Morgunblaðið - 18.08.2006, Qupperneq 46

Morgunblaðið - 18.08.2006, Qupperneq 46
46|Morgunblaðið Myndlistarskóli Kópavogs var stofnaður haustið 1988. Stofn- endur skólans eru Sigríður Ein- arsdóttir og Sólveig Helga Jón- asdóttir og ráku þær skólann þar til skólafélag var stofnað. Skóla- stjórnendur nú eru Ingunn Erna Stefánsdóttir og Sigríður Ein- arsdóttir. Sumarnámskeið Sumarnámskeið eru orðin markviss þáttur í starfi skólans. Námskeiðið stendur yfir í eina viku í júní, á hverjum degi frá kl. 9.00 á morgnana til kl. 14.00 eftir hádegi. Þar er kennt bæði í barna- og fullorðinsdeildum. Nemendur teikna og mála bæði utan og innan dyra. Nú er einnig boðið upp á námskeið síðdegis á milli kl. 16.00 og 20.00 þessa viku. Skólafélag Myndlistarskóla Kópavogs var stofnað 4. apríl 1991. Í lögum félagsins kemur fram að skólinn sé sjálfseign- arstofnun og sé rekinn með nám- skeiðsgjöldum og styrkjum. Fyrsti formaður félagsins var Kristján Guðmundsson, fyrrum bæjarstjóri. Heimir Pálsson cand. mag. var formaður skólafélagsins 1995–1999. Kristín Líndal var formaður frá 1999–2002. Núver- andi stjórn skipa Bragi Mich- aelsson formaður, Derek Mundell, Ingiberg Magnússon, Ingunn Erna Stefánsdóttir, Kristín Lín- dal, Sigríður Einarsdóttir og Sól- veig Helga Jónasdóttir. Mikil aukning nemenda Fyrsta árið sem skólinn var starfræktur var einungis boðið upp á kennslu fyrir börn og ung- linga á aldrinum 6–15 ára. Mikil aðsókn var að skólanum og færri komust að en vildu, þess vegna var deildum fjölgað. Nú á sex- tánda starfsári skólans er nem- endafjöldinn á hverju námskeiði um 300 og eru nemendur 600–700 yfir skólaárið. Skólinn hafði fyrst aðsetur í 109 fermetra leiguhúsnæði í Auð- brekku 2. Með fjölgun námskeiða þurfti stærra húsnæði og flutti skólinn starfsemi sína úr Auð- brekku 32 í rúmlega 200 fer- metra leiguhúsnæði. Þá færði skólinn sig um set í Íþróttahúsið Digranes við Skálaheiði. Nýtt húsnæði Myndlistarskólinn hefur með sannfærandi hætti sýnt gildi sitt á þeim fimmtán árum sem hann hefur starfað. Hefur og bæj- arstjórn Kópavogs viðurkennt og virt starfið mikils eins og meðal annars sést í því að skólanum hefur verið fengið húsnæði til frambúðar í glæsilegri nýbygg- ingu í miðbæ Kópavogs, í Fann- borg 6, og hefur hann þar um- talsverða stækkunar- og þróunarmöguleika. Er stefnt að því að gera samstarfssamning milli skólans og kaupstaðarins til að skjóta tryggari stoðum undir reksturinn og auka þjónustu við bæjarbúa. Föst fjárlög frá ríkinu Árið 1994 varð sú breyting á að Myndlistarskóli Kópavogs komst á föst fjárlög frá ríkinu og var það mikill ávinningur fyrir skólann. Nemendum Mennta- skólans í Kópavogi er boðið upp á nám í Myndlistarskólanum sem metið er til námseininga. Til að auðvelda nemendum að stunda námið hefur menntaskólinn tekið þátt í greiðslu námsgjalda. Meðal nýjunga í starfi skólans er opin vinnustofa, dagskóli, þar sem lögð er áhersla á sjálfstæð vinnubrögð og kennari mætir einu sinni í annarri hvorri viku. Tilraunakennsla hefur farið fram í tölvumyndlist fyrir unglinga, en Myndlistarskóla Kópavogs, Mynd- listarskólanum á Akureyri og Myndlistarskólanum í Reykjavík var boðið að taka þátt í sam- starfsverkefni ásamt Hollandi, Noregi, Danmörku, Finnlandi og Svíþjóð. Myndlistarskólinn á Ak- ureyri hafði umsjón með fram- kvæmdinni. Nafn verkefnisins er „Yean“ (Young European’s Art Network). Yean verður bæði not- að á skapandi hátt og til listsköp- unar á netinu. Unnið verður að því að setja upp evrópskt sam- starfsnet um myndlistarkennslu og listuppeldi sem mun taka mið af aðstæðum í Evrópu, menningu og listaarfleifð þjóða og þjóð- arbrota. Sérstök áhersla verður lögð á að nýta nýja stafræna miðla í þessu samstarfi. Tölvumyndlistarnámskeið Sumarið 1999 var haldið fjöl- mennt tölvumyndlistarnámskeið á Akureyri og voru þátttakendur myndlistarkennarar og unglingar frá fimm löndum, samtals um 50 manns. Við komuna til Reykjavík- ur í lok námskeiðsins tóku Mynd- listarskólinn í Reykjavík og Myndlistarskólinn í Kópavogi á móti þátttakendum. Kópavogsbær hafði móttöku í Listasafni Kópa- vogs, Gerðarsafni, og hið nýja húsnæði skólans var skoðað. Skóinn átti þess kost í fram- haldi af samvinnu myndlistarskól- anna þriggja að senda þrjá nem- endur ásamt kennara, Ingunni Ernu Stefánsdóttur, á myndlist- arnámskeið til Finnlands. Ferðin var styrkt af Norrænu menning- armálanefndinni og menningar- málanefnd Jyvaskyla, bæjarins þar sem námskeiðið var haldið. Jafnframt fóru fjórir nemendur frá Myndlistarskóla Reykjavíkur ásamt kennara, Margréti Frið- bergsdóttur. Vinna nemenda var fjölbreytt og námskeiðið ánægju- legt. Nýjung 2004–2005 Fullorðinsdeildum skólans hef- ur fjölgað til muna síðustu vetur. Aðsókn hefur verið mikil og er nú kennt fjóra morgna í viku frá kl. 9–00 á morgnana. Þessir tímar hafa verið mjög vinsælir og hefur það færst í vöxt að bæði heimavinnandi húsmæður og feð- ur hafi nýtt sér þessa tíma. Námskeið fyrir eldri borgara hefur verið mjög vinsælt og vel sótt. Hefur þar farið fram faglegt nám í vatnslitamálun, en kennari er Erla Sigurðardóttir. Myndlistarskóli Kópavogs Bjarni hefur kennt við Myndlist- arskólann og haldið fjöldamargar sýningar á verkum sínum, bæði einkasýningar og einnig hefur hann tekið þátt í samsýningum. Verk hans hafa meðal annars verið sýnd á Kjarvalsstöðum. Í kennslustörfunum hefur hann mjög ákveðnar hugmyndir um hvernig staðið skuli að verki. Afkastamiklir nemendur „Í kennslunni hef ég alltaf verið settur í að kenna nemendum að vinna málverk. Þetta er verklegt nám, en það er þó ekki þannig að þú fáir einhverja sniðuga hugmynd og framkvæmir hana svo. Þetta snýst um það að láta verkið vaxa með því að gera hlutinn, þetta er ferli. Maður byrjar einhver staðar og svo athugar maður sinn gang í ferlinu og kennarinn leiðbeinir nemendum á leiðinni,“ segir Bjarni. Á síðasta námskeiði voru tíu þátttakendur, nær allt konur. Bjarni segir að afköst nemenda hafi verið með ólíkindum og nefnir sem dæmi að einn af nemendunum hafi málað fimm myndir á tveimur vikum. Og það eru ekki nein frí- merki sem verið er að tala um, málverkin eru stór og greinilega mikil vinna lögð í þau. „Nemendurnir voru sveittir við störfin og það var mjög mikill kraftur í þeim. Á tveggja vikna námskeiði þýðir slík framleiðsla að fólk er alveg búið á eftir. Ég reyni að örva nemendurna til dáða, en það er líka mjög mikilvægt að um- ræður fari fram og að nemendurnir tali saman og rýni í verk hver ann- ars. Oft sömu nemendur Ekki er enn alveg ákveðið hvort námskeið í málun verði boðið í haust eða hvort beðið verði til vors- ins. Bjarni segir að verið sé að skoða þau mál þessa dagana. „Það er mikilvægt að hópurinn sé rétt samansettur, að maður skynji svolítið hvernig nemendurnir eru og hvernig hægt sé að ýta hverjum og einum áfram. Sumir nemendur hafa verið á námskeiðum í fimm eða sex ár áður en þeir koma hingað og kunna grunn- atriðin og tæknina eða hafa verk- legu kunnáttuna. Mitt hlutverk hef- ur verið að koma þeim upp á svolítið krítískara plan,“ segir Bjarni. Bjarni fékk Jón Proppé til að mæta á síðasta námskeið til þess að gagnrýna verk nemendanna og það var alveg fimm tíma umræða. „Nemendurnir voru náttúrlega búnir að hlusta á mig, en hann kom með meira listsögulegt sjónarhorn og þannig fengu nemendurnir svo- lítið aðra vídd í það sem þeir voru að fást við,“ segir Bjarni. Morgunblaðið/Brynjar Gauti Bjarni Sigurbjörnsson listmálari trúir á ferlið í myndlistarkennslu sinni. Notar ferli í myndlistarkennslunni Bjarni Sigurbjörnsson myndlistarmaður trúir á ferlið í kennslu sinni. Síðan í fyrrahaust hefur hann kennt litaglöðum Kópavogsbúum að mála hjá Myndlistarskólanum í Kópavogi. Við hittum hann að máli. Hvanneyri • 311 Borgarnes • s. 433 5000 • www.lbhi.is Landbúna›arháskóli Íslands Endurmenntun í Landbúna›arháskólanum Vi› bjó›um fjölbreytt úrval endurmenntunarnámskei›a sem sni›in eru a› flörfum ólíkra hópa. Sko›a›u heimasí›una okkar og fá›u nánari uppl‡singar. Kynntu þér allt um skólamat á www.skolamatur.is Fréttir í tölvupósti

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.