Morgunblaðið - 29.08.2006, Qupperneq 10

Morgunblaðið - 29.08.2006, Qupperneq 10
10 ÞRIÐJUDAGUR 29. ÁGÚST 2006 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Eiturlyfjafíkn læknast ekki með þvíað mönnum sé stungið í fangelsi ogsamböndin við fíkniefnasala gleym-ast ekki heldur. Vilji fangar á Litla-Hrauni nálgast fíkniefni hafa þeir ýmis ráð og ef þeir geta ekki sjálfir útvegað efnin geta þeir keypt af öðrum föngum. Mörgum þykir skjóta skökku við að ekki sé hægt að koma í veg fyrir fíkniefnasmygl, hvað þá um- talsvert smygl, inn á Litla-Hraun, eina örygg- isfangelsi landsins. Á móti er bent á að ekkert fangelsi í heiminum sé fíkniefnalaust. Handtaka fangavarðar á Litla-Hrauni á laugardagsmorgun hefur vakið mikla athygli. Kristján Stefánsson, forstöðumaður Litla- Hrauns, segir að umræddur starfsmaður hafi staðist allar kröfur sem kveðið sé á um í reglugerð um fangaverði en samkvæmt henni verða þeir m.a. að vera á aldrinum 20–40 ára og með hreint sakarvottorð. Árlega eru ráðnir 14 afleysingafangaverðir á Litla-Hraun og segir Kristján að allir fari þeir í ítarleg viðtöl. „En það er aldrei hægt að útiloka að skemmt epli læðist með,“ bætir hann við. Spurður hvort hægt væri að koma í veg fyr- ir fíkniefnasmygl og til hvaða aðgerða þyrfti þá að grípa nefnir Kristján fyrst fyrirkomulag heimsókna til fanga. „Það er rétt að benda á að fyrirkomulag heimsókna á Litla-Hrauni er með dálítið öðrum hætti en tíðkast [í örygg- isfangelsum] erlendis. Í öðrum löndum er ekki gefið mál að fangar fái einkaheimsóknir á bak við luktar dyr sem vara í 3½ klukkutíma en hérna er þetta svoleiðis. Það sem þyrfti að vera til staðar er heimsóknaraðstaða þar sem hægt væri að hafa eftirlit með því hvað fer fram, eins og tíðkast víða annars staðar,“ seg- ir hann. Á Englandi og víðar færu heimsóknir t.a.m. fram undir eftirliti fangavarða og fang- ar og gestir þeirra sætu við borð. Ef fangar yrðu uppvísir að neyslu fíkniefna væri hægt að láta heimsóknir fara fram með þessum hætti í einhvern tíma. Aðrir fangar fengju heimsóknir með venjulegum hætti. Samkvæmt lögum eiga fangar rétt á heim- sóknum eigi sjaldnar en vikulega en hægt er að setja takmarkanir á þeim ef tilefni er til, s.s. með því að banna heimsóknir frá til- teknum mönnum eða láta heimsóknirnar fara fram undir eftirliti. Kristján segir að nú sé aldrei lagt bann við heimsóknum heldur séu þær skilyrtar. Vill hund og gegnumlýsingartæki Kristján telur að efla þurfi þau úrræði sem þegar séu fyrir hendi til að verjast smygli. Það væri til mikilla bóta ef að fíkniefnaleit- arhundur væri að staðaldri staðsettur í fang- elsinu og að keypt væri gegnumlýsingartæki til að hægt væri að leita í munum sem gestir tækju með sér og í sendingum til fanga. Nú er staðan sú að fangelsið getur kallað eftir fíkni- efnaleitarhundi til starfa í tiltekinn dagafjölda sem Kristján vill ekki gefa upp hver er. Ekk- ert gegnumlýsingartæki er í fangelsinu heldur er leitað lauslega í þeim munum sem gestir taka með sér og í ytri klæðnaði nema sérstök ástæða sé til annars, að sögn Kristjáns. Að- spurður um hvar þessi mál séu á vegi stödd í kerfinu segir Kristján að vonir standi til að fíkniefnahundur verði í framtíðinni staðsettur í fangelsinu, þó óvíst sé hvenær af því geti orðið. Rætt hafi verið um kaup á gegnumlýs- ingartæki í nokkurn tíma en ekkert sé heldur fast í hendi í þeim efnum. Hjá Fangelsismálastofnun fengust þær upplýsingar að þessi mál, eins og fleiri sem lúta að úrbótum í kerfinu, væru til skoðunar. Kostnaður við gegnumlýsingartæki hleypur á nokkrum milljónum og kostnaður við fíkni- efnaleitarhund nemur einhverjum milljónum, með þjálfun, aðstöðu o.fl. „Svo er hin gamla og nýja umræða um með- ferðarúrræði. Það er nú búið að tala um það árum saman að leiðin til að koma í veg fyrir fíkniefnaneyslu sé að bjóða upp á meðferð í fangelsum,“ segir Kristján og bendir á að engin aðstaða sé til að bjóða upp á langtíma- meðferð gegn eiturlyfja- eða áfengisfíkn. Áfengisneysla er reyndar ekki vandamál í fangelsinu enda er mun erfiðara að smygla því inn en fíkniefnum. Kristján segir að til þess að meðferð gæti borið árangur yrði að vera tryggt að fíklarnir gætu ekki komist í fíkni- efni, það yrði að vera til staðar fíkniefnalaus deild eða gangur. Núverandi fangelsisbygging stæðist ekki þá kröfu því alltaf væri einhver samgangur milli fanga, s.s. í vinnu, íþróttasal eða úti við. Það gerði mönnum enn erfiðara fyrir að fangelsið hefði verið fullt í mörg ár og því ekkert svigrúm til að halda föngunum að- skildum. Benda má á að gert er ráð fyrir afeitrunar- og meðferðardeild í fangelsinu sem á að rísa á Hólmsheiði. Eins á allri jarðskorpunni Erlendur S. Baldursson afbrotafræðingur og deildarstjóri Fangelsismálastofnunar, seg- ir að ekki sé til það fangelsi í heiminum sem sé laust við fíkniefni. „Þetta er viðvarandi vandamál í öllum fangelsum, hvar svo sem þau eru á jarðskorpunni,“ segir hann. Um helmingur fanga á Litla-Hrauni sitji inni vegna fíkniefnabrota og margir fíklar afpláni dóma fyrir önnur brot. Mikil kunnátta og sambönd við fíkniefnasala séu því til staðar í fangelsinu og líkt og annars staðar í samfélag- inu sé eftirspurn fyrir hendi. „Það verður því alltaf dálítið snúið að eiga við þetta,“ segir hann. Aðspurður hvort reglur um heimsóknir til fanga hér á landi séu rýmri en í öðrum lönd- um, t.d. varðandi lengd heimsóknartíma, bendir Erlendur á að ef koma eigi í veg fyrir smygltilraunir skipti ekki máli hversu langan tíma fangi og gestur séu eftirlitslausir. „Ef menn eru í fangelsum en eiga konu og börn, þá er eitt af markmiðum okkar að þeir eigi samskipti við sína ættingja. Þeir eiga eftir að koma til þeirra aftur og það er heppilegast fyrir alla að þessi bönd rofni ekki. Menn eru dæmdir til refsingar en ekki til að missa öll tengsl,“ segir Erlendur. Hjá fangelsinu fari fram athugun á þeim sem kemur í heimsókn til fangans og oft sé beiðnum um heimsóknir hafnað eða ákveðið að hafa eftirlit með þeim. Það komi ekki til greina að framkvæma lík- amsleit í auknum mæli, hvað þá leit innvortis, þá væri eins víst að viðkomandi gestur myndi ekki láta sjá sig aftur. Ekki megi heldur gleyma því að langfæstir gestanna stundi smygl. Á hinn bóginn geti verið afar erfitt að sjá fyrir hverjir séu líklegir smyglarar, t.a.m. séu dæmi um að foreldrar hafi smyglað fíkni- efnum fyrir börn sín. Refsingar tvíeggjaðar Erlendur bendir á að það séu viðurlög við fíkniefnaneyslu innan fangelsisveggjanna og þvagprufur séu teknar til að ganga úr skugga um hvort fangar séu í neyslu. Hafi þeir tekið inn efni eigi þeir t.d. á hættu að heimsókn- arréttur sé takmarkaður eða sjónvarpið tekið af þeim. Refsingar séu hins vegar tvíeggjaðar. „Ef þú ert að nota fíkniefni í fangelsinu af því að þér líður illa, svo missir þú rétt til heim- sókna og sjónvarpið er tekið af þér, nú þá líð- ur þér enn verr og finnst þú kannski enn frek- ar þurfa að nota fíkniefni,“ segir hann. Kannabisefni mælist í þvagi í 2–3 vikur eftir að þeirra er neytt en kókaín og amfetamín eru mun rokgjarnari – mælast aðeins í um 2 daga – og segir Erlendur að sumir fanganna hafi sagt að þetta hafi frekar hvatt þá til neyslu sterkari efna. Spurður um hvort ekki sé nokkur leið til að stöðva fíkniefnasmygl segir Erlendur að það sé einfaldlega ekki hægt. „Það er hægt að gera ýmislegt til að minnka þetta en það er ekki hægt að stöðva þetta alveg,“ segir hann. Ekki sé heldur þörf á sérstöku átaki á Litla- Hrauni til að koma í veg fyrir smygl enda sé margt gert til að koma í veg fyrir það. Erlendur segir að ástandið sé heldur ekki eins slæmt og margir vilja vera láta. „Menn segja náttúrulega þegar þeir koma út að Litla-Hraun sé fullt af fíkniefnum, það hef ég heyrt í gegnum öll þessi ár. Á sama tíma veit ég að langflestir fangar eru í fínu lagi og eru ekki neinum fíkniefnum,“ segir hann. Það liggi í augum uppi að sumir fanganna ýki fíkniefnaneysluna innan veggja Litla-Hrauns til að réttlæta sína eigin neyslu. »Það eru einkum sex aðferðir sem fangels-ismálayfirvöld telja að hægt sé að beita til að smygla fíkniefnum inn á Litla-Hraun. »Talið er að algengasta aðferðin sé að gest-ir fanganna smygli efnunum inn, stundum innanklæða eða í farangri en mörg dæmi eru um að þeim sé smyglað í leggöngum eða enda- þarmi. Fíkniefnin eru síðan afhent fanganum í lokuðu heimsóknarherbergi sem fangaverðir geta ekki fylgst með. Einnig er dæmi um að fíkniefni hafi verið falin í bleium ungbarns. »Fangar sem fara einhverra erinda út úrfangelsinu, t.d. í dagsleyfi eða í lækn- isskoðun, koma til baka með fíkniefni. Dæmi eru um að fangar hafi fengið menn utan veggja fangelsisins til að fela fíkniefni í jakka- vasa og hengja jakkann upp í biðstofu læknis eða inni á salerni. »Með farartækjum sem ekið er inn á fang-elsislóðina. Bílaþvottastöð er á Litla- Hrauni sem er notuð til að þvo bíla fangels- isins, starfsmanna og fólks sem fangelsisyf- irvöld telja að þau geti treyst. Bílarnir eru yfirfarnir áður en fangarnir fá þá í hendur og verkstjóri stjórnar verkinu. »Fíkniefnum kastað yfir girðinguna. Þettagerðist síðast svo vitað sé í sumar en forstöðumaðurinn telur þetta ekki algenga aðferð enda sé fylgst með öllu svæðinu með myndavélum. »Með starfsmönnum. Eina dæmið sem núverandi forstöðumaður Litla-Hrauns þekkir umslíkt er fangavörðurinn sem var handtekinn á laugardag. »Fíkniefni falin í sendingum til fanga, s.s. tölvum og sjónvörpum sem þeir mega hafa íklefum sínum. Gegnumlýsingartæki gæti komið að góðum notum við eftirlit með þessu. Í HNOTSKURN Morgunblaðið/RAX Til bóta Efla þarf úrræði sem eru fyrir hendi til að verjast smygli á Litla-Hraun, fíkniefnaleitarhundur og gegnumlýsingatæki eru meðal þess sem forstöðumaður Litla-Hrauns telur til bóta. Taka fíknina með sér í fangelsið Morgunblaðið/RAX Refsing Ef fangar verða uppvísir að neyslu fíkniefna í fangelsinu er refsingin m.a. að taka af þeim sjónvarp og heimsóknarrétt. Fréttaskýring | Fíkniefnavandinn er viðvarandi í fangelsum, hvar sem er í heiminum. Um helmingur fanga á Litla-Hrauni sit- ur til að mynda inni vegna afbrota sem tengd eru fíkniefnum og ljóst er að meðan eftirspurn er fyrir hendi innan veggja verður ávallt framboð. Rúnar Pálmason ræddi við forstöðumann Litla-Hrauns og deildarstjóra Fangelsismálastofnunar um ástandið. runarp@mbl.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.