Morgunblaðið - 29.08.2006, Síða 2
2 ÞRIÐJUDAGUR 29. ÁGÚST 2006 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
2
3
12
0
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir frett@mbl.is Fréttastjórar Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Viðskiptablað vidsk@mbl.is Umsjón Björn Jóhann Björns-
son, bjb@mbl.is Daglegt líf Guðbjörg Guðmundsdóttir, gudbjorg@mbl.is Menning menning@mbl.is Fríða Björk Ingvarsdóttir, ritstjórnarfulltrúi, fbi@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins Guðlaug Sigurðardóttir, ritstjórnarfulltrúi, gudlaug@mbl.is Sveinn Guðjónsson,
svg@mbl.is Minningar minning@mbl.is Hilmar P. Þormóðsson, Stefán Ólafsson Dagbók| Kirkjustarf Ellý H. Gunnarsdóttir, elly@mbl.is Íþróttir sport@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Útvarp | Sjónvarp Auður Jónsdóttir, dagskra@mbl.is mbl.is
netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is
Morgunblaðið í dag
!
"
#
$
%
&
'() *
+,,,
Í dag
Sigmund 8 Suðurnes 19
Veður 8 Forystugrein 26
Staksteinar 8 Umræðan 28
Úr verinu 11 Minningar 28/35
Viðskipti 14 Myndasögur 44
Erlent 15/16 Staðurstund 44/49
Menning 17, 38/43 Víkverji 48
Akureyri 18 Velvakandi 48
Austurland 18 Ljósvakamiðlar 50
* * *
Innlent
Bæklunarlæknar og fleiri sér-
greinalæknar sem starfa sjálfstætt
utan stofnana íhuga að fara að dæmi
hjartalækna og segja sig af samningi
við Tryggingastofnun ríkisins. » 4
Banaslys varð í gær þegar stúlka
um tvítugt lést í umferðarslysi á
Eiðavegi skammt frá Egilsstöðum.
Bifreið sem stúlkan ók rakst á sorp-
hirðubifreið úr gagnstæðri átt. Alls
hafa 19 látist í umferðinni í ár. » 52
Nýtt áhættumat vegna Kára-
hnjúkavirkjunar var kynnt á stjórn-
arfundi Landsvirkjunar í gær og
kemur fram að áhættan sé innan við-
unandi marka, eins og áður hefur ver-
ið talið. » 6
Íslensk fjölskylda í Danmörku
varð vitni að öflugri sprengingu á sól-
baðsstofu í Frederiksberg í gær-
kvöldi. Hús Íslendinganna er í um
700 metra fjarlægð frá sprenging-
unni. » 1
Erlent
Mikil flóð í Rajasthan-ríki á Ind-
landi eru talin hafa kostað allt að 150
manns lífið. Vatnið er allt að 18 metra
djúpt í mörgum þorpum. » 16
Tugir manna lágu í valnum eftir
sprengjuárásir og hörð átök í Írak í
gær og ekkert bendir til þess að óöld-
inni í landinu linni á næstunni þrátt
fyrir aukna öryggisgæslu. » 15
Austurrísk táningsstúlka, sem
slapp frá mannræningja á miðviku-
dag eftir að hafa verið átta ár í haldi
hans, segist hafa sætt sig við að hann
væri hluti af lífi hennar. Maðurinn
fyrirfór sér eftir að stúlkan slapp og
hún kveðst „syrgja hann á vissan
hátt“. » 16
Saksóknarar í Colorado í Banda-
ríkjunum hafa ákveðið að falla frá
ákæru á hendur John Mark Karr,
kennara sem játaði á sig morð á sex
ára stúlku, „fegurðardrottningunni“
JonBenet Ramsey, fyrir tíu árum. » 1
Viðskipti
Bankar á Íslandi skera sig úr í
norræna bankaumhverfinu, segir í
nýútkominni skýrslu um norræna
bankakerfið. » 14
KONAN sem lést
í umferðarslysi
við Faxabraut í
Keflavík á sunnu-
dagskvöld, hét
Bryndís Zophoní-
asdóttir til heim-
ilis að dvalar-
heimili aldraðra
að Hlévangi í
Keflavík. Hún var fædd 4. septem-
ber árið 1931 og lætur eftir sig einn
son.
Lést í
bílslysi
MAÐURINN
sem lést í vinnu-
slysi á athafna-
svæði Íslenska
gámafélagsins á
Álfsnesi við
Kollafjörð á laug-
ardag hét Jens
Willy Ísleifsson,
til heimilis að
Frostafold 22 í Reykjavík. Jens var
fæddur 25. nóvember 1959 og var
ókvæntur og barnlaus.
Lést í
vinnuslysi
UNNIÐ er að því að fylla upp í Reykjavíkurhöfn á milli
Faxagarðs og Ingólfsgarðs um þessar mundir en sam-
kvæmt deiliskipulagi og tillögu að fyrirhuguðu tónlist-
arhúsi þarf að færa bakkann er nefnist Austurbugt. Er
þetta hluti af framkvæmdum við undirbúning lóð-
arinnar fyrir tónlistarhúsið og er verkið unnið af Ís-
lenskum aðalverktökum. Stefán Hermannsson, fram-
kvæmdastjóri Austurhafnar, segir að verkið gangi vel
en á svæðinu þarf að fylla upp í um tuttugu metra belti.
Í framhaldi af því verða rekin niður þil til að afmarka
lóðina.
Undirbúningur við niðurrif Faxaskála er þegar haf-
inn og reiknar Stefán með því að fljótlega í næsta mán-
uði verði hafist handa við að brjóta hann niður en nú
þegar er byrjað að rífa innan úr skálanum.
Stefán segir að undirbúningur við lóðina gangi mjög
vel og hann sé á áætlun, þá séu umferðartafir vegna
framkvæmdanna óverulegar.
Morgunblaðið/RAX
Landfyllingar vegna tónlistarhúss
Eftir Andra Karl
andri@mbl.is
TILLAGA meirihlutans í umhverf-
isráði um að afnema bann við
hundahaldi í Reykjavík var sam-
þykkt einróma á fundi ráðsins í
gærdag. Tillagan verður nú send
borgarstjórn og ef hún verður sam-
þykkt þar verður endi bundinn á 82
ára bann við hundahaldi í borginni.
Formaður Hundaræktarfélags Ís-
lands segir að nú verði hundaeig-
endur að sýna í verki að þeir séu
traustsins verðir.
Gísli Marteinn Baldursson, for-
maður umhverfisráðs Reykjavíkur-
borgar, segir það söguleg tíðindi að
tillaga hans um að snúa við banni
við hundahaldi í borginni hafi náð
fram að ganga.
„Það er frábært fyrir borgina,
held ég, því að með þessu sköpum
við jákvæðara andrúmsloft gagn-
vart hundaeigendum,“ sagði Gísli
sem hins vegar boðar hertar að-
gerðir gegn þeim sem brjóta gegn
samþykktum borgarinnar um
hundahald. „Þó svo að við ætlum að
leyfa þetta frekar en að banna mun-
um við fylgja þeim skilyrðum sem
menn þurfa að uppfylla fyrir leyfinu
mjög hart eftir. Við ætlum ekki að
líða það að menn séu með hundana
sína lausa þar sem það má ekki og
meginreglan er auðvitað sú að
lausaganga hunda er bönnuð í borg-
inni, nema á tilteknum, afgirtum
svæðum,“ segir Gísli og nefnir auk
þess að ekki verði liðið að eigendur
taki ekki upp eftir hunda sína.
Hundahald hefur verið bannað í
Reykjavík frá árinu 1924 og því
telst það til nokkurra tíðinda ef það
verður afnumið nú 82 árum síðar.
Gísli segir að tillagan hafi verið
send borgarstjórn þar sem hún
verður tekin til samþykktar og býst
hann ekki við miklum deilum. „Það
er ekki útlit fyrir að þar verði mikl-
ar deilur því þetta var samþykkt
einróma, af öllum flokkum í
ráðinu,“ segir Gísli sem hefur m.a.
þegar rætt við lögreglustjóra um að
taka harðar á brotum gegn lögum
um hundahald. Hann segir að þeir
sem vilji vera án hundanna verði að
geta lifað og hrærst í borginni án
þess að verða fyrir ónæði af völdum
þeirra.
Samþykkja afnám
banns við hundahaldi
„ÞAÐ ER gott að ég sit,“ sagði
Jóna Theódóra Viðarsdóttir, for-
maður Hundaræktunfélags Ís-
lands, þegar blaðamaður Morgun-
blaðsins tjáði henni að tillagan
hefði verið samþykkt í umhverf-
isráði. „Ég var alveg undirbúin
undir það að þetta næðist loksins í
gegn en þetta eru þvílík gleðitíð-
indi,“ bætti Jóna við.
Hún segist geta vænst þess að
öll önnur sveitarfélög á landinu
fari að fordæmi borgarinnar.
„Þvílík
gleðitíðindi“
ENGIN slys urðu á fólki þegar olíu-
bifreið valt í Jökulsárhlíð á Héraði
á sjötta tímanum í gærdag. Sam-
kvæmt upplýsingum frá lögregl-
unni á Seyðisfirði valt bíllinn á hlið-
ina þegar vegkantur gaf sig en
bifreiðin mætti þá öðrum flutn-
ingabíl. Ökumaður var einn í bíln-
um, slapp án meiðsla og komst
sjálfur út úr bifreiðinni. Lítilsháttar
olíuleki varð vegna óhappsins en að
sögn lögreglu var hann minnihátt-
ar – um 14 þúsund lítrar af olíu
voru í tanki bílsins. Bifreiðin er tal-
in töluvert skemmd.
Olíubíll valt
í Jökulsárhlíð
Yf ir l i t