunblaðið |41
Innritun hefst mánudaginn 21. ágúst og lýkur föstudaginn
25. ágúst.
Nemendur skólans þurfa að staðfesta umsóknir sínar á skrif-
stofu skólans Engjateigi 1, sem er opin virka daga kl. 12-18.
N‡ir nemendur teknir í forskóla. Sækja má um á heimasí›u. Almennt hljó›færanámí grunn-, mi›-
og framhaldsstigi
Strengjahljó›færi
Blásturshljó›færi
Píanó
Einsöngur
Trommur
Gítar
Harpa
Suzukinám frá 4ra ára
Fi›la, selló og píanó
Forskóli 6 - 8 ára
Samleikur
Hljómsveitir
Æfingaa›sta›a fyrir
nemendurEngjateigur 1 , 105 Reykjavík - sími: 568 5828 - http://tsdk.ismennt.is
er ekki langt undan!
Tónskólinn
Fræðslusetrið Starfsmennt var
stofnað árið 2001 til að sinna
heildstæðri þjónustu á sviði end-
ur- og símenntunarmála fyrir op-
inberar stofnanir og starfsmenn
þeirra.
Setrið er því þjónustuaðili
fræðslumála fyrir félagsmenn
þeirra fjölmörgu aðildarfélaga sem
að setrinu standa. Það metur þörf
fyrir fræðslu hjá einstökum stofn-
unum og stofnanahópum, kemur á
starfstengdum námskeiðum, legg-
ur fram nýjungar á starfsþróun-
arverkefnum og veitir stofnunum
ráðgjöf.
Margvísleg námskeið
„Starfsemi Fræðslusetursins
hefur falist að mestu leyti í því að
bjóða upp á margvísleg námskeið
sem styrkja persónulega hæfni
einstaklinga sem og getu þeirra í
starfi. Námskeiðin falla einkum
undir almenn námskeið, starfs-
tengd námskeið, netnámskeið og
Járnsíðu (skóli fyrir starfsmenn
sýslumannsembættanna). Jafn-
framt hefur setrið hrint úr vör
stóru starfsþróunarverkefni sem
ber heitið Ráðgjafi að láni og er
hugsað fyrir stofnanir sem vilja
koma á virkri símenntunaráætlun
fyrir starfsmenn sína. Hefur þetta
reynst mjög vel og hefur fjöldinn
allur af stofnunum tekið þátt í
verkefninu við góðan orðstír,“ seg-
ir Þórarinn.
Samningur um stofnun
Starfsmenntunar
Árið 2001 var gerður samningur
milli 19 stéttarfélaga innan BSRB
og fjármálaráðuneytisins um að
stofna Starfsmennt.
„Setrið þjónar einungis rík-
isstarfsmannahlutanum en ekki
starfsmönnum bæjarfélaga, ekki
enn sem komið er, þó þreifingar
hafi verið í þá átt.“
Umræður hafa þó verið um það
hvort bæjarstjórnarhluti BSRB
vildi nálgast sína viðmælendur til
þess að semja um svipuð réttindi.
„Áætlunin hefur frá upphafi
verið að setrið gæti þjónað stofn-
unum ríkisins og starfsmönnum á
sviði símenntunar, endurmennt-
unar og starfsþróunarmála,“ segir
Þórarinn.
Þórarinn segir að markmiðið
hafi verið að búa til setur þar sem
hægt væri að sækja sérfræðiþekk-
ingu og þjónustu við að greina þá
þætti sem styrkja starfsmenn
bæði í starfi og sem einstaklinga,
auka einstaklingsbundna hæfni og
starfshæfni.
Mikil gróska og vöxtur
„Umfang starfsins hefur vaxið
gríðarlega, það var greinilega
mikil þörf fyrir þetta. Vöxturinn
hefur verið stöðugur og ekki verð-
ur séð annað en að það verði
þannig áfram,“ segir Þórarinn.
Frá upphafi var farin sú leið að
byggja setrið upp sem verk-
efnamiðstöð, þannig að hægt væri
að nýta þá þekkingu námskeiða-
og kennarahópa sem eru að vinna
að endur- og símenntun í sam-
félaginu.
„Við lögðum áherslu á að búa til
samninga við þessa aðila, eins og
Framvegis, Verslunarskólann,
Fjölbrautarskólann á Akureyri
auk allra símenntunarstöðva á
landinu. Í stað þess að hafa hér
fjölda manns að störfum notum
við þá góðu aðstöðu sem flestir af
þessum aðilum hafa.
Við dreifum verkefnum frá okk-
ur til samstarfsaðila til að fram-
kvæma þau, þó eitthvað af verk-
efnum sé unnið hérna á setrinu.“
Þórarinn segir að Starfsmennt
sé í samstarfi við að jafnaði 12 til
15 samstarfsaðila, sem séu að
halda námskeið og sinna verk-
efnum á vegum setursins.
Fjölbreyttur
starfsmannahópur
„Við erum að bjóða uppá hátt á
annað hundrað þjálfunartilboð, um
140 kennarar og þjálfarar um land
allt sem koma að þeim verkefnum.
Við erum mjög ánægð með sam-
starfið við þessa aðila og þykir
framkvæmdin hafa tekist vel,“
segir Þórarinn.
Við Starfsmennt eru bara rúm-
lega tvö stöðugildi, en setrið sér
um alla hugmyndafræði og út-
færsluáherslur og einnig grunn-
skipulagið að því sem gert er, en
síðan taka samstarfsaðilar við.
„Þeir hafa svo svigrúm til að
finna bestu leiðir til að fram-
kvæma þetta á sem bestan hátt.
Starfsmannahópurinn sem við
sinnum er mjög fjölbreyttur. Við
erum með almenn námskeið til að
þjálfa persónulegan styrk og
hæfni og inn í þau námskeið getur
hver sem er komið.“
Tvö sérhönnuð námskerfi
„Við erum með tvö námskerfi
sem eru hönnuð frá grunni, annað
fyrir starfsmenn sýslumannsemb-
ættanna 26, sem tekur annars
vegar fyrir persónubundnar hæfn-
isþarfir og hins vegar starfs-
tengda þætti eins og sifjamál og
hvernig bregðast á við erfiðum
samskiptum við einstaklinga.
Þetta kerfi er kallað Járnsíða,“
segir Þórarinn.
Þórarinn segir að búið hafi ver-
ið til kerfi sem heitir áfangar, og
að það sé fyrir starfsmenn sem
vinna að fangelsismálum og sé það
byggt upp á svipaðan hátt.
Vinsælt tölvunámskeið
„Svo erum við með gríðarlega
vinsælt tölvunámskeið sem bara
er keyrt á netinu. Við erum svo í
samstarfi við þjálfunarfyrirtæki
sem fylgir eftir hverjum ein-
stökum, sem tekur þátt í nám-
skeiðinu. Okkur finnst þeir vera
að gera alveg frábæra hluti því
þátttakendur á námskeiðinu eru
ekki bara einir um að fást við tölv-
una heldur fá aðstoð og leiðbein-
ingar frá þessum aðila.
Við erum með stórt verkefni
sem heitir Ráðgjafalánið, þar sem
við bjóðum öllum starfsmönnum
ríkisins að fá til sín ráðgjafa til
þess að greina þörfina fyrir end-
ur- og símenntun. Ráðgjafarnir
skoða hvaða aðferðir stofnanirnar
nota til þess að halda utan um
þróun starfsmanna sinna og gera
svo tillögur að því hvernig staðið
skuli að námskeiðum og þjálfun ef
á þarf að halda,“ segir Þórarinn
að lokum.
Starfsmennt –
öflugur sam-
starfsaðili
Morgunblaðið/Ásdís
Þórarinn Eyfjörð hjá Fræðslusetrinu Starfsmennt er
ánægður með samstarfsaðila setursins.
Fræðslusetur BSRB – Starfsmennt stendur fyrir
margvíslegum námskeiðum fyrir meðlimi sína.
Við hittum Þórarin Eyfjörð, framkvæmdastjóra
Fræðslusetursins Starfsmennt