Morgunblaðið - 29.08.2006, Side 7

Morgunblaðið - 29.08.2006, Side 7
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 29. ÁGÚST 2006 7 FRÉTTIR VÍGLUNDUR Þorsteinsson, for- maður stjórnar Lífeyrissjóðs versl- unarmanna, segist munu senda fyrr- verandi stjórn fjárfestingarbankans Straums- Burðaráss fyr- irspurnir sínar nú um mán- aðamótin í fram- haldi af hluthafa- fundi bankans í sumar. „Ég mun senda gömlu stjórninni í Straumi bréf með mínum spurningum núna um mánaðamótin. Þær eru nokkrar sem ég þarf að krefja þá svara við og ég ætla að gefa þeim tækifæri til þess að lesa bréf mitt og svara spurningunum áður en ég tjái mig frekar,“ sagði Víglundur spurður um þá gagnrýni sem Björgólfur Thor Björgólfsson setur fram á hann í viðtali í sunnu- dagsblaði Morgunblaðsins. Sendir bréf um mánaðamótin Víglundur Þorsteinsson ÁFRAMHALDANDI stjórnarsam- starf Sjálfstæðisflokks og Fram- sóknar er það fyrirkomulag sem ríflega þriðjungur kjósenda vill sjá að loknum næstu kosningum en næst kemur stjórn VG og Samfylk- ingar með um 15% fylgi, skv. nýrri skoðanakönnun Fréttablaðsins. Hringt var í 800 kjósendur 26. ágúst og skiptust svarendur jafnt eftir kyni og hlutfallslega eftir kjördæmum. Spurt var: Eftir næstu kosningar, hvaða stjórnmálaflokk- ar vilt þú að myndi næstu rík- isstjórn? Afstöðu tók 61% svarenda. Svörin voru á þá leið að 32,2% svarenda vildu sjá Sjálfstæðisflokk og Framsóknarflokk mynda næstu ríkisstjórn, 14,8% vildu VG, Sam- fylkingu og Frjálslynda, 6% VG, Samfylkingu og Framsókn, 15% Samfylkingu og VG, 12,3% Sam- fylkingu og Sjálfstæðisflokk, 9,2% VG og Sjálfstæðisflokk og 10,5% svarenda vildu annað. Ríflega þriðjung- ur vill sömu ríkisstjórn áfram GLITNIR verður aðalstyrktaraðili Óslóarmaraþonsins sem fer fram 1. október næstkomandi og var sam- komulag þess efnis undirritað í gær- morgun í Noregi. Líkt og í Reykja- víkurmaraþoninu fyrr í mánuðinum mun Glitnir hvetja starfsmenn sína í Noregi til að leggja góðu málefni lið í hlaupinu og heitir 250 norskum krón- um á hvern kílómetra sem starfsfólk bankans hleypur, sem jafngildir tæp- um 2.800 íslenskum krónum. Féð mun renna til góðgerðarmála að vali hvers starfsmanns en að auki verður heitið 50 norskum krónum, jafngildi um 560 íslenskra króna, á norska krabbameinsfélagið fyrir hvern kíló- metra sem starfsfólk bankans hleyp- ur. Bjarni Ármannsson, forstjóri Glitnis, sagði í samtali við Morg- unblaðið í gær, að hann teldi þetta vera gott tækifæri fyrir bankann til að kynna sig í Noregi. „Við höfum keypt sex fyrirtæki með mismunandi nöfnum í Noregi sem við höfum verið að þétta saman undir nafni Glitnis og þetta er fyrsta stóra skrefið í þá átt að auka þekk- ingu norsks almennings á Glitn- isnafninu. Það er mjög spennandi og krefjandi verkefni að gera það sama og tekist hefur í Reykjavík- urmaraþoninu, að búa til vettvang fyrir fjársöfnun fyrir líknar- og góð- gerðarfélög og ná upp almennri þátt- töku þar sem fjölskyldan skemmtir sér saman,“ segir Bjarni. Hann bætir við að Óslóarm- araþonið hafi af einhverjum ástæðum setið eftir miðað við önnur sambæri- leg maraþonhlaup í höfuðborgum Norðurlandanna. „Þannig að við sjáum þetta sem mikið og skemmti- legt verkefni,“ segir hann. „Hlaupið er 1. október næstkomandi þannig að það er í sjálfu sér ekki mjög langur tími til stefnu en við erum með þriggja ára samning og við höldum að það sé sá tími sem tekur að byggja þetta upp af festu og þunga.“ Bjarni hyggst sjálfur hlaupa heilt maraþon í Ósló og þar með endurtaka leikinn frá því í Reykjavíkurmara- þoninu. Hann segist ekki vera viss um að ná betri tíma en hann gerði hér. „En ég hef vonandi jafngaman af því að taka þátt,“ segir hann. Glitnir styrkir Óslóarmaraþonið „Spennandi og krefjandi verkefni“ Undirritun Ola Bustad, framkvæmdastjóri Glitnismaraþonsins, Bjarni Ármannsson og Grete Weitz, fv. heims- og ólympíumeistari í maraþoni. Eftir Árna Helgason arnihelgason@mbl.is SKAÐABÓTAMÁLI Reykjavík- urborgar vegna Strætó bs. gegn stóru olíufélögunum þremur vegna ólögmæts samráðs við tilboðsgerð í viðskipti við borgina árið 1996, var frestað til 18. september í gær þeg- ar málið var tekið fyrir í Héraðs- dómi Reykjavíkur. Að ósk lög- manna borgarinnar og stefndu, Kers, Olíuverslunar Íslands og Skeljungs, var málinu frestað til gagnaöflunar. Við næstu fyrirtöku málsins má búast við að ákveðin verði dagsetning fyrir aðalmeðferð málsins en einnig er ekki ósennilegt að málið frestist frekar, m.a. ef ósk- að verður dómkvadds mats í málinu. Skaðabótakrafa Reykjavíkur- borgar á hendur stefndu nemur lið- lega 150 milljónum króna auk drátt- arvaxta og innheimtukostnaðar. Máli gegn olíufé- lögunum frestað

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.