Morgunblaðið - 18.08.2006, Síða 50
50|Morgunblaðið
Kennsla hefst
þriðjudaginn 22. ágúst
Austurbergi 5 111 Reykjavík Sími 570 5600
Símbréf 567 0389 Tölvupóstur: fb@fb.is
www.fb.is
Kvöldskóli FB
Félagsgreinar – Íslenska – Íþróttafræði
Myndlist – Rafiðnir – Raungreinar
Sagnfræði – Sjúkraliðagreinar – Stærðfræði
Tréiðnir – Tungumál – Viðskiptafræði
Upplýsingatækni
130 spennandi áfangar í boði
Eiginlega stóð til að rífa húsið þar
sem Hæstiréttur Íslands hélt áður til,
en svo varð úr að Þjóðleikhúsið fékk
þar aðstöðu. Þó hefur hvorki húsið né
innviðir og húsgögn verið friðuð – alla
vega ekki ennþá.
„Fræðsludeildin var stofnuð 2002.
Ég fékk þessa hugmynd meðan ég
var að vinna sem leikstjóri og aðstoð-
arleikstjóri. Fyrirmyndin er sótt til
Royal National Theatre í London en
þar hafa menn verið mjög leiðandi í
þessu starfi,“ segir Vigdís.
Áhersla á yngra fólk
Nýr kynningarstjóri var ráðinn við
leikhúsið árið 2001 og hann fékk það í
gegn að leitað væri til styrktaraðila,
til að styrkja starfsemi leikhússins.
Íslandsbanki gerðist stuðningsaðili
og fjórar hugmyndir voru lagðar
fram, meðal annarra hugmyndin að
fræðsludeild.
„Þáverandi leikhússtjóri sýndi
þessari hugmynd mikinn velvilja og
ég byrjaði í hlutastarfi sem eini
starfsmaður deildarinnar árið eftir.
Nú eru starfsmenn tveir í fullri stöðu
en Þórhallur Sigurðsson leikstjóri
starfar hér einnig.“
Þjóðleikhúsið hefur á stefnuskrá
sinni að leggja aukna áherslu á yngri
kynslóðina og fyrsta sýningin sem
sett var á fjalirnar var „Leitin að jól-
unum“ sem hlaut Grímuna fyrir
skemmstu.
„Ætlunin er að vera með fimm til
sex barnasýningar í vetur og þar af er
ein sýninganna ætluð börnum á aldr-
inum níu mánaða til þriggja ára. Sýn-
ingin heitir „Skoppa og Skrýtla“ og
er mjög skemmtileg,“ segir Vigdís.
Leikhús fyrir alla
Mottó Þjóðleikhússins er leikhús
fyrir alla.
„Það þýðir ekki bara alla aldurs-
flokka heldur líka alla starfshópa og
aðra hópa sem hafa sérþarfir. Verið
er að bæta aðgengi fyrir hreyfihaml-
aða og þegar eru komnir rampar og
lyftur í húsið.“
Fræðsludeildin ætlar að fylgja
þessu starfi eftir og meðal annars er
stefnt að því að sinna unglingum sér-
staklega.
„En við erum líka með áætlanir um
námskeið fyrir heyrnarlausa og það
fer þannig fram að þeim er boðið að
koma á forsýningu þar sem þeir fá
söguþráð verksins á táknmáli. Svona
námskeið eiga ekki síst við fyrir fjöl-
skyldur þar sem einn aðili er heyrn-
arlaus,“ segir Vigdís.
Fyrsta námskeiðið er byggt kring-
um leikritið „Sitji guðs englar“, sem
frumsýnt verður í september.
„Hugmyndin að námskeiðinu er
fædd hér og við erum skiljanlega
mjög spennt að sjá hvernig til tekst.“
Einnig fyrir nýbúa
Það er síður en svo hlaupið að því
að njóta leiksýninga á erlendu tungu-
máli og hingað til hefur þörfum ný-
búa á þessu sviði verið sinnt, þótt
þeim hafi fjölgað verulega á síðustu
árum.
„Við ætlum að hafa námskeið fyrir
nýbúa í samstarfi við Alþjóðahús og
verður fyrsta námskeiðið haldið í
haust eða vetur. Sýningin heitir
„Stórfengleg“ og fjallar um verstu
söngkonu heims, er Florence Foster
Jenkins hét. Þótt hún hafi komist í
Carnegie Hall eitt sinn var það ein-
vörðungu fyrir þær sakir að hún var
vellauðug og gat tekið salinn á leigu,“
segir Vigdís.
Að sögn hennar eru til hljóðritanir
af söng Florence sem sanna fullyrð-
inguna um verstu söngkonu heims,
en með aðalhlutverkið í leikritinu fer
Ólafía Hrönn Jónsdóttir.
„Þessi sýning er aðgengileg og
hægt að nota hana í íslenskunámi fyr-
ir nýbúa. Við vonumst líka til að þetta
virki fyrir blandaðar fjölskyldur og
hópa.“ Á námskeiðinu fá þátttak-
endur að koma baksviðs, hitta leikara
á æfingu og þeim verður kynntur
söguþráðurinn á einfaldri íslensku.
Vill efla leiklist í skólum
Vigdís segir að leiklistarstarfið í
skólunum hafi hingað til einkum
beinst að kennurunum, en fræðslu-
deildin hefur haldið námskeið þar
sem takmarkið er að efla hlut leiklist-
arinnar í íslenskum skólum.
„Við viljum ná til ungra áhorfenda,
þetta er hópur sem eldist og þarf að
venjast leiklistinni þegar á unga aldri.
Þótt nýir miðlar hafi verið í sókn upp
á síðkastið finn ég til ákveðinnar
sveiflu til baka til hefðbundinnar
menningar um þessar mundir,“ segir
Vigdís.
Hún segir að markmiðið sé að
koma leiklistinni inn í skólakerfið sem
sérstakri námsgrein á borð við mynd-
list eða tónlist.
„Leikræn tjáning og lífsleikni eru
náttúrlega til en þetta eru þverfag-
legar greinar og við viljum þróa þetta
áfram og tryggja leiklistinni ákveðinn
grundvöll.“
Sem dæmi um sókn leiklistarinnar
í skólakerfinu nefnir hún að Kenn-
araháskólinn sé að bjóða upp á leik-
listarnám í vetur og einnig að stofnað
hafi verið í fyrra Félag um leiklist í
skólastarfi (FLÍSS).
„Fræðsludeildin hjálpar til, veitir
aðstöðu og hefur meðal annars starf-
rækt vinnusmiðju fyrir kennara. Við
erum með fastan hóp kennara, þetta
tíu til tólf á ári, sem hafa sótt nám-
skeið hjá okkur reglubundið. Við vilj-
um að þetta verði vettvangur þeirra
og við ætlum að styðja þessa þróun,“
segir Vigdís.
Nefna má að erlendir leiklist-
arkennarar hafa komið hingað á veg-
um fræðsludeildarinnar til þess að
halda námskeið.
Fræðslupakkar fyrir kennara
Fræðsludeild Þjóðleikhússins hef-
ur einnig útbúið svokallaða fræðslu-
pakka sem ætlaðir eru kennurum.
„Ég get nefnt sem dæmi leiksýn-
inguna „Sitji guðs englar“ en þar
verður fjallað um höfundinn og sögu-
sviðið sem er hernámsárin. Þetta get-
ur átt vel við þegar verið er að fjalla
um þetta efni í sögunni og einnig
munum við lána kennurum búninga
og hluti frá þessum árum sem nota
má í kennslunni á ýmsan hátt,“ segir
Vigdís.
Annað dæmi sem Vigdís nefnir er
sýningin „Patrekur 1,5“ en í því sam-
bandi verður fræðslupakkinn lífs-
reynslumiðaður.
„Við reynum að grípa það sem er
kennslufræðilega nothæft í starfi
leikhússins og miðla því til skólanna.
Annars erum við að byggja upp vef-
síðu, það verða skipulagðar skóla-
heimsóknir og byggðir upp tengla-
hópar en því miður eigum við ekki
nóga peninga til að kynna þessa starf-
semi nægjanlega,“ segir Vigdís sem
lofar að upplýsingar verði bráðlega
vel aðgengilegar á vefsíðunni
www.leikhusid.is þar sem hægt er að
fara inn á fræðsludeildina.
Vill efla
leiklistina
í skólunum
Morgunblaðið/Eyþór
Vigdís Jakobsdóttir í Fræðslu-
deild Þjóðleikhússins undirbýr
stórsókn á vegum leiklistarinnar.
Morgunblaðið/Eggert
Það er fleira enytra byrði Þjóð-
leikhússins sem hefur verið gert
upp og endurbætt. Inni í húsinu eru
komnar lyftur og rampar fyrir
hreyfihamlaða.
Í hinu gamla og æruverðuga húsnæði Hæsta-
réttar Íslands við Lindargötu er fræðsludeild
Þjóðleikhússins nú til húsa. Þar undirbýr Vigdís
Jakobsdóttir stórsókn á vegum leiklistarinnar.
AUGLÝSINGADEILD
netfang: augl@mbl.is eða sími 569 1111